Morgunblaðið - 18.01.1978, Page 12

Morgunblaðið - 18.01.1978, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. JANUAR 1978 Jón Halldór Hannesson kennari í innhverfri ihugun: $ Osigranleiki handa öllum þjóðum I fyrri grein minni um kerfið Innhverf fhugun (Morgunblaðið 3. 1. 78) fjallaði ég um áhrif tækn- innar Innhverf Ihugun á ein- staklinginn. Þar kom fram að innri þróun mannsins kemur fram sem bættur og mælanlegur árangur í ytra lifi, þannig að hið andlega og hið veraldlega eru ekki andstæður heldur nærast ytri svið lífsins sjálfkrafa með því að samstilla þau við tært svið skapandi greindar, sem liggur handan fíngerðasta stigs hugsana- starfs. I þessari grein ætla ég að fjalla um áhrif kerfisins Innhverf íhugun á samfélagið, en þar kem- ur hið sama í ljós: Hin ytri svið dafna sjálfkrafa ef hugað er að rótunum. Tfmaskeið uppljómunar Hinn 12. janúar 1975 lýsti stofn- andi vísinda skapandi greindar, Maharishi Mahesh Yogi því yfir að dögun nýs tímabils, tímaskeiðs uppljómunar, væri hafin. Hann sagði m.a.: „Vitað er innan eðlis- fræðinnar að svið . minnstrar örvunar efnisins, skv. skammta- fræði eðlisfræðinnar, er svið full- kominnar reglu, svið algerra sam- tengsla, svið allra möguleika, heimkynni allrar þekkingar og heimkynni allra náttúrulögmála. Þegar þessu sviði minnstrar örvunar er náð á sviði vitundar með reglulegri iðkun Innhverfrar íhugunar hafa hundruðir lífeðlis- fræði-, sálfræði-, félagsfræði- og vistfræðirannsókna sýnt að líkamanum fer fram, hugurinn verður skýrari, heilsteyptari og markvissari. Hegðun verður öll i jafnvægi og áhrifin á umhverfið verða lífvænleg. Þvi er ljóst að daglega ættu allir að iðka Inn- hverfa ihugun, sem er hagnýti þáttur vísinda skapandi greindar. Þetta ættu menn að gera fyrir sinn innri frið og til að auka jafn- vægi, fullnægju og framfarir í ytri þáttum lífsins og leggja þar með sitt af mörkum — það eina sem þeir geta lagt af mörkum — til að vísa inn og gera tímaskeið uppljómunar stöðugt." Þegar blaðamenn spurðu hann hvernig hann gæti lýst yfir dögun tímaskeiðs uppljómunar á timum þegar öryggisleysi ríkti, glæpir væru í algleymingi og ekki væri séð út úr verðbólgu og efnahags- Kerfið iimhverf ihugun — Síðari grein kreppunni sem iðnaðarþjóðir vesturlanda glímdu þá við, svaraði hann: „Döguninni er aðeins hægt að lýsa yfir meðan enn er myrkur. Við vitum að vandamál eru til staðar en um glugga visindanna sjáum við dögun tímaskeiðs uppljómunar." Um glugga vísindanna, þ.e.a.s. á grundvelli vísindarannsókna og þá einkum rannsókna sem sýndu að þegar 1% íbúa borgar iðkuðu Innhverfa íhugun minnkaði tala glæpa þar, sást dögun betri tíma. Síðan Maharishi lýsti þessu yfir fyrir nákvæmlega þrem árum hafa fréttir um ástand mála víða um heim borið vitni um batnandi horfur og aukna bjartsýni. Fréttir frá borgum og löndum sem nálg- ast 1% markið skýra frá fækkun glæpa þar, fækkun slysa, hærri lífslíkum, bættu verðurfari og aukinni landbúnaðarframleiðslu. Nú eru yfir 900 borgir víða um heim þar sem fjöldi iðkenda er nægilega mikill til að neikvæðum hneigðum fækkar. Ösigranleiki handa öllum þjóðum Þessar jákvæðu fréttir urðu til þess að þann 21. október síðast- liðinn sagði Maharishi eftirfar- andi í ræðu: „Við höfum fylgst með þróun mála í heiminum að undanförnu og séð að allar þjóðir berast nú i átt til samstillingar, hamingju, samræmis og skipu- lags. Straumur timans er frádeil- um og tortryggni en í áttina til hjálpfýsi, þakklætis, virðingar og uppörvunar. „Glæpir og slys benda til ósam- stillingar og ósamræmis í vitund fólksins. Þegar glæpum fækkar er vitund fólksins að vaxa í eigin- leikum samræmingar og skipu- lags.“ „Vitund einstaklinganna er grunneining vitundar þjóðar- innar. Þegar eiginleikar skipu- lags og samræmis aukast I vitund einstaklinganna vaxa sömu eigin- leikar í vitund þjóðarinnar.“ Þessi vöxtur samræmis i þjóðar- vitund sem fram hefur komið var grundvöllur þess að Maharishi lýsti því yfir að árið 1978 væri „ár ósigranleikans handa öllum þjóðum." Af þvf tilefni eru haldn- ar hátfðir og ráðstefnur víða um heim þ. 12. til 18. janúar. Aðal- hátíðin fer fram í Seelisberg, Sviss. Þangað var fulltrúum allra þjóða boðið og fer þar fram af- hending bjöllu sem tákni ósigran- leikans. Það kann að hljóma óraunhæft að heyra því lýst yfir að nú megi þjóðirnar fara að anda Iéttar, hræðsla og tortryggni séu á undanhaldi. Maharishi er þó vel kunnugt um ástand mála í heim- inum í dag. I áðurnefndri ræðu sagði hann t.d.: „Það er okkur mikil ánægja að lýsa yfir ósigran- leika handa öllum þjóðum. Við vitum að enn er verið að byggja upp ósigranleikann og við vitum að enn finna ekki allar þjóðir af öryggi til ósigranleika, en um leið og búið er að skrifa undir samn- ing við byggingarverktaka setur hann upp skilti við grunninn sem Jón Halldór Hannesson gefur til kynna hvers konar bygg- ing sé í smíðum." Og Maharishi leggur á það áherslu að ósigran- leika handa öllum þjóðum sé auð- velt að ná. Vísindalegur bakhjarl fullyrð- inga Maharishis eru rannsóknir á möguleikum Innhverfrar íhugun- ar til að skapa samræmi og skipu- lag í taugakerfi einstaklinganna, styrkja vitund þeirra og þar með vitund þjóðarinnar. Grundvallarregla ósigranleíka Ösigranleiki byggist á heil- steypi. Ósigranleiki í byggingu þjóðarvitundar þýðir að eyði- leggjandi ytri áhrif geta ekki bor- ist inn. Þessi vörn gegn óæskileg- um áhrifum er komin undir heil- steypi innri byggingarinnar. Þannig að ósigranleiki handa öll- um þjóðum er grundvallaður á því að byggja samræmingu og heilsteypi innan hverrar þjóðar- vitundar. Þetta er hægt að gera með því að kenna einstaklingun- um að starfa frá grunnsviði vit- undar, heimkynnum allra náttúrulögmála, og skapa þar með eingöngu lífvænleg áhrif. Þegar þjóðfélag hefur eingöngu lífvæn- leg áhrif innan sinnar eigin bygg- ingar geislar það frá sér sömu áhrifum. Græn ljósapera gefur frá sér grænt ljós. Rauð ljósapera gefur frá sér rautt ljós. Samræmt, heilsteypt, skipulagt þjóðfélag geislar frá sér samræmingu, heil- steypi, lífvænlegum áhrifum, skipulagi og þróun. Og þegar þjóð hefur eingöngu uppbyggjandi áhrif veldur það ánægju i fjöl- skyldu þjóðanna; óvinir fæðast ekki. Osigranleiki þjóðanna byggist því á því að kenna nægilegum fjölda einstaklinga tæknina Inn- Dr. Gudmundur Magnússon prófessor: „Frestur er oftast talinn á illu beztur” Dr. Guðmundur Magnússon prófessor var meðal frummæl- enda á ráðstefnu Stjórnunarfé- lagsins I Munaðarnesi sem ræddi um fjárhagsleg markmið og af- komu tslendinga og meðal þess sem fram kom I máli Guðmundar var eftirfarandi: Við getum vissulega statað okk- ur af nokkurri velmegun á mæli- kvarða þjóðarframleiðslu og er- um eitt af fáum löndum sem hef- ur getað sameinað mikla verð- bólgu og hagvöxt yfir í meðallagi. Þetta hefur m.a. birst í sjálfum- gleði. Mig langar i þessu sam- bandi að vitna til skýrslu OECD um Island í nóvember 1976, bls. 35—36: „í heild er erfitt að draga j aðra ályktun en þá, að Islending- I um hafi tekist að lifa tiltölulega í rólegu lífi með verðbólgu sem þætti ógnvekjandi annars staðar. Það eru vissulega engin merki þess að lýðræðið sé að farast eins og margir telja óhjákvæmilegt í kjölfar þrálátrar og mikillar verð- bólgu. Að því er varðar skipan framleiðslu og hagvöxt kann að vera of fljótt að gera sér fulla grein fyrir afleiðingum af þróun síðustu þriggja ára, en verðbólgan var þá mun meiri en áður. Það yrði erfitt fyrir aðrar þjóðir að draga lærdóm af reynslu Islend- inga, þar sem þeir eru sérstæðir á ýmsan hátt. Þjóðin er fámenn og samstæð, þar ríkir vel mótuð fé- lagsleg samstaða og tekjuskipt- ingin er jöfn. Þjóðfélagið er ein- falt f sniðum og auðvelt fyrir sundurleita hópa að láta til sín heyra. Reyndar mætti segja að ein ástæða hinnar miklu verð- bólgu sé tilraun til að gera öllum til hæfis innan ramma slakrar stjórnar á eftirspurn." Þið takið eflaust eftir að sumt af því sem sagt er virðist mót- sagnakennt og fullyrðingar vant- ar ekki. Einnig má lesa hluta til- vitnunarinnar á þannig veg að einn íslenskur hagfræðingur sé að svara öðrum f gegnum OECD. Það sem varð til þess að ég tók þetta sérstaklega fyrir er einkum, að lesa má á milli línanna að verðbólgan sé ekki vandamál á Islandi en varhugavert fyrir aðra að feta í fótsporin vegna þess að við erum svo gáfaðir! (Þeir sem til þekkja vita, að það sem stendur í skýrslum OECD er mestmegnis haft eftir íslenskum aðilum) Síðar í sömu skýrslu stendur m.a.: „Þar sem vöxtur vergrar þjóðarframleiðslu hefur verið 4,9% á ári 1960 — 1975, eða rétt ofan við meðalhagvöxt allra OECD landa, getur tveggja stafa verðbólga ekki hafa staðið hag- vexti verulega fyrir þrifum." „Það er erfitt að staðhæfa að þessar aðstæður hafi brenglað al- varlega framleiðsluskipan og hag- vöxt þar sem fiskveiðar hafa verið mjög arðsamar og uppistaða hinna góðu Iífskjara á Islandi sem hafa verið sambærileg við lífskjör á öðrum Norðurlöndum." Kemur ekki fram í þessu greini- leg trú á að allt leiki í lyndi og að verðbólgan hafi ekki verið til traf- ala. Athugið sérstaklega að til- vitnun er ekki lengra aftur í tím- ann en frá 1976. Þessi sjónarmið endurspegla að mínum dómi þau viðhorf sem ríkt hafa í garð verðbólgunnar á síð- ustu áratugum. Fremur hefur verið litið á verðbólguna sem tekjuskiptingavandamál en sem skaðræðisvald fyrir ráðstöfun framleiðsluþátta og hagvöxt. Þetta er auðvitað alhæfing sem ekki er án undantekningar. Það er áberandi þegar horft er um öxl að mikil tregða hefur ríkt á því að grípa til aðgerða til mót- vægis við spennu í eftirspurn á vörumarkaði eða vinnumarkaði. Þetta er þó ekki íslenskt sér- kenni. Frestur er oftast talinn á illu bestur. Ymsar tafir eru á leið- inni frá því að breyting á sér stað t.d. á fiskverði erlendis þar til ákvarðanir eru teknar til mótvæg- is og þær eru farnar að segja til sín. Einkennandi fyrir okkur er hins vegar vantrú á leiðum sem sannað hafa gildi sitt annars stað- ar. Ég hef einkum í huga viðreisn- ina 1960, inngönguna í EFTA 1970, tregðuna á því að beita verð- VIÐSKIPTl VIÐSKIPTI — EFNAHAÍíSMAL — ATHAFNALÍF. Umsjón: Sishvatur Blöndal. tryggingu eða hreyfanlegri vöxt- um á lánamarkaðinum, trúna á gildi verðstöðvunar og almennt að ætla sér að ráða við afleiðingar þenslumyndandi aðgerða með boðum og bönnum. Ef litið er á þróun viðskiptakjara 1950 — 1960 má sjá að þau voru tiltölulega stöðug. Viðreisnin kom því 5—10 árum of seint. Aðildin að EFTA kom sömuleiðis 5—10 árum of seint. Nú fyrst þegar bankakerfið er að skreppa saman og afurðalán eru veitt úr seðlapressunni er far- ið að stemma stigu fyrir neikvæð- um raunvöxtum peningalegrar spörunar. A þessa leið var bent af okkur Ölafi Björnssyni fyrir 10 árum, en verðbólgan varð að fara yfir 50% viðbragðsþröskuld til þess að menn létu sannfærast. Ég tek fram, að ég tel ekki endilega að verðtrygging sé lækning á verðbólgunni, en hún stuðlar að ■mínum dómi að réttlátari tekju- skiptingu og hamlar gegn óráðsíu í meðferð fjár. Settar hafa verið fram skoðanir á því hvað hafi helst verið aflaga í efnahagsmálum, hverju sé um að kenna og hvað skuli gera. I því sambandi hefur verið tíð- rætt um fjárfestingu og fjármál ríkisins. Það er vissulega afstætt hvort fjármunamyndun er of mik- il eða ekki, en allt bendir til þess að arðsemi fjárfestinga sé léleg. Hvað sem um erlendar lántökur má segja, en þær hafa brúað það bil sem fjármunamyndun hefur farið fram úr innlendri spörun, værum við að græða á heimsverð- bólgunni, ef fénu væri vel varið. Mikil tilhneiging er til að kenna þróun ríkisfjármála um hvernig komið er. Auðvitað er góð stjórn ríkismála mikilvæg, enda eru út- gjöld hins opinbera röskur þriðj- ungur þjóðarframleiðslunnar. Ég held þó að greyið hann Garmur sé skammtaður um of. Umsvif hins opinbera í þrengri skilningi eru hér ekki meiri en gengur og ger- ist og hefa ekki vaxið hraðar en að meðaltali í nálægum löndum. En hinn sýnilegi hrammur hins opinbera sést betur en hin ósýni- lega hönd annarra afla. Aftur á móti hafa áhrif hins opinbera á stjórn peningamála gegnum er- lendar kántökur og fjárfestinga- málasjóði og fleira haft afdrifarík Guðmundur Magnússon. áhrif, en oft er ekki greint á milli þeirra umsvifa sem birtist i fjár- lögum. Einnig endurspeglast togstreita milli hópa og byggðarlaga i fjár- lögunum. Hitt er jafnljóst að bæði aukin umsvif hins opinbera og hallarekstur sérstaklega með seðlaprentun hefur aukið verð- bólguvandann. Aftur á móti virðist tilhneiging til þess að vanmeta þátt launa- mála og peningamála i verðbólg- unni. Hvort sem okkur likar betur eða verr eru launatekjur 70—80% þjóðartekna. Það er því vonlaust að stunda jafnvægisbú- skap nema launaþróun sé í sam- ræmi við svigrúm til launahækk- ana, framleiðniaukningu og bætt skiptakjör. Akjósanlegast væri að samstaða næðist milli aðila vinnu- markaðarins og ríkisstjórnar um svigrúm til kjarabóta. Takist það ekki og komast á úr þeim ógöng- um sem við rötum í hvað eftir annað verður að grípa til ein- hverra hegningaraðgerða sem að- ilum vinnumarkaðarins væru ljósar frá upphafi. Sterkt rikis- vald getur sett stólinn fyrir dyrn- ar annaðhvort með því að skatt- leggja launahækkanir umfram svigrúm eða með þvi að neita að fjármagna verðhækkanir sem fylgja i kjölfarið, nema hvort- tveggja sér Annað jafngildir frest-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.