Morgunblaðið - 12.01.1978, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. JANUAR 1978
Félagsheimili sjálfstæðismanna
í Njarðvík vigt:
„Megi það starf
lýsa braut sjálf-
stæðisstefnunnar., ’
SJÁLFSTÆÐISMENN i Njarð-
vikum vígðu glæsilegt félags-
heimili í Ytri-Njarðvík s.l.
sunnudag að viðstöddum
fjölda gesta. Áki Gránz lista-
maður, einn aðalhvatamaður
að byggingu hússins, hélt
ræðu um byggingu hússins og
afhenti það siðan fyrir hönd
byggingarnefndar. Sjálfstæðis-
flokkurinn hefur um langt ára-
bil gegnt forystuhlutverki 'í
stjórnmálum Njarðvíkinga, en
Sjálfstæðisfélagið Njarðviking-
ur var einmitt stofnað eftir
glæsilegan sigur flokksins i
hreppsnefndarkosningum 31.
janúar 1954 og var Karvel Ög-
mundsson fyrsti formaður
félagsins. Fljótlega eignuðust
menn þann draum að eignast
eigið félagsheimili og m.a. var
hafinn rekstur kvikmyndahúss
til þess að afla fjár i þeim
tilgangi Karvel gaf kost á 360
fm upphitaðri skemmu og var
þá kannað með möguleika á
stólum og sýningavélum, en
lengra komst það mál ekki þvíf
þá var hugmyndinni um Stapa
hrundið fram og þar var gert
ráð fyrir kvikmyndasýningum.
í ræðu sem Áki flutti við
opnun Félagsheimilisins sló
hann á létta strengi og sagði
m a.: „Ein skemmtilegasta
hugmyndin kom fram fyrir
kosningarnar 1958. Var það
bygging dag- og æskulýðs-
heimilis ásamt flokksskrifstofu,
allt í sama húsinu. Lóðarrétt-
indi voru fengin, frumteikning-
ar gerðar og sýndar í verzlunar-
glugga í Ytri-Njarðvik og einnig
var auglýst happdrætti sem
gekk mjög vel.
Ég man að í framboðsræðu
sagði einn andstæðingur okkar
að nú hefði „íhaldið" fundið
„apparat" til þess að framleiða
sjálfstæðismenn Börnin yrðu
tekin frá mæðrunum beint á
dagheimilið, þaðan á leikvöll-
inn í æskulýðsheimilið gegnum
flokksskrifstofuna þar sem þau
fengju loka eldskírn fyrir kjör-
klefann. Sem sagt, allt á sama
stað
Um þetta leyti var Kvenfélag
Njarðvikur komið með dag-
heimili á stefnuskrá sina og
byggðu konurnar það skjótt af
miklum glæsibrag en það fé
sem við höfðum aflað var af-
hent i það heimili.
8. nóv. 1972 var næsta
skref stigið og var þá allt fé,
sem nurlað hafði verið saman
með grímuböllum og fleiru,
notað til þess að kaupa lóð og
grunn þessa húss sem nú er
fullbúið".
Siðan rakti Áki nokkur atriði,
en á s.l. ári var ákveðið að selja
neðri hæð hússins til þess að
unnt væri fjárhagslega að Ijúka
við húsnæði fyrir flokksstarfið.
Keypti Sparisjóðurinn neðri
hæðina. í lok ræðu sinnar
kvaðst Áki óska þess að starfið
í félagsheimilinu mætti lýsa
braut sjálfstæðisstefnunnar.
Húsið er teiknað af verk-
fræðistofu Sigurðar Thorodd-
sens, en grunnflötur efri
hæðarinnar er 140 fm, sem
skiptist í rúmlega 80 fm
fundarsal, félagsherbergi, eld-
hús, snyrtingu, og rúmgott
anddyri. Minntist Áki síðan á
fjölmarga sem lagt hafa hönd á
plóginn við smíði hússins og
þakkaði mönnum óeigingjarnt
starf. Afhenti hann siðan húsið
til sjálfstæðisfélagnna á staðn-
um og tóku þeir við því: Guð-
mundur Gestsson varafor-
maður Njarðvíkings, Kristbjörn
Albertsson formaður Félags
ungra sjálfstæðismanna og Al-
bert K. Sanders formaður full-
trúaráðsins
Geir Hallgrímsson forsætis-
ráðherra flutti ávarp við vigslu
hússins og óskaði heimamönn-
um til hamingju með glæsilegt
félagsheimili. Einnig tóku til
máls þingmenn kjördæmisins
og heimamenn.
Kaffi og veizlukost báru sjálf-
stæðiskonur fram af mikilli
rausn, en salur hússins var full-
skipaður vigsluðaginn
Geir Hallgrímsson forsætisráðherra, Karvel Ögmundsson og Matthías Á. Mathiesen fjármálaráðherra
fluttu ávörp við vfgslu hússins.
Séð yfir hluta af nýja samkomusalnum 1 félagsheimili sjálfstæðismanna I Njarðvfkum. Ljósmyndir Mbl.
a.j.
Aki Gránz afhendir fulltrúum sjálfstæðisfélaganna húsið. Frá vinstri: Kristbjörn Albertsson, Guð-
mundur Gestsson, Albert K. Sanders og Aki Gránz.
Aki Gránz flytur ávarp við afhend- Á efri hæð hússins er féiagsheimili sjálfstæðismanna f Njarðvíkum.
ingu hússins.
Þær sáu um að allt væri klárt frá eldhúsinu I félagsheimilinu.
Forsætisráðherra, nokkrir þingmenn kjördæmisins og fleiri gestir við afhendingu
hússins.