Morgunblaðið - 25.02.1978, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 25.02.1978, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. FEBRUAR 1978 + Faðir okkar. tengdafaðir og afi, ÓSKAR ÁGÚST SIGURGEIRSSON, fyrrverandi skipstjóri. Hórpugötu 8. andaðist i Borgarspitalanum 22 febrúar Margrét Óskarsdóttir, Jens Jónsson, Sigrún Óskarsdóttir. Sigurður Albert Jónsson, og bamabörn. Maðurinn minn og faðir. GUÐJÓN BERNHARÐSSON, gullsmiður, er látinn Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug Ragna Gunnarsdóttir, Gunnar Bemhard og fjölskylda. + Maðurinn mmn. faðir okkar. tengdafaðir og afi, JÓN H LEÓS fyrrverandi deildarstjóri, verður /arðsunginn frá Dómkirkjunni. mánudaginn 27 febrúar. kl 13 30 Svanlaug Böðvarsdóttir, böm, tengdabörn og barnabörn. + Bálför eiginmanns mins. föður okkar. tengdaföður og afa. HERMANNS AGÚSTS HERMANNSSONAR. Álftamýri 57, hefur farið fram i kyrrþey Þökkuð auðsýnda samúð Ása Þ. Ottesen, Þuriður Hermannsdóttir, Þorlákur Hermannsson. Alma Róbertsdóttir. Herdís Hermannsdóttir. Erlingur Aðalsteinsson, og barnabörn. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar. tengdamóður og ömmu, OKTAVÍll JÓNSDÓTTUR, Drafnarstíg 7. Börn, tengdabörn og barnabörn. + Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför JÓHANNESARGUÐJÓNSSONAR Fvrir hönd ættingja. Svavar Jóhannesson. Hilmar Jóhannesson. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför frænku minnar, JÓNINNAR MARGRÉTAR PÉTURSDÓTTUR Björg Helgadóttir. + Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför ÓNNU GUÐRÚNAR JÓNSDÓTTUR Magnús Gunnar Jóhannsson Jón Steingrimsson Sigríður Magnúsdóttir Ársæll Jónsson BrynjaÓ. Birgisdóttir Arngunnur Jónsdóttir Jón Birgisson Svava Kristin Valfells Þórgunnur Jónsdóttir + Innilegar þakkir til allra þeirra. sem auðsýndu okkur samúð við andlát og útför móður okkar. tengdamóður og ömmu. KRISTÍNAR SIGRÍÐAR JÓNSDÓTTUR. frá Kambi. Börn, tengdabörn og barnaborn Erlendur Björnsson á Vatnsleysu - Minning Vér sjáum hvar sumar rennur með sól yfir dauðans haf og lyftir f eilffan aldingarð þvf öllu sem drottinn gaf. Þann 16. febrúar s.l. andaðist i sjúkrahúsi i Reykjavík Erlendur Björnsson, bóndi og hreppsstjóri á Vatnsleysu í Biskupstungum. Utför hans fer fram I dag frá Torfastaðakirkju. Farsælli lífs- göngu þessa mæta manns er lokið. Aldamótamaður hefur kvatt, einn af þeim mörgu sem miðlað hafa okkur af þekkingu sinni og lífs- reynslu. Á vissan hátt verða kaflaskipti í lífi okkar, þegar fólk kveður, sem við höfum þekkt eins lengi og minni okkar nær. Það er allt í einu eins og hjóli tímans sé snúið aftur á bak og það liðna birtist okkur í ótal myndum. Það er rétt ár síðan að Erlendur varð fyrir mikilli raun hvað heilsuna snerti. Þessa mikiu reynslu bar Erlendur með mikilli karl- mennsku, okkur sem þekktum hann bezt, komu ekki á óvart karl- mannleg viðbrögð hans. Þannig var hann skapi farinn. Hann hefði seint borið sínar tilfinningar á torg. Þó var hann viðkvæmur og tilfinningarikur. Erlendur var fæddur 21. júlí 1899 sonur Björns Bjarnarsonar, hreppstjóra á Brekku í Biskups- tungum og Guðrúnar Erlendsdótt- ur frá Arnarholti í Biskupstung- um. Kona Björns, Jóhanna Björnsdóttir gekk honum í móð- urstað og reyndist honum góð móðir. Eina systir átti Erlendur, Þóru búsetta í Reykjavík, gifta Karli Magnússyni. Langskólaveg- inn gekk Erlendur ekki, en gott veganesti hlaut hann í föðurtúni. Af því má m.a. merkja velgengni hans í samskiptum við menn og málleysingja og þvi sem er gulli betra, hann var sjálfum sér trúr. 18. nóvember 1922 var ham- ingjudagur í lifi hans, þá gekk hann að eiga Kristínu Sigurðar- dóttur frá Vatnsleysu. Þann sama dag gengu í hjónaband Þorsteinn bróðir Kristínar og Agústa Jóns- dóttir, og hófu þau búskap á Vatnsleysu. Sama ár, hófu þau Kristin og Erlendur búskap á Brekku, en föður sinn missti hann árið 1920. Eftir fjögra ára búskap þar, flytja þau að Vatns- leysu og taka til ábúðar vestur- hluta jarðarinnar. Var samfylgd þeirra beggja hjóna á Vatnsleysu því löng, og það sem meiru máli skipti hún var farsæl og góð í 50 ár. Eg hygg, að það sé nokkuð fátítt um jafn gott sambýli eins og var og er á milli Vatnsleysuheimil- anna. Elskulegt samfélag sem seint gleymist. Við minnumst margra gleðistunda frá unglings- árunum, oft var sungið og margt spjallað. Fjölda mörg trúnaðarstörf voru Erlendi falin af sveitungum og fleiri aðilum. Hann var m.a. hreppsstjóri Biskupstungna í rúm 40 ár, sýslunefndarmaður, sat í hreppsnefnd um mörg árabil. öll þessi störf rækti Erlendur af stakri trúmennsku. Hann var einstaklega nákvæmur í öllu því er honum var falið að inna af hendi. Oft hafa stórar fjárhæðir farið um hendur hans, þar sem það kom í hans hlut sem hrepps- stjóra, að sjá um innheimtu á opinberum gjöldum fyrir sveit sína. En mér er kunnugt um það, að haft var orð á regiusemi hans, um skil á réttum tíma. Hér er fátt eitt talið, sem undirstrika margar dyggðir er prýða heiðursmann. Ungur lærði Erlendur að leika á orgel, og var hann fjölda ára organisti við sóknarkirkju sína á Torfastöðum og í mörg ár á öllum kirkjum í sveit sinni. Við bóndastarfið undi Erlendur vel, og var honum sýnt um fjöl- margt er að þvi laut. Hann var fjárræktarmaður, átti gjarnan gæðinga á stalli, enda laginn við að laða fram það bezta, sem ís- lenzki hesturinn býryfir. Eg minnist sem unglingur, ferða okkar ásamt nágranna bændum, þegar rekið var til fjalls á vorin. A þessum næturvökum okkar í „nóttlausri voraldar ver- öld“ var oft glatt á hjalla, og Er- lendur hrókur alls fagnaðar. Heimili þeirra hjóna var rómað myndarheimili. Hann átti vel- gefna glæsilega konu. Það er ekki ofsagt, að Kristín var prýði ís- ienzkra kvenna. Oft var gest- kvæmt á heimili þeirra, og kunni húsfreyjan ekki síður en bóndinh, að taka á móti gesti. Erlendur var heimakær og vinnusamur, og mátti ekki á milli sjá, hvorra hlut- ur var stærri í því, að skapa fall- egt myndarheimili. Þeim hjónum varð þriggja barna auðið. Þriggja sona og tveggja dætra. Aðra dótturina misstu þau á öðru ári, hin börnin lifa foreldra sína. Við austurbæjarfólkið á Vatns- leysu þökkum þeim Kristínu og Erlendi góða samfylgd. Friður fylgi ykkur til ljóssins eilifa. Við þökkum frændsystkinahópinn góða. Megi sami góði andinn og eindrægnin sem þið skópuð á göngu ykkar, fylgja niðjum okkar öllum. Einar Geir Þorsteinsson. Minning: Ornólfur Sveins- son frá Viðfirði Fæddur27. mal 1895. Dáinn9. febrúar 1978. Örnólfur Sveinsson frá Viðfirði við Norðfjörð lést á Hrafnistu þann 9. febrúar. Þar hafði hann dvalið í tæp 3 ár, hafði alltaf fótavist en var farinn að heilsu örnólfur var fæddur í Viðfirði sonur hjónanna Sveins Bjarna sonar bónda og smiðs þar og Svan hildur Hektorsdóttur er dvaldi þar um tima. Ólst drengurinn upp á heimili föður sins, en hélt alltaf sambandi við móður sína og börn hennar. Vandist hann allri vinnu til lands og sjávar og lærði síðan trésmíðar af föður sínum. Stund- aði hann þá iðngrein meðan heils- an entist. Örnólfur var mikill verkmaður, þótti góður smiður og var eftirsóttur sem slíkur. Víða fyrir austan eru til fallegir smíð- isgripið eftir hann, t.d. þótti Örn- ólfur smíða sérstaklega góða og fallega spunarokka og marga góða smábáta smíðaði hann um dag- ana. örnólfur var duglegur að afla sér bestu fáanlegra verkfæra og fylgdist vel með nýjungum á því sviði. Einnig smíðaði hann sjálfur það sem honum fannst á vanta. Minningarnar hvarfla til æsku- og ungingsáranna þegar örnólfur + Þakka innilega auðsýnda samúð við útför föður mins JÓNS BENEDIKTSSONAR, frá Húnsstöðum, Fyrir mina hönd og annarra vandamanna Maria Jónsdóttir. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vmáttu við fráfall og jarðarför KRISTLEIFS JÓNSSONAR, fyrrverandi vegaverkstjóra. Laugalæk 3, Sigríður Jensdöttir, Maria Elisabet Kristleifsdóttir. Jens Kristleifsson. GuSrún Magnúsdóttir. Björn Kristleifsson. ÞuriSur Backmann. og barnabörn kom oft á heimili okkar og fylgdi honum ætíð hressilegt andrúms- loft. Hann var algjör andstæða bróður síns sem var mjög hæg- gerður og fámáll. Örnólfur var aftur á móti skapmaður mikill, með hvellan málróm og átti mjög gott með að koma sínum hugsun- um og skoðunum frá sér. Áhersl- ur hans og orðatiltæki eru þeim sem til þekkja ógleymanleg. Örnólfur kvæntist /rændkonu sinni, Guðrúnu Björnsdóttur frá Vaði í Skriðdal, árið 1918. Hófu þau búskap í Viðfirði en fluttu út á Nes um 1920. Fjölskyldan stækkaði fljótt, börnin urðu sjö. Eitt barn misstu þau en upp kom- ust fimm stúlkur og einn drengur. Guðrún kona örnólfs var mjög heilsutæp og þurfti oft að vera undir læknishendi, var því oft erfitt fyrirheimilisföðurinn að fara frá barnahópnum. Til þess að létta undir heimilinu voru tvær stúlkur teknar í fóstur á góð heimili í plássinu og ílengdust þær þar, en höfðu alltaf gott sam- band við foreldra og systkin. Með þrautseigju og dugnaði tókst örnólfi að koma sér upp ágætu húsi á Norðfirði og hafði vinnuaðstöðu í kjallara. Þar var mikið unnið. Nú var atvinna nög, börnin uxu úr grasi, fluttu að heiman og stofnuðu sin eigin heimili. Þá komu barnabörnin til afa og ömmu til lengri og skemmri dvalar. Einn dótturson ólu þau alveg upp, og að því kom að þau voru orðin ein með fóstur- Framhald á bls. 26

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.