Morgunblaðið - 06.05.1978, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 06.05.1978, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. MAÍ 1978 11 Valjterður Dan og borsteinn Gunnarsson í hlutverkum sínum. Skjaldhamrar í sídasta sinn Kaffisala Kvenfé- lags Háteigssóknar upplýsingar um ástand auðlind- anna, nýtingarleiðir og þjóðhags- lega arðsemi mismunandi kosta. Hafa ber í huga að varðveisla landsvæða og auðlinda til síðari tíma eða ráðstöfun þeirra í þágu félags- og menningarlegra nota svo sem útilífs og vísindarann- sókna getúr verið farsæl og ekki síður haft gildi fyrir lífskjör landsmanna en efnahagsleg hag- nýting. Staðgóðar upplýsingar um á- stand auðlinda landsins og horfur um nýtingu þeirra geta gegnt fjölþættu hlutverki í tengslum við skipulags- og áætlanagerð og ákvarðanir í efnahags- og atvinnu- málum. Með sjíkar heildarupplýs- ingar að bakhjalli er unnt að móta betur þróun atvinnulifsins og afstýra hugsanlegum áföllum í tæka tíð. Slíkar upplýsingar má einnig hafa að leiðarljósi til að þróa framleiðsluaðferðir og bæta afrakstur af auðlindunum án þess að ofbjóða þeim. Náttúruverndarþing 1978 felur náttúruverndarráði að kanna við rétta aðila möguleikana á því að hafið verði starf í þessum anda og með því formi og skipulagi sem hagkvæmt kann að þykja. Fagna umhverfis- málafrumvarpi Náttúruverndarþing ályktaði um hið nýja umhverfismálafrum- varp sem lagt hefur verið fram á Alþingi og ræddi endurskoðun náttúruverndarlaga. Fagnaði þingið framkomnu frumvarpi ríkisstjórnarinnar um umhverfismál og gerði nokkrar athugasemdir í samræmi við umsögn náttúruverndarráðs um það, m.a. að stofnað verði sjálf- stætt umhverfismálaráðuneyti og lagðir til þess fleiri flokkar. Verði hins vegar að ráði að tengja umhverfismál og félagsmál eða aðra málaflokka saman í stjórn- sýslunni fyrst um sinn, komi heiti umhverfismála fram í. nafngift viðkomandi ráðuneytis. Fjallað var um einstakar grein- ar náttúruverndarlaga og endur- skoðun þeirra. Urðu einkum um- ræður um 11. gr. og ekki allir sammála, en samþykkt var að leggja til að á eftir 1. málsgrein skyldi koma: „Gangandi fólki er heimil för um óræktuð eignarlönd manna, og dvöl þar í því skyni að njóta náttúrunnar, enda hafi dvöl þess þar ekki í för með sér óhagræði fyrir landeigendur eða aðra rétthafa að landinu. Sé land girt, er aðeins heimilt að fara um hlið á girðingu eða gangstiga, þar sem þeir eru fyrir hendi. Almenn- ingi er frjálst að tjalda á óræktuðu landi næturlangt, sé það ekki sérstaklega bannað með greinilegu merki á staðnum, enda sé í hvívetna gætt góðrar umgengni sbr. 13. gr. För um ræktuð lönd er háð leyfi forráðamanna lands svo og dvöl þar.“ Hvalveiðar og olíuleit Ýmsar fleiri ályktanir voru gerðar, m.a. um landmælingar, kortagerð og fjarkönnun, um undirbúningsrannsóknir vegna iðnreksturs, um mengun frá iðn- rekstri um endurnýtingu úrgangs- efna, um framleiðslu og notkun lífræns áburðar, um mengunareft- irlit og mengunarvarnir, um sorp- losun á sjó, sorphreinsun í höfnum og notkun á plasti, um meðferð lífrænna úrgangsefna, um skrán- ingu og vernd söguminja, um verndun og nýtingu gróðurmoldar, um torfæruakstur og ýmis vélknú- in ökutæki, um olíumengun á sjó og um olíuborun, þar sem m.a. var talið nauðsynlegt að farið verði með ýtrustu varúð í olíuleit við ísland og ýtarleg könnun fari fram á líklegum áhrifum olíuborana, hvort heldur er til leitar eða vinnslu, á lífríki sjávar og þjóðfé- lag okkar, áður en til greina kemur að veita leyfi til olíuleitar við landið. Um hvalveiðar Islendinga var ályktað að fela náttúruverndar- ráði að gangast fyrir hlutlausri könnun á fyrirliggjandi upplýsing- um um hvalveiði Islendinga og framhald á bls. 30 SKJALDHAMRAR. leikrit Jónas- ar Árnasonar. verður sýnt í síðasta sinn í kviild laugardaginn G. maí og hefur þá verið sýnt oftar á fjölum Iðnó en nokkurt annað íslenskt verk, eða 187 sinnum. Með veigamestu hlut- verkin í leiknum fara Þorsteinn Gunnarsson. Valgerður Dan og Karl Guðmundsson. leikmyndin er eftir Steinþór Sigurðsson. en leikstjóri er Jón Sigurbjörnsson. Skjaldhamrar hafa vakið áhuga leikhúsmanna víða erlendis og er ÞÝZKI trúhoðinn Arnhold Rose. sem uppalinn er í Sovétríkjunum. mun halda samkomur í Reykja- vík í vikunni. Ilann mun þar vitna í reynslu sína og sýna kvikmyndir. er fjalla um kristni- líf í Rússlandi. Rose starfar í samtökum er nefnast „Botschaft des Friedes“. boðskapur friðar- ins. sem hafa það að markmiði að efla kristna trú í Sovétríkjunum. Rose talar á eftirfarandi sam- komum: Sunnudagur 7. maí kl. 16 — Kristiiegt sjómannafélag, Fálka- götu 10. Sunnudagur 7. maí kl. 20.30 — Elím, Grettisgötu 62. Mánudagur 8. maí kl. 20.30 — Safnaðarheimili Neskirkju. Þriðjudagur 9. maí kl. 20.30 — Sumarskemmt- un í Stapa SUMARSKEMMTUN Systrafélags Ytri-Njarðvíkurkirkju fer fram í Stapa sunnudaginn 7. maí og hefst kl. 20.30. Mjög er til skemmtunar- innar vandað. Á boðstólum er tískusýning, kaffiveitingar og bingó. Meðal góðra vinninga er utanlandsferð. Suðurnesjamenn hafa í gegn um tíðina fjölmennt á skemmtanir þeirra systranna og vonandi verður svo nú. Allur ágóði af henni rennur til kirkjubygg- ingarinnar í Ytri-Njarðvík, sem systrafélagskonurnar hafa stutt mjög kröftuglega á undanförnum árum. Megi þetta fórnfúsa framtak þeirra takast með ágætum. Páll Þórðarson. nú verið að undirbúa sýningar á verkinu í tveimur leikhúsum í Póllandi, í Wroclaw og Bialystok, þar sem það verður leikið í pólskri þúðingu Piotr Szymanowski. Enn- fremur eru fyrirhugaðar sýningar á Skjaldhömrum í Luleá í Svíþjóð og Kemi í Finnlandi, — Einnig mun mikill áhugi hjá leikfélögum víða úti á landi á að taka verkið til sýningar. — Alls hafa nú um 45 þúsund manns séð verkið hjá Leikfélagi Reykjavíkur. Elím, Grettisgötu 62. Miðvikudagur 10. maí kl. 20.30 — Hjálpræðisherinn. Fimmtudagur 11. maí kl. 20.30 — Safnaðarheimili Grensássóknar. Föstudagur 12. maí kl. 20.30 — KFUM og K og Kristniboðssam- bandið, Amtmannsstíg 2 B. Á MORGUN, sunnudaginn 7. maí, kl. 3 e.h. verður hin árlega kaffisala Kvenfélags Háteigssóknar í Domus Medica við Egilsgötu. Ég vek athygli allra velunnara Háteigskirkju á þessari kaffisölu. Að vanda munu félagskonur bera fram veitingar af alkunnri rausn, enda notið verðugra vinsælda hinna mörgu, er notið hafa. Á síðast liðnu ári hóf Kvenfélag Háteigssóknar að afla fjár til kaupa á krikjuklukkum til Háteigskirkju. Rann ágóðinn af kaffisölunni þá til þessa verkefnis, en kirkjuklukkur eru mjög dýrar og mikils fjár vant. Ágóðinn af kaffisölunni nú verður því varið til sama verkefnis, svo að hægt verði að afla klukknanna sem fyrst má verða. Þykist ég vita, að safnaðarfólk vilji stuðla að þessu eftir megni, enda hafa ýmsir gefið í klukknasjóð á undanförnum árum af kærleika og rausn. Drög hafa þegar verið lögð að útvegun krikjuklukkna, sem eru við hæfi Háteigskirkju, en ekki hefir reynzt unnt að festa kaup á þeim ennþá vegna fjárskorts. Ég biö alla velunnara Háteigskirkju að bregðast vel við og fjölmenna í Domus Medica á sunnudaginn og leggja Kvenfélagi Háteigssóknar lið í starfi þeirra og fórnfýsi um leið og þeir njóta ágætra veitinga og ánægju af því að styðja gott verk. Arngrímur Jónsson sóknarprestur. Kirkjukaffi Kvenfé- lags Grensássóknar Kvenfélag Grensás- sóknar heldur kaffi- sölu sunnudaginn 7. maí í Safnaðarheimil- inu við Háaleitisbraut og hefst hún kl. 3.00. Guðsbjónusta verður kl. 11 f.h. Kvenfélag Grensás- sóknar hefur frá upp- hafi verið lifandi og traust félag. Það er vel skipulagt, heldur reglu- lega fundi og þar eru konur, sem kunna vel til verka í félagsmálum og unna kirkjunni af alhug, en það hafa þær sýnt með því að færa kirkjunni margar veg- legar gjafir, t.d. kirkju- klukkur, silfurbúnað, hökla o.fl. Ég vil skora á allt safnaðarfólk í Grensássókn og aðra velunnendur krikjunnar að fjölmenna í Safnaðarheimilið, sunnudaginn 7. maí og sýna konunum, að við kunnum vel að meta og þakka hið mikla og fórnfúsa starf þeirra og um leið efla, styðja og styrkja kirkjuna og safnaðarheimilið. A boöstólnum verður gott kaffi og mikið úrval af kökum. Kvenfélagskonur, hafið þökk fyrir dugnaðinn og Guð blessi starf ykkar allt. Halldór S. Gröndal Kappræðufundur á Egilsstöðum Samband ungra sjálfstæöismanna og Æskulýös- nefnd Alþýöubandalagsins efna til kappræöufund- ar á Egilsstööum sunnudaginn 7. maí í Valaskjálf kl. 17. Umræðuefnið er: Höfuöágreiningur íslenskra stjórnmála. Efnahagsmál — utanríkismál Fundarstjóri af hálfu S.U.S.: Rúnar Pálsson og ræðumenn S.U.S.: Haraldur Blöndal Anders Hansen Theódor Blöndal. Sjálfstæðisfólk á Austurlandi er eindregið hvatt til að fjölmenna og mæta stundvíslega. S.U.S. Islandsmeistaramót í fimleikum veröur í íþróttahúsi kennaraháskólans. Laugardag 6. maí, skylduæfingar — sunnudag 7. maí, frjálsar æfingar. Hefst kl. 15.00 báöa dagana. Spennandi keppni — alþjóölegar keppnisreglur. Norskir yfirdómarar. Fimleikasambandið. Talar um kristni- líf í Rússlandi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.