Morgunblaðið - 28.12.1977, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 1977
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Askur—
starfsfólk
Veitingahúsið Askur óskar eftir starfsfólki
til:
/. AFGRE/ÐSLUSTARFA
2. UPPVASKS.
Uppl. veittar á Aski, Laugavegi 28.
ASKUR
Laugavegi 28
Sudur/andsbraut /4
Starfskraftur
óskast til skrifstofustarfa. Starfið felst í
enskum bréfaskriftum, allskonar vélritun
og símavörslu. Upplýsingar í síma 8301 8
milli 10 —12 næstu daga.
Garri h. f.
Langho/tsvegi 82.
Skrifstofustarf
Óskum eftir starfsmanni til skrifstofu-
starfa (vélritun, símavarsla og fleira). Um-
sóknir er greini aldur, menntun og fyrri
störf sendist Mbl. merkt: „S — 4171"
Ritari
Opinber stofnun í miðborginni vill ráða
ritara. Góð þjálfun i vélritun og kunnátta í
íslenzku, ensku og einu norðurlandamáli
æskileg. Umsóknir með upplýsingum um
menntun og fyrri störf leggist inn á augld.
Mbl. merkt. „Heilsdagsstarf — 41 74".
Laust embætti er
forseti íslands
veitir
Prófessorsembætti í réttarlæknisfræði við læknadeild Háskóla
Islands er laust til umsóknar. Laun samkvæmt launakerfi
starfsmanna ríkisins. Umsækjendur um prófessorsembættið
skulu láta fylgja umsókn sinni itarlega skýrslu um vísindastörf
þau er þeir hafa unnið, ritsmiðar og rannsóknir svo og
námsferil sinn og störf. Umsóknir þurfa að berast mennta-
málaráðuneytinu. Hverfisgötu 6. Reykjavik fyrir 31 janúar
1978.
Menntamálaráðuneytið, 23. desember 1977.
Matsvein vantar
á M B. Ólaf Toftum sem er að hefja
línuveiðar frá Keflavík. Upplýsingar í síma
92-1566
Atvinna óskast
Pípulagningameistari óskar eftir föstu
starfi, margt kemur til greina. Tilboð
sendist afgr. Mbl. merkt: „F — 5308"
Skrifstofustarf
Oðinber stofnun óskar að ráða starfs-
mann nú þegar eða síðar. Þarf að hafa
reynslu i vélritun og venjulegum skrif-
stofustörfum. Hálfs dags starf kemur
einnig til greina.
Umsækjendur sendi nöfn sín með helztu
upplýsingum til auglýsingadeildar
Morgunblaðsins fyrir 5. jan. n.k merkt:
Skrifstofa — 41 70"
Símavarzla —
vélritun
Óskum að ráða sem fyrst, röskan starfs-
kraft til að sjá um símavörzlu og vélritun.
Upplýsingar hjá skrifstofustjóra.
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121.
Laus staða
Dósentsstaða í stærðfræði í verkfræði- og raunvísindadeild
Háskóla Islands er laus til umsóknar. Dósentinum er einkum
ætlað að starfa á sviði algebru eða rúmfræði eða á skyldum
sviðum. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins. Um-
sóknir, ásamt ítarlegum upplýsingum um ritsmiðar og rann-
sóknir svo og námsferil og störf, skulu sendar menntamála-
ráðuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavik fyrir 1. febrúar 1 978.
Menntamálaráðuneytið, 21. desember 1977.
Útgerðarmenn
Fiskverkun á suðurnesjum óskar eftir
netabátum í fiskviðskipti á n.k. vetrarver-
tíð. Eigum netaútbúnað fyrirliggjandi.
Þeir sem áhuga hafa, leggi inn uppl. á
augld., Mbl. merkt: „Fiskverkun —
4053".
Olafsvík
Umboðsmaður óskast til að annast dreif-
ingu og innheimtu fyrir Morgunblaðið.
Upplýsingar á afgreiðslu í Reykjavík. Sími
10100. ‘
Kristján Guðbjartsson:
Brautryðjendur í
sjálfstæðisbaráttunni
í grein minni í blaðinu 24. des.
um brautryðjendur í sjálfstæðis-
baráttunni féll niður föðurnafn
dr. Jóns Þorkelssonar þjóðskjala-
varðar, og biðst ég velvirðingar á
því og mun ég fara hér örfáum
orðum um dr. Jón Þorkelsson.
Þess skal getið að dr. Jón gekk
yfirleitt undir nafninu dr. Forni
og var það í virðingarskyni, svo og
vegna þess að dr. Jón var manna
fróðastur um sögu lands og þjóð-
ar. Árið 1857 byrjaði Bókmennta-
félagið á útgáfu Fornbréfasafns-
ins og var Jóni Sigurðssyni for-
seta falið að sjá um hana. Árið
1879 er Jón Sigurðsson forseti
lést hafði verið gefið út fyrsta
bindið af Fornbréfasafninu og
náði það til 1264. Lá nú þetta verk
niðri þar til dr. Jón Þorkelsson
þjóðskjalavörður hóf það að nýju
árið 1886. Vann dr. Jón sleitu-
laust að þessu verki til dauðadags
1924 og hafði þá gefið út 10 bindi
og langt kominn með undirbún-
ing á því 11. sem er 12. bindið því
eins og áður sagði hafði Jón Sig-
urðsson forseti gefiö út 1 bindi.
Árið 1881 bar Benedikt Sveinsson
upp á Alþingi frumvarp um stofn-
un háskóla hér á landi en fékk
vitanlega ekki byr. Jón Þorkels-
son studdi þetta dyggilega með
skrifum í blað sitt Sunnanfara.
Árið 1891 fékk Benedikt Sveins-
son frumvarpið samþykkt í neðri
deild, en efri deild felldi það.
Árið 1893 var dr. Jón Þorkelsson
kominn á þing, það sama ár var
frumvarpið samþykkt sem lög frá
alþingi, átti dr. Jón mikinn og
góðan þátt í þeim úrslitum, meðal
þeirra þingmanna og nokkurra
manna utanþings, er þá í þingiok
sendu út ávarp til þjóðarinnar að
styðja mál þetta. Vetrarþingin
1909 og 1911 er dr. Jón sat voru
einhver hin snörpustu er nokkru
sinni hafa verið háð hér.
Jón Þorkelsson
Það er sagt að í dag sitji aðeins
einn kapítalisti á þingi á íslandi
og er það Jón G. Sólnes. Það má
til gamans og fróðleiks geta þess,
að móðir Jóns Guðmundssonar
Sólnes var Hólmfriður Jónsdóttir,
en Hólmfrfður var dóttir Jóns
Þorkelssonar landspósts, langafa
mins, er þessar línur ritar, en þeir
voru bræður Jón Þorkelsson þjóð-
skjalavörður og Jón Þorkelsson
landspóstur og hétu sama nafni,
en það var ekki óalgengt í þá
daga. Það má segja að það sé
margt líkt með þeim frændum dr.
Jóni Þorkelssyni og Jóni G. Sól-
nes, það hefur gustað um þá báða
á þingi og utan þings, hafa báðir
verið málafylgjumenn.
Sjálfstæði þjóðarinnar verður
að sitja í fyrirrúmi, það gerist
aðeins með þvi að við séum sjálf-
um okkur nóg af eigin vilja og
mætti.