Morgunblaðið - 28.12.1977, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 1977
XiCHnUtfA
Spáin er fyrir daginn f dag
Hrúturinn
Ifil 21. marz—19. aprfl
Vertu ekki kærulaus í meðferð fjármála
f dag, það kynni að hafa alvarlegar
afleiðingar. Vertu heima f kvöld.
Nautið
20. aprfl—20. maf
Þér kann að reynast nokkuð erfitt að
gera fjölskyldu þinní til geðs f dag. En
sumum er alls ekki hægt að gera til geðs.
h
Tvíburarnir
21. maf—20. júní
Þú ert vel upplagður til stórræðanna í
dag, en það sama verður ekki sagt um þá
sem þú umgengst. Æstu þig ekki upp.
ijfej Krabbinn
21. júnf—22. júlf
Láttu ekki vini þfna telja þig á að gera
eitthvað sem ekki er skynsamlegt. Fjár-
málin eru ekki í sem bestu lagi og úrþvf
verður að bæta.
Ljónið
23. júlí—22. ágúst
Þú verður að læra að hafa stjórn á skapi
þfnu og í dag færðu tækifæri til að æfa
þig. Vertu heima f kvöld.
Mærin
23. ágúst— 22. sept.
Þú kannt að þurfa að gera einhverjar
breytingar á áætlunum þfnum f dag.
Láttu það ekki hafa áhrif á skap þitt.
Vogin
W/lirá 23. sept.—22. okt.
Dagurinn verður nokkuð erílsamur og þú
verður að skípuleggja hlutina vel ef þú
vilt ekki að allt lendi f handaskolum.
Drekinn
23. okt—21. nóv.
Dagurrnn verður sérstaklega ánægjuleg-
ur og eftirminnilegur. Vertu hjálpsamur
og taktu tillit til skoðana annarra.
Bogmaðurinn
22. nóv.—21. des.
Vertu ekki óþolinmáður við samstarfs-
menn þfna þó eitthvað gangi ekki eins og
þú ætlaðíst til. Vertu heima í kvöld
WmOk Steingeitin
22. des.—19. jan.
Þú kannt að lenda f einhverjum deilum í
dag og hætt er við að þú segir eitthvað
sem betur væri ósagt. Vertu heima í
kvöld.
Vatnsberinn
20. jan.—18. feb.
Þú verður sennilega fyrir nokkuð mikl-
um truflunum I dag og hætt er við að þú
missir stjórn á skapi þfnu ef þú gætir
ekki að þér.
^ Fiskarnir
19. feb.—20. marz
Það er ekki vfst að allt gangi eins og tíl
var ætlast og þér virðist helst sem fólk
sem þú umgengst geri allt til að skap-
rauna þér.
TINNI
UÓSKA
ÚR HUGSKOTI WOODY ALLEN
LOOODVsUlLTU
PASSA KPflKK-
AKA FpfífR M'C,
óaaástu/vd?
FERDINAND
— Dósina með gullstjörnun-
um? Nei, kennari, ég er ekki
með hana.
I PUT IT BACK 0N Y0UR
0E5K, REMEMBER? I
WOULPN'T TAKE V0UR 0OX
0F 60LP 5TAR5, MA'AM...
— Eg setti hana aftur á borðið
þitt. Manstu ekki? Ég myndi
ekki hnupla dósinni þinni með
gullstjörnunum, kennari...
— Ég er heiðarleg mann-
eskja,... ég er meira að segja
með heiðarlegt andlit ...
— Ekki smáfrftt en það er
heiðarlegt.