Morgunblaðið - 12.01.1978, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 12.01.1978, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. JANUAR 1978 13 Hinir miklu rannsóknarar Skrifla um stað og stund eftir Braga Kristjónsson Þegar dagblaðið Vísir klofn- aði í tvo ójafna hluta fyrir nokkrum árum, urðu mestu hamskipti, sem orðið hafa í ís- lenzkri blaðamennsku á siðustu 20 árum. Einn þáttur þess er endurvakning svokallaðrar rannsóknarblaðamennsku. Margir hafa hina nýju blaða- mennsku boulevard- pressunnar á hornum sér. Það er misskilningur hjá íturmenn- um Morgunblaðsins, að Dag- blaðið nýja þrífist aðeins á skúmi og skarni þjóðfélagsins. Að mjög takmörkuðu leyti. Það þrífst hinsvegar fyrst og $remst á skynsamlegum hagsýslu- rekstri, puntudrengjum Vísis, forpokun allra morgunblað- anna á köflum, stjórnmála- og kerfisþreytu almennings og léttum rithætti blaðsins. En það þríft einnig á þeirri staðreynd, að greinilegt er, að leiðarahöf- undar þess geta skipt skapi — svona álika og höfundur Reykjavíkurbréfs Mbl. 8. þessa mánaðar. Puntudrengir Vísis skipta ekki skapi. Ef Indriði Guðmundur hætti að skrifa í Vísi leynt og ljóst, myndi blaðið sennilega dala um 30%. Indriði er einn örfárra manna sem ríf- ur kjaft með ábyrgum hætti. En ekki síst þræðir Dagblaðið nýja vandfarið einstigi milli ein- hverskonar þjóðfélagslegrar umbótastefnu og sorpblaða- mennsku — og skrikar reyndar stundum nokkuð illa á því ein- stigi. Raunar er svokölluð rann- sóknarblaðamennska, eins og fleira gott í háleitum efnum á landi hér, auðvitað i upphafi komin frá Morgunblaðinu. Það vita rannsóknarvilmundar síð- degisblaðanna ekki. Fjölmiðla- riddarar nútímans á reið til Al- þingis ættu að kynna sér Morg- unblaðið fyrir tæpum 20 árum. Þá yrðu þeir margs vfsari. Hamskiptin hófust fyrir 20 árum, þegar nýr ritstjóri kom að Morgunblaðinu. Hægt og varlega losnaði um flokks- krumlurnar, þannig að mörgum góðum sjálfstæðismanni þótti ógnarlegt að sjá. Það hefur hinsvegar sýnt sig að þessi stefna var rétt og sá sem fyrir henni stóð sýnilega gæddur ein- hverskonar dularfullu framtíð- arinnsæi. Morgunblaðið er eini blaðrisinn í heiminum, sem haldið hefur i horfi — og raun- ar aukið við sig — i grárri sam- keppni við vel rekin síðdegis- blöð. Það er svo annað mál, hvort sú staða helst áfram, það er komið undir viðbrögðum blaðsins í bráð og lengd. Hinir miklu rannsóknarar Vér lifum á tímum hinna miklu rannsókna. I hverjum kima þjóðfélagsins hafa rann- sóknararnir hreiðrað um sig og rannsaka fjölbreytt efni: Vísindamenn rannsaka frum- ur hundasúrunnar og kaup- sýslustétt eftirstríðstímans, list Alfreðs Flóka og viðhorf bænda til Dana. Blöðin hafa stofnað rannsóknardeildir, rannsaka hin blöðin og meinta spillingu í stjórnmálum og fésýslu hins op- inbera og hjá fyrirtækjum og einstaklingum. Bæjaryfirvöld rannsaka þá aðilja sem taldir eru hafa brot- ið hegningar- eða önnur refsi- kennd lög landsins. Og starfs- liðið er svo yfirhlaðið rann- sóknum, að taugar hinna miklu rannsóknara eru að heita má brostnar. Og í öllu þessu mikla rann- sóknakófi stendur svo sálna- stríð kosningabardagans. Próf- kjörin á fullu og vandséð, hvort framkominn hægri þrýstingur í pólitísku andrúmi Sjálfstæðis- flokks hefur valdið meiri sálar- angist hjá Morgunblaði eða Þjóðvilja. 1 fílabeinsturni Morgunblaðs, þar sem náunga- umhyggja og kærleiksþel er hvað rfkast f heimi hér, hattar þó fyrir viðleitni að gera sér grein fyrir orsökum nýs ástands og breyttum viðhorf- um. Sálgæslustarf og leiðsagn- arviðleitni Mbl. hnígur þó eðli- lega að því að sveigja nýjar miðanir inná skoðanaspor- brautir blaðsins. I glerhýsi Þjóðviljamanna er skilningsvana foragt ríkjandi viðhorf til þessarna. Oværan með mesta móti. Helst er það Ölafur Grímsson sem ritar f það blað án umtalsverðs mannhat- urs — eða þegar Magnús Kjart- ansson bregður á skemmtilega leiki f eftirmálaskrifum um Gunnar Thoroddsen. Það er vandséð, hvort kansellíkenndir goðsagnaleiðarar Mbl. eða strit- herpt geðvonskuskrif Þjóðvilja eiga tæpar skylt við fslenzkan veruleika dagsins. Blöðin eru löngu hætt breiðri alhliða þjóð- málaumræðu í ritstjórnardálk- um sínum. Nú skrifast þau ill- yrmislega á gegnum útvarpið og senda hvert öðru tóninn gengdarlaust. En það eru fleiri óværir um þessar mundir en fjölmiðlar og stjórnmálamenn. Bankarnir hafa komist í kastljósið, eink- um allralandsmannabankinn. Stofnun grennslunardeilda Lymskufullt athæfi banka- þjóns hefur valdið þessum banka svo gífurlegum álits- hnekki, að ekkert er til viðmið- unar frá upphafi bankaaldar á Islandi. Þetta mál mun f tfmans rás hafa veruleg áhrif á spari- fjármyndun í landinu og gæti haft ófyrirséðar afleiðingar fyr- ir atvinnuvegi landsmanna. Bankastjórnendur sem jafn rækilega hafa verið ffflaðir, eru að vonum ekki glaðbeittir þessa dagana. Bljúg sitja þessi hroka- fullu grámenni á tali við venju- lega blaðamenn. Helsta hugsun bankastjórnenda, auk þess að ná sér duglega niðri á hinum sakaða og bjarga beinum fjár- hagsmunum bankans, hnfgur að því að „auka innra eftirlit af ýmsu tagi“ eins og bankastjórn- andi sagði í 'sjónvarpsviðtali s.I. föstudag. Slíkt innra eftirlit verður ekki framkvæmt að gagni, nema sérstakar deildir verði stofnaðar til þess. Það mætti kalla slíkar deildir „grennslunardeildir". Til þeirra yrði að ráða fjölfróða persónufræðigrúskara, sem myndu m.a. hafa það hlutverk að rannsaka gaumgæfilega per- sónulega hagi starfsmanna. Óeðlileg húsa-, bústaða- og bíla- eign, loðfeldir, dýr málverk, bækur eða langar ,ferðir til framandi landa yrðu undir vak- andi auga grennslunardeilda. Veitingastaðir yrðu að vera undir sffelldu eftirliti og áríð- andi að fylgjast með ástalífi starfsmanna utan vinnutíma, því allir vita að slíkt er nú orðið mjög kostnaðarsamt, einkum utan hjónabands. Búnaður grennslunardeilda yrði að vera fullkomið safn ljósmynda-, kvikmynda- og hljóðupptöku- tækja, auk allmargra bifreiða og margskonar annars tækni- búnaðar. Deildin yrði að hafa aðgang að góðu bókasafni: Ætt- fræðiritun hverskyns og per- sónufróðleik; Bergsætt, Reykjahliðarætt, Lögfræðinga- töl, félagatöl svo sem Rotary, Oddfellow, Akoges, Lions, Kiwanis, frímúrara og guðveit- hvað, yrðu vitanlega undir- stöðurit, þegar rannsökuð væru persónu- eða viðskiptatengsl milli starfsmanna og annarra stétta, t.d. við rannsóknarlög- reglu ríkisins. Lögbirtingur mörg ár aftur í tfmann, til að kanna eignaraðild fjölmargra, einkum yfirmanna í bönkum, f einka-, atvinnu- eða viðskipta- legum rekstri. Hæstaréttardóm- ar, lagasöfn ofl. ofl. Verkefni slíkra deilda yrðu vafalaust æði fjölbreytt, en árangurinn kemur í ljós, þegar grennslanadeildir geta upplýst mikinn fjölda bankamanna við- riðinn rekstur af ýmsu tagi og lífshætti f engum tengslum við meint laun. Helsti vandi banka- Framhald á bls. 24. -< i.~l ri'1 >Tjy- "S t \ j tslenzkt samfélag á mikið undir þvf að störf hinna miklu rannsóknara takist vel. -Bimmctl cfttinu H; Blaðstjórar á Dimmalætting < 1 HiARTAUGA TU.U.'KKU •'': ynskir Sambandsf{okkurin —• Forslða 100 ára afmælisblaðsins. Dimmalætt- ing í Færeyj- um 100 ára HINN 5. janúar s.l. varð færeyska blaðið Dimmalætting 100 ára. Dimmalætting hefur mjög mikla útbreiðslu í Færeyjum og er gefið út I um það bil 8 þús. eintökum, en blaðið er stærsta dagblað Fær- eyja. Núverandi ritstjóri er Georg L. Samuelsen, en hann er 13. rit- stjóri blaðsins og hefur gegnt þvf starfi í yfir 40 ár eða síðan 1936. Dimmalætting er stuðningsblað Sambandsflokksins, sem er stærsti stjórnmálaflokkur Fær- eyja. A afmælisdegi blaðsins fékk Dimmalætting mikið af heillaósk- um bæði innan Færeyja og einnig vfða frá útlöndum. Þá hélt blaðið fjölsótta veizlu í Þórshöfn f tilefni dagsins. u <.i.ysi\<; v 'SIMIW KK: 22480 Gift eft- ir látid Flugfreyjur / Flugþjónar Kuala Lumpur, Malasfu, 10. janúar. AP. KLUKKUSTUNDU áður en gifta átti Loo Von Choo, 27 ára og Chang Yoke Yong, 20 ára, létu þau Iffið I bflslysi. En ættingjar þeirra héldu athöfn- inni til streitu f sfðustu viku og gaf þau saman f „drauga- hjónaband". Lfkin voru hjúpuð kínversk- um brúðkaupsklæðum og færð í trékistum í musteri f Serem- bam fyrir draugagiftingarat- höfnina sem er ævaforn kínverskur siður. Foreldrar hinna látnu settu silfur hringa á fingur þeim og silfurkeðjur um háls þeirra, en Kinverjar trúa þvi að silfur færi meiri hamingju en gull. Presturinn kastaði blómum yfir líkin og fór meó bænir, þar sem hann óskaði hinum látnu gleði og alsælu í „hjóna- bandslifinu". Kisturnar voru grafnar hlið við hlið f Malacca, heimaborg brúðgumans, um 80 km suður af Serembam. Flugleiðir h.f., v/Flugfélags íslands h.f. ætla frá og með aprílmánuði 1978 að ráða flugfreyjur og flugþjóna til starfa. í sambandi við væntan- legar umsóknir skal eftirfarandi tekið fram: 1 Umsækjertdur séu á aldrinum 20—26 ára. Þeir hafi góða almenna menntun. gott vald á ensku, Norðurlanda- máli og helzt þýzku og frönsku 2 Umsækjendur séu reiðubúnir að sækja kvöldnámskeið i febrúar/ marz n.k (3-—4 vikur) og ganga undir hæfnis- próf að þvi loknu 3 Á umsóknareyðublöðum sé þess greinilega getið hvort viðkomandi sæki um starfið til lengri eða skemmri tíma. 4 Umsóknareyðublöð fást í starfsmannahaldi félagsins á Reykjavíkurflugvelli, söluskrifstofu Lækjargötu 2 og skrrf- ' stofum félagsins úti á landi. Umsóknir skulu hafa borizt starfsmannahaldi félagsins fyrir 31. þ.m. FLUGLEIÐIR H.F.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.