Morgunblaðið - 12.01.1978, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. JANUAR 1978
19
Frá blm. Morgunbiaðsins
Þórleifi Ólafssyni á
Akureyri 11. janúar.
Loðnusjómenn bfða eftir að komast inná fundinn f gær. Ljósm. Mbl. RAX.
Óánægðir loðnusjómenn á Akureyri:
Starfsháttum verðlags-
ráðsins verði breytt
Á MEÐAN á fundi loðnusjómanna stóð í Nýjabíói
Akureyri í gær ræddi biaðamaður Morgunblaðsins
við nokkra sjómenn og voru allir sammála um, að
loðnuverð það, sem nú hefur verið ákveðið, sé alltof
iágt, ailir hefðu átt von á hærra verði miðað við
afurðaverð. Óánægja sjómanna beinist mjög að ver-
lagsráði sjávarútvegsins, þannig að þeir vilja breyta
starfsreglum eða starfsháttum nefndarinnar, fyrst
og fremst í þeim tilgangi að verð skuli vera komið
áður en skip halda til veiða og ekki sé hægt að veita
frest á verðákvörðun.
*
A von á því að
beðið verði
eftir næstu verð-
ákvörðun í
febrúar
Það kom fram mjög mikil
óánægja meðal okkar loðnu-
sjómanna strax og loðnuverðið
hafði verið tilkynnt í útvarpi,
sagði Guðmundur Jónsson há-
seti á Grindvikingi GK 606. Það
leið vart meira en einn og hálf-
ur timi frá því að tilkynningin
var lesin upp þar til flotinn hélt
til lands. — í sjálfu sér hefði ég
viljað stoppa núna og bíða
nokkuð, en ég hef ekki trú á að
það þýði í þetta skipti. Og á ég
frekar von á að beðið verði eftir
næsta verði, sem verður 15.
febrúar, en hins vegar er ljóst
að þessi aðgerð okkar mun
þrýsta á yfirnefnd þegar loðnu-
verðið verður næst ákveðið í
febrúar og vona ég að það verði
meira réttlæti í þeirri ákvörð-
un. Eins og nú er haldið á mál-
um í yfirnefndinni, hjá
kaupendum og oddamanni, er
þetta tóm endaleysa, og maður
skilur hreint ekki hvernig
staðið er að þessu. — Þetta er í
þriðja sinn sem ég lendi i slík-
um aðgerðum. 1965 þá sigldi
allur sildarfotinn inn til
Reyðarfjarðar og hélt þar fund
vegna verðákvörðunar, og bar
sá fundur nokkurn árangur.
Einnig sigldum við eitt sinn i
land vegna sérstaks flutnings-
gjalds og bar það einnig árang-
ur. Verðið, sem ég átti von á,
var að minnsta kosti 2 krónum
hærra en nú var ákveðið.
Áttum von á
miklu hærra veröi
Öánægjan meðal okkar kom
strax í ljós, við áttum von á
miklu hærra verði en þessu,
sagði Björn Þorfinnsson skip-
stjóri á Fífli GK. Verðið sem nú
hefur verið ákveðið er nánast
svívirða, og þó svo ekki hafi
verið hægt að borga miklu
hærra verð til sjómanna og út-
gerðar, þá er það hneyksli að
verksmiðjurnar skuli fá að
fleyta rjómann ofan af. Það
hefði frekar átt að setja mis-
muninn í verðjöfnuarsjóð. —
Ég veit ekki hvernig hægt er að
koma í veg fyrir að svona lagað
endurtaki sig og það er erfitt að.
segja nokkuð ákveðið um það,
en hinsvegar eiga hlutirnir að
vera þannig, að loðnuverðið
verði tilbúið um áramót, en það
er víst orðin hefð að það kemur
ekki fyrr en bátarnir eru haldn-
ir til veiða. — Ástæðan fyrir
því að allur flotinn fór í land i
gærkvöldi er sú, að menn höfðu
þá tíma til að átta sig á hlutun-
um og hugieiða þetta og þegar
þaó gerðist, þá hrukku allir við
og héldu til lands. Að nokkru
Sjómenn halda frá borði.
leyti hefur verið óánægja með
verðið nú í langan tíma og hef-
ur þetta búið um sig lengi með
okkur.
Verdið verður
að vera komið
um áramót
Þaó er mjög afleitt hvað
loðnuverðið kemur alltaf seint,
sagði Hrólfur Gunnarsson skip-
stjóri á Guðmundi R.E. Það
eiga ekki að vera nein frávik,
verðið á að vera komið um ára-
mót áður en flotinn fer á veið-
ar. Aðdregandinn að því, að við
héldúm til lands nú, var svipað-
ur og þegar flotinn sigldi til
lands 1965 vegna óánægju með
verðlagningu.
Stöndum í
þessu nauðugir
viljugir
Við munum ekki halda til
veiða fyrr en vió höfum rætt
við forsætisráðherra og það
sem kemur út úr okkar viðtali
við hann mun ráða hvaó gert
verður, sagði Björgvin
Gunnarsson skipstjóri á Grind-
víkingi GK, þegar rætt var við
hann. — Þegar tilkynningin
um nýtt loðnuverð kom, var
strax farið að ræða um þetta í
Hluti loðnuflotans 1 Akureyrarhöfn.
talstöðvunum, og voru allir jafn
óánægðir. Það leið varla
klukkustund frá því að tilkynn-
ingin kom þar til við vorum
lagðir af stað í land. Varóandi
fundinn með forsætisráðherra
sagði Björgvin: Við vonum það
bezta, við höfum mestan áhuga
á að fara á sjóinn aftur og vilj-
um leggja okkur fram við að
leysa málið, þannig að við get-
um farið sem fyrst á sjóinn og
það verði til hagsældar fyrir
alla, jafnt sjómenn sem þjóðina
í heild. — Ein aðalforsendan
fyrir því hvað menn eru
óánægðir, er hvað loðnuverð
hefur hækkað lítið, eða aðeins
um 18% frá því um áramót í
fyrra á sama tíma og þorskverð
hefur hækkað um 30%. Það
gerðu sér allir Von um hærra
verð að þessu sinni. Og ég vil
taka það fram, að það á ekki við
okkur að standa í svona löguðu
þótt við séum neyddir til.
Oddamaður
verðlagsráðs
má ekki hafa slík
úrslitaáhrif
Ég vil segja, að óánægjan er
eingöngu vegna þess lága verðs,
sem okkur er boðið, sagði Helgi
Jöhannsson 2. stýrimaður á
Berki NK. Það eina, sem þarf
að bæta, er að yfirnefnd verði
ekki skipuð á sama hátt og nú,
þannig að oddamaður hafi ekki
alger úrslitaáhrif. Hins vegar
hef ég ekki myndað mér skoðun
á því hvernig bezt er að skipa
yfirnefndina í framtíðinni, en
það þarf að athuga niður i kjöl-
inn og taka þetta mál til endur-
skoðunar sem fyrst. — Ég
gerði mér vonir um, að verðið
yrði a.m.k. einni krónu hærra
en það varð eða á milli 8 og 9
krónur. Maður varð óánægður
um leið og maður heyrði minnzt
á verðið og þegar tilkynningin
kom um nýtt loðnuverð var
bræla þannig að allir voru sam-
mála um að halda til lands og
ræða málin. Tilkynningin var
varla komin í útvarpinu, þegar
skipstjórarnir drógu upp botn-
stykkin og settu stefnuna til
lands. Það var enginn sem
hafði á móti þessum aðgerðum,
sagði hann að lokum.