Morgunblaðið - 22.01.1978, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. JANUAR 1978
3
1 DAG kl. 14:00 verAur opnuð á
Kjarvalsstöðum sýning á verk-
um Jóhannesar Sveinssonar
Kjarvals. Alls eru á sýningunni
59 verk, öll f eigu Reykjavlkur-
borgar. Verður hún opin
laugardaga og sunnudaga kl.
14—22 og þriðjudaga til föstu-
daga kl. 16—22 en lokuð á
mánudögum.
Sýningarnefndina, sem sá um
uppsetningu myndanna, skipa
þeir Alfreð Guðmundsson for-
stöðumaður Kjarvalsstaða, Guð-
mundur Benediktsson mynd-
höggvari og Jóhannes
Jóhannesson listmálari. I sýn-
ingarskrá hefur Indriði G.
Þorsteinsson ritað um Kjarval
kafla er hann nefnir Land
meistarans. Þar segir m.a. um
bernsku hans:
„Strax á æskudögum í Meðal-
landi sýndi Jóhannes að hann
Frá vinstri: Jóhannes Jóhannesson, Alfreð Guðmundsson og Guð-
mundur Benediktsson skipa sýningarnefnd.
K j arvalssýning-
in opnar í dag
hafði óvenjulegt næmi fyrir lit-
um. I Ieikjum barna voru notað-
ir beinkögglar sem ær og lömb
og höfðu börnin þann sið að
bregða kögglunum i kertaljós
eða að lýsislampa til að fá bil-
dóttar eða flekkóttar ær.
Jóhannes kaus ekki þessa ein-
földu aðferð. Hann málaði sina
köggla. Sögnin um þessa lituðu
köggla hefur gengið mann fram
að manni i Meðallandi.
Eftir ferminguna fór Jóhann-
es til sjós og var á skútum
næstu árin. Má segja að skútu-
lifið hafi löngum verið athvarf
hans á unglingsárunum. Og
skútukarlarnir voru kannski
þeir fyrstu, sem gerðu sér far
um að hlúa að Iisthneigðinni i
hinum unga sjómanni. Svo mik-
ið er vist að honum gafst timi
til að mála á þessum árum, m.a.
vegna tilhliðrunarsemi skútu-
félaganna, sem voru þó ekki
vanir undanslætti við störf.
Myndir frá þessum tima eru
ekki margar til, en þær bera
þess ótviræðan vott um skútu-
lifið átti vel við Jóhannes og sá
félagsskapur sem þvi fylgdi við
menn og náttúruöfl“.
Sem fyrr segir opnar sýning-
in i dag, sunnudag, og er að-
gangur ókeypis svo og sýn-
ingarskrá.
Y firverkfræðingur
Reykj avíkurhafiiar
HAFNARSTJÓRN hefur nýlega
ráðið Hannes Valdimarsson, sem
verið hefur deildarverkfræðingur
hjá Reykjavikurhöfn um árabil,
sem yfirverkfræðing Reykjavík-
urhafnar.
Hafnarverkfræði er sérgrein
Hannesar, sem að loknu verk-.
fræðinámi fór til Danmerkur og
Bretlands til framhaldsnáms
varðandi ýmsa sérþætti hafnar-
reksturs. Hannes hóf störf hjá
Reykjavikurhöfn strax að námi
loknu árið 1968.
Hann er fæddur hér i Reykja-
vík og eru foreldrar hans hjónin
Ingibjörg Magnúsdóttir og Valdi-
marHannesson málarameistari.
Fiskútflutningurinn
varð að fiskúrgangi
HRAPALLEG misritun,
var f Morgunblaðinu í gær,
þegar rætt var við Sigurð
Markússon framkvæmda-
stjóra sjávarafurðadeildar
Sambandsins um árásir
Þjóðviljans á fslenzku fisk-
iðnaðarfyrirtækin f Banda-
rfkjunum. Á einum stað
varð fiskútflutningur að
fiskúrgangi. Þvf birtir
Morgunblaðið þá máls-
grein, sem prentvillan var
í.
„í staðinn verður úr
þessu svo rætin og ósvífin
árás á islenzku fyrirtækin
vestanhafs, að leita verður
vitt í annálum íslenzkrar
blaðamennsku til þess að
finna annað eins. Þessi
árás er grundvölluð á svo
fáránlegri rbksemdafærslu
og yfirþyrmandi hugtaka-
ruglingi, að mann setur
hljóðan. Inntakið í leiðara
Þjóðviljans er það, að sölu-
tekjur íslenzku fyrirtækj-
anna vestan hafs hafi verið
um 107 prósent meiri í doll-
urum á árinu 1977 en 1974
og síðan spyr blaðið: hvar
eru peningarnir? Ef rit-
stjóri Þjóðviljans vildi láta
svo litið að fletta upp i Hag-
tiðindum, sem gefin eru út
af Hagstofu íslands, mundi
hann sjá, aó tekjur Islend-
inga af fiskútflutningi til
Bandaríkjanna verða lík-
lega 115—120 prósent
meiri á árinu 1977 en þær
voru á árinu 1974 og er þá
miðað við dollara bæði ár-
in,“ sagði Sigurður enn-
fremur>
Veðursæld ca. 25 stiga hiti
Sólrikara en Kanarieyjar
VALDIR GISTISTAÐIR:
E1 Remo, Santa Clara,
La Nogalera. Tamarindos
og rómuð
Útsýnarþjónusta,
AUSTURSTRÆTI 17 SÍMAR: 20100, 26611,26684.