Morgunblaðið - 22.04.1978, Síða 23
M0RGUNBLAMÐ,.L4UGARDAGUR 22. APRÍL 1978
23
Dýrmœtum
listaverk-
um stolið
Flórens 21. apríl. AP.
NOKKRUM mjðg dýrmætum
listaverkum, þar á meðal mál-
verkum eftir Rubens, var stolið
aðfararnótt föstudags úr
Pittilistasafninu í Flórens að
því er lögreglan skýrði frá í dag.
Þetta er einhver mesti mál-
verkaþjófnaður á Ítalíu í mörg
ár og kalla þeir þó ekki allt
ömmú sína í þeim efnum, þar
sem málverkaþjófar hafa verið
mjög athafnasamir síðustu árin.
Þjófarnir komust inn með því að
fara upp á þak byggingarinnar
og notuðu síðan kaðalstiga til að
komast inn í húsið. Verkin eru
metin á um 1.1 milljón dollara.
Pittilistasfnið í Flórens er
mjög sótt af gestum, ekki sízt
erlendum ferðamönnum. Lög-
regla segir að þjófabjöllukerfi
hafi nýlega verið sett í safnið —
en það hafi hins vegar ekki enn
verið t'engt.
Bretar
dæma land-
helgisbrjóta
Plvmouth 21. apr. Reuter.
SKIPSTJÓRI á spánskum tog-
ara sem tekinn var að ólöglegum
veiðum innan brezkrar land-
helgi nýlega án þess að hafa til
þess nauðsynlegt EBE-leyfi, var
í dag dæmdur til þess að greiða
þrjú þúsund steriingspund í sekt
og 175 pund í kostnað. Spánski
togarinn hélt á braut eftir að
skipstjórinn Manuel Fraga
hafði greitt sektina.
Heimsmeist-
ari hand-
tekinn
St. Louis, Missouri 21. apríl
Reuter AP.
LEON Spinks, heimsmeistari í
þungavigt hnefaleika eftir að
hafa sigrað Muhammed Ali, var
handtekinn í Missouri í dag, og
verður ákærður fyrir að hafa
haft í fórum sínum kókaín og
maríhuana.
Lögregla stöðvaði Spinks
vegna umferðarlagabrots og
kom þá i ljós að hann hafði ekki
ökuréttindi. Hann var látinn
laus gegn 3.700 dollara trygg
ingu og verður ákæra birt
honum upp úr helginni. Ekki er
Ijóst hvort mál þetta muni hafa
einhver áhrif á heimsmeistara-
tign Spinks.
Eiturlyfin voru í litlum pok-
um í bílnum. Með Spinks í
bílnum var stúlka sem var
einnig handtekin og bar hún á
sér maríhuana. Þetta er í annað
skipti sem Spinks er handtekinn
í heimabæ sínum, St. Louis,
síðan hann hreppti heims
meistaratitilinn í þungavigt. í
f.vrra skiptið var um aö ræða
umferðarlagabrot og missti
hann þá ökuréttindi.
Sovétnjósnari
rekinn í Ir an
Alfred Atherton
Atherton í
friðarför
Teheran, 21. arpíl. AP.
SOVÉZKUM njósnara hefur verið
vísað úr landi í íran. Hann er
fjórði maðurinn sem hefur verið
staðinn að því að útvega Rússum
leynilegar upplýsingar á átta
mánuðum að. sögn íranskra
embættismanna.
Njósnarinn heitir Shamirof
Ebrahim Oughli og er sagður hafa
starfað í skjóli sovézku flutninga-
þjónustunnar í Teheran. Hann var
staðinn að verki 28. marz þegar
hann steig út úr sovézkum sendi-
ráðsbíl og afhenti manni nokkrum
pakka. Sá maður var Ali-Akbar
Darakshani fyrrverandi hershöfð-
ingi.
Hershöfðinginn játaði seinna að
hann hefði njósnað fyrir Rússa.
Hann var hjartveikur og lézt í
yfirheyrslum daginn eftir að hann
var handtekinn.
I ágúst í fyrra var Ahmed
Mogharrebi hershöfðingi tekinn
eftir að hann hafði njósnað fyrir
Rússa í 30 ár. Hann var forseti
herráðsins. Ali-Naghi fyrrverandi
starfsmaður forsætisráðuneytisins
var einnig handtekinn í ágúst og
dæmdur til dauða fyrir njósnir í
þágu Rússa, en aftökunni hefur
verið frestað.
Kaíró, 21. apríl. AP. Reuter.
SÉRLEGUR sendimaður Carters
forseta, Alfred Atherton að-
stoðarutanríkisráðherra. kom í
dag til Kairó til viðræðna við
egypzka ráðamenn með það fyrir
augum að hleypa lífi í friðartil-
raunir í Miðausturlöndum.
Atherton sagði við komuna að
hann hefði enga bandaríska
friðaráætlun meðferðis. Hann
kvað Cyrus Vance utanríkisráð-
herra hafa beðið sig að fara í
ferðina til þess að' koma skriði á
friðartilraunirnar. „Ég er ekki
hingað kominn til að leggja fram
tillögur," sagði Atherton.
Hann ítrekaði samt að Banda-
ríkjamenn mundu leggja fram
sínar eigin tillögur og hugmyndir
ef þeir teldu að það gæti komið að
gagni. Atherton kom síðast til
Egyptalands 6. marz og var síðan
í förum milli Kaíró og Jerúsalems.
Aðspurður kvaðst hann ekki hafa
meðferðis boð til Anwar Sadats
forseta um að koma til Washingt-
on.
I Jerúsalem hefur Moshe Dayan
utanríkisráðherra skýrt frá því að
hann ætli að fara til Washington
á þriðjudaginn til viðræðna við
Vance utanríkisráðherra í því
skyni að endurvekja friðartil-
raunirnar í Miðausturlöndum.
Hann kvað hugsanlegt að Banda-
ríkjamenn skýrðu frá einhverjum
tillögum og að Atherton kynni að
hafa meðferðis egypzkar tillögur
þegar hann kæmi til ísraels frá
Egyptalandi.
Aðspurður um hvort hann
mundi hafa meðferðis nýjar hug-
myndir til Washington sagði
Dayan: „Ekkert sem er í grund-
vallaratriðum ólíkt (því sem hefur
áður komið fram), en við erum
Framhald á bls. 28
Eurovision í kvöld:
Bretland, Belgía
og Luxemburg
sigurstranglegust
London 21. apr. AP.
ÞRJU lög eru talin líklegust til að
fá verðlaun í söngvakeppni sjón-
varpsstöðva í Evrópu, EUROVIS-
ON, þ.e. þau sem send eru í
keppnina frá Belgíu, Bretlandi og
Luxembourg. Keppnin mun fara
fram í Palais des Congres í París
á morgun, laugardag, og verður
sjónvarpað beint til um 500
milljóna áhorfenda víðs vegar um
heim. Brezki hópurinn heitir
„Co-Co“ og flytur lag sem heitir
„The bad old days“. Luxembourg
sendir lagið „Parlez vous Franca-
is“ og flytja það tvær stúlkur sem
nefna sig Baccarra. Þriðja lagið,
sem sigurstranglegast er, er flutt
af höfundi, Belgíumanninum Jean
Vallee, og heitir það „L‘amour ca
fait chanter la vie“.
Að þessu sinni senda tuttugu
Evrópuþjóðir fulltrúa til söngva-
keppninnar.
Þetta gerðist
1975 — Fyrstu víetnömsku
flóttamennirnir koma til vestur-
strandar Bandaríkjanna og
ósigur Suður-Víetnama vofir
yfir.
1974 — Verkamannaflokkur
ísraels tilnefnir Yitzhak Rabin
eftirmann Goldu Meir forsætis-
ráðherra.
1972 — Geimfararnir í Apollo
16, John Young og Charles
Duke, ferðast níu kílómetra á
fjalli á tunglinu í tunglvagni
sínum.
1971 — Francois Duvalier,
forseti Haiti, deyr, 64, ára
gamall, og Jean-Claude
Duvalier, sonur hans, verður
forseti.
1945 —• Bandamenn taka
Bologna á Ítalíu.
1944 — Bandamenn undir
forystu MacArthurs, hershöfð-
ingja ganga á land i Hollandiu,
Nýju-Guineu.
1941 — Brottflutningur
brezkra hersveita frá Grikk-
landi hefst.
1915 — Þýzki herinn b&tir eit-
urgasi í fyrsta skipti á vestur-
vígstöðvunum.
1898 — Bandaríska herskipið
„Nashville" tekur spænskt kaup-
skip út af Key West, Florida, og
fyrsta skotinu í stríði Spánverja
og Bandaríkjamanna hleypt af.
1822 — Tyrkneskur floti
tekur eyna Chios og fremur
fjöldamorð á kristnum íbúum
eða selur þá í ánauö.
1821 — Gríski patríarkinn í
Konstantínópei veginn og
tyrknesk ógnarstjórn hefst í
kjölfar uppreisna í Morera og
fjöldamorða Grikkja á Tyrkjum.
1796 — Napoleon sigrar her
Piedmont við Mondovi.
1529 — Hagsmunir Spán-
verja og Portúgala á Kyrrahafi
skilgreindir í Saragossa-sátt-
málanum — Spánverjar afsala
sér tilkalli til Mólukkaeyja.
Afmæli dagsins: John
Cartaret, enskur stjórnmála-
leiðtogi (1690-1763) - Henry
Fielding, enskur rithöfundur
(1707—1754) — Immanuel Kant,
þýzkur heimspekingur
(1721-1804) - Madame de
Staél, franskur rithöfundur
(1766-1817) - Yehudi
Menhuin, bandarískur fiðluleik-
ari (1916—) — Kathleen
Ferrier, ensk söngkona
(1912-1953) - Eddie Albert,
bandarískur leikari (1908--).
Orð dagsins. Það er merkilegt
við lífið, að ef maður neitar að
sætta sig við annað en það
bezta, hlotnast manni það oft. —
W. Somerset Maughman, brezk-
ur rithöfundur (1874—1966).
Aðalhlutverkið að sjá um að „ís-
lenzka greinin” falli ekki niður
segir Hans G. Andersen í samtali við Morgunblaðið
Hér fer á eftir frétt frá Eyjólfi
Konráði Jónssyni alþingismanni
um gang mála á hafréttarráð-
stefnu Sameinuðu þjóðanna í
Genf, ásamt viðtali við Hans G.
Andersen aðalfulltrúa íslands á
ráðstefnunn8.
Eins og menn vita fór hér allt
hægt af stað. Tvennt tafði, staða
forsetans og skipulag starfa.
Niðurstaðan varð sú að forsetinn,
Amerasinghe, hélt áfram og sjö
samninganefndir voru skipulagð-
ar til að fjalla um þýðingarmestu
málin, sem enn hefur ekki náðst
samkomulag um. Fyrstu þrjár
nefndirnar fjalla um alþjóða
hafsbotnssvæðið, fjórða um að-
gang landluktra og landfræði-
lega afskiptra ríkja að efnahags-
lögsögu annarra ríkja, fimmta
um lausn deilumála um ákvarð-
anir strandríkis í efnahagslög-
sögunni, sjötta um ytri mörk
landgrunnsins og sjöunda um
afmörkun hafsvæða milli landa.
ísland á fast sæti í fjórðu og
Hans G. Andersen
fimmtu nefnd, en hefur áheyrnar-
fulltrúa í hinum fimm. Ákveðið
var á allsherjarfundi að miða að
því eftir því sem unnt væri að
samningaviðræðum nefnda yrði
lokið 25. apríl. Allsherjarþingið
mundi ræða skýrslur nefndanna
26. apríl til 5. maí, endurskoðun
heildaruppkasts skyldi fara fram
8. til 12. maí og loks, að allsherjar-
fundur fjallaði um hið endurskoð-
aða uppkast 15. til 19. maí.
Unnið hefur verið eftir þessari
áætlun en ekki er útlit fyrir að hún
standist. Ástæðurnar eru eins og
áður, hversu mörg ríki taka þátt
í ráðstefnunni, og enn er miðað að
því að ná samkomulagi án at-
kvæðagreiðslna.
Fundir eru ráðgerðir í stjórnar-
nefnd ráðstefnunnar næstkomandi
miðvikudag og allsherjarfundur
þann sama dag til að meta stöðuna
og skýrast málin þá betur.
Hans G. Andersen var að því
spurður hvað liði þeim málum
ráðstefnunnar, sem skipta Islend-
inga mestu:
— Þau eru eins og fyrr réttindi
landluktra og landfræðilega af-
skiptra ríkja innan efnahagslög-
sögunnar og ennfremur lausn
deilumála varðandi ákvarðanir
strandríkisins á því svæði. Varð-
andi fyrra atriðið er staðan sú, að
í heildaruppkastinu er greinin um
að réttindi landluktra og land-'
fræðilegra afskiptra taki ekki til
ríkja, þar sem þjóðin byggir
afkomu sína aðallega á fiskveið-
um. Er sú grein í daglegu tali
nefnd „íslenzka greinin" og er það
að sjálfsögðu aðalhlutverk ís-
lenzku sendinefndarinnar að
reyna að sjá um að hún falli ekki
niður.
— Er nokkur hætta á því?
— Innan strandríkjahópsins
hafa Norðmenn lagt áherzlu á, að
greininni yrði breytt þannig, að
hún taki ekki einungis til landa
heldur einnig landsvæða, sem
byggðu af-komu sína á fiskveiðum
og strandríkjahópurinn hefur tek-
ið vel í það mál. Hitt er ljóst, að
það orðalag yrði að falla niður, ef
samkomulag kynni að stranda á
því atriði, en vonandi tekst að
halda greininni að öðru leyti inni.
Um hitt atriðið, lausn deilu-
Framhald á bls. 27