Morgunblaðið - 28.12.1977, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 1977
Neskaupstaður:
Lognið svo mikið að kerti
loguðu í kirkjugarðinum
Neskaupstað, 27. des.
VEÐUR um jólin var hér eins
fagurt og það getur orðið á þess-
um árstíma. Algjör stilla var, hiti
rétt fyrir ofan frostmark og eng-
inn snjór í byggð, nema hvað smá-
snjóföl kom að kvöldi annars í
jólum. Lognið yfir jóladagana var
— VR
Framhald af bls. 32.
það fólk, sem heyrir undir
Verzlunarmannafélag Reykjavík-
ur búi við sömu kjör i staðfestum
samningi og aðrir og hafa fengið
sína launahækkun á grundvelli
upplýsinga frá vinnuveitendum
sjálfum sagði Guðmundur.
— Risaflaug
Framhald af bls. 1
það mundi draga úr möguleikum
á nýjum samningum um vopna-
búnað ef „cruise“-flaugum eða
nevtrónusprengjum yrði komið
fyrir i framlínustöðvum Banda-
ríkjamanna í Evrópu eða banda-
manna þeirra í álfunni.
Rair Simonyan hershöfðingí tók
fram í grein í flokksblaðinu
Pravda að þetta mætti ekki túlka
sem veikleikamerki því Rússar
létu hvorki hræðast af cruise-
flaugum né nevtrónusprengjum.
Áður hefur Leonid Brezhnev for-
seti varað við því að Rússar kunni
að neyðast til að fara að dæmi
Bandarfkjamanna og smíða
nevtrónusprengju.
— Gjaldeyrir
Framhald af bls. 32.
ur í bönkum og spariskirteini
rikissjóðs, svo sem reglur um
framtal og skattskyldu. Ekki
verða gefnar út sparisjóðsbækur,
heldur fá innstæðueigendur í
hendur stofnskírteini í upphafi
og reikningsyfirlit árlega eins og
tíðkast með ávísanareikninga og
vaxtaaukareikninga. Innborganir
og útborganir af reikningunum
munu fara fram í gjaldeyrisdeild-
um bankanna, en ekki í spari-
sjóðsdeildunum.
Bankarnir taka við erlendum
seðlum, bankaávísunum og ferða-
ávísunum, sem menn óska að
leggja á reikningana, en einnig er
hægt að fela erlendum banka að
færa fé beint inn á reikning í
innlendum banka. Útborganir
mun einkum fara fram með
bankamillifærslum, banka- og
ferðaávísunum og minni upphæð-
ir í seðlum. Að sjálfsögðu verður
einnig hægt að yfirfæra fé af
gjaldeyrisreikningi i íslenzkar
krónur hvenær sem er.
Tekið er á móti innstæðum í
fjórum gjaldmiðlum, þ.e.a.s.
Bandaríkjadollurum, vesturþýzk-
um mörkum, sterlingspundum og
dönskum krónum. öðrum frjáls-
um gjaldeyri, sem bankarnir
verzla með, verður skipt yfir í
einhvern hinna fjögurra gjald-
miðla, áður en féð er lagt inn.
Vaxtakjör verða ákveðin af Seðla-
bankanum og fara eftir þeim
kjörum, sem bankarnir geta
ávaxtað innlánsféð á, og er gert
ráð fyrir, að vextir verði 5% á ári,
nema í mörkum, þar sem þeir
verða sennilega 2%. Vaxtatil-
kynning verður gefin út fljótlega
upp úr áramótum. Kostnaður eða
gengismunur er ekki tekinn, þeg-
ar fé er lagt inn, en venjulegur
bankakostnaður verður tekinn af
útgefnum bankaávísunum og
ferðaávísunum, og við millifærslu
til erlends banka.
Seðlabankinn hefur í samráði
við viðskiptaráðuneytið og gjald-
eyrisviðskiptabankana sett sér-
stakar reglur um innlenda gjald-
eyrisreikninga og munu þær
liggja frammi í gjaldeyrisdeildum
bankanna.“
svo mikið að fólk lét loga á kert-
um í kirkjugarðinum.
Bærinn var mikið skreyttur yfir
jól og sennilega aldrei jafnmikið
og nú. Messað var alla jóladagan
og var kirkjusókn fádæma mikil.
Tvö stór jólatré prýða nú bæinn,
stendur annað við kirkjuna, hitt
við félagsheimilið.
— ísraelsmenn
Framhald af bls. 1
ágreinings um Palestínumálið.
Hann kallaði leiðtoga Palestínu-
manna mestu óvini Palestínu-
manna og kvað 98% Sýrlendinga
sammála sér. Hann kvað Gaddaffi
Lýbíuleiðtoga brjálaðan mann
sem PLO-menn fylgdu að málum
og kvað Yasser Arafat sitja á
fundum með leiguþýjum og morð-
ingjum eins og Georg Habbash.
Jafnframt er sagt í Jerúsalem
að Ezer Weizman landvarnaráð-
herra hafi tjáð þingmönnum á
einkafundi að ísraelsmenn
mundu ekki gera meiri tilslakanir
á vesturbakka Jórdan og Begin
hafi tekið skýrt fram á fundinum
með Sadat að tilboð Israelsmanna
um takmarkaða heimastjórn
Palestínumanna væri lokaboð
þeirra.
Weizman kvað viðræðurnar
hafa verið árangursríkar og
kvaðst telja að Sadat vildi frið og
að skapazt hefðu aðstæður sem
mundu leiða til lausnar. „Þar sem
horfur eru á friði verðum við að
vera fúsir að taka áhættu," sagði
hann.
Hann hvað ísraelsmenn hafa
fallizt á vfðtækar tilslakanir á
Sinaiskaga. Hann sagði að Egypt-
ar hefðu lýst því yfir að þeir teldu
ekki Frelsissamtök Palestinu
(PLO) eina fulltrúa Palestínu-
manna.
Moshe Dayan utanríkisráðherra
var ekki viðstaddur sérstakan
stjórnarfund sem var boðaður til
að kynna árangur viðræðnanna
og það kom á kreik orðrómi um að
hann hefði farið úr landi í leyni-
legum erindagerðum. Begin
forsætisráðherra vísaði jafnframt
á bug fréttum um ágreining milli
hans og Dayan, sem fjarvera
Dayans hefur ýtt undir. Dayan á
það til að hverfa án skýringa.
I Kaíró var sagt að egypzkir
embættismenn ynnu að gagntil-
lögum um friðsamlega lausn eftir
Ismailia-fundinn og að þær yrðu
lagðar fyrir tvær sameiginlegar
nefndir Egypta og Israelsmanna:
stjórnmálanefnd sem fundar í
Jerúsalem og hermálanefnd sem
fundar i Egyptalandi.
Gert er ráð fyrir því að fundir
nefndanna hefjist um miðjan
janúar. Karió-fundi Egypta,
Israelsmanna, Bandaríkjanna og
Sameinuðu þjóðanna hefur verið
frestað meðan nefndirnar reyna
að ná samkomulagi um friðsam-
lega Iausn í smáatriðum og is-
raelska sendinefndin hélt heim-
leiðis í dag.
Jafnframt s§gði talsmaður PLO
í Beirút að palestínskir byltinga-
mann hefðu skotið til bana
palestínskan starfsmann
israelska menntamálaráðuneytis-
ins á vesturbakkanum og stuðn-
ingsmann Sadats, Hamdi Khadi
og hann varaði aðra „samverka-
menn“ við sömu örlögum.
PLO og sýrlenzka stjórnin gáfu
út yfirlýsingu í dag þar sem boð-
uð er harðnandi barátta gegn
stefnu Sadats. Blöð í Kuwait,
Jórdaníu, Saudi Arabíu og
Kuwait hvöttu til nýrrar sam-
stöðu Araba vegna óhagganlegrar
afstöðu ísraelsmanna i Palestínu-
málinu.
Helmut Schmidt kanslari kom í
dag til Kaíró til viðræðna við Sad-
at 'um friðartilraunirnar í Mið-
austurlöndum og Sadat kvað
gagnlegt að tala við hann i kjölfar
Ismailia-fundarins.
Allur floti Norðfirðinga er nú í
höfn og fer vart til veiða á ný fyrr
en eftir nýár, þegar þorskveiði-
banni verður aflétt. Norðfirzkir
sjómenn verða með sína árshátið i
kvöld, og er hún kölluð „veiði-
gleði“. Er reiknað með að fjöl-
mennt verði þar.
Ásgeir
I Washington lagði bandariska
utanríkisráðuneytið áherzlu á að
líta bæri á Ismailiafundinn sem
lið í þróun sem miðaði að heildar-
lausn, og kvaðst ánægt með að
viðræðum yrði haldið áfram.
— Uppgjör
Framhald af bls. 1
hafa sagt sig úr nefndinni til að
mótmæla þeirri ákvörðun Reddis
að reka Devraj Urs, yfirráðherra i
Karnataka-fylki, úr flokknum,
einn helzta stuðningsmann frú
Gandhis, fyrir starfsemi fjand-
samlega flokknum.
I hóði stuðningsmannanna sem
sögðu af sér eru Kamlapati Tri-
pathi fyrrverandi járnbrautaráð-
herra og Syed Mir Qasim fyrr-
verandi ráðherra án stjórnar-
deildar. Frú Gandhi sagði sig úr
nefndinni fyrr í þessum mánuði.
I yfirlýsingu Reddi og Chavans
segir að fyrirhugaður landsfund-
ur sé til þess fallinn að kljúfa
flokkinn og koma af stað glund-
roða og sundrungu í flokknum.
— Ný heilsu-
gæzlustöð
Framhald af bls. 2
eftirlit með ungbörnum. 2) Lækninga-
rannsóknir, 3) Sérfræðileg læknisþjón-
usta og skólatannlækningar 4) Heilsu-
vernd. sem spannar mjög vlðtækt svið.
Náin samvínna er fyrirhuguð við St
Jósefsspítala I sambandi við röntgen-
deild og rannsóknir og verður sú að-
staða I lágmarki I stöðinni
Aðstaða verður fyrir tvo tannlækna,
sem eiga að annast skólatannlækning-
ar og jafnvel almennar tannlækningar
Gert er ráð fyrir að starfsfólk stöðvar-
innar verði. þegar allar deildir hafa
hafið starfsemi, sem hér segir: 6
heilsugæzlulæknar, 4 hjúkrunar-
fræðingar. 1 'h starf við slmaþjónustu,
2 störf ritara og tvö aðstoðarstörf og
ræsting.
Áætlað er að húsið verði fokhelt I
mal-júni 1979 og fyrsti áfangi heilsu
gæzlu taki til starfa júni-júli 1979 i 'A
hluta húsnæðis 1 hæðar Verktakar
við jarðvinnu eru Jakob Jakobsson og
Húmur h.f en útboð vegna uppsteypu
hússins verða auglýst um miðjan
janúar n.k.
— Skák
Framhald af bls. 8
aó undanförnu og þótt deila
megi um lokastöóuna verður að
telja hann vel að þessum sigri
kominn. Staðan í einviginu er
þá 7,5 vinningur á móti 4,5
Krotsnoj I vil.
Lokastaðan þegar Kortsnoj
féll á tíma. Hann átti eftir að
leika 3 leiki.
— Áfengi
Framhald af bls. 2
um í 5.800 krónur, Jonny Walker
Wiskey hækkar úr 4.900 krónum i
5.900 krónur. Koníak, Camus
hækkar úr 5.300 krónum í 6.400
krónur og Bisqui hækkar úr 5.600
krónum i 6.700 krónur og
Bacchardi Rom hækkar úr 5000 í
6.000 krónur. Þá hækkar Campari
úr 3.000 krónum í 3.600 krónur.
Áfengi og tóbak hafa hækkað
þrisvar sinnum á þessu ári, sem
er að líða. I fyrsta sinni 5. janúar
síðastliðinn um 10% og hækkaði
þá tóbak um 16%. Síðan hækkuðu
brennd vín 25. júlí um 15%, en
tóbak um rúm 27% og loks er
þessi hækkun til jafnaðar 20%
bæði á áfengi og tóbaki.
— Sprengjualda
Framhald af bls. 1
reynt að vekja á sér athygli með
sprengjuárásum eru félög öfga-
sinnaðra hægrimanna sem eu
fjandsamlegir fólki frá Alsir,
skilnaðarsinnar á Bretagne, of-
stækisfullir umhverfisverndar-
menn og vinstrisinnaðir borgar-
hryðjuverkamenn.
Samtök sem kalla sig „Reiðir
meðaltekjumenn" og önnur sam-
tök sem kalla sig „Svört jól handa
ríka fólkinu" sögðust bera ábyrgð
á árásinni á fína matvöruverzlun.
Óþekkt samtök sem kalla sig
„Byltingarhreyfingu andstæðinga
kynþáttahaturs" sögðust hafa
ráðizt á rússneska veitingastaðinn
„Raspoutine“.
Öþekktir menn sprengdu gat á
útidyr sumarbústaðar kommún-
istaleiðtogans Georges Marchais
sem kenndi skæruliðum fasista
um verknaðinn.
Innanríkisráðuneytið segir að á
þessu ári hafi verið gerðar 548
sprengjuárásir miðað við 480 i
fyrra.
— Valgarður
Framhald af bls. 2
Norðurlandi 1964 og gegndi því
starfi þar til hann varð fræðslu-
stjóri í Norðurlandsumdæmi
eystra fyrir tveimur árum. Val-
garður gegndi mörgum trúnaðar-
stöðum, var m.a. varabæjarfull-
trúi á Akureyri um skeið og hefur
lengi átt sæti í skólanefnd Akur-
eyrar og ýmsum öðrum nefndum,
sem fást við kennslu og uppeldis-
mál.
Valgarður var kvæntur Guð-
nýju Magnúsdóttur hjúkrunar-
fræðingi og áttu þau 3 dætur
barna.
Sv.P.
— Skipverjar
Framhald af bls. 2
verja var farið fram á það við
síðustu samningsgerð, að 10%
áhættuþóknunin yrði rædd sér-
staklega. Sá aðili sem fór með
samningsgerð fyrir ríkisvaldið fór
þá fram á það við dómsmálaráð-
herra, að hann fengi heimild til
að ræða þetta mál, en svo varð
ekki. Að þvi er varðskipsmenn
segja, hafði sáttanefnd ríkisins
sagt að bókað yrði að 10% áhættu-
þóknunin skyldi standa út næsta
kjörtímabil. Hins vegar hafi
aldrei verið gengið frá þessari
bókun.
Varðskipsmenn segjast ekki
deila um hvort 10% áhættuþókn-
unin sé réttmæt eða ekki heldur
hvernig farið var að því afnema
þessa þóknun.
— Það var
geysiheitt
Framhald af bls. 2
að vísu hafnað slikri kröfu, en
komi hún fram aftur mun ég
leggja það til, að dómnefndin
breyti þeirri afstöðu sinni,“
sagði dr. Euwe, forseti Alþjóða-
skáksambandsins, er Mbl.
ræddi við hann í Belgrad i gær.
Dr. Euwe sagði það rétt, að þeir
Spassky og Kortsnoj hefðu ekki
tekizt í hendur við upphaf eða
endi biðskákarinnar úr tiundu
umferð og heldur ekki, þegar
tólfta skákin var tefla á mánu-
dag. „Það var geysiheitt i kol-
unum hérna,“ sagði dr. Euwe,
„og svona hitamál setja auðvit-
að sín mörk á þá, sem í þeim
standa.“
„Það má segja, að þessi að-
ferð Spasskys að eyða umhugs-
unartíma sínum fjarri skák-
borðinu sé mjög óvenjuieg,"
sagði dr. Euwe. „Hann eyddi til
dæmis um 90% af tíma sínum í
tólftu skákinni i hvíldarkiefan-
um. Það er vissulega rétt hjá
honum að engar reglur segja til
um það, að skákmaður eigi að
verja umhugsunartíma sínum
við skákborðið og ég er þeirrar
skoðunar, að hann segi sann-
leikann, þegar hann ber því við
að honum gangi betur að ein-
beita sér þar en frammi á svið-
inu fyrir augum áhorfenda.
Hins vegar trúi ég líka Kortsnoj
þegar hann segir þetta fara
mjög í taugarnir á sér, þannig
að ég tel að FIDE verði að taka
þetta mál upp og jafnvel setja
reglur um það, hvernig skák-
menn eigi að haga sér, þegar
þeir eru að tefla, og nánari regl-
ur um það, hvernig aðstæður á
sjálfum skákstaðnum eru með
tilliti til þess að keppendur geti
haft auga hvort með öðrurn."
Dr. Euwe sagði, að vandamál-
ið i Belgrad hefði ekki reynzt
siður erfitt viðureignar, en þeg-
ar hann kom til Reykjavíkur
við upphaf einvígis þeirra
Spasskys og Fischers á sinum
tíma. „Að vísu var vandamálið í
Reykjavik að koma keppendum
að skákborðinu, en hérna var
um það að ræða að koma í veg
fyrir að þeir hlypu frá einvig-
inu í miðjum kliðum.
En einvigið í Reykjavík hófst
og úrslit fengust á skákborðinu
og ég hef þá trú, að einvíginu
hér í Belgrad ljúki einnig með
þeim hætti,“ sagði dr. Euwe.
— Charles
Chaplin
Framhald af bls. 17
sem aðeins tók örfáar mínútur að sýna.
Theodore Huff skrifaði eftirfarandi
um Chaplin í „The litterature of
Cinema". „Þegar myndatakan byrjaði
var Chaplin aðeins með grófa sögu-
hugmynd I kollinum. en samdi handrit-
ið jafnóðum. Sum atriði tóku gerbreyt-
ingum meðan á tökunni stóð. Hann
samdi atriði eða brandarasyrpu, sem
allt var tekið upp. Síðan var þetta allt
rætt daginn eftir á fundum. Stundum
var eitthvað notað. en oft var öllu hent
og alveg nýtt atriði búið til. T.d tók
það marga mánuði áður en Chaplin var
ánægður með atriðið « Borgarljósum.
þar sem umrenningurinn hittir blindu
blómasölustúikuna.
Chaplin fékk margar af sínum beztu
hugmyndum aðeins með því að
fylgjast náið með llfinu I kringum sig.
..Ég fór í kvikmyndahús og leikhús til
að sjá fólk hlæja og fylgist með þvf alls
staðar, til að finna atriði til að fá það til
að hlæja að. Dag nokkurn átti ég leið
fram hjá slökkvistöð og þá hringdi
brunabjallan og ég sá slökkviliðsmenn-
ina renna sér niður súluna. klifra um
borð í slökkvivagninn og æða af stað
Um leið fór um huga minn keðja af
hugsanlegum skiplegum atvikum I
þessu tilviki. Ég sá sjálfan mig liggj-
andi sofandi í rúminu án þess að heyra
í bjöllunum. Þetta vissi ég að öllum
myndi llka, þvl að allir vilja sofa. Ég sá
sjálfan mig renna niður súluna. snúast
I kringum hestana fyrir slökkvivagnin-
um. detta af vagninum á horni og
bjarga stúlkunni úr eldinum. Allt þetta
geymdi ég I huga mér unz ég gerði
..Slökkviliðsmanninn", þá notaði ég
hvert einasta atriði."
Bosley Crowter, fyrrum kvikmynda-
gagnrýnandi New York Times. lýsir
Chaplin kannski hvað best I eftirfarandi
ummælum. er hann frétti lát hans:
..Það sem hinn litli umrenningur
Chaplms gerði fyrir kvikmyndirnar er
aðeins lltill hluti þess, sem hann gerði
fyrir mannkynið Hann er og mun
áfram verða þekktasta, mannlegasta og
ástsælasta söguhetja kvikmynda olckar
aldar."
— Hlýtur
yiðurkenningu
Framhald af bls. 15
þúsund krónur, heiðursskjal og verð-
launapeningur með mynd af gefanda
og merki Vísindafélags íslands
Steindór Steindórsson þakkaði gef-
endum fyrir þann heiður sem hann
sagði að sér hefði verið sýndur og gat
þess að þau störf er hann hefði innt af
hendi til gróðurrannsókna hefðu jafnan
verið unnið I tómstundum frá erilsömu
embætti. en honum væri það mikil
ánægja að hafa orðið að einhverju liði
á þessu sviði, sem hann hefði ætíð haft
mikinn áhuga á Þakkaði hann það
móður sinni sem hefði komið honum
til mennta og konu sinni fyrir að hafa
búið honum góð starfsskilyrði og stað-
íð við hlið sér i þessu tómstundastarfi
slnu. eins og hann orðaði það.