Morgunblaðið - 12.01.1978, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. JANDAR 1978
5
Staðarbakki:
Óvenjugott
vedur ad
undanförnu
Staðarbakka. Midfirdi. 11 janúar
VEÐUR hefur verið óvenjugott
hér að undanförnu og færð á
vegum eftir því góð, þó nokkur
hálka sé víða. Snjógangur
hefur verið nokkur og lítið um
haga. Astandið i atvinnumálum
hér og á Hvammstanga hefur
verið nokkuð gott og byggingar
hafa verið töluverðar á s.l. ári,
bæði heygeymslur og ibúðar-
hús.
I menningarlífinu hefur
verið frekar mikil deyfð að
undanförnu, þó er leikfélagið á
Hvammstanga að æfa þar verk
sem verður frumsýnt innan
skamms og okkar árlegaitorra-
blót verður bráðlega.
Benedikt.
Höfn, Hornafirði:
Leikfélagið í
leikför í
höfuðborginni
Höfn, Hornafirði, 11. janúar
LEIKFÉLAG Hornafjarðar
lagði upp í leikför til höfuð-
borgarinnar um seinustu helgi
og var með þessari ferð samein-
að tvennt, að fara í leikhús
annars vegar og sýna verkið
Kertalog eftir Jökul Jakobsson
hinsvegar. Sýningar voru í fé-
lagsheimilinu á Seltjarnarnesi
og á fyrstu sýningunni var hús-
fyllir og var það mál manna, að
sýningin hefði tekizt með
ágætum og var leikstjórinn,
Ingunn Jensdóttir, og leikarar
ákaft hylltir með blómum og
lófataki.
Að lokum má geta þess, að
leikfélagið hafði áður farið í
leikferð austur á firði og fengið
þar mjög lélega aðsókn.
Gunnar.
N eskaupstaður:
Mjög góður
afli skipa og
næg atvinna
Neskaupstað, 11. jan.
MIKIL atvinna hefur verið hér
eftir að togararnir fóru að
landa eftir áramótin. Nú þegar
hafa tveir þeirra landað mjög
góðum afla og von er á fleirum.
Þá hefur það gerzt í fyrsta
skipti í mörg ár að bátar hafa
róið hér beint út á línu og feng-
ið bara mjög góðan afla. Annars
bíða menn í ofvæni eftir loðn-
unni og er undirbúningur þeg-
ar hafinn fyrir móttöku.
Samgöngumál okkar eru líka
í betra horfi en nokkru sinni
áður og valda þar Oddsskarðs-
göngin mestu um. Varla hefur
komið fyrir að lokazt hafi i
meira en einn dag í senn vegna
snjóa, þar sem nú þarf ekki að
ryðja háheiðina eins og áður.
Asgeir.
Dalvík:
Blandaður
kór starfandi
í fyrsta sinn
Dalvík. 11. janúar.
MJÖG risjótt veður hafa gengið
yfir hjá okkur að undanförnu
og má segja, að allt sé ófært hér
að meðaltali annan hvern dag
eins og einmitt nú þessa stund-
ina, en vél er þó farin til að
ryðja.
I haust var hér stofnaður i
fyrsta sinn blandaður kór, sem
hefur æft í vetur og haldið tvo
tónleika við mjög góðar undir-
tektir ibúanna, en stjórnandi
kórsins er Kári Gestsson og ein-
söngvari með kórnum á þessum
tónleikum var Kristján
Jóhannsson frá Akureyri og nú
um þessar mundir er leikfélag-
ið með verk i æfingu, sem verð-
ur sýnt seinna í vetur.
^ Sæmundur.
Skálholt:
Óvenju gjaf-
frekt í vetur
Skálholti 11. janúar.
ÞÓ NOKKUR snjór sé hér um
slóðir eru vegir nokkuð greið-
færir um allt. Nokkur harðindi
hafa verið hér í vetur, með
övenju miklum kutdum, sem
hefur m.a. komið fram i þvi að
mun gjaffrekara hefur verið á
skepnur í vetnr en undanfara
vetur, allt frá þvi í byrjun
nóvember.
Björn.
Þessa heimilislegu mynd tók Sigurgeir f Eyjum einn daginn fyrir
skómmu þegar snjóföl hafði sett svip á Eyjabyggð og þá voru krakk-
arnir ekki lengi að nota tækifærið eins og sjá má á myndinni.
Alþjóðaskákmótið í Reykjavík:
Sex vinninga þarf til
að hljóta alþjóðatitil
MEÐALTALSSTYRKLEIKI Þeirra 14
skókmanna. sem taka þátt í alþjóða
skákmótinu í Reykjavik i febrúar n.k.
eru 2509 Elo-skákstig og telst mótið
til styrkleikaflokks II og telst þvi eitt
sterkasta skákmót heimsins á þessu
ári.
Samkvæmt upplýsingum Einars S.
Einarssonar, forseta Skáksambands-
ins, þarf skákmaður að hljóta 43%
vinninga eða 6 vinninga til þess að ná
alþjóðameístaratitli en 57% vinninga
eða 7 5 vinninga til þess að ná stór-
meistaratitli. Ættu þvi einhverjir is-
lenzku þátttakendanna að eiga góða
möguleika á þvi að krækja sér i a.m.k.
hálfan titil alþjóðameistara jafnvel þótt
9 stórmeistarar taki þátt i mótinu.
Hér á eftir verða taldir upp þátt-
takendur i mótinu og styrkleika þeirra
getið i sviga: Larsen (2620). Polugae-
vsky (2620), Miles (2565). Smejkal
(2555), Browne (2550), Lombardy
(2540). Kusmin (2535), Friðrik Ólafs-
son (2530). Guðmundur Sigurjónsson
(2500), Jón L. Árnason (2470), Ingi
R Jóhannsson (2440), Ögaard
(2435), Helgi Ólafsson (2420) og
Margeir Pétursson (2350).
Eins og áður hefur komið fram í
fréttum verður teflt á Hótel Loftleiðum.
Vísisritstjóri kær-
ir Þjóðviljamenn
fyrir siðareglubrot
Segir einnig ritstjóra Þjóðviljans hafa
neitað að birta athugasemdir sínar
ÓLAFUR Ragnarsson, ritstjóri Vísis.
hefur ksrt Svavar Gestsson, rit-
stjóra Þjóðviljans, og Einar Kr.
Haraldsson. fréttastjóra sama blaðs.
fyrir siðareglunefnd BlaSamanna-
félags íslands, þar sem hann telur þá
með ósmekklegum aðdróttunum
hafa reynt að tengja sig fjársvika.
máli Landsbankans. Skýrir Ólafur frá
þvi, að hann hafi reynt að fá athuga-
semd við skrif Þjóðviljans birta þar i
Fjalaköttur-
inn sýnir
Ólaf liljurós
FJALAKÖTTURINN. kvikmynda-
klúbbur menntaskóla- og háskóla-
nema. sýnir i dag, á morgun. laugar-
dag. og á sunnudag kvikmyndina
Ólaf liljurós eftir Rósku.
Róska sagði í samtali við Mbl. að
fleiri sýningar á mynd hennar væru
ekki fyrirhugaðar fyrst um sinn, en fyrir
lægi samþykkt útvarpsráðs um að
kaupa af henni sýningarrétt á mynd-
inni Hins vegar hefði lista- og
skemmtideild sjónvarpsins enn ekki
gengið frá samningi við hana um þetta
atriði.
blaðinu en verið neitað og hafi kom-
ið fram i röksemdum ritstjóra Þjóð-
viljans fyrir þvi að birta greinina
ekki. að i henni vasri af hálfu Ólafs
almennur skætingur. „sem við erum
vanir að birta hvor um annan i eigin
blöðum".
Málið snýst um að i dálkinum
„Klippt og skorið" i Þjóðviljanum á
dögunum var fjallað um aðild deildar-
stjórans i Landsbankanum. sem nú er
verið að yfirheyra, og nokkurra annarra
manna, sem eru með honum i hluta-
félaginu Dropanum. að Ltonsklúbbnum
Nirði og jafnframt var vakin athygli á.
að Ólafur væri einnig i sama klúbbi
Um það segir Ólafur i athugasemd-
um þeim er hann kveðst ekki hafa
fengið birtar i Þjóðviljanum en birtir i
Visi i gær. að hann kunni ekki að meta
aðdróttanir. „eins og þær sem þeir
birtu um mig og mun þess vegna kæra
þetta brot á siðareglum Blaðamanna-
félags íslands til siðareglunefndar
félagsins".
í formála að þessum athugasemdum
i Visi birtir Ólafur svar Svavars og
röksemdir fyrir þvi að birta ekki
athugasemdina en Svavar segir þar
m.a að hann telji „ekki vera um að
ræða athugasemdir eða leiðréttingu af
þinni háflflu heldur „almennan skæt-
ing" sem við erum vanir að birta hvor
um annan i eigin blöðum".
Gigtarfélagið fær gjöf
MORGUNBLAÐINU hefur borizt eft
irfarandi fréttatilkynning frá Gigtar
félagi íslands:
Gigtarfélagi Islands barst i deember
s.l. höfðingleg gjöf frá Barnauppeldis
sjóði Thorvaldsensfélagsins. en fjár-
hæð þessi var kr. 500.000.00 og
hefur félagið þegar lagt hana i kaup á
rannsóknartæki. sem það ætlar að gefa
væntanlegri rannsóknarstofu i
ónæmisfræðum
Gigtarfélagið þakkar Thorvaldsens-
konum fyrir þessa höfðinglegu gjöf oj
óskar þeim velfarnaðar i framtiðinni
HF. OFNASMIÐJAN
HATEIGSVEG 7 - REYKJAVIK - (SLAND <í
Kynnw’
nýjung í miðstödvarofnum
VIÐ KÖLLUM HANN
SVISSYL - ofninn
OFNINN ER SÉRSTAKLEGA HANNAÐUR FYRIR STÓRA GLUGGAFLETI
T.D. STOFUM — GÖNGUM — SÝNINGARGLUGGUM OG ÖORUM
STÖÐUM ÞAR SEM OFNINN MÓTAR UMHVERFI SITT.
Leitið upplýsin
hjá sölumanni,
sími 2-1 2-20.