Morgunblaðið - 06.05.1978, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 06.05.1978, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 6. MAI 1978 Öskað opinberrar rannsóknar á fésýslu tveggja lögfræðinga - vegna starfa fyrir verktaka- fyrirtækið Jón V. Jónssson s.f. JÓN V. Jónsson verktaki í Hafn- aríirði hefur óskað eftir því við Rannsóknarlögreglu rikisins að hafin verði opinber rannsókn á fésýslu og lögfræðistörfum tveggja lögfræðinga í Reykjavík fyrir hann og fyrirtæki hans á árunum 1975—‘77 en á þcssu tímabili var Jón m.a. aðalverk- taki á Grundartanga við Hval- fjörð. Umræddir tveir lögfræðingar sáu um fjármál og lögfræðiþjón- ustu fyrir fyrirtækið Jón V. JónSson sf á árunum 1975, 1976 og fyrri hluta árs 1977. Fóru fjárreiður fyrirtækisins að stórum hluta í gegnum skrifstofu lögfræðinganna en þeirra hlutverk var m.a. að sjá um innheimtur og greiða kröfur, samkvæmt upplýsingum núverandi lög- fræðings Jóns V. Jónssonar. Heldur Jón því fram að sögn lögfræðingsins að misbrestur hafi verið á því að lögfræðingarnir tveir hafi haldið nægilega gott bókhald yfir fjárreiðurnar og þeir hafi lagt fram um þær ófuilkomið uppgjör þannig að vanti að gera grein fyrirfjármunum. Byggir Jón þetta á endurskoðun, sem hann hefur látið framkvæma. Hefur Jón ákveðið að óska eftir opinberri rannsókn eins og að framan I greindi. I Guðmundur Löwe látinn GUÐMUNDUR Löwe, fram- kvæmdastjóri Öryrkjabandalags Islands, lézt af völdum hjarta- áfalls í Kaupmannahöfn að morgni 3. maí. Guðmundur var 59 ára, fæddur 13. febrúar 1919. I Kaupmanna- höfn sat hann alþjóðlegan fund um málefni öryrkja og dvaldi að honum loknum á heimili sonar síns, þar sem hann lézt. Sovézkur fjármagns- straumur til íslands? TVEIR þingmenn minntust á það á Alþingi í gær, er umræður fóru fram um frumvarp til laga um bann við fjárhagslegum stuðningi erlendra aðila við fslenzka stjórnmálaflokka, að stórfellt fjármagnsstreymi ætti sér stað frá Sovétríkjunum til Vesturlanda til aðila, scm Sovét- stjórnin teldi sér hagkvæmt að styrkja. Kom þetta fram i máli þingmannanna Guðmundar H. Garðarssonar og Sighvats Björg- vinssonar. Guðmundur H. Garðarsson kvað þessari starfsemi mjög vel lýst í bók, sem héti „Styrjöldin, sem aldrei varð“. Þar sé lýst aðferðum kommúnista við fjármagns- Framhald á bls. 26 'mmmm=- - Guðmundur var kennari að mennt, en vann alla starfsævi sína að málefnum öryrkja. Hann var einn af stofnendum SIBS og starfsmaður 1946—1961, einnig var hann einn af stofnendum Öryrkjabandalagsins og fram- kvæmdastjóri þess frá upphafi. Þá var hann formaður endurhæfing- arráðs. Guðmundur Löwe lætur eftir sig eiginkonu og tvö börn. Guðmundur Löwe Alþýðublaðið: Kemur aftur út í dag „ALÞÝÐUBLAÐið kemur út á morgun, en við vitum ekket hvað tekur við eftir helgina, þó einhvern veginn verði að leysa þetta fram að kosningum," sagði Arni Gunnarsson ritstjóri Alþýðublaðs- ins í samtali við Mbl. í gær, en á miðvikudag kom Alþýðublaðið ekki út, þar sem ekki var hægt að greiða starfsfólki laun. Arni sagði, að í gær hefði hverjum starfs- manni verið greiddar 50 þúsund krónur og hefðu þeir þá fallizt á að vinna svo að blaðið kæmi út, en á þriðjudaginn vann starfsfólkið aðeins dagvinnu sem ekki hrökk til að blaðið gæti komið út. Fimmti hverfa- fundur borgar- stjóra í dag FIMMTI hverfafundur Birgis ísleifs Gunnarssonar borgar- stjóra verður í dag og er hann fyrir íbúa í Austurbæ, Norður mýri. Illíða- og Iloltahverfi. Fundurinn verður í Domus Medica Egilsgötu 3 og hefst klukkan 14i30. Fundarstjóri verð- ur Barði Friðriksson, hrl., og fundarritarar Magnús Asgeirs- son viðskiptafræðinemi og Rúna Guðmundsdóttir verzlunarstjóri. Nú er lokið við að mála togara Greenpeacc-samtakanna, sem hefur hlotið nafnið Rainbow Warrior. Myndin var tekin af togaranum við bryggju í London. Ljósm. Ingibjörg Dagfinnsdóttir Sendinefnd frá Green- peace til Reykjavíkur FULLTRUAR Greenpeace-sam- takanna í Evrópu eru væntan- legir til íslands um helgina í því skyni að fá íslendinga til að hverfa frá hvaladrápi og þá sérstaklega á langreyði, að því er segir í frétt sem Morgun- blaðinu barst frá samtökunum í gær. „Fulltrúar þessara sam- taka hafa ekki enn haft neitt samband við okkur í sjávarút- vegsráðuneytinu," sagði Þórð- ur Ásgeirsson skrifstofustjóri þcss og varaformaður Alþjóða- hvalveiðiráðsins þegar Morg- * unhlaðið ræddi við hann f gær. Þórður kvaðst vera hissa á að fulltrúar þessara samtaka ætl- uðu sér að fá íslendinga til að hverfa frá veiðum á langreyði, þar sem sá hvalastofn væri talinn mjög stöðugur hér við land, enda hefðu íslendingar alltaf takmarkað sínar veiðar á þessari tegund sem öðrum sem þeir veiddu og þá samkvæmt ákvörðun Alþjóðahvalveiðiráðs- ins.“ Greenpeace-samtökin hafa nú fest kaup á 145 feta löngum togara, sem þau ætla með á mið hvalveiðibátanna í byrjun júní. Togarinn hefur hlotið nafnið „Rainbow Warrior", og segja Greenpeacemenn að þeir verði með litla gúmmíbáta um borð í togaranum, sem þeir ætla síðan að sigla á í skotlínu hvalveiði- bátanna. Samtökin hafa áður beitt sömu aðferð og þá til að koma í veg fyrir hvalveiðar Rússa, Japana og Ástrala. I fréttaskeyti Greenpeace seg- ir, að samtökin muni beina öllum sínum kröftum á næst- unni til að stöðva hvalveiðar Islendinga. Gne£nPERce GREEnPERCE Slf TME «M».ES 1 Þessu skilti hefur verið komið fyrir á stjórnborðssíðu togarans. Blýteinn í stað steinateins: „Hefur haft í för með sér byltingu á veið- um með þorskanet” segir Hafsteinn Sæmundsson skipstjóri á Hörpu GK NOKKUR fjöldi netabáta er nú farinn að nota blýtein á þorska- netin í stað steinateins, sem notaður hefur verið til þessa um áratugi. Ber öllum þeim, sem reynt hafa, saman um að blý- teinninn hafi reynst ákaflega vel, yfirleitt fá bátarnir miklu meiri afla í net með þessum teini. Skipstjóri, sem Morgunblaðið ræddi við í gær, sagði að þessi teinn hefði í för með sér byltingu á þorskanetaveiðum. Bæði væri aflinn meiri og svo væri öll vinna minni og léttari en áður. blýteini en með steinateini, þá notuðu menn nærri helmingi færri hringi á netin en áður, og í stað 13 steina væru nú notaðir 3. „Við getum nú lagt netin hraðar en áður, og höfum útbúið sérstaka rennu á síðu bátsins til þess, þá eru menh miklu fljótari að greiða úr netunum þegar dregið er en áður og eins slitna netin minna með þessum teini, og því tel ég blýteininn valda byltingu við þorskveiðar með net,“ sagði hann. Að sögn Hafsteins rífast menn hreinlega um þann netablýtein, sem fáanlegur er á marKaönum. Bæði er hann fluttur inn og eins er Hampiðjan farin að framleiða hann. Blýteinn á eitt þorskanet kostar 13—14 þús. krónur en hefðbundinn teinn á net með steinum kostar 3—4 þús. kr., þar við bætast síðan fleiri hringir og steinar en á blýteinanet og enn- fremur fleiri hankar, þannig að verðmunurinn er ekki eins mikill og virðist í fljótu bragði, sagði Hafsteinn, og bætti við að meiri afli í þessi net væri líka fljótur að borga stofnkostnað. „Ég byrjaði með 15—16 net með blýteini, þ.e.a.s ekki eina trossu, eftir áramótin. Reynslan af þessum teini varð svo góð, að eftir páska bætti honum á eins mörg net og ég hafði möguleika á,“ sagði Hafsteinn Sæmundsson skipstjóri á Hörpu GK frá Grindavík í samtali við Morgunblaðið í gær. „Að jafnaði fiskast miklu betur í net með blýteini en með venjuleg- um steinateini. Stundum fær maður litlu meira, en stundum meira en helmingi meiri afla í blýteinanetin. Annars finnst mér það fara eftir botnlaginu hve aflamunurinn er mikill og hvað sjálfan mig snertir finnst mér fiskast áberandi betur í net með blýteini á hörðum botni,“ sagði Hafsteinn ennfremur. Þá sagði Hafsteinn að þar sem netin væru mun léttari með Tveir piltar réðust að litlu bami svo að það hlaut heilahristing SA atburður varð á Bræðra- borgarstíg í Reykjavík um hálfsexleytið á miðvikudag að tveir piltar, 12 og 13 ára gamlir, gerðu aðsúg að jafn- öldru sinni, sem var þar á gangi með barnakerru. I kerrunni var systir stúlkunnar, tveggja ára gömul. Setti annar piltanna fótinn fyrir kerruna svo að hún steyptist fram og skall andlit barnsins á harða gangstéttina, en barnið var ólað. niður í kerruna. Þá slógu piltarnir ennfremur stúlku í andlitið, sem hugðist koma til hjálpar. Litla barn- ið hlaut heilabristing og talsverða áverka í andliti og hefur það síðan verið undir umsjá lækna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.