Morgunblaðið - 28.12.1977, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 1977
21
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Samkoma
dag kl. 8.
kvöld miðviku-
Hjálpræðisherinn
í kvöld kl. 20.30 jólafagnað-
ur fyrir almenning. Maj. Guð-
finna Jóhannesd.
Frá átthagafélagi
Strandamanna
Strandamenn í Reykjavík og
nágrenni. Munið jólatré-
skemmtunina í Domus
Medica kl. 3 í morgun. Að-
göngumiðar við innganginn.
heldur kvikmyndasýningu
(fyrir alla fjölskylduna)
fimmtudaginn 29. des. kl.
20 að Aragötu 14 Sýnd
verður kvikmyndin Tales of
Beatrix Potter, eftir kvik-
myndasýninguna eru kaffi-
veitingar. Félagar fjölmennið
og takið með ykkur fjölskyld-
Stjórnin.
Jólafundur Kristilegs stú-
dentafélags verður haldinn i
kvöld í Bústaðakirkju kl.
20.30. Fjölbreytt dagskrá —
veitingar. Eldri félagar hvattir
til að mæta.
K.S.F.
UTIVISTARFERÐIR
30. des. kl. 19.30
Skemmtikvöld i Skiða-
skálanum. Þátttaka tilkynnist
á skrifstofuna.
31. des. kl. 9
Áramótaferð i Herdisar-
vík, þar sem dvalið verður í
góðu og upphituðu húsi,
Flugeldar, kvöldvaka,
brenna. Komið heim fyrir kl.
18 á nýársdag. Einnig eins-
dagsferð i Herdisarvík á
gamlársdag. Farseðlar á skrif-
stofu Útivistar, Lækjarg. 6 s.
14606.
Útivist.
SIMAR. 11798 og 19533.
Áramótaferð í
Þórsmörk,
31. des. — 1. jan.
Lagt af stað kl. 07 á Gamlárs-
dagsmorgun og komið til
baka að kvöldi 1. janúar.
Kvöldvaka og áramótabrenna
i Mörkinni.
Fararstjórar: Ágúst Björnsson
og Þorsteinn Bjarnar.
Farmiðasala og upplýsingar á
skrifstofunni.
Ferðafélag íslands.
Ungur Frakki
óskar eftir bréfaskiptum á
ensku, þýzku eða auðveldri
islenzku. Serge Gottwald
,.Les Jardins de Sophie" 623
Chemin des Colles, 062 50,
Mougins. France simi
901320.
Munið sérverzlunina
með ódýran fatnað.
Verðlistinn Laugarnesvegr
82, S. 31330.
Kennari við
Öskjuhlíðarskóla
óskar eftir 2ja til 3ja herb
ibúð i Reykjavik strax. Reglu-
semi heitið. Upplýsingar i
sima 93-1 441
raöauglýsingar
raöauglýsingar
raöauglýsingar
Fiskiskip
Til sölu 104 rúml. fiskiskip, byggt 1965
úr eik, skipið er vel búið til alhliða veiða
þ.m til síldveiða í reknet. Skipið er sér-
lega velbúið tækjum og að öðru leyti í
góðu standi. Hentugur afhendingartími
15. febrúar n.k. eða eftir nánara sam-
komulagi.
Allar upplýsingar veitir Jónatan Sveins-
son , lögfr sími 73058
Árshátíð Vélstjórafélags
fslands og Kvenfélagsins
Keðjunnar
verður haldin í Súlnasal Hótel Sögu 6
janúar og hefst með borðhaldi kl 1 9.30
Félagið býður til fagnaðar i hinum nýju
húsakynnum félagsins að Borgartúni 18
kl. 1 7.30
Miðasala í skrifstofu félagsins. Borða-
pantanir fimmtudaginn 5. janúar frá kl.
17 — 1 9 að H ótel Sög u.
Félagar mætið vel og stundvíslega.
Skemmtinefndin.
Fáksfélagar
iSiglfirðingar í Reykjavík
og nágrenni
Jólatréskemmtun Siglfirðingafélagsins
verður haldin fimmtudaginn 29 des. á
Hótel Sögu frá kl. 15 — 1 8
Nefndin.
Sjómannafélag
Reykjavíkur
Jólatrésskemmtun verður fyrir börn félagsmanna mánudaginn
2 janúar n.k. og hefst kl. 1 5 (kl. 3)
Aðgöngumiðar á skrifstofu félagsins. Verð kr. 500.
Skemmtinefndin.
Nýársfagnaðurinn verður í félagsheimil-
inu 1. janúar 1978 og hefst kl 20 með
borðhaldi — Kalt borð —
Hljómsveit Ólafs Gauks leikur.
Aðgöngumiðar verða seldir í félagsheimil-
inu í kvöld kl. 1 7 — 19. Simi 301 78
Aríðandi er að menn staðfesti matarpönt-
un um leið.
Skemmtinefndm.
Samlag Skreiðar-
framleiðenda
Aðalfundur
Haldinn verður aðalfundur fyrir árin
1 975 og 1976 mánudaginn 16. janúar
1 978 kl. 10. f.h.
Fundarstaður: hliðarsalur annarrar hæðar
á Hótel Sögu.
Dagskrá
1 Samkvæmt félagslögum
2. Lagabreytingar Stjórnin.
— Bráðabirgða-
reglur...
Framhald af bls. 15
mynt nemi hverju sinni ekki
hærri fjárhæð en 200 banda-
rikjadollurum eða sem næst
jafnvirði þess f annarri mynt.
Öski eigandi innlends gjald-
eyrisreiknings eftir því, að út-
borgun eigi sér stað í öðrum
gjaldmiðli en reikningsgjald-
miðlinum, skiptir bankinn á
honum og þeim gjaldmiðli, sem
óskað er eftir að útborgun eigi
sér stað í miðað við miðgengi
reikningsgjaldmiðilsins og
sölugengi þess gjaldmiðils, sem
óskað er eftir.
Við útborgun skal reiknaður
venjulegur bankakostnaður af
útgefnum banka- og ferðaávis-
unum og af millifærslum til
erlends banka, samkvæmt gild-
andi gjaldskrá hverju sinni.
Reikningsyfirlit
Reikningsyfirlit skal sent út
ekki sjaldnar en einu sinni á ári
til þess aðila, sem yfirráð hefur
yfir reikningnum.
Nafnbreytingar
Eigendaskipti að innlendum
gjaldeyrisreikningum eru
óheimil, nema við erfðir eða
fyrirframgreiðslu upp í arf.
Gjaldeyriseftirlit Seðlabankans
veitir þó frá þessu undanþágur,
þegar sérstakar ástæður eru
fyrir hendi.
Önnur atriði
Seðlabanki Islands setur sér-
stakar reglur um ávöxtun inn-
stæðufjár á innlendum gjald-
eyrisreikningum.
Seðlabanki tslands ákveður
vexti af innlendum gjaldeyris-
reikningum, svo og vexti af út-
lánum á innlánsfé til innlendra
aðila, samkvæmt ákvæðum 13.
gr. laga nr. 10/1961.
Um önnur atriði varðandi
innlenda gjaldeyrisreikninga
fer á sama hátt og um aðra
sparisjóðsreikninga i innláns-
stofnunum.
Reglur þessar eru settar sam-
kvæmt reglugerð nr. 418 frá 30.
nóvember 1977 um breyting á
reglugerð nr. 79, 27. mai 1960,
um skipan gjaldeyris- og inn-
flutningsmáia o.fl., og taka
gildi hinn 28. desember 1977.
SEÐLABANKI ISLANDS.
— Minning
María
Framhald af bls. 23
manni. A það fólk og þeirra ætt-
bogi margs að minnast er gamla
konan kveður.
Eigi verður heimsbrestur þá er
aldnir hverfa. Brautina þekkja
allir, aðeins ein leið úr rökkri
ellinnar yfir í bjarmann fyrir
handan. Lifsskeið þeirra sem
fæddust i fátækt fyrir aldamót
var jafnan fastmótað, vinna og
basl, krepptar henlur og lúin
bein. Sú varð og leið Mariu og
Steins, hún varð sér úti um fisk-
vinnu þegar eitthvað var að fá,
hann fékk sér pláss á togurum.
Fáir völdu sér hlutskipti á
kreppuárunum, menn stóðu með-
an stætt var og tóku heim það sem
heim var bært. Úthaldið var yfir-
leitt stutt á ári hverju, aðeins
vetrarvertíð, helzti glaðningurinn
ef til vill ýsa i soðið þegar vel bar
við. Slíkar voru kröfur þeirrar
kynslóðar. Þó urðu ýmsir bjarg-
álna, heimili Steins og Mariu lýsti
mannsbrag og myndarskap. Mætti
ætla að frá slíkum gengi ekki mik-
il saga.
Og þó er það sú saga sem lengst
mun minnzt. Sorgin barði
snemma að dyrum, Maria missti
bróður sinn sjö ára gamlan. Og
Steinn lézt fyrir aldur fram, kall-
ið kom 3. maí 1953. Gamla konan
bar sorg sína í hljóði, hún var
þeirrar gerðar að hún hugsaði
meir um aðra en sjálfa sig. Maria
var dagfarsprúð og hljóð, tranaði
sér hvergi fram. Hlutskipti henn-
ar varð þjónusta, helztu eiginleik-
arnir fórnfýsi og tryggð. Dætur
hennar erfðu myndarskapinn og
hlýjuna, hjá þeim undi hún elli-
kvöldið. Þar leit hún nýja kynslóð
vaxa úr grasi, þar tók hún enn á
ný börn á kné sér og kenndi.
Sögur og ljóð, þulur, bænir og
vers, þetta kunni hún. Og börnin
sem áttu slíkar ömmur, aldar i
fátækt, urðu rikari öðrum á möl-
inni. Sjóðurinn var gömul kona
sem vakti yfir velferð þeírra og
þroska. Sennilega skiljum við
aldrei til fulls þá sáru neyð er
steðjaði að öfum okkar og ömm-
um um aldamótin. En eitt munu
aliir skilja sem heyrðu á orð
Mariu: að enginn fyndi hamingj-
una sem ekki væri grandvar í
breytni, heiðariegur og vamm-
laus. Að standa við gefin loforð
var ekki barnaskapur, það var
s.íálf fótfestan í lifinu. Svo einföld
var sú lífsspeki sem veitti þessari
gömlu konu þrótt. Heimilið varð
hennar lif, eldhúsið hennar ríki,
þar lærði hún ótrúlega vel til
verka. Kröfur henni sjálfri til
handa voru engar — aðrar en þær
að fá að njóta samvista við börn
og barnabörn, arfinn frá heimili
þeirra Steins. En ósk átti hún
síðari árin — að hverfa aftur til
lífsförunauts sins. Eftir fjögurra
mánaða strið og þjáningar var
hún bænheyrð nú rétt fyrir jól.
Lauk þá þætti i framvindu kyn-
slóðanna, þætti þeirra er ólust
upp við tros og skófir. 1 fátækt
sinni miðluðu þeir afkomendum
sínum miklu.
Þess minnumst við yfir moldun-
um.
E.P.
VERZLUNARMANNAFÉLAG
REYKJAVlKUR
Jólatrésskemmtun
verður haldin að Hótel Sögu, Súlnasal, þriðju-
daginn 3. janúar 1978 og hefst kl 15 síðdeg-
is. Aðgöngumiðar verða seldir á skrifstofu VR
að Hagamel 4 Tekið verður á móti pöntunum í
síma 26344 og 26850
Verslunarmannafélag Reykjavíkur