Morgunblaðið - 21.03.1978, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. MARZ 1978
15
Brldge
Umsjón ARNÓR
RAGNARSSON
íslandsmót
í bridge —
undankeppni
Á morgun, miðvikudag, hefst
á hótel Loftleiðum kl. 20
undanúrslit í íslandsmótinu í
bridge, sveitakeppni. 24 sveitir
eru skráðar til leiks og eru 12
úr Reykjavík. Spilað verður á
fjórum sex sveita riðlum og
hefir verið dregið í riðlana.
A — riðill
Dagbjartur Grímsson Rvík
Páll Áskellsson Vestf.
Ármann J. Lárusson Rnes
Hjalti Elíasson Rvík (íslandsm.)
Páll Valdemarsson Rvík
Jón Guðmundsson Vesturl.
B — riðill
Jón Hauksson Suðurl.
Steingrímur Jónsson Rvík
Gísli Torfason Rnes
Stefán Guðjóhnsen Rvík
Ingimundur Árnason Norðurl.
Jón Hjaltason Rvík
C - riðill
Albert Þorsteinsson Rnes
Jón Ásbjörnsson Rvík
Guðmundur T. Gíslason Rvík
Þorsteinn Ólafsson Austurl.
Björn Eysteinsson Rnes
D — riðill
Þórður Björgvinsson Vesturl.
Ester Jakobsdóttir Rvík
Guðmundur Pálsson Rnes
Sigurjón Tryggvason Rvík
Vilhjálmur Pálsson Suðurl.
Guðmundur Hermannsson Rvík
Eins og áður sagði hefst
keppnin klukkan 20 annað kvöld
og lýkur aðfararnótt laugar-
dags. Áhorfendur eru velkomn-
ir.
Bridgefélag
Kópavogs
S.l. fimmtudag hófst baromet-
er-tvímenningskeppni hjá
Bridgefélagi Kópavogs. 28 pör
taka þátt í keppninni og voru
spilaðar 5 umferðir, 5 spil á
milli para.
Besta árangri náðu:
stig
Jónatan Líndal —
Þórir Sveinss. 118
Guðbrandur Sigurbergsson —
Jón Páil Sigurjs. 118
Árni Jónasson —
Matthías Andrésson 52
Guðmundur Jakobsson —
Valgerður Bára Guðmd. 51
Grímur Thorarensen —
Guðmundur Pálsson 50
Bjarni Pétursson —
Sævin Bjarnason 50
Pjetur Helgason —
Gunnar Ólafsson 45
Meðalskor 0
Ekki verður spilað á skírdag,
en keppninni verður haldið
áfram fimmtudaginn 30. mars
kl. 20.00 í Þinghól, Hamraborg
11.
Ferðaleikhúsið sýndi á 8
stöðnm í Bandaríkjunum
FERÐALEIKHÚSIÐ er nýkomið úr
mikilli leikför til Bandaríkjanna, par
sem leikfólkiö kom fram á 8 sýning-
um víðs vegar um Bandaríkin. Alls
munu um 2500 manns hafa séð
sýningar hópsins. Að sögn Kristínar
Magnúss sem stendur fyrir sýningum
hópsins var í sýningum leikhússins
brugðið upp mynd af fornu íslenzku
baöstofulífi, par sem um 30 mismun-
andi atriði voru tengd saman i
samfellda sýningu.
Meðal efnis sem þar kom fram má
nefna, að lesnir voru kaflar úr
þjóðsögum, fariö með minni úr
þjóðtrúnni um álfa og tröll, kynnt var
íslenzka langspiliö svo og fimmundar-
söngur.
Upphafið að þessari ferð okkar er,
að ég skrifaði til mjög margra skóla
víðs vegar um Bandaríkin, sem allir
svöruðu mjög fljótlega og voru flestir
mjög jákv/aeðir fyrir því að við kæmum
og skemmtum. Þá ýtti það mjög undir
aö þetta var mögulegt aö Flugleiöir
gáfu okkur mjög góðan afslátt af
fargjaldinu fram og til baka, sagöi
Kristín ennfremur
Þó svo þetta sé mjög góð og mikil
landkynning tókst okkur ekki meö
neinum ráðum aö fá styrk til fararinnar
frá Ferðamálaráði, sem þó hefur yfir
að ráða stórum upphæðum árlega til
landkynningar eins og þessarar.
Hvað varðar undirbúning fyrir ferð-
ina þá var hann töluvert mikill og er
hvert einasta atriði þaulæft, en það tók
okkur þó allt frá 3—10 klukkutíma að
undirbúa hverja sýningu þar sem
oftast þurftum við að breyta Ijósakerf-
um á einhvern hátt. En það má segja
að allar sýningarnar hafi tekist meö
ágætum, fengum eins og áöur sagöi
2500 áhorfendur eða rúmlega 300
manns á sýningu, en það er meira en
fullt lönó hverju sinni.
Eins og undanfarin sumur mun
Ferðaleikhúsið standa fyrir sýningum á
Light Nights á Hótel Loftleiðum fyrir
erlenda feröamenn og í haust hefur
hópnum verið boðið á Edinborgar-
hátíðina meö tvo einþáttunga eftir
Odd Björnsson, en ekkert verður úr
þeirri för nema til komi einhverjir
styrkir til að greiöa feröa- og auglýs-
inqakostnað, sagði Kristín aö lokum.
Athugasemd frá samstarfsnefnd
fulltrúa fiskvinnslunnar
Sigfús J. Johnsen, kennari,
ritar grein í Morgunblaðið 1.
marz sl., þar sem hann fjallar um
þróun ýmissa þátta efnahagslífs-
ins og þó aðallega um þróum
fiskvinnslunnar.
Sigfús byggir grein sína þannig
upp, að fyrst er farið með ýmsar
tölur, sem sýna eiga þróunina
1967—1977 og síðan dregur hann
ályktanir af þeim tölum, er
nefndar eru. Augljóst er því, að
ef talnameðferðin er röng, þá eru
niðurstöðurnar það einnig. Sigfús
nefnir grein sína „Er þetta svara
vert?“, og þar sem talnameðferð
og ályktanir eru ekki réttar, sér
samstarfsnefnd fulltrúa fisk-
vinnslufyrirtækja sér ekki annað
fært en að svara fyrrnefndri
grein um leið og bent er á ýmis
atriði, er Sigfús nefnir ekki í gein
sinni.
Sigfús segir, að verð á blokk-
inni hafi verið 20 cent pr. lb. 1967.
Víst er það rétt, að verðið komst
niður í þetta verð, en aðeins um
stuttan tíma. Algengustu verð á
þessu tímabili munu hafa legið
milli 20—24 cent pr. lb. Tvö
önnur atriði er mikilvægt að hafa
í huga, þegar meta á markaðs-
málin. í fyrsta lagi er nauðsyn-
legt að gera sér grein fyrir því,
að blokkin er aðeins ein tegund
pakkningar af mörgum, sem fara
á Bandaríkjamarkað. Á árinu
1977 var þorskblokkin aðeins um
25% af heildarframleiðslumagni
botnfiskafurða í frystingu. Hlut-
ur neytendapakkninga þroskaf-
urða var hins vegar um 35%.
Raunhæfast hefði því verið að
meta þessar tvær tegundir
pakkninga. í öðru lagi er það
staðreynd, að verðið á þorski er
mun hærr en á öðrum fisk-
tegundum. Þetta er öfugt við það,
sem átti sér stað 1967. Hallinn er
í dag mestur í vinnslu annarra
tegunda en þorsks.
Rétt mun vera hjá Sigfúsi að
gengi á síðari hluta ársins 1967
hafi verið um 57 kr. pr. $. En
lítum nú nánar á stöðu frysti-
iðnaðarins um áramótin
1967—68. Þá gerðist það í fyrsta
og síðasta skipti að svo til öll
frystihús, að Vestfjörðum undan-
skildum stöðvuðust vegna
rekstrarerfiðleika. Fyrir árslok
1968 var gengið hins vegar orðið
88 kr. pr. dollar sem jafngildir
54% gengislækkun gagnvart $ á
því ári.
Það ætti að vera óþarfi að
minna á, að gengisfellingar eru
ekki einungis þáttur, sem verkar
hvetjandi á tekjur
útflutningsatvinnuveganna,
heldur hefur einnig aukningu í
för með sér á alla innlenda
kostnaðarliði. Það sér vísitölu-
kerfið um.
Fiskverð segir Sigfús hafa
verið 5.21 pr. kg. 1967 og var það
verð miðað við stórþorsk í fyrsta
flokki, þ.e.a.s. einungis er miðað
við hæsta verð á hverjum tíma.
Verð þetta, kr. 5.21, var verð til
útgerðaraðila með sérstakri
ríkissjóðsuppbót, sem nam 52
aurum, og verð fiskkaupenda var
því 4.69 kr. pr. kg. af stórþorski.
Sigfús segir slíkt verð hafa verið
á síðasta ári 83 kr. pr. kg., sem
ekki er alls kostar rétt, því það
er verð, er gilti frá 1.1. — 30.6.
1977. I árslok ar verðið hins
vegar orðið 98 kr., en við bætast
10% vegna stofnfjársjóðsgjalds
og í mörgum tilfellum kassabæt-
ur 12% , þannig að verðið í lokin
er orðið 120.74 pr. kg. Hækkun
Framhald á bls. 31
nusgogn
í káetustíl
ATH.
Efni: Mahogny (rauöbrúnt).
Svefnbekkir, háir — lágir, dýnustærö 90x190 cm.
Fataskápar, breidd 110 fm., hæö 184 cm. eöa 210
cm. dýpt 59 cm.
Skrifpúltskápar, breidd 89 cm., hæö 184 cm., eöa
210 cm., dýpt 46 cm.
Bókahilluskápar, breidd 89 cm., hæö 184 cm., eöa
210 cm., dýpt 46 cm.
Skrifborð, lengd 123 cm., breidd 60 cm.
Stílhrein og falleg húsgögn.
Opið til kl. 10 miðvikudag og
ffrá kl. 9—12 laugardag ffyrir páska.
Vdrumarkaöurinn hf.
Ármúla 1 A, sími86112.