Morgunblaðið - 28.12.1977, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 1977
Leikið gegn Norðmönnum í kvöld
HM-hópurinn að
taka á sig mynd
— VIÐ LEGGJUM að sjálfsöjíðu mikla áherzlu á að sigra Norðmenn í þessum
tveimur landsleikjum og teljum okkur eiga alla möguleika á að vinna þá, sagði
Birgir Björnsson, formaður landsliðsnefndar, á fundi með fréttaniönnum í gær.
Landsliðið, sem leikur þessa tvo leiki hefur enn ekki verið endanlega valið, en 14
manna landsliðshóp skipa eftirtaldir leikmenn:
Kristján Sigmundsson, Víkingi. verður tilkynntur landsliðsmönn-
Allan
Simonsen
fékk gull-
knöttinn
DAN'SKI knattsp.vrnusnillingur-
inn Allan Simonsen var í gær
valinn bezti knattspyrnumaður
Evrópu af „France Football".
Fær Simonsen „gullknöttinn“ en
það eru eftirsóttestu verðlaun
evrópskra knattspyrnumanna.
í kosningu blaðsins fékk Allan
Simonsen, sem er einn sterkasti
leikmaður Borussia Mönchen-
gladbach, samtals 74 stig. Á hæla
honum komu þeir Kvein Keggan,
Liverpool og Hamburg SV, með
71 stig og Frakkinn Michel Plat-
ini fékk 70 stig. Roberto Bettega,
Juvenuts, fékk 39 stig og Johan
Cryuff 23 stig. Aðrir knattspyrnu-
menn fengu mun færri stig í
þessu kjöri.
Allan Simonsen er 26 ára gam-
ali og hefur skorað tæplega 50
mörk fyrir Borussia frá því að
hann gerðist atvinnumaður með
félaginu fyrir 4 árum. Aður lék
hann með Vejle í Danmörku. IVIeð
Borussia hefur hann orðið Þýzka-
landsmeistari þrisvar sinnum og
einnig unnið sigur í UEFA-
keppninni með félagi sfnu.
Gunnar Einarsson, Haukum, Jón
Karlsson, Val, Geir Hallsteinsson,
FH, Björgvin Björgvinsson,
Víkingi, Árni Indriðason, Víkingi,
Þorbjörn Guðmundsson, Val,
Axel Axelsson, Dankersen, Gunn-
ar Einarsson, Göppingen, Bjarni
Guðmundsson, Val, Janus
Guðlaugsson, FH, Jón Hjaltalin
Magnússon, Lugi, Viggó Sigurðs-
son, Víkingi, Ólafur Einarsson,
Víkingi.
Það vekur athygli að Einar
Magnússon er ekki valinn til
þessa leiks, en trúlega verður
landsliðshópnum breytt á ný fyrir
leikinn annaö kvöld. Þá er Axel
Axelsson á ný meðal leikmanna
landsliðsins og verður fróðlegt að
sjá hvort hann og Björgvin Björg-
vinsson „finna hvorn annan“ í
leiknum en samvinna þeirra i
gegnum árin er rnargrómuð.
Reynt verður að semja við
Norðmenn um að notaðir verði 13
leikmenn í leiknum i kvöld, en
endanlegur landsliðshópur
unum á æfingu í hádeginu i dag.
Sá 16-manna landsliðshópur,
sem fer til Danmerkur, verður
endanlega valinn um áramótin.
Þó enn séu nokkrir dagar til
stefnu og ýmislegt geti breytzt, þá
er það skoðun undirritaðs, að
viðbót við þann hóp, sem skipar
landsliðið í kvöld, bætist við þeir
Ólafur Benediktsson og Einar
Magnússon. Aðrir leikmenn, sem
æft hafa af kappi með hópnum og
fórnað miklum tíma fyrir lands-
liðið verði að bíta í það súra epli
að sitja heima.
Þetta er eðlilega ekki anngð en
spá og vissulega gætu merin eins
og Þorbergur Aðalsteinsson
tryggt sér sæti i landsliðshópnum
og komið i stað einhvers þeirra,
sem nefndur hefur verið hér að
framan. Um Pál Björgvinsson var
spurt á fundinum í gær og sagði
Birgir Björnsson að iandsliðs-
nefnd liti þannig á að annað hvort
Jón Karlsson eða Axel Axelsson
— eða jafnvel Þorbergur Aðal-
steinsson fengi það hlutverk að
koma í stað Geirs Hallsteinssonar
sem stjórnandi í leik liðsins, ef
Geir meiddist, hann þyrfti hvíld,
eða vegna annarra orsaka. Páll
væri þó enn í dæminu eins og
aðrir í hópnum.
Þeir handknattleiksmenn, sem
enn eru í landsliðshópnum, en
hafa ekki verið nefndir hér að
framan eru Þórarinn Ragnarssoá,
Þorbjörn Jensson, Birgir
Jóhannesson og Jón Pétur Jóns-
son
— Okkur finnst við vera með
mjög góðan landsliðshóp í
höndunum, sagði Birgir Björns-
son í gær. — Það leggja allir
mikið á sig og æfa af kappi. 1
hverri stöðu eru fleiri en einn og
fleiri en tveir góðir leikmenn og
það er síðan okkar erfiða hlut-
verk að velja úr hópirum sterka
heild og það er ekki auðvelt.
Landsliðsmennirnir fengu
þriggja daga frí frá æfingum um
jólin og um áramótin verða æfing-
HM KOSTAR HSI
15 MILLJÓNIR KR.
HANDKNATTLEIKSSAMBANDIÐ hefur áætlað að beinn kostnaður vegna undirbúnings og þátttöku
íslenzka landsliðsins í heimsmeistarakcppninni nemi rúmlega 15 milljónum króna. Það segir sig sjálft,
að það er mikið átak fyrir sérsamband eins og HSl að fjármagna keppni sem þessa.
Sagði Sigurður Jónsson, formaður HSl, á fundi
með fréttamönnum í gær, að HSÍ yrði nú sem
endranær að treysta á velvilja unnenda íþróttar-
innar, sveitarfélög og aðra aðila, sem áður hefðu
veitt handknattleikslandsliðinu stuðning og síðast
svo myndarlega, sem enn væri í fersku minni, við
þátttöku íslands í b-keppni HM í Austurríki á
síðasta vetri.
Kostnaður venga þátttöku Islands í úrslitum
heimsmeistarakeppninnar skiptist þannig:
1. Undirbúningsferðir:
a) Ferð til V-Þýzkalands, Póllands
og Svíþjóðar kr. 2.200.000
b) Aukalega vegna leikja í Noregi kr. 750.000
2. Aðrar ferðir:
a) Vegna „útlendinga"
b) Vegna könnunarferða
3. Kostnaöur vegna þjálfunar:
a) Þjálfaralaun, boltakostnaður,
húsnæði
b) Boltar, æfingatimar og annar
kostnaður
4. Þátttakan í HIVI:
a) Ferðir
b) Annar kostnaður
5. Vinnutap:
Vinnutap leikmanna, akstur
Heildarkostnaður vegna
þátttöku i HM
kr.
kr.
1.200.000
700.000
kr. 1.300.000
kr. 1.600.000
kr.
kr.
2.500.000
1.800.000
kr. 3.000.000
kr. 15.050.000
Ackermann valin
A-ÞYZKA stúlkan Rosemarie Ackermann var kjörinn íþróttamaður ársins í Evrópu af 23
evrópskum fréttastofum, en það var pólska fréttastofan PAP, sem gekkst f.vrir þessu
kjöri.
Síðaslliðið sumar náði Ackermann frábærum árangri í hástökki og marghætti þá
heimsmetið í greininni. Hlaut hún samtals 209 stig, en mögulegt var að fá 230. Voru 10
fréttastofur með hana í 1. sæti, en 9 í 2. sæti.
Annar í þessu kjöri varð Austurríkismaðurinn Niki Lauda, en sovézki hástökkvarinn
Vladimar Yaschenko varð þriðji. síðan komu Svíarnir Ingemar Stenmark og Björn Borg.
Var þetta í 20. skiptiö, sem PAP-fréttastofan gengst fyrir slíku kjöri.
Til að afla fjár upp í þennan mikla kostnað sagði
Sigurður Jónsson að HSI væri að snúast í ýmsum
hlutum til að fjármagna fyrirtækið. Sambandið
væri án fasts tekjustofns og yrði því að leita á ýmis
mið til að afla fjár. Þannig væri sambandið með
happdrætti í gangi og yrði gert átak í að selja rníða
á næstunni, einnig yrði sótt um fé til Afreksmanna-
sjóðs ISl og síðast en ekki sízt sagði Sigurður að
HSI myndi treysta á stuðning handknattleiksunn-
enda, sveitarfélaga og stofnana, sem hefðu stutt
HSÍ myndarlega vegna þátttöku landsliðsins i
Austurríki á síðasta vetri.
A fundi með HSÍ í gær afhentu Samtök íþrótta-
fréttamanna HSÍ 250 þúsund krónur að gjöf.
TVEIR STJÓRNENDUR — Jón
II. Karlsson, fyrirliði landsliðs-
ins, og Geir Hallsteinsson, Ivkil-
maður í leik liðsins,
ar felldar niður i tvo daga. Að
öðru leyti hefur verið æft daglega
frá því í byrjum desember og
stundum tvisvar á dag. Fram til
16. janúar verður æft eftir mjög
erfiðu „prógrammi" frá Janusi
Cerwinsky og auk æfinga er ætl-
unin að bæta 2—3 æfingaleikjum
viö. Síðustu dagana áður en farið
verður utan verða aöeins léttar
íeikfimiæfingar, nudd og gufu-
böð.
t Noregi verða leiknir 2 leikir
21. og 22. janúar, en HM hefst
síðan 26. janúar. Þá verður leikið
gegn Rússum, 28. er leikur á móti
Dönum og loks 29. á móti Spán-
verjum. Síðan taka við leikir í
8-liða úrslitunum — ef fer að von-
um HSÍ-manna og allra unnenda
handknattleiks á Íslandi.
Sagði Sigurður Jónsson í gær að
almennt væri litið svo á að Danir
og Rússar kæmust áfram úr riðl-
inum, en Íslendingar og Spán-
verjar sætu eftir. Sagðist Sig-
urður hins vegar veía trúaður á
„óvænt úrslit" og að island
kæmist áfram.
Er J anus Cerwinsky var
spurður um þessa hluti áöur en
hann hélt héðan sagðist hann
hafa tröllatrú á að ísland sigraði
Sovétríkin, en hins vegar aö Dan-
irnir yrðu erfiðari. Meðal annars
vegna þess að þeir lékju á heima-
velli.
Norska landsliðið kom til lands-
ins síðdegis í gær og nöfn leik-
manna Norðmanna eru. Morgan
Juul, Björn Steive, Ole Gundem,
Geir Röse, Kristen Grislingaas,
Henning Riegel, Terje Halén, Jan
Hauger, Geir Haugstveit, Hans
Augested. Trond Ingebritsen.
Knut Sveen, Audun Dyrdal.
Dómarar i leiknum í kvöld
verða þeir Gentz og Pritzkow drá
A-Þýzkalandi. —áij
URVALIÐ ALDREI FJOLBREYTTARA
wBQaaaa ©.aíJiiaaaaa a?
ANANAUSTUM. SIMAR 28855.