Morgunblaðið - 22.04.1978, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 22.04.1978, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. APRÍL 1978 25 kattgreiðenda 1977? gjöld nema 3,0% og eignarskattar 1,4%. Af óbeinu sköttunum er sölugjald langmikilvægast og nemur 36% heildartekna ríkis- sjóðs eða 36,2 milljörðum króna. Almenn aðflutningsgjöld eru 16,8% heildarteknanna eða 16,9 milljarðar króna, rekstrarhagnað- ur A.T.V.R. 8,2% eða 8,2 milljarð- ar króna, launaskattur 5,9% eða 5,9 milljarðar króna, sérstakt vörugjald 5,9% eða 5,9 milljarðar króna, innflutningsgjald af bensíni, bifreiðum og bifhjólum ásamt gúmmígjaldi 5,0% eða 5,1 milljarður króna, og aðrir óbeinir skattar 6,2%. Starfsmannaskrá Starfsmannaskrá er nú gerð í fjórða sinn, sbr. lög nr. 97 1974, og er hún lögð fram miklu fyrr en áður. Stöðugildi skv. starfsmanna- skrá 1. janúar 1978 eru samtals 12.632.5, þar af voru æviráðnir starfsmenn ríkisins sem svarar til 5289,9 stöðugilda, ráðningar með a.m.k. 3 mánaða uppsagnarfresti 2789,6 stöðugilda og lausráðnir sem svarar til 4552,97 stöðugilda. Samkvæmt starfsmannaskrá 1. janúar 1977 voru heildarstöðugildi 12.298.6. Aukning stöðugilda sam- kvæmt skránni 1978 varð því 333,9 stöðugildi. Mesta fjölgun starfsmanna er hjá menntamálaráðuneytinu eða 136,7 stöðugildi, sem nær allt er kennarafjölgun, og er kennara- fjöldinn í samræmi við fjölda nemenda og bekkjardeilda á hverj- um tíma. Hjá dómsmálaráðuneyt- inu hefur fjölgað um 37,1 stöðu- gildi og munar þar mest um Rannsóknarlögreglu ríkisins og aðrar nýskipanir í dómsmálum. Hjá Landhelgisgæslu hefur aftur á móti fækkað um 13,5 stöðugildi. Hjá heilbrigðis- og trygginga- málaráðuneytinu hefur fjölgað um 91,5 stöðugildi, sem nær allt er hjá ríkisspítölum og stofnunum þeim tengdúm. Þá hefur fjölgað um 33,2 stöðugiidi hjá Póst- og símamála- stofnun en þess ber að geta, að 48 stöður eru til meðferðar hjá Póst- og símanefnd og mun því breyt- inga að vænta í starfsmannamál- um stofnunarinnar. Óheimilar stöður eru 1. janúar 1978 426,4 stöðugildi, en ónotaðar stöður 391,7 stöðugildi og er því um að ræða óheimilaðar stöður umfram ónotaðar 34,7 stöðugildi. Samkvæmt starfsmannaskrá 1. janúar 1978 er meir en helmingur af óheimilum stöðum á ríkisspítöl- unum eða 254,4 af 426,4 stöðugild- um eða 60%. Hjá Póst- og símamálastofnun er fjöldi óheim- illa staða 68,3 þannig að í heild er að finna yfir 34 af öllum óheimil- uðum stöðum hjá þessum tveim stofnunum. Fjármálaráðherra hefur óskað eftir því við fjárveitinganefnd Alþingis, að nefndin í samráði við fjármálaráðuneytið og ríkisendur- skoðun taki óheimilar stöður hjá ríkisstofnunum og ríkisfyrirtækj- um til sérstakrar skoðunar og ráðstafanir verði gerðar, þannig að stofnanir starfi innan heimilda. Hlutfallsleg skipting ríkisútgjalda eftir gjalda- tegundum 1976 40,1 %< 59 .9 %\ 20,2 7,2 2,9 3,3 6,5 Ýmis rekstrargjöld Viöhald Vextir Gjaldfæröur stofnkostnaöur 46,6 % < Tilfærslur 53,4 % 1977 25,3 7,8 2,8 3,2 7,5 r Artúnshöfði: Malbikað f yr- ir 104 millj. kr. á þessu ári Sý innkeyrsla 1 hverfið frá Elliðaám Á þessu ári er áætlað að malbika götur í Ártúnshöfða- hverfinu fyrir 104 millj. kr. og samkvæmt áætlun er gert ráð fyrir að ljúka malbikunarfram- kvæmdum í hverfinu að mestu á næsta ári. Kom þetta fram á fundi sem Birgir ísleifur Gunnarsson borgarstjóri hélt s. l. þriðjudag með Ártúns- höfðasamtökunum. Að sögn Kristmundar Sörlasonar, for- manns Ártúnshöfðasamtak- anna, ríkti mikil ánægja með þennan fund og ljóst væri að margt myndi batna mikið í hverfinu á næstunni, eins og t. d. minni hætta á umferðar- slysum við Vesturlandsveg, þar sem breyta ætti inn- og út- keyrslu í hverfið. Birgir Isleifur Gunnarsson gerði á fundinum grein fyrir fyrirhuguðum framkvæmdum í Ártúnshöfðahverfinu ásamt Þórði Þorbjarnarsyni borgar- verkfræðingi. I samtali við Morgunblaðið í gær sagði borg- arstjóri: „Á þessum fundi gerð- um við grein fyrir framkvæmd- um í hverfinu á þessu ári og gert er ráð fyrir að malbika í hverfinu fyrir 104 millj. kr. og malbikunarframkvæmdum verður skipt á tvö ár. Það liggur fyrir ákveðin áætl- un um í hvaða röð göturnar verða malbikaðar, en við buðum, að ef meðlimir Ártúnshöfða- samtakanna hefðu sérstakan áhuga á að hafa aðra fram- kvæmdaröð þá væri borgin tilbúin að ræða það,“ sagði Birgir Isleifur. kvæmdinni verði ekki lokið þá,“ sagði borgarstjóri. Þá gat hann þess að fyrirhugað væri að koma upp gatnaljósum á mótum Höfðabakka og Vesturlands- vegar, en ekki væri enn búið að tímasetja uppsetningu þeirra. „Það verður að segjast, að áætlun borgaryfirvalda um framkvæmdir í Ártúnshöfða- hverfinu, eins og borgarstjóri og borgarverkfræðingur lögðu hana fram á fundinum með okkur, er mjög jákvæð. Að vísu lagði borgarstjóri þessa áætlun fram með þeim fyrir vara, að nægilegt fé yrði til fram- kvæmda, og við í Ártúnshöfða- samtökunum erum mjög ánægðir með heimsókn borgar- stjóra og borgarverkfræðings," sagði Kristmundur Sörlason, formaður Ártúnshöfðasamtak- anna, þegar rætt var við hann. Kristmundur sagði, að það hefði komið fram í ræðu borgar- stjóra, að ástæðan fyrir því að malbikunarframkvæmdir í Ár- túnshöfða væru seinna á ferðinni en í öðrum hverfum borgarinnar væri, að lægri gatnagerðargjöld hefðu verið viðhöfð við lóðaúthlutun í hverf- inu en annars staðar, en þetta atriði hefði verið gagnrýnt. „Við höfum fagnað því mjög, að Strætisvagnar Reykjavíkur skuli nú vera farnir að ganga inn í þetta hverfi, og eins að Breiðhöfða verður lokað við Vesturlandsveg, en þar hafa oft orðið alvarleg slys. Framvegis verður ekið inn í hverfið frá Elliðaám og verður það til Frá fundi borgarstjóra með aðiljum Ártúnshöfðasamtakanna. Þá sagði borgarstjóri, að hann og Þórður Þorbjarnarson hefðu skýrt frá hvaða götur í hverfinu ætti nú að lýsa og hvaða aðstoð borgin gæti boðið upp á við frágang lóða, en menn ættu kost á að fá vissa fyrirgreiðslu úr svokölluðum lóðasjóði borgar- innar. Kvað hann # alla fundarmenn hafa sýnt áhuga á að reyna að gera hverfið sem snyrtilegast úr garði. Það er áætlað að útkeyrslan úr Breiðhöfða út á Vesturlands- veg hverfi, enda er hún til bráðabirgða og meginútkeyrsla úr þessum hluta hverfisins verður eftir braut sem verður í framhaldi af Bíldshöfða og niður Ártúnsbrekkuna á svip- uðum slóðum og gamli vegurinn lá áður. Verður þá hægt að nota slaufurnar við Elliðaárbrýrnar til að komast til og frá hverfinu. „Á ég von á að þessi leið verði orðin fær í haust, þótt fram- mikilla bóta,“ sagði Kristmund- ur. Þá sagði Kristmundur að borgarstjóri og borgarverk- fræðingur hefðu upplýst á fund- inum, að umferðarljós ættu að koma upp á mótum Höfðabakka og Vesturlandsvegar og í fram- tíðinni ætti að koma brú yfir veginn þarna. „Ef þessi áætlun stenzt, þá erum við í Ártúnshöfðasamtök- unum mjög ánægðir með okkar viðskipti við borgaryfirvöld, og viðskipti samtakanna við borg- ina hafa í alla staði verið mjög ánægjuleg þann stutta tíma, sem þau hafa starfað," sagði Kristmundur. Að sögn Kristmundar skýrði borgarstjóri frá því að í sumar væri fyrirhugað að malbika Höfðabakka niður að Dverg- höfða, allan Hyrjarhöfðann, Funahöfða, Breiðhöfða niður að Stórhöfða og Bíldshöfða niður undir Þórshöfða.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.