Morgunblaðið - 25.02.1978, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 25.02.1978, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 1978 Magnús Finnsson, formaður Blaðamennafélagsins, gerir grein fyrir samnineunum. Blaðamannafélagið: Mótmælir kjaraskerð- ingu en hafnar ólöglegum aðgerðum A ALMENNUM félagsfundi í Blaðamannafélagi tslands í gær var gerð samþykkt, þar sem harð- lega er mótmælt kjaraskerðingar- ákvæðum þeim er felast í efna- hagsráðstöfunarlögum rfkis- stjórnarinnar og jafnframt var mótmælt afskiptum rfkisvalds fyrr og sfðar af frjálsum kjara- samningum. Samþykkt þessi var breytingar- tillaga við tillögu er fram hafði verið borin og var að mestu sam- hljóða breytingartillögunni að öðru leyti en því að þar var lýst yfir fullum stuðningi við aðgerðir helztu launþegasamtakanna 1. marz. Kom fram i máli andmæl- enda þessarar tillögu að ekki var talið stætt á því að Blaðamenna- félagið styddi ólöglega verkfalis- aðgerð og var framangreind breytingartillaga samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða. Sætir 60 daga gæzlu- Blaðamenn samþykktu nýjan k jarasamning BLAÐAMENN samþykktu nyja kjarasamninga við blaðaútgef- endur á fjölmennum félagsfundi í gær. en verkfall Blaðamanna- félags fslands hafði þá staðið í vikutíma. Síðasta samningalotan stóð í 16 klst. og lauk með undir- skrift samninga um sex-leytið í gærmorgun. Samningsgerð þessi var framhald kjarasamnings Blaðamannafélagsins frá því sl. sumar en þar var ákvæði um að fram skyldi fara samræming milli launa blaðamanna og frétta- manna ríkisfjölmiðlanna í kjöl- far BSRB-samninganna en sam- komulag náðist hins vegar ekki um þessa samræmingu milli Blaðamannafélagsins og útgef- enda. Aðalatriði hins nýj'a kjarasamn- ings eru, að laun blaðamanna eru færð til samræmis við Iaun frétta- manna á ríkisfjölmiðlum, en hækkunin er mest í lægstu flokk- um launastiga Bí eða um 38% en minnst i efstu flokkunum eða um 19%. Blaðamenn ná þó ekki full- um byrjunarlaunum fréttamanna ríkísfjölmiðlanna fyrr en eftir 2 ár í starfi nema þeir hafi háskóla- próf að baki eða hafi lokið námi í blaðamannaskóla. Samningurinn gildir frá 1. janúar sl. til 1. júní á næsta ári. Vísitöluákvæði samningsins eru i samræmi við BSRB- samhinginn. Magnús Finnsson, formaður Blaðamannafélags íslands, sagði i samtali við Mbl. í gær að hann gleddist yfir því að þessi vinnu- deila skyldi farsællega til lykta leidd og blöðin kæmu nú út á nýjan leik. Hann kvaðst eftir atvikum vera ánægður með þá samninga er náðst hefðu og teldi að þar hefði verið komizt eins langt og unnt var miðað við allar aðstæður. Samningarnir væru fyrst og fremst Iaunajöfnunar- samningar, enda hefðu laun í neðstu flokkum kjarasamnings Bí verið orðin óeðlilega lág og sú væri skýringin á því að út kæmu háar prósentuhækkanir í þeim flokkum. Hins vegar tækju laun í hæstu flokkunum ekki eins mikl- um hækkunum. Magnús sagði, að í heild hefðu laun blaðamanna dregizt töluvert aftur úr á síðustu misserum en með þessum samn- ingi hefðu blaðamenn rétt sinn hlut gagnvart öðrum launþega- hópum í þjóðfélaginu. Kjartan Jónsson, fulltrúi Vinnuveitendasambands lslands og talsmaður Félags blaðaútgef- anda í Reykjavik, sagði að menn væru ánægðir rheð að þessari samningalotu væri lokið og samn- ingurinn hefði hlotið samþykki beggja aðila. Frá sjónarhóli útgef- enda teldust þetta góðir samning- ar að því leyti að launaflokkar Blaðamannafélagsins hefðu nú verið færðir til einfaldara forms Framhald á bls. 22. varðhaldi Blaðamenn á félagsfundinum í gær. * Vinnuveitendasamband Islands: Skorar á landsmenn að virðalögogtakaekkiþátt í ólöglegum aðgerðum Vinnuvetendasamband tslands lýsti því yfir í gær, að allir almennir kjarasamningar væru í gildi með þeim breytingum á vísi- töluákvæðum, sem lög gera ráð fyrir. t yfirlýsingu Vinnuveit- endasambandsins segir, að engir samningar þess og deilda innan þess frá sl. sumri geti fallið -úr gildi fyrr en frá og með 1. aprll n.k. enda hafi þeim verið sagt upp fyrir febrúarlok. Verkföll hjá fé- lögum sem hafa gildandi samninga eru ólögleg, segir f yfir- lýsingu Vinnuveitendasambands og varða ábyrgð og skaðabóta- skyldu. Yfirlýsing Vinnuveit- endasambands tslands er svo- hljóðandi: Almennur félagsfundur f Vinnuveitendasambandi tslands haldinn í Reykjavík 24. febrúar 1978 leggur áherzlu á að allir almcnnir kjarasamningar eru enn í gildi, með þeim breytingum Útifundur 1. marz A FUNDI samráðsnefndar launþegasamtakanna, sem haldinn var í gærmorgun, var samþykkt að boða til útifundar 1. marz næstkomandi, fyrri dag mótmælaverkfalls þessara aðila. að því er segir í fréttatil- kynningu frá Alþýðusambandi Islands, Bandalagi starfs- manna ríkis og bæja, Far- manna- og fiskimannasam- bandi tslands og Launamála- ráði Bandalags háskólamanna. á vfsitöluákvæðum þeirra, sem lög nr. 3 frá 1978 gera ráð fyrir. Engir samningar Vinnuveitenda- sambands tslands og deilda þess sem gcrðir voru á s.l. sumri geta því failið úr gildi fyrr en frá og með 1. apríl n.k. í fyrsta lagi, enda hafi þeim verið sagt upp fyrir febrúarlok. Mjög fáar samningsuppsagnir hafa enn borist. Verkföll hjá þeim stéttum, sem hafa gildandi samninga eru ólög- leg og brot á samningum og varða ábyrgð og skaðabótaskyldu sam- „VIÐ erum að vona að af þcssum fundi geti orðið á þriðjudaginn, og því vil ég ekkert segja nú, nema vfsa tii ályktunar aukafundarins," sagði Eyjólfur tsfeld Eyjólfsson, forstjóri Sölu- miðstöðvar hraðfrystihúsanna, í samtali við Mbl. f gærkvöldi, en á aukafundi SH, sem haldinn var í gær, var samþykkt að fela stjórn SH að ganga á fund rfkisst jórnar- innar til að gera henni grein fyrir stöðu frystihúsanna og horfum næstu mánuði, en í ályktun fundarins segir m.a., að nýaf- staðin gengisbreyting hafi ekki leyst vanda fiskvinnslunnar nema að nokkru leyti og að út- flutningsframleiðslan geti ekki tekið á sig neinar kostnaðar- hækkanir frá þvf sem nú er, þar sem slfkt þýði einungis aukinn taprekstur. kvæmt almennum réttarreglum. Verður að vona að þau laun- þegafélög, sem telja sig lýðræðis- leg stéttarsamtök og félagsmenn þeirra grfpi ekki til ólöglegra aðgerða í þvf skyni að beita lög- lega kjörið þjóðþing landsins og ríkisstjórn þvingunum. Slíkar aðgerðir eru einnig brot á gildandi lögum um stéttarfélög og vinnudeilur. Vinnuveitendasamband tslands skorar á alla þjóðholla tslendinga að virða lög landsins og taka ekki þátt f ólöglegum aðgerðum." Alyktun aukafundar S.H. er svohljóðandi: „Aukafundurinn telur að nýaf- staðin gengisbreyting hafi ekki leyst vanda fiskvinnslunnar nema að nokkru leyti. Þetta stafar af því að minnstur hluti gengis- Bílainn- flytjandinn látinn laus MAÐURINN sem nú undanfarið hefur setið í gæzluvarðhaldi og verið yfirheyrður vegna ólögmæts innflutnings á bifreiðum til lands- ins, var látinn laus nú fyrr í vik- unni. fyrir manndráp UNG kona situr nú í gæzluvarð- haldi og skal gangast undir geð- rannsókn eftir að hún hafði orðið eiginmanni sfnum að bana í reiðikasti aðfararnótt sunnudags fyrir tæpri viku. Hjónin voru í þann mund að ganga frá skilnaði en höfðu hitzt á skemmtistað og farið saman heim að Skólavörðustíg 21A. Þar kom til heiftarlegrar deilu milli þeirra, svo að konan greip hníf og stakk manninn á hol. Þegar henni varð hins vegar ljóst hversu alvar- legur áverkinn var, hringdi hún í sjúkrabifreið og siðan var lögregl- unni gert viðvart. Maðurinn var fluttur í gjörgæzludeild en lézt þar skömmu síðan. Hann hét Arelíus Viggósson, 22ja ára að aldri, en konan heitir Jenny Grettisdóttir, 25 ára að aldri. Hún var úrskurðuð í allt að 60 daga gæzluvarðhald og skal sæta geðrannsókn. Að sögn rann- sóknarlögreglu er enn verið að vinna að rannsókn þessa máls. lækkunarinnar kemur í hlut fisk- vinnslunnar heldur fer mestur hluti til greiðslu á skuldbinding- um Verðjöfnunarsjóðs.fiskiðnað- arins annarsvegar og hinsvegar til hækkunar fiskverðs. Gengis- lækkunin er því of lítil til að skila vinnslunni viðunandi afkomu. Af þessu má vera ljóst að út- flutningsframleiðslan getur ekki tekið á sig neinar kostnaðar- hækkanir frá því sem nú er, þar sem slíkt þýðir einungis aukinn taprekstur. Vegna lélegrar afkomu margra frystihúsa undanfarin ár, og þá sérstaklega á suður- og vestur- landi, ásamt mikilli verðbólgu, en þetta hvorttveggja hefur rýrt eig- ið fé fyrirtækjanna, er nú svo komið að mörg frystihús hafa stöðvað rekstur og fyrirsjáanlegt Framhald á bls. 22. Aukafundur Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna: Gengislækkunin of lítil til að skila vinnslunni viðunandi afkomu Magnús Kjartans- son ekki í framboð? „Ég held nú að þetta hafi ekki verið hátíðlegra af minni hálfu en það, að ég sagði, að svo gæti farið að ég hitti þá ekki aftur, þar sem þetta gæti orðið minn síðasti fundur svo ég kvaddi þá,“ sagði Magnús Kjartansson, alþingis- maður, er Mbl. hafði samband við hann í gærkvöldi vegna ummæla hans á fundi í samgöngumála- nefnd Norðurlandaráðs í Ösló á dögunum þess efnis, að hann hygðist ekki gefa kost á sér til framboðs við næstu Alþingiskons- ingar. Þegar Mbl. spurði, hvort hann væri búinn að ákveða að vera ekki í framboði, svaraði Magnús. „Ég mun reyna að svara einhverju ef kjörnefnd Alþýðubandalagsins í Reykjavík spyr mig. Ég vil heldur að þetta berist rétta boðleið." m WM 66 mw- VfKKÍ V7K0- SKAMMM! mmyim \ GtR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.