Morgunblaðið - 28.12.1977, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 1977
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 1977
17
fNmgtmÞIðtolfr
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
R itst jórnarf u lltrúi
Fréttastjóri
Auglýsingastjóri
Ritstjórn og afgreiSsla
Auglýsingar
Áskriftargjald 1 500.00
j lausasölu 80
hf. Árvakur, Reykjavik.
Haraldur Sveinsson.
Matthias Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson.
Björn Jóhannsson.
Ámi Garðar Kristinsson.
Aðalstræti 6, sími 10100.
ASalstræti 6. simi 22480.
kr. á mánuði innanlands.
00 kr. eintakið.
V erdbólgu-
nefndin
yiröum fyrir okkur tvær tölulegar stadreyndir, sem blasa viö
sjónum, einfaldar og auöskildar. Þjóöhagsstofnun segir annars
vegar að laun í landinu hafi haíkkað á árinu um 60%, í krónum taiiö,
en hins vegar, aö kaupmáltur launanna hafi hækkaö um 8%. Við vitum
öll aö hvor (veggja lalan er nærri lagi, því báöar koma heim og saman
við áþreifanlegar staöreyndir launaumslags og útgjalda okkar. Þetta
sýnir okkur, svo gliigglega að ekki veröur um villst, aö krónutala og
kaupmáttur launa eiga ekki samleiö nema hvort tveggja eigi rætur í
aukinni þjóöarframleióslu eða auknum þjóóartekjum. Ávísun í
hækkuðum kauptöxtum, sem ekki er innstæóa fyrir í auknum þjóöar-
tekjum, kemur einfaldlega fram f smærri krónum aö kaupgildi. Þessa
einföldu staðreynd, sem öllum er auðskilin, má hins vegar klæöa í
búning oröskrúðs og málalenginga, þann veg aö hún villi á sér
heimildir og fari fram hjá sjónum og skilningi manna.
Framleiðsla í landinu, sem fer á innanlandsmarkað, sem og hvers
konar innlend þjónusta, hækkar í verðlagi sem svarar kaupgjaldsþró-
un, ef ekki eru forsendur fyrir hendi til aö bera kauphækkanir meö
öörum hætti. Þær verðhækkanir innlendra vara og þjónustu, sem þann
veg eru til orðnar, rýra aftur kaupmátt launanna til samræmis við
rekstrarstaðreyndir viökomandi atvinnugreina. Ööru máli gegnir með
útflutningsframleióslugreinar, sem háöar eru markaðs- og verólags-
þröun erlendis. Þær geta ekki velt hækkuöum rekstrarkostnaói út í
verðlagió. Rekstrarkostnaður umfram söluandvirði framleiðslu hiýtur
því að koma fram í taprekstri. Hækkað fiskverð og hækkað kaupgjald í
frystiiðnaði stefnir því, með öðrum hækkunum rekstrarliða, í 5000
milljóna króna rekstrartap á komandi ári, samkvæmt úttekt á rekstrar-
stöðu fiskiðnaðarins í Iandinu svo dæmi sé tekið af einni útflutnings-
atvinnugrein. Þannig getur innlend verðbólga stefnt útflutningsfram-
leiðslu og atvinnuöryggi í landinu í tvísýnu, svo ekki sé meira sagt, ef
verðbólguhömlur haida ekki á komandi mánuðum og misserum.
Samdráttur eða stöðvun í útflutningsgreinum segir fljótlega til sín á
öllum sviðum þjóðarbúskaparins, ef til hans kemur, sem vonandi
verður ekki.
Ríkisstjörnin hefur náð mikilvægum áföngum á sviði ríkisfjármála,
sem voru nauðsynlegar forsendur frekari árangurs í baráttu við
verðbólguna og vanda efnahagslífsins. 1 fyrsta lagi hefur tekizt að ná
hallalausum ríkisbúskap og að lækka hlutfall ríkisútgjalda af þjöðar-
tekjum. I öðru lagi hefur tekizt að lækka verulega viðskiptahalla
þjóðarinnar út á við. Að því er stefnt með nýjum fjárlögum og
lánsfjáráætlun, að halda hallalausum ríkisbúskap, að lækka enn
óhagstæðan viöskiptajöfnuð út á við og stöðva skuldasöfnun þjóðarinn-
ar erlendis umfram bætta gjaldeyrisstöðu. Þessum markmiðum var
ekki hægt að ná, með tvöföldun launakosfnaöar ríkisins á komandi ári,
miðað við fjárlög líðandi árs, nema með verulegum samdrætti I
ríkisframkvæmdum, aðhaldi I ríkisrekstri, nokkurri hækkun á skatt-
heimtu og verðtryggðum skyldusparnaði á hærri laun. Matthías Á
Mathiesen, fjármálaráöherra, sagði við lok fjárlagaumræðna á AI-
þingi, að samdráttur I opinberum framkvæmdum á árinu 1978 yrði
9%, miðaó við líðandi ár, en hins vegar myndi aukinn kaupmáttur
leiða til u.þ.b. 6% aukningar á einkaneyzlu.
Segja má að afgreiðsla fjárlaga og lánsfjáráætlunar hafi á sinn hátt
skapað bættar forsendur til að takast á við vanda verðbólgu og
efnahagsmála. Þær forsendur verða þó því aðeins nýttar að samstaða
náist I þjóðfélaginu um langtímaaðgerðir, til að hamia gegn verðbölgu
og skapa jafnvægi I efnahags- og atvinnulífi þjóðarinnar. Þar duga
ekki til einhliða ákvarðanir ríkisvaldsins, heldur þarf jafnframt til að
koma samstaða þeirra þjóðfélagsafla, sem haft geta afgerandi áhrif á
framvindu mála.
Sérstök verðbólgunefnd, skipuð fulltrúum allra þingflokka og aðila
vinnumarkaðar, starfar áfram I þinghléi og er ætlað að skila áliti I
febrúarmánuði nk. Augu alþjóðar beinast nú að þessari nefnd, bæði
vegna þess hvern veg hún er skipuð og hvert starfssvið hennar er. Það
ríður á miklu að þessi nefnd gefifordæmi um samstöðu og vinnubrögð,
þar sem heildarhagsmunir mega sfn meira en þröng flokks- eða
stéttasjónarmið. Sjaldan — ef nokkru sinni — I þjóðarsögunni hafa
jafn fáir menn haft jafn afgerandi tækifæri til að láta jafn mikið af
sér leiða I þágu þjóðarvelferðar og þeir, er skipa þessa nefnd, er
dregur nafn af stærsta vandamáli þjóðarinnar I dag.
Chaplin
Chaplin var vafalaust frægasti listamaður I heimi og e.t.v.
frægastur allra samtíðarmanna. Varla er nokkur svo ungur, að
hann hafi ekki heyrt nafns hans getið, né svo IIIa settur I lífsbarátt-
unni, að hann hafi ekki einhvern tíma haft tækifæri til að hryggjast og
gleðjast með þessum þekktasta trúð heimssögunnar. Hann var meist-
ari þöglu kvikmyndanna og átti öðrum fremur þátt I að sýna mönnum
og sanna hvílíkum möguleikum kvikmyndin bjö yfir, ekki sízt I
sambandi við listsköpun. Hann er því einstæður brautryðjandi og
övenjulegur listamaður, kannski frægasti listamaður I sögunni. Og
það sem meira er: Chaplin á áreiðanlega eftir að lifa I framtíðinni I
beztu myndum sínum. Hann er skemmtilegasta harmsagnapersóna
sögunnar og I honum speglast þær tvær meginandstæður, sem eru
forsendur lífs okkar allra: gleði og harmur. Enginn hefur komið I hans
stað. Og enginn mun leika hlutverk Chaplins I mannlífinu, að honum
látnum.
Hann hefur jafnvel orðið að goðsögn.
Charles Spencer Chaplin 1889-1977:
Þessi mynd prýðir eitt af kortum þeim, sem Loftur Guðmundsson fékk frá Chaplin-fjölskyldunni.
Myndin er tekin á áttræðisafniæli Charlie Chaplins.
Hversdagsmaðurinn Charlie
Chaplin ekki síður merkilegur
LOFTUR Guðmundsson rit-
höfundur mun einn af fáum
tslendingum, ef ekki sá eini,
sem hafði náin kynni af
Chaplin-fjölskyldunni.
Morgunblaðið innti hann eftir
þessum kynnum og fer svar
hans hér á eftir:
Kynni mín af Chaplin-
fjölskyldunni urðu fyrir
hendingu suður á írlandi fyrir
einum fjórtán árum, en hafa
enst allar götur síðan fyrir
stöðug bréfaskipti og önnur
samskipti. Hinum mikla Iista-
snillingi, Charlie Chaplin, hef
ég ekki kynnst á annan hátt en
þær milljónir manna sem nú
kveðja hann með söknuði, en
hversdagsmaðurinn Charlie
Chaplin var ekki síður merki-
legur.
Loftur Guðmunds-
son segir frá kynn-
um sínum við
Chaplin-fjölskylduna
Einhverntíma var undirbúið
að ég ætti viðtal við hann fyrir
Morgunblaðið, en það dróst úr
hömlu, og var það mín sök. Svo
var það um seinan fyrir nokkr-
um árum siðan, þvi að Sir
Chaplin var útbrunnið skar,
sem naut ástúðlegrar um-
hyggju konu sinnar, Lady
Oonu, dóttur nóbelsverðlauna-
skáldsins, Eugen O’Neil. Hún
var áratugum yngri en hann og
fjórða eiginkona hans. Það kom
í hennar hlut að létta honum
byrðarnar þau ár, sem hann átti
erfiðast á ævinni, og það gerði
hún og æ síðan með slíkri ástúð
og reisn, sem einungis mikil-
hæfustu konum er gefið.
Charlie Chaplin var fyrsti
snillingur hins nýja listforms,
kvikmyndarinnar, og tvimæla-
laust enn sámesti snillingur,
sem valið hefur sér það tjáning-
arform. Hann átti við örbirgð
að búa í æsku, og öll listsköpun
hans var bein eða óbein máls-
vörn fyrir lítilmagnann gegn
ofurefli, kúgun og harðstjórn.
Þar er nú einum talsmanni
færra sem síst skyldi, og einu
mikilmenni færra á sviði þess
áhrifamikla lifsforms
nútímans, sem nú virðist ekki
eiga neinn í skarðið.
Mitt I þessari ólgu kvæntist Chaplin
árið 1 943 annarri ungri stúlku. Oonu
O’Neill. 18 ára dóttur leikritaskáldsins
Eugene O Neills. Chaplin var þá 52 ára
og var O’Neill svo andvlgur hjóna-
bandinu að hann gerði dóttur sína
arflausa Hjónabandið var hins vegar
sérlega hamingjusamt og þau eign-
uðust 8 börn Oona annaðist eigin-
mann sinn siðustu árin af einstæðri ást
og umhyggju og vakti yfir honum svo
til allan sólarhringinn slðustu vikurnar,
sem hann lifði Hún var við banabeð
manns síns ásamt 7 börnum þeirra er
dauðinn sótti hann heim á jóladags-
morgun
Upp úr hneykslismálinu sem fyrr er
frá greint fór að halla undan fæti fyrir
Chaplin I Bandarlkjunum. Hann fékk á
sig orð fyrir að vera róttækur lenti I
erfiðleikum við skattayfirvöld og þegar
..kalda strlðið" hélt innreið slna versn-
aði staða hans fyrir alvöru. Chaplin
sætti mikilli gagnrýni fyrir að kynna
Henry A. Wallace á útifundi og mót-
mæla brottrekstri tónskáldsins Hanns
Eislers úr landi, en Eisler hafði verið
kommúnisti Dálkahöfundurinn West-
brook Pegler fordæmdi hann og þing-
maðurinn John E. Rankin, sem var
hægrimaður frá Mississtppi. krafðist
þess að Chaplin yrði rekinn úr landi á
þeirri forsendu að starf hans væri
hættulegt siðferðiskennd bandarlsku
þjóðarinnar Hvatti hann til þess að
myndir hans yrðu bannaðar i Banda-
rikjunum til þess að bandarlskir ung-
lingar fengju ekki að sjá „viðurstyggð"
þeirra Árið 1952 var svo Chaplin
óbeint rekinn úr landi. er honum var
tilkynnt. þar sem hann var á leið yfir
hafið til sumarleyfisdvalar i Bretlandi.
að hann fengi ekki að snúa aftur til
Bandarfkjanna nema hann gæti sannað
„siðferðilegt gildi" sitt.
Sár og móðgaður eyddi Chaplin þvi
sem eftir var ævinnar i Evrópu og
settist að á 38 ekra herrasetri i Vevey i
Sviss. 1972 fékk hann þó nokkra upp-
reisn æru i Bandarikjunum, eða Banda-
rikin nokkra uppreisn æru hjá honum.
er honum var boðið til Hollywood. þar
sem bandaríska kvikmyndaakademian
afhenti honum sérstök heiðursóskar-
sverðlaun Hann kom eínnig til New
York þar sem John Lindsey, þaverandi
borgarstjóri sæmdi hann æðstu
menningarorðu borgarinnar og hann
heiðraður með margvisiegum hætti
En þá var þessi mikli listamaður orðinn
öldungur og gat ekkert annað gert en
að brosa og hneigja sig er honum var
þessi virðing sýnd Chaplin var ákaf-
lega hamingjusamur með þessa heim-
sókn og sagði þá, að er hann iiti til
baka til fyrstu ára sinna i Bandarikjun-
um sæi hann að þá hefði hann getað
reynt allt, sem hann vildi, hann hefði
verið frjáls
Umrenningurinn
En það var umrenningur Chaplins,
sem gaf honum frelsið, hlutverkið, sem
hann lék í aldarfjórðung við ótrúlegar
vinsældir Snemma á Hollywood-árum
slnum skrifaði Chaplin: „Allar mínar
kvikmyndir eru byggðar í kringum mig
í vandræðum og gefa mér þannig
tækifæri til að reyna í örvæntingu að
halda virðingu minni og alvarleik, sem
venjulegur Iftill herramaður Þetta er
ástæðan fyrir því að ég er alltaf, sama
hvaða aðstöðu ég er f, að laga slifsið
mitt, hattinn og halda í stafinn, þótt
svo að ég hafi dottið beint á höfuðið ”
Eitt af grundvallaratriðum flestra
mynda Chaplins var virðuleiki. Um
þetta sagði hann: „Maðurinn, sem
hefur lent í einhverju skringilegu en
neitað að viðurkenna að nokkuð hafi
gerst og hyggst þannig halda virðingu
sinni, er jafnvel enn hlægilegri en sá,
sem verst liggur í því. Ég er svo viss
um þetta atriði, að ég er alltaf að reyna
að koma sjálfum mér í vandræði en
ekki aðeins mér heldur einnig öðrum
persónum myndarinnar, að flækja þær
f mfn eigin vandræði. Þegar ég geri
þetta reyni ég alltaf að fá sem flest
hlátursköst áhorfenda út úr sem fæst-
um atriðum Það er miklu betra að
hlegið sé tvisvar að sama atviki, en
tvisvar að tveimur atvikum Þessu náði
ég t.d. í „Ævintýramanninum” Þá setti
ég sjálfan mig ásamt ungri fallegri
stúlku upp á svalir, þar sem við
borðuðum ís. Undir svölunum sat
virðuleg velklædd eldri kona við borð.
Þegar ég borðaði ísinn lét ég stóra
skellu detta úr skeiðinni niður víðu
buxurnar mínar, niður af svölunum og
á beran háls konunnar. Fyrst var hleg-
ið. er ísinn datt ofan í buxurnar mínar
vegna þeirra óþæginda, sem ég varð
fyrir og síðan var hlegið, er klessan
„Þekktasta, mannlegasta og ástsælasta sögnhetja kviknpdaima”
ENGINN kvikmyndaleikari fyrr eða sfðar töfraði og heillaði heiminn eins og
Charles Chaplin, tötradrengurinn frá Lundúnum, sem varð ódauðlegur
listamaður fyrir hina frábæru, mannlegu og grátbroslegu túlkun á fangbrögð-
um mannsins við örlög sin. í yfir 80 kvikmyndum, sem hann gerði á árunum
1914—1967 sem leikari, handritahöfundur og leikstjóri, túlkaði hann temað
um litla manninn og baráttu hans f hringiðu örlaganna, þar sem ósigur hans
var aldrei meir en svo að hann næði ekki að reisa sig við i þeirri von að næst
myndi sér reiða betur af.
Umrenningur Chaplins varð stöðugt fyrir aðkasti, en hann var hinn
sfkurteisi almúgamaður, sem ætfð hélt virðingu sinni gegnum súrt og sætt og
tókst oft á undra fimlegan hátt að sigra Golfata með örlftilli heppni og
samspili við örlögin. Hann var umrenningur, að nokkru leyti trúður, heim-
spekingur og þjóðfélagsúrhrak, sem stöðugt var f leit að ást og hamingu.
„Fætur hans leyfðu ekki að hann fyndi hamingjuna," sagði Chaplin einu
sinni og gaf þar með til kynna að ástarþrá hans hefði fremur verið leit að
fjarlægum draumi en raunsærri von um varanlegt samband. Hann var
viðkvæm sál, en vildi þó ekki meðaumkun.
Charles Spencer Chaplin fæddist í
London 16. apríl 1889, sonur leikara-
hjóna og fyrsta hlutverkið lék hann á
sviði, sem reifabarn f örmum móður
sinnar. Hann var aðeins 7 ára, er hann
varð virkur leikhúsmaður. Sem ungur
drengur var hann í dansflokki, sem
kallaðist „Lanchashiredrengirnir 8”.
Síðar lék hann í revíum og ýmsum
leikhúsum í Bretlandi, en það var í
New York, er hann kom þangað 21 árs
að aldri, að hann var uppgötvaður.
Þetta var árið 1910, en til New York
kom hann með revfu, sem hafði náð
miklum vinsældum í Bretlandi Revfan
gekk einnig vel í New York og var
boðið þangað aftur tveimur árum síð-
ar. Arið 1913 sá einn af útsendurum
Keystone Comedies-fyrirtækisins
Chaplin á sviði í New York, hreifst af
þvf sem hann sá og gerði kvikmynda-
samning við Chaplin, sem hann fékk
1 50 doilara laun á viku fyrir. Þar með
steig Chaplin út á frægðarbrautina,
sem gerði hann að auðugasta manni
kvikmyndaiðnaðarins. Eftir að hafa
leikið í nokkrum myndum. gerði Chapl-
in árið 1917 samning við 1 st National
Exhibitorsfélagið, sem tryggði honum
1 milljón dollara fyrir 8 kvikmyndir.
tvær spólur hver mynd. Chaplin, skrif-
aði handrit, lék, framleiddi og stjórnaði
myndunum og árið 1918 stofnaði
hann sitt eigið fyrirtæki. Charlie Chapl-
in Film Corportation, sem síðar varð
hluti af United Artist Corp. Meðal
fyrstu mynda Chaplins má nefna „The
Floor Walker,'* „The Fireman." „The
Vagabond," „The Champion" og „A
Dogs Life."
Eftir að Bandaríkin gerðust aðili að
heimsstyrjöldinni fyrri, gerði Chaplin
hina frægu strfðsgamanmynd „Should-
er Arms," (Axlavopn), sem kom á
markaðinn 1918. Á eftir fylgdu
Gullæðið. Fjölleikahúsið og Kona f
París og árið 1921 sendi hann frá sér
myndina „The Kid" með Jackie Coog-
an, sem var upphafið að ferli Coogans
og lyfti Chaplin á mun hærri skör sem
leikara
Talmyndirnar koma
Þegar talkvikmyndirnar komu til sög-
unnar árið 1927 varð alger kreppa i
kvikmyndaheiminum og margar stjörn-
ur þöglu myndanna fölnuðu á einni
nóttu Bylting vofði yfir og æðstu
menn kvikmyndaheimsins voru hver
um sig ákveðnir i að ná forystu I
talmyndagerð Mitt i öllum látunum
stóð Chaplin óhagganlegur og lýsti þvi
yfir að sér likaði ekki við talmyndir,
hann teldi þær ekki nauðsynlegar né
eftirsóknarverðar og vildi yfirleitt ekk-
ert með talið hafa að gera. Hann sagði
að grundvöllur skopleiks slns væri lát-
bragðsleikur og Chaplin sjálfur hafði
ætið ákaflega fáa texta með sinum
myndum.
Margir töldu að með þessu væri
Chaplin að fremja sjálfsmorð sem lista-
maður, en hann svaraði fyrir sig árið
1931 með „City lights," Borgarljós.
Þetta var ekki talmynd, en hann notaði
talrásina til að nota tónlist og hljóð við
skopið Gifurlegur fjöldi kom til frum-
sýningarinnar og myndin var arðbær-
asta verk Chaplins fram að þeim tima
Nútiminn sem frumsýnd var árið 1 936
var með sama hætti að öðru leyti en
þvi að þar söng Chaplin. í þeirri mynd
kom leikkonan Pauletta Goddard fyrst
fram á sjónarsviðið. Fjórum árum slðar
talaði Chaplin fyrst i kvikmynd I Ein-
ræðisherranum, sem var háðsk ádeila
á Hitler og Mussolini. Það var I fyrsta
skipti. sem hann lék ekki umrenning-
inn. Monsignor Verdoux, sem frum-
sýnd var 1947, var fyrsta verk Chapl-
ins, sem misheppnaðist og hlaut litla
aðsókn í Sviðsljósi, sem frumsýnd var
1 952 lék hann alvarlegt hlutverk. Leik-
konan Mary Pickford, sem stofnaði
með Chaplin. Douglas Fairbanks og
D.W Griffith fyrirtækið United Atrists
árið 1919 sagði eitt sinn um hann:
„Ég skil ekki hvers vegna Chaplin hætti
við umrenninginn sinn. þvi að gegnum
hann varð hann stórmenni á þvi að
vera yfir heimsvandamálin hafinn."
Síðar gerði Chaplin „A King in New
York" og Countess from Hong Kong,"
en hvorug þeirra mynda er talin I hópi
beztu verka hans.
Stormasöm
hjónabandsmál
Fyrsta kona Chaplins var Mildred
Harris Hún var 1 6 ára er hann kvænt-
ist henni árið 1918, en þau skildu eftir
tvö ár. Önnur kona hans, Lita Gray var
eínnig 16 ára er hann kvæntist henni
1924 og þau eignuðust tvo syni i
þriggja ára hjónabandi 1935 kvæntist
hann síðan Paulette Goodard, en þau
skildu eftir 6 ára hjónaband 1943
varð Chaplin aðili að miklu hneykslis- .
máli, er 24 ára gömul kona, Joan
Berry höfðaði faðernismál á henur hon-
um. Að lokinni rannsókn var höfðað
mál gegn honum fyrir siðferðisbrot, en
hann var sýknaður eftir tveggja vikna
stormasöm réttarhöld Faðernismálið
hélt áfram og lauk með því árið 1 945,
að kviðdómur úrskurðaði Chaplin föð-
ur stúlkubarnsins Carol Ann, og skip-
aði honum að greiða meðlag með
hanni fram til 21 árs aldurs.
lenti á hálsi konunnar, og miklu meira,
er hún æpti og byrjaði að hoppa til og
frá. Aðeins eitt atvik var notað og það
kom tveimur manneskjum i vandræði"
Þrá eftir
fullkomnun
Á fyrstu árum sinum i Hollywood
réð Chaplin litlu um gerða mynda
sinna, en eftir nokkur ár fékk hann full
listræn yfirráð og lagði sig nær ofur-
mannlega fram um að fullkomna hvert
einasta atriði og eyddi stundum mörg
hundruð fetum af filmu til að ná atriði
Framhald á bls. 18
f „Axlavopnum" 1918
..The Kid" með Jackie Coogan 1921
GullielIiB 1925
Nútlminn 1936
Einreðisherrann 1940
í New York 1972 með Oonu konu sinni.
Með Oonu, 4 dætrum og syninum Christopher 1975. er Elizabeth II
Englandsdrottning aðlaði hann.
Chaplin meS Mary Pickford, Douglas Fairbanks og D W. Griffith 1919, er
þau stofnuðu United Artists.