Morgunblaðið - 12.01.1978, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. JANUAR 1978
3
Þingfararkaupsnefnd
ákvað að miðaviðBHM
Formenn þingflokkanna segja álit
sitt á launahækkun þingmanna
MORGUNBLAOIO leitaSi i gær
álits formanna þingflokkanna á
þeirri hækkun, sem þingmenn
hefðu fengiS á þingfararkaup sitt.
en það hefur hækkaS á síSastliBn-
um 12 mánuSum um 78,3%. Á
sama tima hafa taxtar ASÍ a8
meðaltali hækkaS um 60% og
taxtar BSRB um 76.5%. Meðal-
talshækkun bankamannasamn-
inga er 67,4%. Sú breyting hefur
verið ger8 á viUmiðun þingafarar-
kaupsins a8 i fyrra var miðað vi8
þriðja hæsta flokk opinberra
starfsmsnna, en þar sem BHM og
BSRB taxtar eru ekki lenguf sam-
hljóða hefur sú ákvörðun verið
tekin a8 mi8a þingfararkaupiS vi8
þriSja hæsta flokk BHM.
Gunnar Thoroddsen, formaður
þingflokks Sjálfstæðisflokksins.
sagði: „Alþingismenn hafa i mörg ár
fengið laun samkvæmt þriðja hæsta
launaflokki rikisstarfsmanna. Það
byggist á lögum frá 1971 Nú þegar
samningar Bandalags starfsmanna
rikisins og Bandalags háskólamanna
eru ekki samhljóða. þurfti þingfarar-
kaupsnefnd að taka afstöðu til máls-
ins og álit ég. að mat hennar hafi
verið rétt.
Annars tel ég æskilegt að breyta
lögum og fela kjaradómi að ákveða
laun alþingismanna eins og hann
ákveður nú laun forseta íslands.
hæstaréttardómara. ráðherra og
ráðu neytisstjóra."
Gyfli Þ. Gislason, formaður þing-
flokks Alþýðuflokksins. sagði: „Ég
hefi ekki fylgzt með þeirri breytingu.
sem gerð hefur verið á þingfarar-
kaupi. og las fyrst skýringar á henni
í blöðum. Ég tel, að störf þing-
manna séu skyldust þeim störfum.
sem unnin eru af opinberum starfs-
mönnum. og álit þess vegna, að
eðlilegra hefði verið að kauphækkun
þingmanna lyti sömu reglum og
kauphækkun opinberra starfs-
manna."
Magnús Torfi Ólafsson. for-
maður Samtaka frjálslyndra og
vinstri manna, sagði að sinn flokkur
hefði engan fulltrúa í þingfarar-
kaupsnefnd. sem hann kvaðst gera
ráð fyrir að fjallað hefði um málið.
þótt það væri ekki vist. Það kvað
Magnús Torfi vera vegna þess að
þingfararkaup væri ekki ákveðið af
nefndinni. heldur ákveðið i lögum
„Tel ég það eðlilegt. að það séu ekki
þingmenn sjálfir sem ákveði sér
laun. heldur sé þar ákveðin lagavið-
miðun fyrir hendi. Hins vegar hef ég
ekki hugmynd um að þarna er breytt
viðmiðun frá launastiga BSRB til
Bandalags háskólamanna. Frá
minum sjónarhóli taldi ég að þess-
um málum hefði lagalega verið skip-
að til frambúðar þannig að ekki
þyrfti að koma þar til breyting, fyrr
en lögunum yrði breytt. Ég tel að
eins og þingfararkaup hefur verið frá
þvi er þetta lagaákvæði gekk i gildi.
þá sé ekki eðlilegt að það hækki
umfram þau störf. sem þar voru
sambærileg eða höfð voru til við-
miðunar."
Þórarinn Þóarinsson, formaður
þingflokks Framsóknarflokksins.
kvað eðlilegast að hafður yrði einn
launaskali fyrir alla opinbera starfs
menn og ættu þingmenn að fylgja
þeim skala eins og verið hefði
Morgunblaðinu tókst ekki á ná tali
af Ragnari Arnalds, formanni þing-
flokks Alþýðubandalagsins, til þess
að spyrja hann um álit hans á þess-
ari launaákvörðun. Ragnar er á
fundaferðalagi í kjördæmi sinu Hið
sama er að segja um Lúðvik Jóseps-
son formann flokksins
,a. MiyMII* i“ ,,u
fullkomnasta flsklskip landslns.
Framhald á bls. 24.
tylgjanm pvl að Norglobal st te*-
M á leigu.” sagði Clall Jdhannea-
Laun þingmanna haf a
hækkað um 78,3% f rá
g dvalarkostnaður þing-
á meðan þeir
r þiqgtlmann
i iafn mlkis
Davfð Sch. Gunnar CiuðmundurJ.
Thorsteinsson Björnsson (auðmundsson
Iðnrekendur og bygg-
ingamenn fagna
tillögum borgarstjóra
Ánægjulegt að samráð var haft við verka-
menn, segir Guðmundur J. Guðmundsson
MORGUNBLAÐIÐ leitaSi i gær til
nokkurra forystumanna i atvinnu-
málum og fékk viðbrögð þeirra vi8
tillögum borgarstjóra a8 stefnuskrá i
atvinnumálum höfuSborgarinnar, en
tillögumar voru kynntar ýtarlega i
MorgunblaSinu i gær. Fara svörin
hér é eftir:
DaviS Sch. Thorsteinsson, form.
Félags isl. iSnrekenda: Ég fagna því
að Reykjavikurborg hefur tekið frum-
kvæði i þessum málum og væntum við
iðnrekendur góðs af þessum tillögum
fyrir borgarbúa og fyrir iðnaðinn i
heild Þessar tillögur eru m.a samdar i
samvinnu víð fulltrúa iðnaðarins og er
ég mjög ánægður með þær. Samvinna
í þessum málum hefur verið mjög góð
og vona ég að sú ágæta samvinna
haldi áfram
Það sem vekur sérstakan áhuga okk-
ar i tillögum borgarstjóra er hvað þar
segir um innkaup og útboð á vegum
borgarinnar. iðngarða og gatnagerðar-
gjöld. en einnig gleður það vort hjarta
að orka orkufyrirtækja borgarinnar
verði seld á raunkostnaðarverði til
neytenda
Gunnar Björnsson, form. Meist-
arasambands byggingamanna: Til-
lögur borgarstjóra eru mjög til bóta og
að ýmsu leyti mjög athyglisverðar.
Byggingamenn áttu þess kost að tjá sig
um framtíðarstefnumörkun i lóðamál-
um og af okkar hálfu er ekki annað
hægt að segja en að mjög vel hafi verið
tekið á okkar tillögum Það var okkur
t.d. hjartans mál að fá úthlutað stærri
lóðum i hvert sinn til bygginga og að
fá að hafa meiri ihlutun varðandi skipu-
lag þessara byggingasvæða Með þvi
að fá stærri lóðir geta menn séð nokk-
uð fram fyrir sig með byggingarfram-
kvæmdir. Möguleikar skapast þannig
fyrir fyrirtæki til að byggja sig tækni-
Framhald á bls. 20
Rannsóknarlög-
regla ríkisins:
16 starfs-
menn vinna
að rannsókn
5 meintra fjár-
svikamála
STARFSMENN og sérfræðingar
Rannsóknarlögreglu rfkisins
vinna nú að rannsókn á fimm
meintum fjársvikamálum og
vinna alls 16 af starfsmönnum
stofnunarinnar að þessum mál-
um, samkvæmt upplýsingum
Njarðar Snæhólms yfirlögreglu-
þjóns.
Að rannsókn Landsbankamáls-
ins vinna þrír starfsmenn stofn-
unarinnar auk sérfræðings í bók-
haldsmálum og að rannsókn bíla-
innflutningsmálsins vinna þrír
starfsmenn embættisins. Rann-
sókn á þessum málum tveimur er
nýlega hafin.
Fjórir lögreglumenn við Rann-
sóknarlögregluna vinna að rann-
sókn ávísanamálsins mikla, sem
verið hefur í rannsókn undanfar-
in misseri undir stjórn Hrafns
Bragasonar borgardómara. Rann-
sókn málsins er á lokastigi.
Þrfr starfsmenn stofnunarinnar
vinna að rannsókn á meintu mis-
ferli hjá sparisjóðnum Pundinu,
sem kært var fyrir nokkrum
misserum. Það mál er einnig á
lokastigi.
Loks vinna fjórir starfsmenn að
rannsókn á meintum fjársvikum
læknis út úr Tryggingastofnun
ríkisins. Það mál var kært I fyrra-
sumar og hefur staðið yfir yfir-
gripsmikil rannsókn á málinu og
tugir af sjúklingum umrædds
læknis hafa verið kallaðir til yfir-
heyrslu.
Þess skal getið til skýringa, að
Erla Jónsdóttir hefur með hönd-
um stjórn fjögurra af þessum
málum, allra nema ávfsanamáls-
ins.
kt. 19.00
ágríska vísu
sunnudagskvöld
svatdrykkí 1S- ÍanÚar 30 HÓte1 S°9U
kl. 19.30 fagnaðurinn hefst
Grískur
hátíðarmatseðill
Verð aðeins kr. 2.250
Kl. 20.00
Tízkusýning:
Modelsamtökin sýna nýjustu
haust- og vetrartízkuna.
4S
sS
Fegurðarsamkeppni:
UNGFRÚ ÚTSÝN 1978
Ljósmyndafyrirsætur
valdar úr hópi gesta
Forkeppni
Sigurður A.
Magnússon
aðalfararstjóri Útsýnar í
Grikklandi 1978
segir frá Grikklandi
að fornu og nýju
Ragnar
Bjarnason
og hljómsveit
ásamt Þuríði
leika fyrir dansi til kl. 1
OKEYPIS
happdrætti
fyrir gesti
scm knrna fyrir kl 20 00
Vinningur Utsýnarferð
til Ítalíu 1978
Skemmti-
atriði
BINGO
Tvöfalt vinnings verðmæti
3 umferðir, hver vinningur O
óviðjafnanleg Útsýnarferð fyrir
til sólarstrandar.
MYNDASYNING
Forstjóri Útsýrrar sýnir nýjar lit-
myndir frá sólarströndum Spán-
ar og ítaliu
Munið að panta borð snemma hjá ytirþjóni
i sima 20221, eftirkl. 16.00
Hjá Útsýn komast jafnan fœrri að en vilja.
Útsýnarkvold aru
skemmtanir i sérftokki.
þar sem fjorið og
stemmningin
bregðast ekki.
Austurstræti 17.