Morgunblaðið - 12.01.1978, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 12.01.1978, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. JANUAR 1978 15 Sveinn Gudmundsson, Miðhúsum: F jögur lítil sandkorn I. KAFLI LANDBÚNAÐUR OG FRÉTTAFLUTNINGUR Miklar deilur hafa staðið um landbúnað okkar og sýnist sitt hverjum. Eg tel að leita þurfi frumorsaka svo hægt sé að ræða þessi mál og komast að einhverri niðurstöðu. Eg harma t.d. málflutning Stefáns Valgeirssonar I Alþingi og viðar i fjölmiðlum. Eg hlust- aði á fréttaflutning þeirra Sig- rúnar Stefánsdóttur og Vil- helms Kristinssonar og tel hann hafa verið byggðan upp á sanngjarnan hátt. Bændum er enginn greiði gerður með þvi, að ekki megi segja nema hrós- yrði um þá. Það eitt út af fyrir sig álævir stéttarvitund þkirra. Fréttamaður hlýtur sér- hverju sinni að draga það fram, sem honum þykir fréttnæmt og hann hlýtur að leggja mat á það, á hvaða þátt frásagnarinn- ar leggja beri mesta áherslu. Að sjálfsögðu hlaut undan- rennuhækkunin að draga að sér mikla athygli. Starfsmenn Ut- varpsins fóru því ekki yfir hlut- leysismörk. Islenskar landbúnaðarvörur hljóta alltaf að vera dýrar vegna þess að þær eru yfirleitt i háum gæðaflokki, en ef það reyndist rétt frá heilbrigðis- sjónarhóli séð, að útlendar landbúnaðarvörur séu hollari en islenskar og innihaldi minna af blýi, kvikasilfri og skordýra- eitri og að innlendar landbún- aðarvörur stytti meðalaldur manna svo marktækt sé, þá á að sjálfsögðu að leggja niður is- lenskan landbúnað. En á með- an tslendingar verða f hópi þeirra sem hæstan meðalaldur hafa verður áróður gegn holl- ustu fslenskra landbúnaðaraf- urða ekki tekinn alvarlega. Þá kem eg að aukafundi Stéttarsambands bænda sem haldinn var um mánaðamótin nóvember/ desember. Eg gagn- rýni það, að fundurinn skuli hafa verið lokaður. Bændur hafa engu að leyna. Samþykktir á fóðurbætisskattinum voru af- glöp, sem ekki má endurtaka, ef Stéttarsambandið ætlar að halda einhverri reisn. Rekstrarörðugleikarnir eiga sér margar orsakir og er verð- bólgan nr. eitt og i öðru sæti mætti nefna stækkun búanna fram yfir innanlands þörf. Það er vitað að allar velmegunar- þjóðir hafa ofgnótt matvæla og selja afgang sinn á útsölu nú sem stendur. Sennilega fer þó engin velmegunarþjóð eins illa með bændur sína og gert er hér á landi. 2. KAFLI KJÖRDÆMASKIPUNIN Nú hækka þær raddir, sem vilja breyta kjördæmaskipan- inni í þá átt að fá meira jafn- vægi milli kjördæma. Stundum kemur sú hugsun upp á yfir- borðið hvort verið sé að hyggja að réttlæti, en svona fullyrðing- ar láta alltaf vel I eyrum kjós- enda og eg veit að Vestfjarða- kjördæmi hefur oft borið á góma i þvi sambandi. Frá min- um bæjardyrum séð hafa Barð- strendingar ekki átt mann á Alþingi siðan þá Gisla Jónsson og Sigurvin Einarsson, enda var þá Barðastrandarsýsla ein- menningskjördæmi. Til þess að betur sé hægt að átta sig á því hvað eg er að fara skulu tilfærð dæmi um það hvernig flokkarnir raða mönn- um sinum á lista i kjördæminu. Alþýðuflokkur: Sighvatur Björgvinsson, Reykjavik, ætt- aður frá Isafirði; Jón Hanni- balsson, Isafirði. Alþýðubandalag: Kjartan ÓI- afsson, Reykjavik, ættaður úr Isafjarðarsýslum; Aage Steins- son, Isafirði. Framsóknarflokkur: Stein- grímur Hermannsson, Reykvik- ingur og ekki ættaður úr kjör- dæminu að eg best veit; Gunn- laugur Finnsson, Flateyri, Isa- fjarðarsýslu; Ólafur Þórðarson, Isafjarðarsýslu. Sjálfstæðisflokkur: Matthias Bjarnason, Isafirði; Þorvaldur Garðar Kristjánsson, Reykja- vik, ættaður úr tsafjarðarsýsl- um; Sigurlaug Bjarnadóttir, Reykjavík, ættuð úr Vigur. Þá er eftir að telja upp fram- boð Samtaka frjálslyndra hér og ef að líkum lætur hljóta efstu mennirnir að koma úr Ísa- fjarðarsýslum. Hér er ekki lagt persónulegt mat á frambjóðendur en aðeins sýnt fram á það, hve hlutur Reykjavikur og tsafjarðar og nágrennis er stór. Einnig sést Sveinn Guðmundsson greinilega hve margir Reykvik- ingar sækja þingumboð sitt út fyrir Reykjavík. Einnig er það eftirtektarvert að stjórnmála- flokkarnir í Vestfjarðakjör- dæmi bjóða uppá ekkert þing- sæti fyrir mann sem búsettur er eða ættaður úr Strandasýslu eða Barðastrandarsýslu. 3. KAFLI FJÖLMIÐLAR Dagblöð og útvarp (Hljóð- varp og Sjónvarp) stjórna að verulegu leyti hugsanagangi fólks og ef athuguð er uppistað- an i innlendúm efnisflutningi þessara fjölmííla gæti ég trúað að 90 til 95% af innlendu efni sé af Reykjavikursvæðinu. Að sjálfsögðu ráða flokkarnir hvernig þeir vilja haga mála- flutningi sinum og það er ekki okkar að segja til um það hvernig einkaaðilar haga sér I blaðrekstri sínum. Utvarpið er rikisrekinn fjöl- miðill og ætti að leita eftir efni i rikara mæli utan af lands- byggðinni. Við vitum að fólk sem utan Réykjavikursvæðisins býr á ekki kost á þeirri tillögu og leiðbeiningum svo að efni komist skammlaust til skila. Hér er þörf á aðstoð og ber útvarpinu að leita meira eftir efni utan af landsbyggðinni og létta um leið þeirri minnimátt- arkennd af fólki sem það er nú þjakað af. Hvers vegna leitar sjónvarpið ekki eftir efni t.d. i „Stundina okkar“ út i hina mörgu skóla dreifbýlisins. Þvi það er misskilningur að Utvarp- ið hafi ekkert að sækja út fyrir borgarmörkin. Einnig gætu komið til greina margs konar umræðuþættir sem teknir yrðu upp með fólki utan Reykjavík- ursvæðisins. Væri til dæmis ekki fróðlegt að heyra um mis- muninn á mannréttindum eftir því hvar á hólmanum þeir eru staðsettir og þar á ég við þjón- ustu ýmiss konar, svo sem síma- þjónustu I sambandi við venju- legt öryggi fbúanna. Heilbrigð- isþjónustan fer eftir duttlung- um skrifborðsmanna i Reykja- vik svo dæmi séu nefnd. Hvern- ig myndu Breiðhyltingar taka því ef þeir næðu ekki símasam- bandi nema hálfan sólarhring- inn og læknir kæmi til þeirra einu sinni i viku. Það getur verið að það sé dýrt að senda starfsmenn útvarpsins út um allar trissur, en útvarpið er fjölmiðill allrar þjóðarinnar og ef það væri nú staðsett á Akureyri ég tala nú ekki um Isafjörð eða Neskaupstað, ætli Reykvikingum þætti það ekki réttindamál að eitthvað af efni þess væri tekið upp i Reykja- vík. 4. KAFLI MENGUN Eitt hið hrikalegasta vanda- mál sem jarðarbúar eiga við að stríða er mengun, bæði i verald- legum og andlegum efnum. Vegna þess hve við tslendingar erum afskekktir þá hefur þetta vandamál barið seinna að dyr- um hjá okkur en hjá sumum öðrum þjóðum. Við erum lausir við fólksoffjölgunarvandamálið og getum horft björtum augum til framtíðarinnar. Við förum illa með landið okkar. Við fjölg- um fé I sumarhögum og tökum ekkert tillit til þess hvað sér- fræðingar segja um beitarþol landsins. Orkuframleiðsla er orðin að atvinnuvegi og er ekki hægt að ganga framhjá þeirri staðreynd hvernig svo sem við viljum vera láta. Sú spurning hlýtur að vakna, hvernig við getum nýtt þessa orku, án þess að valda meiri mengun en nú er. Við vitum að margt fólk missir ráð og rænu ef það veit af pening- um annars vegar og neitar að horfa fram I tímann. Til dæmis þolir fólk hinn versta óþef og kallar peningalykt, ef aðeins koma krónur i vasann. Þó að manninum sé trúandi til þess að kæfa sig í úrgangsefnum frá nútima iðnverum þá tel ég hina andlegu mengun miklu verri, en hún fer vaxandi ár frá ári, enda dekrað við hana á flestum sviðum. Verðbólgan er mengunar- valdur og verði hún ekki sett i bönd eins og Fenrisúlfur forð- um þá hlýtur hrun að koma. Það er mislangur timi frá þvi að menguninni er sleppt lausri þar til hún hefur skaðleg áhrif. I dag er verðbólgan lögvernduð og stéttarfélög standa um hana heiðursvörð og allir ætla sér að græða á henni, en það er of seint að snúa við þegar hún er búin að mergsjúga þjóðina. Það ætti að vera hægt með allri okkar tækni og öllum okk- ar „gáfum og föðurlandsást" að halda framboði og eftirspurn i jafnvægi. Þeir sem stuðla að óðaverð- bólgu eru með mengaðan hugs- unarhátt og grafa undan til- veru okkar sem sjálfstæðrar þjóðar. Fugl ad Pjétur Lárusson: A DJÚPMIÐUM. Ljóð. Myndskreytingar: Örn Karlsson. Útgefandi: Lystræninginn 1977. EFTIR Pjetur Lárusson hafa komið ut fjórar ljóðabækur. Pjetri eru mislagðar hendur við ljóðagerðina eins og mörgum ung- um skáldum, en þó gaf bók hans Faðir vor kallar kútinn (1974) nokkur fyrirheit um að úr honum gæti tognað. Á djúpmiðum er dálítið kver eins og fleiri bækur Pjeturs. Ekki verður sagt að Pjetur gerist land- vinningamaður með þessari bók, en í henni er ljós viðleitni til fæðast listrænnár hnitmiðunar og aukn- ar kröfur um vandvirkni, listræna úrvinnslu, eru greinilegar. Eitt ljóðanna nefnist Nótt: Nóttin ber svarta skikkju á herðum íer. Þögul gengur hún milli húsa, að loka augum manna, unz árroðinn kemur henni í opna skjöldu. v Stystu ljóðin eru samt ekki meðal þeirra athyglisverðustu. Ég nefni lengra ljóð, sögu af mús, raunar er það absúrd dæmisaga sem miðlar vissum óhugnaði. Reykjavíkurmyndir kallast ljóða- flokkur um reykvískt umhverfi. Andúð höfundar á lifsháttum fólksins og borginni sjálfri gera Myndskreyting eftir örn Karls- son, Úr Ijóðabók Pjeturs Lárus- sonar: Á djúpmiðum. Bðkmenntlr eftir JÓHANN HJÁLMARSSON þessar myndir ekki nógu sann- færandi, en hér er þó einhver fugl að fæðast, 'samanber þriðja kafla: Slðsumarnóttin sveipar borgina dökk- blárri slæðu. Kollafjörður og Esjan renna saman í eitt, og Reykjanesfjöllin ganga á vit trölla. Fáir eiga leið milli húsa, sfst allsgáðir. I kirkjugarðinum rfkir grafarþögn, utan hvað skröltir f nokkrum beinagrindum, sem enn halda gamlar þjóðsögur f heiðri. Myndskreytingar Arnar Karls- sonar eru fyrirferðarmiklar og bera ljóðin víða ofurliði. Mynd- irnar eru sambland af klippmynd- um og teikningum, einkum eru notaðar ljósmyndir. Þetta er farið að tíðkast í ljóðabókum líklega vegna áhrifa frá Erró. Það getur verið gaman að þessu, en hættan er sú að gengið sé of langt á kostnað ljóðanna. Það skal sagt Erni Karlssyni til lofs að hann er kunnáttumaður í þessari tækni. Á djúpmiðum er fyrsta bókin í flokki sem Lystræninginn gefur út. Fyrir jólin komu einnig út á vegum Lystræningjans Gjalddag- ar eftir Birgi Svan Símonarson með teikningum eftir Richard Valtingojer. \öentanlegir vinningshafar Vinsamlega athugið að Happdrætti Háskóians greiðir ekki vinninga á þá miða, sem ekki hafa verið endurnýjaðir. Látið ekki dragast að hafa samband við umboðsmanninn og endurnýja í tæka tíð. Dregið verður þriðjudaginn 17. janúar. 1. flokkur 9 18 135 279 5.598 6.039 18 6.057 1.000.000.- 500.000.- 100.000,- 50.000.- 15.000- 75.000.- 9.000.000. 9.000.000. 13.500.000. 13.950.000. 83.970.000. 129.420.000, 1.350.000, 130.770.000, HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS Hæsta vinningshlutfall í heimi!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.