Morgunblaðið - 21.03.1978, Page 1

Morgunblaðið - 21.03.1978, Page 1
48 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI 59. tbl. 65. árg. ÞRIÐJUDAGUR 21. MARZ 1978 Prentsmiðja Morgunblaðsins Alvarlegt áfall fyrir evrópukommúnismann: Mikill sigur frönsku stjómarinnar—staða Giscardsinna eflist Mitterand: kommúnistum Marchais: úrslitin mikil að kenna vonbrigði París, 20. marz. AP. — Reuter. Sjá einnÍK á bls. 46 og 47 FRANSKI frankinn styrktist á gjaldeyrismörkuðum í dag og blöð í Evrópu kölluðu sigur mið- og hægriflokkanna í frönsku þingkosningunum persónulegan sigur fyrir d'Estaing forseta. Forsetinn fór til Rambouillet kastala skammt frá París þar sem gert er ráð fyrir að hann hugleiði miyndun nýrrar stjórnar eftir kosningarnar. Gizkað er á að Raymond Barre verði áfram forsætisráðherra en Giscard d‘Estaing forseti vill ekkert láta eftir sér hafa fyrr en hann ávarpar þjóðina í sjónvarpi á miðvikudagskvöld. Stjórnarflokkarnir hlutu 291 þingsæti af 491 en stjórnarandstöðuflokkarnir 200 þannig að stjórnin hefur öruggan meirihluta þótt hún hafi tapað nokkrum þingsætum. Aðstaða Giscard d'Estaings forseta hefur styrkzt við það að miðflokkarnir sem fylgja honum að málum bættu við sig 20 þingsætum en gaullistar töpuðu rúmlega 30 þótt þeir séu ennþá stærsti flokkurinn. Þar með er talið að forsetanum reynist auðveldara en fyrr að koma frjálslyndum frumvörpum gegnum þingið og að hann geti jafnvel biðlað til hófsamra vinstrimanna þótt mjög ólíklegt sé talið að hann geti komizt af án stuðnings gaullista. Þegar úrslitin lágu fyrir hringdi Helmut Schmidt kanzlari í Gis- card d'Estaing forseta til að óska honum til hamingju og talsmaður Bonn-stjórnarinnar sagði í dag, að kanzlarinn teldi úrslitin styrkja samvinnu Vestur-Þjóðverja og Frakka. Leiðtogi stjórnarandstöð- unnar í Bonn, Helmut Kohl, kvað úrslitin uppörvun öllum stjórn- málaöflum í Evrópu sem höfnuðu evrópukommúnisma. ítölsk blöð sögðu að Giscard Framhald á bls. 30. Kina hafn- ar Rússum Moskvu, 20. marz. AP Sovétstjórnin tilkynnti í dag að stjórn Kína hefði hafnað nýju boði Sovétmanna um að taka á ný upp eðlilegt samband milli land- anna, en sambúð þessara tveggja risavelda kommúnismans hefur verið afar slæm undanfarin ár. Tass-fréttastofan í Moskvu skýrði svo frá að Æðstaráð Sovétríkjanna hefði í síðasta Framhald á bls. 30. Israelskir hermenn hvfla sig í Bint Jbeil í Suður-Líbanon eftir árás sem þeir gerðu á staðinn. Aðalstöðvar E1 Fatah. illa leiknar eftir árásina, í baksýn. Líbanon sunnan Litani- árinnar á valdi ísraels Sjá viðtal á bls. 47 □ ------------------------------------------------------------- □ Tel Aviv, 20. marz. Reuter — AP. ÍSRAELSMENN tilkynntu í dag að þeir hefðu að mestu lokið við að ná yfirráðum yfir Suður-Líbanon og lýstu sig reiðubúna til að semja um vopnahlé við palestínska skæruliða sem veita enn viðnám, sex dögum eftir kð innrás ísraelsmanna í Líbanon hófst. Ezer Weizman iandvarnaráðherra lýsti þessu yfir og sagði á hlaðamannafundi í Tei Aviv að ísraelsstjórn hefði enn ekki ákveðið hvort hún ætti að verða við áskorun Öryggisráðsins frá þvf í gærkvöldi þess efnis að kalla burtu herlið sitt frá Suður-Líbanon og fá stjórnina þar í hendur 4.000 manna friðargæzluliði Sameinuðu þjóðanna sem ákveðið hefur verið að setja á iaggirnar. „Eina ákvörðunin sem hefur Tyros. ísraelsmenn réðust með verið tekin er sú að Suður-Líbanon má ekki vera bækistöð hryðju- verkamanna," sagði hann. Hann bætti því við að hann vonaðist til að ákvörðun Öryggisráðsins þyrfti ekki að hafa deilur í för með sér. Þar með er talið líklegt að Israelsstjórn viðurkenni gæzlulið SÞ þótt hún sé treg til þess. Aður hafði talsmaður ísraels- hers tilkynnt í Tel Aviv, að írsaelskir hermenn hefðu náð á sitt vald svo að segja öllu líbönsku yfirráðasvæði sunnan Litani-ár- innar, sem hefur mikla hernaðar- þýðingu, að undanskilinni smá- landræmu umhverfis borgina fallbyssubátum og stórskotaliði á stöðvar skæruliða umhverfis borg- ina í dag. Fréttir bárust einnig af hörðum bardögum á svæðinu á ströndinni. Framhald á bls. 3o Aldo Moro dreginn fyrir alþýðudómstól Sjá viötal á bls 46 □----------------------------------------------------— □ Torino, 20. marz. AP. Reuter. LIÐSMENN Rauðu herdeildarinnar tilkynntu í réttarhöldum í máli þeirra í Torino í dag, að félagar þeirra mundu leiða Aldo Moro fyrrverandi forsætisráðherra fyrir „alþýðudóm- stól“. Fimmtán hryðjuverkamenn úr samtökunum eru fyrir rétti í TorinoMg þeir hreyktu sér af því í dag, að Moro væri á valdi félaga þeirra. En þeir gerðu engar kröfur og hótuðu ekki að myrða Moro. „Moro er í höndum öreiganna,“ hrópaði sakborningurinn Alberto Franceschini í dómsalnum. „Hann verður leiddur fyrir rétt,“ sagði leiðtogi hryðjuverkamannanna, Renato Curcio. Þegar sækjandinn í málinu, Luigi Mischella, fór fram á að sakborningarnir yrðu færðir aftur til klefa sinnæ hrópaði Franchess- chini: „Þegiðu, taugasjúklingur," en flestir sakborningarnir kváðust vilja fara þar sem dómarinn, Guido Barbaro, neitaði að verða við beiðni frá þeim um að þeir fengju að lesa pólitíska tilkynn- ingu. „Þetta eru pólitísk réttarhöld," hrópuðu sakborningarnir í kór. Franceschini sagði að „alþýðu- réttarhöldin" gegn Moro yrðu „einnig málaferli gegn ríkinu og Framhald á bls. 30. Páfinn veikur Róm, 20. marz. AP. PÁLL páfi VI. hefur aflýst flestum af störfum sfnum í páskavikunni vegna veikinda, en páfi hefur að undanförnu verið með flensu. Veikindi páfa að undanförnu hafa vald- ið áhyggjum af heilsufari hans almennt. en páfi sem nú er 80 ára. hefur ekki áður á 15 ára páfaferli sínum hætt við að vinna verk sín í páskavikunni, sem að jafnaði er ein hin annasamasta í starfi hans. Páll páfi er sagður hafa tekið það ákaflega nærri* sér þegar hann frétti af ráninu á Aldo Moro og hafi þegar þurft að Framhald á bls. 30.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.