Morgunblaðið - 28.12.1977, Qupperneq 32
AUGLYSINGASIMINN ER:
22480
MtvQwibUibib
AUGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
JM»r0unÞtabib
MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 1977
Bílainiiflutningsmálið:
Rannsakaður
innflutningur á
fieiri tegundum
□-------------------□
SEÐLABANKI Islands hefurgef-
ið úl bráðabirgðareglur um inn-
lenda gjaldeyrisreikninga og f
dag, miðvikudaginn 28. desem-
ber, verður unnt að stofna til
slíkra reikninga f gjaldeyrisbönk-
unum, Landsbankanum og Út-
vegsbankanum. Reglur Seðla-
bankans, sem birtar eru í heild á
bls. 15, gera ráð fyrir að menn
geti tekið út í einu án þess að gera
sérstaklega grein fyrir ráðstöfun
fjárins allt að 2.500 dollara og
fari þá úttekt eigi fram úr 5.000
doliurum á ári (um eina milijön
krðna). Fari fjárhæð fram úr
þessu, verða menn að gera skrif-
lega grein fyrir ráðstöfun fjárins
til gjaldeyrisdeildar bankanna.
Morgunhlaöinu barst í gær
fréttatilkynning frá Seðlabankan-
um um þessa reikninga. Hún er
svohljóðandi:
„Hinn 30. nóvember sl. veitti
viðskiptaráðuneytið með reglu-
gerð heimildir til sparifjáreignar
RANNSÓKN bílainn-
flutningsmálsins er haldið
áfram af fullum krafti hjá
Rannsóknarlögreglu ríkis-
ins, en sem kunnugt er
sitja nú tveir menn í gæzlu-
varðhaldi vegna þess máls,
innflytjandi notaðra bíla
og maður nokkur, sem
grunaður er um að hafa
veitt innflytjandanum að-
stoð við hin meintu brot.
YR óskar eftir nýjum
samningaviðræðum
Eins og fram hefur komið í
fréttum, er nú til athugunar inn-
flutningur á 40—50 notuðum
Mercedes Benz bifreiðum frá
Vestur-Þýskalandi. Er þessa dag-
ana verið að yfirheyra kaupendur
bifreiðanna, m.a. til þess að
kanna þá staðhæfingu innflytj-
andans að kaupendunum hafi ver-
ið kunnugt um hvernig i pottinn
var búið og þeir hafi þess vegna
greitt minna verð fyrir bif-
reiðarnar en ella hefði orðið.
Umræddur bílainnflytjandi
hefur haft innflutning notaðra
bifreiða frá Þýzkalandi að aðal-
atvinnu nokkur undanfarin ár og
flutt inn fleiri tegundir en
Mercedes Benz. Stendur nú til að
kanna hvort hugsanlega kunni að
hafa verið brögð í tafli við inn-
flutning annarra tegunda en
Mercedes Benz.
Verzlunarmannafélag
Reykjavíkur hefur sent
viðsemjendum sínum bréf,
þar sem þess er óskað að
viðræður um kjarasamn-
inga félagsins verði teknir
upp á ný í ljósi þeirra við-
horfa sem hafa skapst í
þjóðfélaginu á undanförn-
um mánuðum.
Guðmundur H. Garðars-
son formaður Verzlunar-
mannafélagsins sagði í
samtali við Morgunblaðið í
gær, að félagið hefði fyrir
nokkru sent viðsemjend-
um sínum fyrrgreint bréf,
en viðsemjendurnir væru:
Vinnuveitendasambandið,
Verzlunarráð Islands,
Kaupmannasamtökin,
Samband ísl. samvinnu-
Gjaldeyrisreikningar frá og meó deginum í dag:
Leyft að taka út allt að
einni milljón kr. á ári
í erlendum gjaldeyri við þá
banka, sem heimild hafa til þess
að verzla með erlendan gjaldeyri,
en það eru Landsbankinn og Út-
vegsbankinn.
Að undanförnu hefur verið
unnið að undirbúningi málsins i
bönkunum í samráði við við-
skiptaráðuneytið og á morgun,
miðvikudaginn 28. desember,
verður byrjað að taka á móti inn-
lögnum i erlendum gjaldeyri í
aðalbönkum Landsbankans og Ut-
vegsbankans. Gert er ráð fyrir, að
útibú bankanna fylgi á eftir fljót-
lega upp úr áramótunum.
Heimilt er að leggja inn á al-
menna sparifjárreikninga í
erlendum gjaldeyri þann gjald-
eyri, sem ekki er skylt að selja
gjaideyrisbönkunum. Er hér fyrst
og fremst um að ræða erlend
vinnulaun og þóknanir, afgang af
áhafna- og ferðagjaldeyri, arf
erlendis frá, fé, sem menn taka
með sér við flutning til landsins,
svo og umboðslaun og erlendar
tekjur skipa- og flugfélaga og vá-
tryggingarfélaga.
Gjaldeyri á þessum reikningum
er frjálst að ráðstafa til vöru-
kaupa, sem ekki eru háð innflutn-
ingsleyfum, og erlendrar þjón-
ustu, þar á meðal til greiðslu
ferða- og dvalarkostnaðar. Um-
boðslaunatekjum er þó aðeins
heimilt að ráðstafa til innflutn-
ings á frílistavörum og nokkrar
takmarkanir eru á ráðstöfunar-
rétti fyrirtækja. Eignayfirfærslur
af þessum reikningum eru háðar
heimildum gjaldeyrisyfirvalda,
en settar verða almennar starfs-
reglur um þær, þar með taldar
greiðslur vegna arfs, búferla-
flutnings eða langdvalar erlendis.
Sömu reglur munu gilda um
sparifé á innlendum gjaldeyris-
reikningum og um aðrar innstæð-
Framhald á bls. 18
félaga og Félag ísl. stór-
kaupmanna. í bréfinu væri
óskað eftir því að fá við-
ræður við framangreinda
aðila um samninga félags-
ins í ijósi þeirra viðhorfa
sem hefðu skapast undan-
farna mánuði.
Þetta bréf félagsins var sérstak-
lega sent, með það í huga að þegar
samið var við BSRB og banka-
menn fyrir skömmu, var stuðst
við ákveðna viðmiðun úti á hinum
almenna launamarkaði, sem við
höfum ekki fengið staðfest í
samningi félagsins.
Þvi höfum við óskað eftir við-
ræðum við þesa aðila til þess að
Framhald á bls. 18
Æskulýðs-
ráð vill selja
Tónabæ
A StÐASTA fundi Æskulýðsráðs
Reykjavíkur var samþykkt að
Tónabær, húsnæði Æskulýðsráðs
við Skaftahlíð verði selt og and-
virðinu varið til uppbyggingar
æskulýðsstarfs I borginni. Var til-
laga um þetta mál samþykkt með
6 atkvæðum gegn 1.
Á fundi Æskulýðsráðs var eftir-
farandi tillaga samþykkt:
„Æskulýðsráð fer þess á leit við
borgarráð, að það hlutist til um,
að húsnæði Tónabæjar að Skafta-
hlíð 24 verði selt, fáist viðunandi
verð fyrir og andvirðinu verði
varið til uppbyggingar æskulýðs-
starfs í borginni skv. nánari til-
lögum Æskulýðsráðs Reykjavíkur
tii borgarráðs."
Hægt
miðar
í fiskverðs-
ákvörðunum
YFIRNEFND Verðlags-
ráðs sjávarútvegsins
hefur nú í nokkurn tíma
fjaílað um almennt fisk-
verð, sem á að taka gildi
1. janúar n.k. Fundur
var síðast haldinn á Þor-
láksmessu án þess að
nokkuð miðaði í sam-
komulagsátt. Hefur ann-
ar fundur verið boðaður
í dag, en ekki er gert ráð
fyrir að neinn árangur
náist á þeim fundi, og
eru yfirnefndarmenn
sagðir svartsýnir á, að
nýtt verð verði ákveðið
fyrir áramót
I gær var svo haldinn
fundur í Verðlagsráði
sjávarútvegsins um verð
á loðnu á komandi vetr-
arvertíð, og hefur annar
fundur verið boðaður í
ráðinu í dag.
Notaði tvöfalt nótukerfi
og fékk millifærslur end
ur greiddar í peningum
RANNSÓKN er haldið áfram í
máli fyrrverandi deildarstjóra
ábyrgðardeildar Landsbanka Is-
lands, sem úrskurðaður var i
gæzluvarðhald skömmu fyrir jól.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Morgunblaðið hefur aflað sér,
hefur deildarstjórinn haft fé af
fyrirtæki einu f borginni og bank-
anum sjálfum.
Abyrgðargreiðslur þessa til-
tekna fyrirtækis hafa verið notað-
ar til þess að greiða ábyrgðir
a.m.k. tveggja fyrirtækja i
Reykjavík með millifærslu á
milli reikninga. Með þvf móti gat
deildarstjórinn veitt þeim lán,
sem fyrirtækin síðan endur-
greiddu honum í peningum. Þá
mun deildarstjórinn hafa notað
tvöfalt nótukerfi, annað, sem
sneri að bankanum sjálfum, en
hitt, sem fyrirtækið fékk, sem
svikið var.
Ábyrgð, sem banki veitir, er
þess eðlis, að bankinn tekur að
sér að ábyrgjast greiðslu á vöru,
sem fyrirtæki er að flytja til
landsins. Mismunandi er, hve
mikió menn þurfa að setja sem
ábyrgð og getur það verið allt frá
10% til 100% af andvirði vörunn-
ar. Fer það allt eftir þvi, hve
traust fyrirtækið er að áliti bank-
ans. Ef fyrirtækið síðan lendir í
vanskílum með greiðslu vörunn-
ar, greiðir bankinn hana, en tekur
dráttarvexti af fyrirtækinu, sem
nú eru 3% á mánuði.
Rannsókn málsins er haldið
áfram eins og áður er getið, en
fátt nýtt hefur komið fram við
rannsóknina umfram það sem hér
er tilgreint og skýrt var frá í
Morgunblaðinu á aðfangadag, en
á Þorláksmessu gáfu Landsbank-
inn og Rannsóknarlögregla ríkis-
ins út fréttatilkynningar um það
að málið hefði verið kært, þegar
umfang þess lá fyrir.
Stöðugt hefur verið unnið að
rannsókn málsins hjá Rann-
sóknarlögreglu ríkisins frá þvi
stofnuninni var falin rannsókn
þess og var m.a. að nokkru unnið
að rannsókninni um jólin. Hefur
fyrrverandi deildarstjóri
ábyrgðardeildarinnar verið yfir-
heyrður margsinnis og siðast í
gær. Þau Hallvarður Einvarðsson
rannsóknarlögregiustjóri og Erla
Jónsdóttir deildarstjóri hafa ann-
ast rannsókn málsins ásamt Egg-
ert N. Bjarnasyni rannsóknarlög-
reglumanni.