Morgunblaðið - 22.04.1978, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAÖGARDAGUR 22. APRÍL 1978
Skel lif. kynnir plast-
bát, alíslenzkan, er tek
ur við af trébátunum
Gkki var hann alveg fullbúinn að innan en fárra daga fr&gangsvinna eftir.
Þessi bátur er einkum hugsaður til handfæraveiða.
Silla HF 21 frá Skel h.f. er 2.6 tonna bátur og kostar með vél og öðrum búnaði um 3.6 milljónir króna.
ÍSLENZKIR bátaframleiðendur
eru ekki margir, en tveir þeirra
sýna framleiðslu sína á bflasýning-
unni. Gru það Skel h.f. og Mótun
h.f. Á sýningarsvæði Skeljar h.f. er
sýndur fyrsti báturinn sem þeir
framleiða, en fyrirtækið var stofn-
að á liðnu hausti. Runólfur Hall-
dórsson varð fyrir svörum og veitti
uppiýsingar um framleiðslunai
— Það hefur tekið nokkuð mikinn
tíma að koma þessari framleiðslu af
stað og þessi fyrsti bátur okkar er
ekki enn fullfrágenginn. Enn á eftir
að ganga frá innréttingum og
yfirbyggingunni að nokkru leyti, en
vinna við það gæti tekið 3—4 daga
og gerum við ráð fyrir að sjósetja
hann skömmu eftir að sýningunni
lýkur.
— Þessi bátur okkar er að öllu
leyti íslenzk framleiðsla, teikningin
er íslenzk og ber hann nokkuð
sterkan keim af hinu gamla breið-
firzka lagi, en við höfum sem sagt
smíðað bæði mótin og náttúrlega
bátinn sjálfan. Sjómenn og aðrir
sem hafa skoðað hann og þekkja til
sjómennsku hafa lokið lofsorði á
hann, en auðvitað vantar alla
reynslu og almennilega prófun, sagði
Runólfur.
í fyrstunni verður framleidd þessi
eina tegund hjá Skel h.f. en Runólfur
kvaðst gera ráð fyrir að reynt yrði
að koma stærri bát á markaðinn i
framtíðinni, en fyrst yrði að fá
reynslu á þessa frumsmíði.
— Við stefnum að því að afgreiða
allt að einum báti á viku, sagði
Runólfur, en við vitum ekki hvenær
við náum því markmiði. Okkur
virðist áhugi fyrir bátnum mikill og
erum við því bjartsýnir á viðtökurn-
ar.
Þessi fyrsti bátur sem nefnist Silla
HF 21 er með 20 hestafla Buckvél og
er ganghraði væntanlega 8—9 mílur.
Verðið er um 3.6 m.kr. með véiinni
svo og þeim tækjum sem gerðar eru
kröfur um til að báturinn fái
haffærniskírteini, en þau eru m.a.
innréttaður lúkar, stýrisvél, legu-
færi, lensidæla og siglingaljós og er
teikning bátsins viðurkennd af
siglingamálastofnun. Runólfur gat
um nýjung sem Skel hefur tekið upp:
— Sú nýbreytni er í okkar bát að
holrúm eru öll fyllt með svonefndri
úreþaneinangrun þannig að báturinn
á ekki að sökkva jafnvel þótt hann
fyllist af sjó.
— Þennan bát er hentugt að nota
fyrir hvers kyns handfæraveiðar,
grásleppuveiðar o.þ.h., og jafnvel má
nota hann á netum svona fyrir
innanfjarðarfiskerí, sagði Runólfur.
Að lokum sagðist Runólfur vera
bjartsýnn á framtíð plastbáta: —
þeir eiga eftir að slá trébátunum við,
því öll vinna og viðhald einnig er
mun minna en á trébátunum.
Þessi bátur, sem framleiddur er f Englandi, kostar um 3 milljónir króna.
MONRO
Jón ó. Hjörleifsson situr hér frammí en þar getur verið svefnpláss fyrir tvo eða ein flatsæng.
Þar er líka eldavél og afturá er einnig svefnaðstaða.
Kemur að
bæði fyrir
margs konar notum
sportmenn og aðra
JÓN ó. Hjörleifsson er einn þeirra
er hefur bát á sýningunni og sýnir
hann enskan bát sem er framleidd-
ur af Stuart Stevens Boatbuilders.
Þetta er fyrsti báturinn sem Jón
flytur inn, en hann sagðist eigin-
lega hafa tekið „bakteríuna" er
hann fór á sjó frá Sandgerði á liðnu
sumri á sjóstangaveiðar.
— Þessi bátur er 19 feta langur og
er hann því rétt undir þeirri stærð
sem siglingakunnáttu þarf til að
stjórna, eins og segir í reglum þar
um. Hann er innréttaður með káetu
fyrir 2 eða fleiri því hægt er að setja
pall eða setu milli bekkjanna þannig
að þrír geta sofið í henni. Afturá er
líka rými fyrir flatsæng, en þar má
hafa bekki og er hægt að tjalda yfir
hann allan þar með blæjunni.
— Með bátnum fáum við 70
hestafla vél sem gefur honum um
það bil 13—35 hnúta ferð þannig að
ekki tekur lengri tíma en 15—20
mínútur að sigla uppá Akranes og
um klukkutíma út að Garðskaga.
Hvers konar not má einkum hafa
af báti sem þessum?
— Það má bregða sér á fiskirí,
sagði Jón, því stutt er á miðin hér
í flóanum, t.d. ýsumið og lúðumið
skammt sunnan Akraness, þorskur í
Garðsjónum og svo mætti lengi telja.
Nú, það er líka margt fallegt að sjá
á siglingu hér um nágrenni Reykja-
víkur og ég held að Reykvíkingar
hafi almennt ekki gert sér grein
fyrir því hvað borgin hefur upp á að
bjóða bæði á landi og á sjónum hér
í kring. Enn má nefna einn mögu-
leika, en það er að bregða sér á
skelfiskveiðar í Hvalfirði, svo ég held
að svona bátur geti komið að margs
konar notum bæði fyrir sportmenn
og aðra sem vilja e.t.v. reyna að hafa
bein not af honum t.d. fyrir sjó-
stangaveiði eða beint fiskirí.
Báturinn sem Jón sýndi þarna á
sýningunni kostar um 3 milljónir og
hann má einnig fá með utanborðs-
mótor sem er allt að 100 hestöflum.
Honum fylgir áttaviti og dýptarmæl-
ir, en annan búnað verður að panta
sérstaklega t.d. talstöðvar, björgun-
artæki sem Jón taldi algjörlega
nauðsynlegt, ekki sízt ef nota ætti
bátinn sem skemmtisiglingabát fyrir
alla fjölskylduna.
— segir Jón O.
Hjörleifsson
— Annars er mjög lítil aðstaða
hér í Reykjavíkurhöfn fyrir svona
báta, sagði Jón, og naumast er
hvergi hægt að hafa þá. Ekki er enn
ákveðið endanlega hvar smábáta-
höfn verður fyrir komið í framtíð-
inni og er það mjög slæmt fyrir borg
eins og Reykjavík, sem er ein af
fáum borgum í heiminum sem getur
státað af þessu umhverfi hér og
hentar svo vel til alls kyns íþrótta-
mennsku á bátum og tel ég að menn
séu að fá smám saman meiri og
meirkáhuga á allri siglingu af þessu
tagi.