Morgunblaðið - 28.12.1977, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 1977
23
María Jónsdóttir frá
Brimnesi — Minning
F. 18. febrúar 1895
D. 18. desember 1977.
í dag verður til moldar borin
amma okkar, María Jónsdóttir og
langar okkur systkinin að skrifa
nokkur minningarorð um ömmu.
Þegar við settumst niður til að
skrifa þessar línur, þá voru það
svo ótal margar minningar sem
komu upp í huga okkar, minning-
ar um alla þá bliðu og umhyggju
sem amma bar til okkar alla tíð.
Engin var jafn heilshugar í að
gleðjast með okkur bræðrunum
þegar vel gekk í íþróttunum, og
til engrar var jafn gott að koma
þegar á móti blés. Vinir okkar
höfðu oft á orði að furðulegt væri
að þetta gömul kona fylgdist svo
vel með íþróttum sem raun var á,
en það sannaði bara að hún hafði
áhuga á öllu sem okkur viðkom.
í gamla daga á Skúlaskeiðinu
var ævinlega mjög gestkvæmt,
enda voru afi og amma góð heim
að sækja. Fátt vissu þau betra en
að veita öðrum þótt efnin væru
ekki alltaf mikil. Allir voru vel-
komnir til þeirra, tryggð þeirra og
vinátta var mikil, enda naut
amma þess á ævikvöldinu. Gömlu
vinirnir og börn þeirra sýndu
henni sömu tryggð og vinsemd.
Foreldrar okkar bjuggu sín fyrstu
búskaparár hjá afa og ömmu á
Skúlaskeiðinu, og þar stigum við
systkinin okkar fyrstu bernsku-
spor. Eftir lát afa, bjó amma til
dauðadags hjá dætrum sinum og
tengdasonum, sem umvöfðu hana
umhyggju og blíðu, sem hún átti
svo sannarlega skilið. Og fóstur-
sonur hennar og hans fjölskylda
létu ekki sitt eftir liggja. Eitt af
því sem einkenndi ömmu okkar
öðru fremur var hógværð og
hennar einlæga guðstrú. Ótalin
eru öll þau vers og bænir sem hún
kenndi okkur og las með okkur,
það er fjársjóður sem aldrei verð-
ur frá okkur tekinn. Aldrei höf-
um við heyrt hana hallmæla
nokkurri manneskju, enda sá hún
alltaf eitthvað gott í öllum. Það er
ósk okkar að breytni hennar og
lífsviðhorf verði okkur leiðarljós í
lífinu. Hún er nú kvödd af okkur
öllum með þökk og virðingu.
Steinunn, Ólafur og Gunnar.
1 dag er til moldar borin Maria
Jónsdóttir frá Brimnesi á Langa-
nesi. María fæddist 18. febrúar
1895 og ólst upp að Hlíð í sömu
sveit. Foreldrar Mariu voru þau
Salóifte Jónasttir og Jón Sigurðs-
son bóndi frá Vopnafirði. Dvald-
ist María í foreldrahúsum fram að
fermingu, lengra náði æskan
ekki. Lífsbaráttan tók við, hún
vann það sem til féll, vist hér, vist
þar, í þá daga var um það eitt
spurt hvort mannfólkið hefði í sig
og á.
Hálfþritug kynntist María lífs-
förunaut sínum, Steini Guðmundi
Hermannssyni sjómanni, og gift-
ust þau 19. maí 1919. Fluttu þau
til Hafnarfjarðar og bjuggu þar
alla tíð. Reistu þau húsið að
Skúlaskeiði 6 árið 1928. Steinn
var frá Unustöðum í Kolbeins-
staðahreppi í Skagafjarðarsýslu.
Það var Maríu mikið lán að
hitta Stein. Samhentari hjón
munu vart hafa sezt að í Hafnar-
firði, enda reyndist sambúðin eft-
ir því. Töku þau hjónin að sér og
ólu upp systurson Maríu, Sigmar
Guðmundsson, er gerðist húsa-
smiður er hann komst á legg og
nú lifir kvæntur i Hafnarfirði.
Tvíbura eignuðust þau hjónin,
tvær stúlkur er hlutu nöfnin Sig-
rún Rósa og Þórdis. Þær systur
hafa ætíð haldið tryggð við Hafn-
arfjörð og búa þar nú ásamt eigin-
mönnum sínum, þeim Einari
Ólafssyni vélstjóra, umsjónar-
manni íþróttahússins, og Gunn-
Iaugi Guðmundssyni tollgæzlu-
Framhald á bls. 21.
t
Eiginmaður minn. faðir okkar, tengdafaðir, fósturfaðir, bróðir, afi og
langafi.
GUÐMUNDUR B. GUÐMUNDSSON
frá Hlíð.
Hringbraut 42. Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn 29 des kl
2 Blóm vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vildu minnast hins látna
er bentá liknarstofnanir
Fyrir hönd barna. tengdabarna, barnabarna, fóstursonar og systur
Vigdis GuSbrandsdóttir.
t
Eiginmaður minn,
GUÐMUNDUR VALDIMARSSON,
Hraungerði við Suðurlandsveg,
lézt af slysförum 22 des
Sigurlaug Helga Emilsdóttir.
t
Jarðarför,
JÓNSÞÓRÐARSONAR
Stigahlíð 22
sem andaðist 16 desember fer fram fimmtudaginn 29 desember kl
1 5 frá Fossvogskirkju
Blóm afbeðin
Börn og tengdabörn
t
Móðir okkar,
REBEKKA PÁLSDÓTTIR
frá Húsavik,
lést að Elliheimilinu Grund á jóladag
Geir Kristjánsson Óli Páll Kristjánsson
H Fisk Fjardar- kaup AFNFIRÐINGAR i i
aKieuur r\/| I N r. 9 l/\r , Fluqeldar ^ Biys \ Sólir /7' I Gos / f Stjörnuljós
Trönuhr.
,Ka uplelag Pris ma
> Reykjavikurvegur <
Sölustaðir: Hjallahraun 9 Lœkjargata 20 0 BJÖRGUNARSVEIT | FISKAKLETTS ? HAFNARFIRÐI
Jarðarför t
OKTAVlU HRÓBJARTSDÓTTUR
sem andaðist að Hrafnistu 20 desember fer fram frá Fossvogskirkju.
föstudaginn 30 desember kl 1 5 Fyrir hönd vandamanna
Sigurbjört Kristjánsdóttir
Þórunn Kristjánsdóttir
t
Jarðarför eiginmanns mins, föður, tengdaföðru og afa,
BRYNJÓLFS ÓLAFSSONAR
verkstjóra
Ásenda 12,
fer fram frá Laugarneskirkju fimmtudaginn 29 des kl 1 3 30 Þeim
sem vildu minnast hans er bent á Kristniboðið Fyrir mina hönd og
barna okkar
Kristrún Soffía Jónsdóttir
Guðni Olafur Brynjólfsson
Elin Anna Brynjólfsdóttir Ari Guðmundsson
Margrét Brynjólfsdóttir Brynjólfur Arason
Jóhannes Brynjólfsson
Bryndis Brynjólfsdóttir
Gunnar Brynjólfsson
Jón Brynjólfsson
t
Eiginmaður minn og faðir okkar
ÓLAFUR ÁSGEIRSSON,
fyrrverandi tollvörður
verður jarðsunginn frá ísafjarðarkirkju fimmtudaginn 29 desember kl
1 4
Freyja Rósantsdóttir
Asthildur Ólafsdóttir
Hilmar Ólafsson
Sigurður Ólafsson
t
Föðursystir min
RANNVEIG MAGNÚSDÓTTIR
Holtsgötu 16,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 29 desember kl
1 3:30 Þeim. sem vildu minnast hennar, er bent á Blindravinafélagið
Jóhanna Sigurðardóttir.
Skipasundi 34.
Bróðir minn t ÞÓRIR PÉTURSSON,
frá Hellissandi,
andaðist 20 þ.m i Borgarspitalanum Jarðarförin fer fram i Fossvogs-
kirkju fimmtudaginn 29 desember kl 10 30 f h
Sigurbjörg Pétursdóttir
t
James J Blake. sendiherra Bandarikjanna á íslandi færir innilegar
þakkir sinar og fjölskyldu sinnar fyrir þær mörgu samúðarkveðjur, sem
borist hafa vegna fráfalls eiginkonu hans,
DOLORES A. BLAKE
Minningarathöfn um frú Blake verður haldin i Kristskirkju Landakoti
29 desember kl 1 1 f h
t
Öllum þeim, sem á ýmsan hátt sýndu okkur samúð og vináttu vegna
fráfalls og jarðarfarar
DAVÍÐS ÞORGRÍMSSONAR,
frá Ytri-Kárastöðum,
þökkum við og óskum farsældar á komandi árum, með þökk fyrir þau
liðnu
Þórðveig Jósefsdóttir og fósturbörn.
t
Okkar innilegustu þakkir sendum við öllum, sem með samúð og
vinarhug hafa heiðrað minningu eiginmanns mins. föður okkar,
tengdaföður og afa
ÞORGRÍMS ST. EYJÓLFSSONAR
forstjóra
Hafnargötu 42, Keflavík.
Sérstaklega þökkum við læknum og starfsfólki á 3 b deild Lands-
spítalans fyrir frábæra hjúkrun og umönnun með hinum látna i
langvarandi veikindum hans
Eirika G. Árnadóttir
Anna Þorgrimsdóttir Ásgrimur Pálsson
Hólmfriður Guðmundsdóttir Árni Þ. Þorgrimsson
og barnabörn.