Morgunblaðið - 22.04.1978, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. APRÍL 1978
37
— Minning — Snorri
Framhald af bls. 39
ar, yrði hann af einhverjum
orsökum frá að hverfa, en hann
var bæði eini kennarinn og þá um
leið skólastjóri. Aldursflokkarnir
voru þá fjórir.
Trúi menn því, að mönnum séu
ásköpuð örlög og vaxandi starfs-
svið, sannaðist það á Snorra.
Skólabjalla mikil og þung hékk
uppi undir lofti í horni skólagangs.
Taug úr hc-nni hékk niður, sem í
var gripið, þegar hringt var inn.
Eitt sinn, þegar Snorri greip til
taugarinnar, féll bjallan niður,
straukst við höfuð hans, mölbraut
gólfið og fór niður úr því. Snorri
leit svo á, að þetta væri vísbending
um, að hann ætti eftir að inna
mikilvæg störf af höndum. Sú varð
og raunin á.
Snorri var trúmaður mikill.
Hvern skóladag hóf hann með
morgunbæn, sálmur var sunginn,
og nemendur skiptust á að biðja
faðirvorið. A sama hátt lauk hann
deginum. Það fór ekki hjá því að
slíkt hefði áhrif. Fjöldi nemenda
sóttu’ til hans ráð og Oáðu. Það
gerðu einnig heimili, og var náin
samvinna milli skóla og heimila.
í einkalífi sínu var Snorri
hamingjumaður. Samhent og
skilningsrík fyrri eiginkona hans,
Guðrún Jóhannesdóttir, og glæsi-
legur ærslafullur barnahópur
skópu honum hina dýpstu lífsham-
ingju. Seinni kona hans, Bjarnveig
Bjarnadóttir, hefir síðasta aldar-
fjórðung æfinnar brugðið birtu
yfir líf hans méð fórnfúsri ástúð
sinni.
Öllum ástvinum hans er nú
vottuð samúð, og með þeim eiga
allir vinir þeirra sameiginlega
dýran minningasjóð.
Sveinbjörn Finnsson.
ALLMÖRG ár eru liðin frá því að
nafn Snorra Sigfússonar var
letrað á spjöld sögu Blaðamanna-
félags íslands.
Snorri hafði áhuga á starfi
blaðamanna. Hann kynntist því
persónulega er sonur hans, Hauk-
ur heitinn, gerðizt ungur blaða-
maður og ritstjóri norður á
Akureyri. Þetta samband hans við
blaðamannastarfið endurnýjaðist
síðar á æviskeiði Snorra, er
sonarsonur hans Haukur, sonur
Hauks ritstjóra, fetaði í fótspor
föður síns og varð blaðamaður.
Við sviplegt fráfall Hauks sonar
síns ákvað Snorri að stofna sjóð.
Tengja minninguna og nafn Hauks
bættri menntun blaðamanna.
Stofnaði Snorri sérstakan sjóð í
þessu skyni: Minningarsjóð Hauks
Snorrasonar, en það nafn ber
sjóður þessi. Hefur hann það
markmið að veita starfandi blaða-
mönnum fjárhagslegan stuðning
til að auka og efla starfsmenntun
þeirra.
Þennan sjóð bar Snorri ætíð
fyrir brjósti og sýndi það í verki,
svo um munaði. Er sjóðurinn í
vörzlu Blaðamannafélagsins.
Nokkra fundi átti ég, sem
stjórnarmaður þessa sjóðs, og
starfsbræður mínir, með Snorra á
heimili hans og frú Bjarnveigar,
vestur á Stýrimannastíg. Á þenn-
an hátt kynntist ég Snorra. Á
þessum fundum bar ýmislegt
fleira á góma. Áhugasvið þessa
aldurhnigna eldhuga var ótrúlega
víðfemt. Munum við, sem þannig
kynntumst Snorra, minnast þess-
ara funda. Kynni við slíka menn
eru manni eftirminnileg.
Nú við ferðalok Snorra Sigfús-
sonar, færa blaðamenn honum
einlægar þakkir. Aðstandendum
hans senda þeir samúðarkveðjur.
Sv.Þ.
— Söluskatts-
rannsókn
Framhald af bls. 2
viðskiptum ætti að fara fram.
Hvort t.d. það væri vafamál, hvort
greiða ætti allan söluskattinn af
viðskiptum, sem færu fram með
afborgunarskilmálum, eða um leið
og greitt yrði af hverri upphæð.
Garðar kvað ekki unnt að mynda
þar neitt ágreiningsefni, þar sem
reglugerð kvæði svo á um að
söluskatti skyldi skila um leið og
viðskiptin væru gerð og tæki hún
ekki tillit til afborgunarskilmála í
því efni. Hins vegar sagði Garðar
að þegar reglugerðin hafi verið
gefnin út, hefðu raunar aðrar
aðstæður verið, bæði hefði sölu-
skattur ekki verið eins hátt
hlutfall af söluverði vörunnar
(hann er nú 20%) og eins hefði
innheimtan ekki verið eins ör yfir
árið. Þá hefði söluskattur verið
innheimtur tvisvar á ári, en nú
væri hann innheimtur 12 sinnum
á ári.
Ef ætti að heimila, að söluskatt-
ur yrði fyrst greiddur af útborgun
í keyptan hlut og síðan af
afborgunum um leið og þær yrðu
greiddar, kvað hann slíkt kerfi
vera erfitt í framkvæmd, sérstak-
lega að því er varðar eftirlit með
því að söluskattur skilaði sér til
ríkissjóðs. Um efni þeirra mála,
sem nú væru í rannsókn, kvað
hann brot á. reglugerð að því er
varðar þessi afborgunaratriði ekki
vera alvarlegustu brotin.
Læknaráðstefna
um blódþrýsting
MILLI 50 og 60 heimilislæknar
sitja nú ráðstefnu í Reykjavík þar
sem fjallað er um hvernig heimilis-
læknar eigi að bregðast við og
meðhöndla of háan bíóðþrýsting.
Rætt er ma. um hvernig læknar
hafa brugðist við þessu vandamáli
fram að þessu og hvernig þeir eigi að
gera það í framtíðinni. Ráðstefnan
fer fram á vegum lyfjadeildar
fyrirtækisins Imperial Chemical
Industries og hófst hún í gær og
stendur til sunnudags.
Ráðstefnuna sitja heimilislæknar
ffrá Noregi, Hollandi, Belgíu, Bret-
landi og íslandi og eru fluttir
fyrirlestrar og síðan starfað í
umræðuhópum að loknum hverjum
fyrirlestri.
— Drepnir
Framhald af bls. 22.
sem ferst í Ródesíustríðinu sem
hefur nú staðið á sjötta ár.
Richard lávarður var barnabarna-
barnabarn markgreifans af Salis-
bury Robert Cecil sem var for-
sætisráðherra Bretlands um þær
mundir sem fyrstu hvítu land-
nemarnir komu til Ródesíu árið
1890. Salisbury var skírð eftir
honum. ♦ ♦ ♦
— Berjast saman
Framhald af bls. 22.
því í tilkynningunni um samkomu-
lagið, þá reikna embættismenn
með að verkalýðssamtökin tak-
marki kaupkröfur sínar við 15%
hækkun til að koma til móts við
ákvarðanir stjórnvalda.
Sérfræðingar sögðu í dag að
þetta samkomulag fæli í sér
stefnubreytingu stjórnar Begins í
efnahagsmálum, en hún hefur
aðhyllst hugmyndir Freedmans
um frjálst markaðskerfi.
Borg Grímsnesi
Vignir
Rúnar
Hrólfur
Geimsteinn
Þaö veröur Geimsteinaflug aö Borg
laugardagskvöld.
Sætaferöir frá B.S.Í. og úr öllum áttum.
Jónatan.
BjB]E]E|E|E]E]E]gE]E]E]E]BlE]E]E]ElB]E][3l
i SMútl |
| Bingó kí. 3 í dag. |
51 Aðalvinningur vöruúttekt fyrir kr. 40.000.— 51
E]E]E]E]E]E]E]E]E]E]E]E]E]E]E]E]E]E]E]g|E]
SPONSK HATIÐ GRISAVEISLA
Hótel Sögu, sunnudagskvöld 23. apríl
Fegurðarsamkeppni Islands
Kjörin og krýnd ungfrú Reykjavík 1978.
6. Fegurðarsamkeppni íslands. Úrslitakjör og
krýning ungfrú Reykjavík 1978, fulltrúi
höfuöborgarinnar í keppninni um titilinn
Feguröardrottning íslands 1978.
7. BINGO. 3 glæsiiegar sólarlandaferðir eftir
frjálsu vali til 8 sólarlandastaða, sem Sunna
flýgur til. Aðalvinningur vetrarins ítalskur
sportbíll, Alfa Romeo
8. Dans. Hljómsveit Ragnars Bjarnasonar og
Þuríður sjá um fjörið í dansinum til kl. 1.00.
9. Enginn aögangseyrir, nema rúllugjaldið, en
pantið borð tímanlega hjá yfirþjóni í síma
20221 e. kl. 16, því nú verður troöfullt á Hótel
Sögu eins og ævinlega á Sunnukvöldum.
kl. 19, húsið opnaö f. matargesti, sem eiga
frátekin borð. Glæsileg spönsk veisla í
grísaveislustíl, svínakjöt og kjúklingar fyrir
aðeins kr. 2850-
Guöni Þórðarson, forstjóri Sunnu segir frá
hinum fjölbreyttu og spennandi ferðamögu-
leikum sem bjóöast á vegum Sunnu.
Ný litkvikmynd frá Spáni.
Hinir óviðjafnanlegu Halli og Laddi
skemmtiþætti, m.a. splunkunýtt efni.
Tískusýning, feguröardrotting íslands
og sýningarstúlkur frá Karon sýna
sumartískuna.
Óvæntur skemmtiþáttur í lok tískusýningar
innar.
flytja
1977
nýju
Missið ekki af ódýrri
og góðri skemmtun.
Velkomin á Sunnuhátí