Morgunblaðið - 22.04.1978, Side 1
48 SÍÐUR OG LESBÓK
V
82. tbl. 65 árg.
LAUGARDAGUR 22. APRÍL 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Rússar skutu á farþega-
vélina frá S-Kóreu
Vélin brotlenti á ísilögðu vatni, 2 létust og 13 slösuðust
Washington, Moskvu, Seoul,
21. apríl. Reuter. AP.
SOVÉZKAR orrustuvélar skutu á
suðurkóreanska farþegaflugféla af
gerðinni Boeing 707 og neyddu
hana til að lenda eftir að Boeing-
vélin hafði farið inn í sovézka
iofthelgi. Svo sagði í tilkynningu
öryggisráðgjafa Carters forseta,
Brzezinskis, í kvöld eftir að
ýmsar fréttir höfðu verið sendar
út um málið og var það lengi
fram eftir degi afar óljóst og
mótsagnakennt. Enn hafa sovézk
stjórnvöld ekki staðfest að þau
hafi neytt vélina til að lenda,
heldur sagt að hún hafi að
líkindum villzt inn í sovézka
lofthelgi og síðan brotlent. Sovét-
menn hafa staðfest að vélin hafi
lent þar og segja að farþegar fái
að fara heim hið fyrsta.
I tilkynningu Brzezinskis sagði
að tveir farþegar væru látnir og
tveir alvarlega slasaðir. Samtals
hefðu þrettán hlotið einhver
meiðsli. Ráðgjafinn skýrði málið
ekki í neinum smáatriðum og
sagðist ekki vita gjörla um skot-
hríðina á vélina né heldur um
þjóðerni hinna látnu. Japanskar
Myndin er af Kim Chang Kyu,
flugstjóra á KAL-flugvélinni
Boeing 707, sem var á leið frá
París til Alaska.
heimildir sögðu að annar hinna
látnu væri Japani.
I Moskvu sögðu starfsmenn
sendiráðs Bandaríkjanna þar í
borg, að sovézka stjórnin hefði
boðizt til að leyfa að bandarísk vél
færi að sækja farþegana og
áhöfnina í Murmansk, 230 mílur
norður af lendingarstað vélarinn-
ar. Bandaríska sendiráðið hefur
ekki svarað þessu og sagði tals-
maður þess, að ekki hefði verið
óskað eftir meðalgöngu Bandaríkj-
anna. Bandarískar heimildir í
Moskvu sögðu, að embættismenn
sendiráðsins hefðu fengið fregnir
af því frá sovézkum embættis-
mönnum, að vélin sem lenti á
ísilögðu stöðuvatni væri nokkuð
skemmd.
I fréttum frá Seoul í kvöld sagði
að suður-kóreönsk vél af sömu gerð
og sú sem fyrir óhappinu varð
væri að leggja af stað til Helsinki
í Finnlandi til að vera tilbúin að
ná í farþega og áhöfn. Forseti
flugfélagsins KAL, Cho Choong
Hoon, var í forsvari sendinefndar-
innar sem fór til Helsinki en
einnig voru með vélinni læknar og
hjúkrunarfólk. Hann kvaðst von-
ast til að engar tafir yrðu á því að
farþegar og áhöfn fengju að fara
leiðar sinnar. Finnska utanríkis-
ráðuneytið tilkynnti í kvöld, að
það væri þess albúið að veita hvers
Framhald á bls. 27
Þessa nýju mynd sendu mannræningjar Aldo Moros á fimmtudag og
er hann þarna með blað frá deginum áður í höndunum. Er með þessu
ætlað að sanna að Moro sé enn á lífi en í gærkvöldi lá ekki fyrir
úrskurðurinn um hvort myndin væri ósvikin. Fresturinn, sem
mannræningarnir hafa nú gefið, rennur út kl. 14 í dag, laugardag.
Oryggisráðið ræddi
ránið á Aldo Moro
Mannræningjarnir hafa sett frest til kl. 2 eh. í dag
yrði sleppt tafarlaust úr haldi.
Young er forseti Öryggisráðsins
nú í aprílmánuði.
í kvöld var tilkynnt af hálfu
ríkisstjórnar Ítalíu eða flokks Moros,
Kristilega demókrataflokksins, að
eingin breyting yrði á afstöðunni til
þeirra krafna sem ræningjar Mores
hafa sett fram og væri þeim vísað á
bug. Þeir segjast gefa stjórninni
frest til kl. 14 síðdegis á morgun,
laugardag. Ef ekki verði gengið að
kröfum þeirra, muni Moro verða
tekinn af lífi segir í tilkynningunni
frá Rauðu herdeildinni.
óuiiis Konar gerð tlugvélar og sú vél Suður-Kóreumanna sem neydd
var til að lenda í Sovétríkjunum.
Rómaborg 21. apríl. AP.
í KVÖLD var haldinn skyndi-
fundur í Öryggisráði Sameinuðu
þjóðanna sem fulltrúi Bandaríkj-
anna, Andrew Young, boðaði til,
þar sem átti að ræða ránið á Aldo
Moro og var búizt við að gerð yrði
einróma samþykkt um að Moro
„Engin f angelsi eða dómstóll -
allir, sem óhlýðnast eda grun-
samlegir þykja, eru drepnir”
Kambódíuréttarhöldin hafin í Ósló:
- óttalegar lýsingar flóttamanna frá Kambódíu
Osló 21. aprfl
Frá hlaðam. Mbl.
Elínu Pálmadóttur
I>RÍR flóttamenn frá
Kambódíu voru yfirheyrðir við
réttarhöldin í Osló síðdegis og
voru sögur þeirra skelfilegar.
Þeir voru Lim Pecht Kuon,
flugmaður, sem starfaði við
þyrluflugkennslu fyrir Rauðu
khmerana og tókst að flýja 30.
apríl 1976, Pam Moeun,
hermaður sem flýði í apríl 1976
og skildi eftir konu og þrjú
börn, og Kong Samrach, sem
slapp í burtu í júní og gat lýst
nákvæmlega ástandinu allan
tímann eftir að Rauðu khmer-
arnir tóku völdin. Einnig talaði
Asíuritstjóri Readers digest,
Anthony Paul, annar höfundur
hinnar frægu bókar
„Kamhodia, Murder of A
Gentle Land“, og gerði grein
fyrir því sem gcrzt hefur síðan
þeirri bók lauk og sérstaklega
tilraunum til uppreisnar
1976—77 sem orðrómur hefur
verið um. Hefur hann safnað
upplýsingum frá flótta-
mönnum.
Pam Moeun segir m.a. frá
morðunum í Pagodunni í Thmar
Trap, 5 km frá Tonle Bati, en
þangað var hann fluttur ásamt
konu sinni og börnum í stórum
hópi fólks, sem var flutt á
stórum vörubílum 3. maí 1975.
Hann segir svo frá: „Klukkan
20,30 var röðin komin að okkur.
Ég vakti yngsta son minn og við
vorum látnir fara út úr
vagninum. Um 10 verðir létu
aðra verði taka við okkur, en
þeir komu út úr skóginum. Þeir
bundu fyrir augun á okkur og
bundu hendur fullorðinna fyrir
aftan bak. Það var þá að ég
skildi að það átti að drepa okkur
og ég spurði hvers vegna. Þeir
sögðu að ég væri hermaður og
ekki hægt að treysta mér.
Það herti rigninguna og við
fylgdum þeim holdvot, ég og
kona mín og börn. Annar hópur
af Rauðum khmerum kom og
spurt var hvaðan ég væri og ég
laug eins og venjulega að ég
væri leigubílstjóri frá Phnom
Pehn og kona mín gat sagt það
sama, þótt hún væri skajlfandi
á beinunum af ótta. Rauðu
khmerarnir rifu þá af henni
barnið sem hún hafði í fanginu
og tóku hin tvö. Þá þrifu þeir til
konu minnar og skipuðu henni
að afklæðast. Mér var rétt reipi
sem ég tók og var ég leiddur út
að tekinni gröf. Allt í einu tókst
mér að losa um hendurnar, ná
Framhald á bls. 26
Stjórnarfundur Andreotti-
stjórnarinnar var í dag og fjallaði
um ránið á Moro enn einu sinni
eftir að mynd hafði verið send af
Moro þar sem hann virðist vera að
lesa dagblað frá því á miðviku-
daginn. Sagði í tilkynningu með
myndinni að fyrri fregnir um að
Moro hefði verið drepinn væru
tilhæfulausar með öllu.
í fréttaskeytum segir að ítalska
Framhald á bls. 27
Spenna á
fundum
Vance og
Rússa
Moskvu, 21. apríl
AP. Reuter.
TIL talsverðra deilna og nokkurs
fjarðafoks hefur komið í Moskvu
í sambandi við viðræður Cyrus
Vance utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna við sovézka embættis-
menn um frekari tilslakanir á
sviði afvopnunarmála (SALT).
Þungamiðjan í deilunum er rúss-
Framhald á bls. 26