Morgunblaðið - 28.12.1977, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 1977
15
bandarlkjadollara eða jafnvirði
þess í annarri mynt án þess að
innstæðueigandi geri sérstak-
lega grein fyrir notkun fjárins,
enda fari úttekin fjárhæð sam-
tals ekki umfram 5000 dollara á
hverju almanaksári. Hyggist
innstæðueigandi taka út hærri
fjárhæð en að ofan greinir skal
hann gera gjaldeyrisdeild
bankans skriflega grein fyrir
notkun fjárins. Gjaldeyrisdeild
tilkynni gjaldeyriseftirliti
Seðlabankans um reiknings-
númer og eigendur þeirra
reikninga, sem tekið er út af
meira en 5000 dollarar á ári f
gjaldeyri.
Fé af innlendum gjaldeyris-
reikningi er eiganda heimilt að
nota án takmarkana til þess að
greiða fyrir hvers konar inn-
flutta vöru, sem frjálst er að
flytja til landsins. Skal reikn-
ingseigandi leggja fram inn-
flutningsskjöl, áður en greitt er
út af gjaldeyrisreikningi og
áritar bankinn skjölin svo að
tollafgreiðsla geti farið fram.
Fyrirframgreiðslur umfram
ofangreinda fjárhæð skulu til-
kynntar gjaldeyriseftirlitinu.
Einnig er heimilt að nota fé
Bráðabirgðareglur
um innlenda
gi aldeyrisreikninga
Seðlabankinn hefur gefið út
bráðabirgðareglur um inn-
lenda gjaldeyrisreikninga. Hér
fara reglurnar I heild:
Heimildir til stofn-
unar reiknings
Þeim aðilum, sem eiga eða
eignast erlendan gjaldeyri, sem
undanþeginn er söluskyldu til
gjaldeyrisbanka samkvæmt 1.
gr. reglugerðar nr. 418 frá 30.
nóvember 1977 um breyting á
reglugerð nr. 79, 27. maí 1960,
um skipan gjaldeyris- og inn-
flutningsmála o.fl., er heimilt
að leggja hann inn á reikning f
erlendum gjaldeyri f Lands-
banka Islands og Utvegsbanka
lslands og útibúum þeirra.
Undanþegnir söluskyldu á
gjaldeyri eru þeir, sem eiga eða
eignast hann fyrir annað en
vöruútflutning, endurgreiðslur
fyrir innfluttar vörur, þjónustu
við og afgreiðslu erlendra
skipa, flugvéla og ferðamanna,
opinbera þjónustu og fyrir við-
skipti við varnarliðið sbr.
ákvæði greindrar reglugerðar.
Heimild tii stofnunar inn-
lends gjaldeyrisreiknings hafa
því allir aðrir en taldir eru hér
að ofan svo sem þeir sem eiga
erlend vinnulaun og þóknanir,
þeir sem eiga afgang af áhafna-
og ferðagjaldeyri, þeir sem
taka arf erlendis frá eða þeir
sem flytja með sér fé við
búferlaflutning til landsins. Þá
er eigendum flutningatækja f
millilandaflutningum, eigend-
um fyrirtækja erlendis, svo og
vátryggingarfélögum f erlend-
um viðskiptum, heimilt að
leggja tekjur í gjaldeyri á þessa
reikninga, sem nota má til
greiðslu á tilteknum útgjöldum
f gjaldeyri. Ennfremur er heim-
ilt að leggja inn á gjaldeyris-
reikninga umboðslaunatekjur
erlendis frá, sem nota má til
innflutnings á frílistavörum.
Stofnun reiknings
Eigandi innlends gjaldeyris-
reiknings skal vera eihstakling-
ur, skráð félag eða fyrirtæki,
opinber stofnun eða stofnun
cða félag undir opinberu eftir-
liti, og skal reikningur ætfð
skráður á nafn eiganda.
Utfyllt skal til þess gert um-
sóknareyðublað, þar sem fram
komi nafn reikningseigenda
ásamt heimilisfangi og nafn-
eða fyrirtækisnúmeri. Þegar
stofna skal innlendan gjald-
eyrisreikning fyrir barn eða
ungling innan 16 ára aldurs
skal umsóknin jafnframt bera
með sér nafn, heimilisfang og
nafnnúmer foreldris eða fjár-
haldsmanns hans.
Innlánsstofnun gefur út
stofnskfrteini, sem staðfestingu
fyrir opnun innlends gjald-
eyrisreiknings. A stofnskírteini
komi fram reikningsnúmer,
reikningsgjaldmiðill, nauðsyn-
legar upplýsingar um reikn-
ingseiganda ásamt sérreglum,
sem gilda um slfka reikninga.
Gjaldeyrisreikningar skulu
færðir f bandarikjadollurum,
sterlingspundum, vestur-
þýskum mörkum eða dönskum
krónum.
Við opnun reiknings lætur
reikningseigandi eða foreldri
hans eða fjárhaldsmaður, sé
reikningseigandi yngri en 16
ára, innlánsstofnuninni í té rit-
handarsýnishorn sitt, til þess að
nota við samanburð við af-
greiðslur er varða reikninginn.
Innborganir
Við innborganir á reikninga,
sem fram fara f afgreiðslusal,
skal nota til þess gerð eyðublöð,
hliðstæð þeim, sem notuð eru
við innborganir á tékkareikn-
inga og vaxtaaukareikninga.
Bréflegar innborganir og inn-
borganir með bankamillifærsl-
um eru einnig heimilar. Banki
tilkynni reikningseiganda sér-
staklega um innborganir frá
þriðja aðila og um millifærslur
inn á reikninginn. Innborganir
með ávfsunum á erlenda banka
taka vexti fjórtán dögum eftir
að inn er lagt.
Oski reikningseigandi að
leggja inn gjaldmiðil, sem
bankinn verslar með, annan en
reikningsgjaldmiðilinn, skiptir
bankinn á honum og þeim
reikningsgjaldmiðli, sem við-
skiptamaður óskar, miðað við
kaupgengi þess gjaldmiðils,
sem keyptur er og miðgengi
reikningsgjaldmiðilsins.
tJtborganir
Útborganir geta aðeins átt
sér stað samkvæmt skriflegum
fyrirmælum reikningseiganda,
sem að jafnaði skuli vera á þar
til gerðum eyðublöðum.
Gjaldeyrisdeildir bankanna
afgreiða útborganir allt að 2500
af innlendum gjaldeyrisreikn-
ingi án takmarkana til þess að
greiða fyrir hvers konar
erlenda þjónustu, þar með tal-
inn ferða- og dvalarkostnað
erlendis, enda geri reiknings-
eigandi gjaldeyrisdeildum
bankanna fullnægjandi skrif-
lega grein fyrir tilefni og mót-
takanda greiðslunnar sé hún
umfram ofangreinda f járhæð.
Eignafærslur til útlanda af
innlendum gjaldeyrisreikningi
umfram 2500 bandaríkjadoll-
ara eða jafnvirði þess f annarri
mynt eru háðar takmörkunum
og fjallar Gjaldeyrisdeild bank-
anna um allar umsóknir um
hærri fjárhæðir. Veitir hún
heimildir til greiðslu á hærri
fjárhæðum í gjaldeyri en að
framan greinir út af reikning-
um vegna arfs, búferlaflutn-
ings, langdvalar erlendis og
annarra eðlilegra þarfa hins al-
menna borgara samkvæmt nán-
ari starfsreglum, sem settar
verða.
Þrátt fyrir ofangreind al-
menn ákvæði um ráðstöfun inn-
stæðufjár á innlendum gjald-
eyrisreikningum skulu eigend-
ur fslenskra flutningatækja f
millilandaflutningum, þeir sem
reka fyrirtæki erlendis, inn-
lend vátryggingarfélög, sem
endurtryggja erlendis og þeir,
sem fá umboðslaun frá erlend-
um aðilum, fara eftir sérákvæð-
um reglugerðar nr. 418/1977 og
giidandi reglum um takmark-
anir á gjaldeyrisyfirfærslum
við ráðstöfun fjár út af innlend-
um gjaldeyrisreikningum, sem
þeir eiga.
Yfirfærsla af innlendum
gjaldeyrisreikningi í fslenskar
krónur er frjáls hvenær sem er,
og skal farið með hana sem
venjuleg gjaldeyriskaup.
Við útborganir skal innláns-
stofnun gæta nauðsynlegra var-
úðarreglna, og þar á meðal skal
undirskrift borin saman við rit-
handarsýnishorn f vörslu stofn-
unar og úttektarfylgiskjal skal
áritað af til þess bærum starfs-
manni, áður en útborgun fer
fram.
Utborgun skal að jafnaði fara
fram með bankamillifærslu eða
bankaávisun á nafn hins
erlenda móttakanda greiðsl-
unnar og með ferðaávfsunum á
nafn reikningseiganda, maka
hans eða barna. Utborgun f
erlendum bankaseðlum og
Framhald á bls. 21.
Dr. Sturta FriSriksson afhendir Steindóri Steindórssyni heiðursverölaun
verölaunasjóös Ásu Guömundsdóttur Wright Ljósm. Rax.
Steindór Steindórsson hlýtur
vidurkenningu úr Verðlauna-
sjóði Ásu Guðmundsd. Wright
STEINDÓRI Steindórssyni fyrrum
skólameistara á Akureyri voru I gær
veitt heiðursverðlaun úr Verðlauna-
sjóði Ásu Guðmundsdóttur Wríght,
en sjóðurinn veitir á ári hverju viður-
kenningu vísindamanni er unnið
hefur afrek I þágu landsins á ein-
hvem hátt.
Dr. Sturla Friðriksson afhenti viður-
kenninguna og gerði hann I ræðu
grein fyrir tilurð sjóðsins, en hún er sú
að á 50 ára afmæli Visindafélags ís-
lands ákvað Ása Guðmundsdóttir
Wright að afhenda félaginu fjárupp-
hæð er nota skyldi til að stofna verð-
launasjóð og var gjöf þessi til minning-
ar um eiginmann hennar og venzlafólk.
í stjórn sjóðsins nú eru dr. Kristján
Eldjárn, dr. Jóhannes Nordal og dr
Sturla Friðriksson.
Dr. Sturla Friðriksson sagði að sjóðs-
stjórnin hefði ákveðið að veita Stein-
dóri Steindórssyni heiðursverðlaunin
að þessu sinni fyrir þátt hans í rann-
sóknum á gróðri landsins, sem hann
sagði að væru á mörgum sviðum al-
gjört brautryðjendastarf. Rakti hann
námsferil og helztu störf Steindórs en
hann hefur samhliða kennslu og síðar
skólameistarastarfi á Akureyri unnið að
margvislegum rannsóknum á gróður-
fari landsins Hefur hann ritað bækur
um það efni m.a Gróður á íslandi
sem Sturla sagði að væri grundvöllur
að gróðursögu landsins og undanfari
vistfræðirannsókna. Steindór Stein-
dórsson hefur einnig verið ritstjóri
blaðsins Heima er bezt, þýtt bækur,
m a. ferðabækur Eggerts og Bjarna og
Olavs Olaviusar o.fl.
Við athöfn i Norræna húsinu í gær
voru Steindóri Steindórssyni afhent
heiðursverðlaunin en þau eru 250
Framhald á bls. 18
Bilsby Skurvogne A-S
IndustribakkuiT 1. Sengelöse. 2630 Taastrup.
Danmark. Talsimi 09 -02-99 47 08
Starfsfólksvannar. skrifstofuvaKnar.
ibúóarva^nar. geymsluvaKnar. hreinlætisvaunar.
(i‘*(VfúsU»Ka biéjið um upplvsin^apésa._
(
D0DGE ASPERN 1978
Eigum til afgreiðslu fáeina DODGE ASPEN 1978 2ja og
4ra dyra, Bilarnir eru m.a sjálfskiptir, með vökvastýri,
lituðu gleri og deluxe frágangi Tryggið ykkur glæsilegan
lúxusbíl fyrir áramót
Einnig nokkra CHRYSLER SIMCA 1307 og 1508 árg
1978. CHRYSLER SIMCA er einn vinsælasti fólksbíllinn
hér á landi, enda er þetta bíllinn sem varð i fyrsta sæti i
rally-keppninni i haust. Tryggið ykkur bíl úr sendingunnL
sem var að koma
Vökull hf.
ÁRMULA 36 REYKJAVÍK Simi 84366