Morgunblaðið - 28.12.1977, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 1977
13
N jósnamál
í Ty rklandi
Ankara, Tyrklandi, 27. des. AP.
HATTSETTUR embættismaður
úr öryggisþjónustu Tyrklands
MIT hefur verið handtekinn og
grunaður um að hafa komið upp-
lýsingum áleiðis til bandarískra
og brezkra útsendara, að því er
tyrknesk blöð skýrðu frá á mánu-
dag. Dagblaðið Hurriyet I Istan-
bul nafngreindi manninn og
sagði hann heita Sabahattin
Savasan, fyrrverandi hershöfð-
ingja, og meðal hæst settu manna
í MIT.
Að sögn blaðsins er Savasan
gefið að sök að hafa komið uppiýs-
ingum áleiðis til CIA um stefnu
Tyrklands í Kýpurmálinu og
stefnu Tyrklands varðandi banda-
rískar herstöðvar í Tyrklandi.
Mörgum herstöðvum Bandaríkja-
manna var lokað í hefndarskyni
fyrir vopnasölubann sem Banda-
ríkjamenn settu á Tyrkland.
Fjölskylda Savasan hefur stað-
fest fregnir um handtöku hans en
af opinberri hálfu hefur ekkert
verið um njósnamál þetta sagt.
V antrauststillaga
á Tyrklandsstjórn
Ankara, 27. des. AP. Reuter.
ÞING Tyrklands ákvað í dag með
miklum meirihluta að taka til
meðferðar á fimmtudag van-
trauststillögu á minnihluta sam-
steypustjórnina og ganga þar með
skrefi nær því að koma Suleyman
Demirel frá völdum.
Lfklegt er talið að vantrauststil-
lagan verði samþykkt, en búist er
einnig við snörpum orðaskiptum
um hana í umræðunum sem hefj-
ast á fimmtudag.
Vantrauststillagan sem komin
er frá Þjóðveldisflokknum gagn-
rýnir stjórn Demirels fyrir að
vera óstaðföst, sundruð og
óábyrg.
Var tillagan borin upp er
stjórnin hafði tapað meirihluta
sínum i neðri deild þings Tyrk-
lands, en margir þingmenn Rétt-
lætisflokksins, flokks Demirels,
hafa sagt sig úr flokknum að
undanförnu. Er valdajafnvægið í
deildinni nú i höndum 14 sjálf-
stæðra þingmanna, en 11 þeirra
hafa nýverið sagt sig úr flokki
Demirels.
1 umræðum sem urðu er tillag-
an var borin upp sagði Suleyman
Demirel að ekkert nýtt kæmi
fram i henni og tillagan sýndi
bezt sjálf fram á hversu óábyrgur
Þjóðveldisflokkurinn og stjórnar-
andstaðan væri. Sagði hann og að
stjórnarandstaðan hafði engar
áætlanir um lausn þess efnahags-
vanda sem nú steðjar að landinu.
■ ■■ ’
ERLENT,
Sagði Demirel að spurningin sem
skipti máli væri ekki hvort stjórn
hans færi frá, heldur hvað tæki
við af henni. Sagði hann efna-
hagsvandræðin ekki leyst
eingöngu með þvi að skipta um
stjórn eða með „lýðæsingi".
Howard
Hawks
er látinn
Hollywood, 27. des. AP.
HOWARD Hawks kvikmynda-
leikstjóri, sem gat sér mikla
frægð fyrir ýmsar mynda sinna,
lézt I Hollywood á mánudags-
kvöld 81 árs að aidri. Meðal
mynda hans var „To have and
have not“, Red River og fjöldi
annarra.
Hawks gat sér orð i Hollywood
fyrir um það bil hálfri öld með
handritinu að „Tiger Love“ en
síðan snéri hann sér einkum að
kvikmyndastjórn. Hann varð sér-
staklega þekktur fyrir stjórn á
ýmsum kaldranalegum myndum,
þar sem hörkuleg karlmenni á
borð við John Wayne, Humphrey
Bogart og Kirk Douglas léku aðal-
hlútverk. En hann sýndi síðar á
sér nýjar hliðar og kimilegri, m.a.
með myndunum „Bringing up
baby“ með Cary Grant og
Katharine Hepburn og enn síðar
með mynd Marilyn Monroe
„Gentlemen prefer Blondes". Sið-
asta myndin sem Hawks stjórnaði
var „Rio Lobo“ gerð árið 1970,
með John Wayne i aðalhlutverki.
Þetta gerðist
AP, 28. dcsember.
1976 Hua Kuo-Feng formaður
kommúnistaflokks Kína sagði
aðalviðfangsefnið 1977 vera að
„hrista upp“ í flokknum og
skipan sveitarstjórna.
1975 Tilraunir til að bjarga 372
innilokuðum nánamönnum i
Norðaustur-Indlandi mistókust.
Allir hinna innilokuðu létu líf-
ið.
1974 Vinstrisinnaðir hryðju-
verkamenn í Nicaragua rudd-
ust inn i veizlu sem haldin var
til heiðurs sendiherra Banda-
ríkjanna i Managua. Drápu
hryðjuverkamennirnir þrjá
verði og tóku í gíslingu nokkra
háttsetta Nicaragua-menn.
1973 Geimafararnir í banda-
rísku geimvisindastöðinni Sky-
lab ljúka fyrri hluta 84 daga
dvalar sinnar í geimnum.
1972 Fjörir arabískir hryðju-
verkamenn halda 6 mönnum í
gislingu i 19 klukkustundir i
sendiráði ísraels i Bankok á
Thailandi, en flýja siðan til
Kairo er þeir höfðu sleppt gísl-
unum.
1971 Bandarikjamenn láta
fleiri sprengjum rigna yfir
Norður-Vietnam en þeir hafa
gert í einni árás í þrjú ár.
1970 Herdómstóll á Spáni dæm-
ir sex Baska til dauða.
1968 ísraelskir hermenn ráðast
inn á flugvöll í Beirút og eyði-
leggja þar 13 flugvélar.
1950 Kínverskar hersveitir fara
yfir 38 lengdargráðu í Kóreu.
1948 Nokrashy Pasha, forseti
Egyptalands, er myrtur.
1942 Japanskar flugvélar
sprengja borgina Kalkutta á
Indlandi i loft upp i heimsstyrj-
öldinni siðari.
1908 Jarðskjálfti veldur mikl-
um skaða i Suður-Kalabriu á
Italiu og Sikiley.
1836 Spánn viðurkennir sjálf-
stæði Mexikó.
1694 Maria II Englandsdrottn-
ing lézt.
ugeldum
fráokkur
Flugeldar - blys - gos - sólir - stjörnuljós
SKIPARAKETTUR - SKIPABLYS - TIVOLÍBOMBUR
OG INNIBOMBUR MEÐ LEIKFÖNGUM OG SPÁDÓMUM
REYKJAVÍK:
ÚTSÖLUSTAÐIR:
KÓPAVOGUR:
Skátabúöin, Snorrabraut
Volvosalurinn, Suðurlandsbraut
Fordhúsið, Skeifunni
Alaska, Breiðholti
Við Straumnes, Breiðholti
Seglagerðin Ægir, Grandagarði
Hagabúðin, Hjarðarhaga.
Við Kjötmiðstöðina, Laugalæk
Við Hreyfilsstaurinn, Árbæjarhverfi
Tryggvagata, gegnt Tollstöðinni
Nýbýlavegi 2
Skeifunni, Smiðjuvegi
Skátaheimilinu Borgarholtsbraut
Leikskólanum v/ Vörðufell
SUÐURNES:
Skátaheimilinu Njarðvík
Kjörbúð Kaupfélagsins Njarðvík
Saltfiskverkun Rafns HF. Sandgerði
Vogabær Vogum
GARÐABÆR:
íþróttahúsið v/Blómabúðina Fjólu
AKUREYRI:
Ferðaskrifstofunni v/ Geislagötu
Skipagötu 12
Söluskúr v/ Hrísalund
Söluskúr v/Höfðahlíð
ÍSAFJÖRÐUR
VESTMANNAEYJAR:
Kaupfélagshúsinu Hólagötu 28
Skólaveg 4
Reyni v/ Bárugötu
HVERAGERÐI:
Hjálparsveitarhúsinu
BLÖNDUÓS:
Skátaheimilinu Hjálparsveit skáta Blönduósi
smsíf Fjölskyldupakkarnir eru 10% ódýrari - Þeir kosta 2500 kr. -
IK»T» MHM 4000 kr. og 6000 kr.. í hverjum fjölskyldupakka er leiðarvísir
um meðferð skotelda - inn í 10 slíka leiðarvísa höfum við
sett 20 þúsund króna ávísanir. Það borgar sig að gæta vel að
leiðarvísinum, hann færir öllum aukið öryggi - og 10 manns
tmsm þar að auki 20 þúsund krónur.
OPIÐ TIL KL. 10 Á HVERJU KVÖLDI
'j+l Flugeldamarkaöir
jáö Hjálparsveita skáta
Géí B Bjórnsson I