Morgunblaðið - 22.04.1978, Page 26

Morgunblaðið - 22.04.1978, Page 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. APRÍL 1978 Hvatar-fund- ur á mánudag HVÖT, félag sjálfstæðis- kvenna, efnir til fundar í Valhöll við Háaleitis- braut n.k. mánu- dag. Frummælandi á fundinum verð- ur Friðrik Sophusson og ræðir hann um efnið: Hvað hefur sjálf- stæðisstefnan fram yfir aðrar stjórnmálastefnur? Síðan verða umræður. Fundurinn hefst kl. 8,30 e.h. og er allt sjálfstæðisfólk velkomið. Kínversk kvikmynd sýnd KÍNVERSK-íslenzka menningar- félagið og Fjalakötturinn, kvik- myndaklúbbur framhaldsskól- anna, efna til sýningar á kín- verskri kvikmynd, Haihsia, í Tjarnarbæ klukkan 15 í dag. Myndin fjallar um líf og starf fiskimanna á smáeyju við strönd Kínaveldis. Efnisúrdráttur verður afhentur við innganginn. Norrænir bakarar þinga hér- lendis SÍÐDEGIS á sunnudag eru væntanlegir til landsins norrænir bakarar og kökugerðarmenn ásamt mökum sínum, alls um 125 manns. en fyrirhugað er að halda ráðstefnu norrænna bakarameist- ara á Hótel Sögu, þar sem gestirnir munu búa. Samkvæmt upplýsingum Gísla Ólafssonar, bakarameistara, eru Danir fjölmennastir í þessum hópi. Fundir verða haldnir á Hótel Sögu, en að auki eru ráðgerðar ferðir fyrir ráðstefnugesti til Þingvalla, austur í sveitir og til Vestmannaeyja. Hópurinn mun síðan halda utan aftur á föstu- dagsmorgun. Fríkirkjan: Höklarnir ófundnir HÖKLARNIR þrír, sem teknir voru úr Fríkirkjunni í Reykjavík hinn 20. mars s.l. hafa enn ekki komið í leitirnar. Höklar þessir hafa ómetanlegt gildi fyrir kirkj- una. Einn þeirra hefur verið notaður af prestum safnaðarins frá upphafi, annan gaf Hjalti Jónsson, skipstjóri og útgerðar- maður, Fríkirkjunni árið 1949. Ekki verður séð að unnt sé að koma höklunum í verð, og heitir safnaðarstjórnin á fólk að hafa augun opin og láta rannsóknarlög-' regluna vita ef það gæti gefið einhverjar upplýsingar um hvar þeir séu niður komnir. — S.Í.F. Framhald af bls. 48 þeirra stærðar- og gæðafiokka, Sem vanalega væru seldir til Grikklands, Italíu og Spánar. Til Ítalíu hefðu verið seld 1800 tonn áður og þar að auki hefðu nýlega verið gerðir sarnningar um sölu á 1500 2000 tonnum, auk þess sem Italir keyptu meíra í haust að ölium líkindum, ef um verð semdist. „Við töldum , hins vegar ekki rétí að sernja um meira magn á þessu ;tigi," sagði Friðrik. Fyrr á árinu var gengið frá samningum við Spánvterja um sölu á 6000—7000 tonnum og nú ný- verið á 700 tonnum til Grikklands. Það voru þeir Tómas Þorvaldsson, stjórnarformaður S.Í.F., og fram- kvæmdastjórarnir Friðrik Pálsson og Helgi Þórarinsson sem gengu frá þessum samningum Að sögn Friðriks Pálssonar eru samningarnir við framangreind þrjú lönd hliðstæðir þeim, sem verið hafa undanfarin ár og það sama væri að segja um afskipun- arskilmála. „Samið var um talsvert aukið hlutfall af svokölluðum tvö fiski. Ennfremur féjfckst nokkru hærra verð en áður, en þar sem enn vantar upp á að söluverð nái viðmiðunarverði úr Verðjöfnunar- sjóði, þá kemur lítill hluti verð- hækkunarinnar til framleiðenda, en minnkar hins vegar greiðslur úr Verðjöfnunarsjóði," sagði Frið- rik. Þegar Friðrik var inntur nánar eftir viðræðum við Portúgala sagði hann: „Það hafa ekki verið viðræð- ur við Portúgali nýlega, þar sem fyrir dyrum stendur koma portú- galskrar viðskiptanefndar til ís- lands eftir helgi. En ég vona að framhald geti orðið á saltfiskvið- ræðunum mjög fljótlega. Það er kannski rétt að ítreka það, að oft hefur dregist fram á vordaga að ganga frá sölum á vertíðarfiski til hinna ýmsu við- skiptalanda, en hér er um sérstak- ar ástæður að ræða, eins og alþjóð er kunnugt, þ.e. hinn mikla halla á viðskiptum Portúgals við ís- land.“ — Undanþágur Framhald af bls. 48 milli þessara tveggja húsa. Þá er undanþágubeiðni komin frá Sölusambandi íslenzkra fisk- framleiðenda um afgreiðslu salt- fisks til Spánar — eins og getið er í annarri frétt í Morgunblaðinu í dag. Guðmundur sagði að þessari beiðni hefði enn ekki verið svarað, en hann benti á, að allmargir saltfiskverkendur hefðu þegar samið við aðildarfélög VMSÍ og taldi hann að SÍF gæti tekið fisk frá þessum aðilum til þess að flytja á Spánarmarkað. Kvað hann allt annað gilda í saltfiskverkun en frystiiðnaðinum, þar sem stöðvun væri víða yfirvofandi. — íþróttir Framhald af bls. 47. Jóhannsson léku ekki með Fram að þessu sinni. Haukarnir léku þennan leik rétt sæmilega, sóttu sig er á leið leikinn og sýndu ágæta baráttu í lokin. Besti maður Hauka var Þorlákur Kjartansson markvörð- ur. Mörk Franti Arnar Guðlaugsson 7, Atli Hilmarsson 4, Sigurbergur Sigsteinsson 4, Jens Jensson 2, Pétur Jóhannsson 1, Magnús Sigurðsson 1. Mörk Ilaukai Elías Jónasson 4, Sigurður Aðalsteinsson 4, Stefán Jónsson 3, Sigurgeir Marteinsson 3, Árni Hermannsson 3, Þórir Gíslason 2, Ólafur Jóhannsson 2, Svavar Geirsson 2. -þr. — Viðskipta- nefnd Framhald af bls. 48 neytisstjóri í viðskiptaráðuneytinu sagði í samtali við'Morgunblaðið í gær, að viðskiptanefndn sem hingað kæmi væri undir forsæti Fernado Reino sendiherra Portúgals á íslandi, en hann hefur aðsetur í Ósló. Sagði Þórhallur að sendiherrann kæmi á mánudag, og nokkrir fylgdarmenn, en aðrir nefndarmenn kæmu á þriðjudag. Þórhallur kvað fundina með Portúgölum hefjast á Hótel Holti á miðvikudag og ættu að standa fram á fimmtudag. Sagði hann, að eins og margoft hefði komið fram í fjölmiðlum hefðu íslenzk stjórn- völd lagt sig fram við að auka viðskipti við Portúgali og reynt að auka þau eftir mætti, en ekki væri hægt að skipa mönnum að gera neitt þar sem hér væru frjáls viðskipti. Portúgalir reyndu nú að fá íslendinga til meiri viðskipta á sviði virkjana, skipasmíða og skipaviðgerða, en þetta væru atriði, sem skiptu milljónum króna í hvert sinn. Því væri ekki að neita að íslendingar hefðu aukið innkaup sín frá Portúgal að undanförnu og væri skemmst að minnast olíu- og bensínsamnings, sem ríkisstjórnin hefði gert við Portúgali. — Sækir um undanþágu Framhald af bls. 48 á 15—20 höfnum hér heima og eftir er að lesta skipið. Því er nauðsynlegt að fá svar við undan- þágubeiðninni, sem fyrst," sagði Friðrik. Þá sagði Friðrik að það gerðist æ erfiðara að fá innflutningsleyfi fyrir saltfisk til Spánar og teldi hann það alvarlegt mál, ef ekki yrði hægt að skipa út saltfisknum á næstunni, nú þegar leyfið væri fyrir hendi. Þar við bættist að saltfiskur væri mjög viðkvæmur í meðförum og þyldi ekki langa geymslu. „Við höfum mikla trú á, að Verkamannasambandið veiti okkur undanþágu, þar sem það hefur komið fram, að það vill ekki valda landinu óþarfa tjóni, enda eru framleiðendur sem þarna eiga hlut að máli 250 og dreifðir um allt land,“ sagði Friðrik Pálsson. — 93 fóru Framhald af bls. 3. byltingarsinna, maóista, sem með ofríki hefðu' mótmælt einhverju, sem þeir hefðu kallað „veizluhöld". Hins vegar vildu starfsmenn við Sigöldu viðhalda góðum og göml- um íslenzkum sið, sem kallaður hefði verið gestrisni. Kvað hann alþingismenn ávallt velkomna á virkjunarsvæðið og ef ekki ríkis- valdið vildi veita þeim ferðalöng- um langt að komnum mat og góðgerðir, þá myndu starfsmenn- irnir tilbúnir til þess hvenær sem væri. — Kynna sér Framhald af bls. 3. íslendingar gætu orðið að liði á eyjunum. Hafa þeir þremenningar m.a. rætt tillögur Baldvins á meðan þeir hafa dvalizt hér. Gestirnir hafa skoðað frystihús, Hafrannóknarstofnunina, haf- rannsóknarskip, skipasmíðastöðv- ar og í fyrradag voru þeir í Vestmannaeyjum og í gær skoðuðu þeir Stýrimannaskólann, Hamp- iðjuna og fleiri fyrirtæki. Baldvin kvað þá alls staðar hafa mætt mikum velvilja, nema í Vinnslu- stöðinni í Eyjum, þar sem einn verkstjóranna nánast varpaði þeim á dyr. Stungu móttökurnar í Vinnslustöðinni mjög í stúf við móttökur í Fiskiðjunni, þar sem gestunum var tekið með kostum og kynjum og þeim boðið í mat. Þá tóku forystumenn bæjaryfirvalda einnig mjög vel á móti gestunum og tók bæjarstjórinn sér frí frá daglegu amstri til þess að annast gestina. — Stjórnarskrár- nefnd Framhald af bls. 48 slegið -á frest. í upphafi þings hafi ríkisstjórnin lýst yfir þeim vilja sínum að efna til viðræðna þingflokka um ofangreind mál. Einhverjar viðræður hafi farið fram, en engan árangur borið, m.a. vegna þess að stjórnar- skrárnefnd hefur engum tillög- um .skilað og virðist að mestu óstarfhæf. Af þessum ástæðum telji allsherjarnefnd s.þ. rétt að núverandi stjórnarskrárnefnd verði leyst frá störfum og skipuð verði ný nefnd með ákveðnara verkSvið, eins og tekið er fram í tillögugreininni. Allsherjarnefnd, sem stendur Öll að þessari tillögu, er þann veg skipuð: Ellert B. Schram (S), formaður, Jón Skaftason (F), varaformaður, Jón Helgason (F), fundarskrifari, Ólafur G. Einarsson (S), Jónas Árnason (Abl), Magnús T. Ólafsson (SFV). í stjórnarskránefnd eru: Hannibal Valdimarsson, for- maður, Emil Jónsson, Ragnar Arnalds, Gunnar Thoroddsen, Ingólfur Jónsson, Tómas Árna- son og Sigurður Gissurarson. — Viðræður Framhald af bls. 48 væri það í lagi frá hendi vinnuveit- ena. Guðmundur J. Guðmundsson kvað það hafa vakið furðu fulltrúa Verkamannasambandsins að af- staða Vinnumálasambands sam- vinnufélaganna hafi verið efnis- lega hin sama og Vinnuveitenda- sambands ísllands, þar sem vara- formaður Vinnumálasambandsins, Ólafur Sverrisson, sem einnig væri einn af stjórnarmönnum SÍS, hafi sem hreppsnefndarmaður í Borg- arnesi þá rétt um sama leyti verið að ganga frá samningi hrepps- nefndarinnar við Verkalýðsfélag Borgarness um að bæta vísitölu- skerðinguna frá 1. marz og meira til. Kvað Guðmundur fátt hafa orðið um svör hjá þeim fulltrúum Vinnumálasambandsins, sem sátu viðræðufundinn í gær. — Kambódíu- réttarhöld Framhald af bls. 1. bindinu af andlitinu og hlaupa út í skóginn. Þeir skutu á eftir mér með hríðskotabyssum en ég féll sem betur fer í ána og þeir misstu af mér. Eftir klukkutíma hættu þeir að elta mig og héldu áfram'verki sínu, hafa líklega1 talið að ég kæmist ekki langt. En ég var vanur að skríða langar leiðir þegar ég var í hernum. Næsta morgun hafði ég skreiðzt að járnbrautarteinum í Tram Kna og faldi mig um nóttina og tókst að flýja lengra. Ég heyrði hræðileg óp, áður en ég komst í burtu. Khmerarn- ir höfðu skipt sér í þrjá 10—12 manna hópa. Sá fyrsti leiddi fram fólkið, annar batt fyrir augun á því og sá þriðji drap það. Ég hef ekkert frétt af konu og börnum, síðan ég heyrði ópin frá fólkinu, er ég var að skríða í burtu." Miklar umræður urðu um frásögn Kongs Samrachs og spurningar voru bornar fram. Hann lýsti ástandinu í þorpinu þar sem hann var og var þar enga læknisþjónustu að fá og lítinn mat. Allt fólkið þjáðist af taugaveiki eða beri-beri. Síðasta ársfjórðunginn fór vagn með uxa spenntum fyrir um götur þorpsins á hverjum morgni og hirti iík þeirra sem höfðu dáið, þar eð fólkið var orðið of veikburða til að geta séð um að grafa ástvini sína. Sjúklingar voru teknir inn i sjúkrastofu og fjölskyldum var ekki leyft að heimsækja það. Fjölskyldur voru leystar upp og börn og mæður og feður látin vinna á mismunandi stöðum. í árslok 1976 dóu um tíu fjöl- skyldur, hver þeirra var 4—10 manns, í þorpinu. Þar voru íbúar 800 árið 1975 en ekki nema 500 1977, þar af aðeins fjórðung- ur karlmenn. Tala látinna var skelfileg og fæðingar nær engar. í ræðu rithöfundarins Anthony Pauls kom fram að uppreisnartilraun sem verið var að undirbúa 1975 til 1976 fór út um þúfur. Samkvæmt vitnum mun upphafið hafa verið að Phea herforingi hafði fengið nóg af grimmdarskap félaga í 116. herdeild kommúnista. Enn einn flóttamaður sagði frá hrotta- skap eins Rauðu khmeranna er hann drap mann með því að binda hendur fyrir aftan bak, slá á hálsinn á honum með haka, rista upp kviðinn og taka lifrina og láta grilla hana handa sér í hermannaeldhúsinu. Phea byrjaði þá að tala við félaga sína um að þeir yrðu að bjarga byltingunni fráAnka Leou eða miðstjórninni í Phnom Penh. Rakti Anthony Paul hvernig undirbúningurinn var um allt land. Var haft samband við hópa um allt land en á miðju ári 1976 virðist stjórnin hafa komist að samsærinu og byrjaði hreinsanir, sem hafa staðið yfir allt fram á þennan dag. Voru yfirmenn þorpa fjarlægðir og nýir menn komu í staðinn og uppreisnarmenn sendu boð um að nú yrði hver að bjarga sér. Hafa hreinsanirnar innan Rauðu khmeranna verið geysi- mikiar. Pot Pol forsætisráð- herra hefur líka gefið þetta í skyn í ræðu í útvarpinu í Phnom Penh þar sem hann talar um óvinina innan raða Rauðu khmeranna. Um mitt ár 1977 virtist enginn endir á hreinsun- um innan Rauðu khmeranna. Allir eru drepnir því sl. þrjú ár síðan Rauðu khmerarnir komu til valda hafa engin fangelsi verið í landinu og engir dóm- stólar. „Allir grunaðir eða þeir sem óhlýðnast eru teknir og drepnir," sagði rithöfundurinn. — Spenna Framhald af bls. 1. neska konan Irena McClellan sem á fimmtudag hlekkjaði sig við girðingu við sendiráð Bandaríkj- anna í Moskvu til að vekja athygii á málstað sínum, en henni hefur í fjögur ár verið neitað um leyfi til að flytjast til eiginmanns síns sem er háskólaprófessor í Virginíu í Bandaríkjunum. Vance mótmælti í dag opinber- lega við stjórnina í Kreml að konunni skyldi ekki leyft að flytjast til eiginmanns síns. Enn- fremur sagði Vance það vera brot á Helsinki-sáttmálanum að sovézka sjónvarpið skyldi neita að senda bandaríska fréttamynd af handtöku Irenu McClellan við sendiráðið og að Tass skyldi neita að símsenda myndir af atburðun- um. Sovétmenn sögðu í dag, að aðgerðir McClellans væru sviðsett ögrun bandarískra fréttamanna við stjórn Sovétríkjanna og tilraun til að hindra afvopnunarviðræð- urnar. Bandarískir embættismenn tjáðu Reuter, að það væri ætlun Vance að skýra Andrei Gromyko utanríkisráðherra Sovétríkjanna frá því, að frumorsök aðgerða McClellans og fjaðrafoksins í kjölfar þeirra lægi í neitun sovézkra ráðamanna við beiðni konunnar um að fá að fara úr landi. Vance og Gromyko hittust í þrjár klukkustundir í morgun og einnig ætluðu þeir að ræðast við í þrjár klukkustundir síðdegis. Leonid Brezhnev forseti Sovétríkj- anna tekur þátt í viðræðunum á lokadegi þeirra. Að þessu sinni hefur Vance brugðið á það ráð að kalla ekki til daglegs blaðamannafundar, eins og hann gerði þegar hann var síðast í Moskvu vegna SALT-við- ræðna og því hafa takmarkaðar upplýsingar um gang viðræðna borizt út. Bandarískir embættis- menn sem taka þátt í viðræðunum hafa þó látið svo um mælt að gott andrúmsloft sé á fundunum. Þeir segja þó að hvorugur aðili reikni með meiri háttar árangri af. viðræðunum að þessu sinni. Haft er meira að segja eftir sumum þeirra að lágmarksárangur sé í rauninni mikill árangur þar sem viðræðurnar snúist nú einkum um erfið og viðkvæm viðfangsefni á sviði afvopnunar. Haft er eftir Vance að það sé hans skoðun að þegar hafi verið komizt að sam- komulagi um 90% væntanlegs SALT-samkomulags. Meðal þeirra mála sem upp eru talin koma og sögð eru liður í þeim ágreiningi sem enn ríkir á milli. stórveldanna á sviði afvopnunar- mála, eru mannréttindamál, Mið-Austurlönd og íhlutun Sovét- manna í Afríku. Þar á meðal mun Vance bera upp mál frá McClell- ans og neitun Tass og sovézka sjónvarpsins um að senda frétta- myndir til Bandaríkjanna, að sögn bandarískra embættismanna í Moskvu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.