Morgunblaðið - 06.05.1978, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 06.05.1978, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. MAÍ 1978 + Eiginmaöur minn faöir og sonur, JÓHANN ÓSKAR ÓLAFSSON, Leifsgötu 26, andaöist í Borgarsjúkrahúsinu 3. maí síöastliöinn. Díana Einarsdóttir, Ólafur Jóhannsson, Björg Helgadóttir, og aörir aóstandendur. Í Eiginmaöur minn, GUÐMUNDUR LÖVE, framkvœmdastjóri, Öryrkjabandalags íslands, andaðist snögglega aö morgni 3. maí á heimili sonar okkar í Kaupmannahöfn. Rannveig Löve. t Eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi, ÓSKAR GUDMUNDSSON, Sigahlíó 36, lést aö heimili sínu 3. maí. Jaröarförin auglýst síðar. Kristjana Alexandersdóttir, Alla Ó. Óskarsdóttir, Karl K. Guómundsson, Daníel G. Óskarsson, Guörún Siguróardóttir, og barnabörn. + Moöir okkar, JAKOBÍNA GUNNALUGSDÓTTIR, Jörfabakka 18, andaöist miövikudaginn 3. maí. Börnin. + Móðir mín, GUÐRÚN TÓMASDÓTTIR, frá Kanastöóum, andaöist í Sjúkrahúsi Vestmannaeyja 4. maí. F.h. aðstandenda. Marta Þ. Geirsdóttir. + Faðir minn og bróðir okkar, GUDMUNDUR JÓHANNSSON, fyrrum skipstjóri í Boston, lést í sjúkrahúsi í Winter Haven, Flórída 3. þ.m. Einar Guómundsson, Sigmundur, Pjetur, Ólafur. Eiginkona mín. + VILBORG VIGFÚSDÓTTIR, andaöisl í Landspítalanum 24. apríl. Jaröarförin fór fram í kyrrþey aö ósk hinnar látnu. Daniel Hjartarson, börn, tengdabörn og barnabörn. + Móöir okkar, tengdamóöir, amma og langamma, SOFFÍA GUDBJARTSDÓTTIR, Helgamagrastræti 32, veröur jarösungin frá Akureyrarkirkju mánudaginn 8. maí kl. 13.30. Erna Sígmundsdóttir, Guómundur Sigmundsson, . Ófeigur Eiríksson, barnabörn og barnabarnabörn. + Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vináttu vegna andláts og jaröarfarar systur okkar JÓNÍNU EINARSDÓTTUR, saumakonu. Una Einarsdóttir, Bergpóra Einarsdóttir. Carlton J. Keyser —Minningarorð Fæddur 24. marz 1917 Dáinn 11. marz 1978 Carlton Jerome Keyser var fæddur í New York-fylki í Banda- ríkjunum. Forfeður hans komu frá Þýzkalandi til Bandaríkjanna og gerðust þar bændur. Kornungur missti Carlton föður sinn og ólst því upp hjá Jerome afa sínum og ömmu á sveitabýli þeirra. I byrjun síðustu heimsstyrjald- ar gekk Carlton snemma í sveit bandarískra sjálfboðaliða, Amer- ican Field Service, en fluttist yfir í her Bandaríkjanna, er þau gerðust stríðsaðilar. Carlton var í þeim mikla hildar- leik víðförull og harðþjálfaður, enda tók hann þátt í hernaðar- aðgerðum, bæði í Indlandi, Afríku og fyrir botni Miðjarðarhafs og kunni hann frá mörgu að segja frá þeim árum. Að styrjöldinni lokinni gerðist hann starfsmaður hjá American Airlines og kom á vegum þeirra hingað til lands 1947. Það sama ár kynntist hann eftirlifandi eiginkonu sinni Gyðu Gísladóttur, en hún var þá nýkom- in heim frá námsdvöl í Bandaríkj- unum. Þau giftust 7. des. 1948 og settu bú hér í borg, þar eð Carlton hafði þá hlotið starfa á vegum bandarísku ríkisstjórnarinnar við eftirlitsstörf á Keflavíkurflugvelli, án þess að teljast til hersins. Eftir 12 ára dvöl hér var hann sendur til svipaðra starfa í Portúgal og dvaldi þar í 5 ár, en var þá fluttur til Englands, þar sem hann hafði ábyrgðarmiklu og erfiðu starfi að gegna til ársins 1971, er hann lét af störfum að ráði bandaríksra lækna, sökum heilsubrests, er ágerðist svo, að hann var telinn óvinnufær aðeins 54 ára að aldri. Fluttust þau hjón Gyða og Carlton þá hingað heim til Reykja- víkur ásamt börnum sínum tveim, Cynthiu og Gísla William. Hafa þau síðan búið að Bárugötu 29, háöldruðum foreldrum frú Gyðu, Gísla skipstjóra Guðmundssyni og frú Sigríði til ánægju og lífsléttis. Síðustu árin hefur Carlton starfað hjá h.f. Vökli, hálfan dag eftir því sem heilsa hans leyfði og hann treysti sér til. Carlton var bjartsýnn um batn- andi heilsufar og í þeirri von fór hann nú í vetur til Englands í fylgd sinnar góðu konu. Sú lækningatilraun reyndist mjög erfið og árangurslaus. Hann var fluttur heim eftir 4 vikna dvöl í London og lést í sjúkrahúsi hinn 11. marz síðast. liðinn. Nokkru áður höfðu látist í Bandaríkjunurrij 2 eldri bræður hans. Þessi örstutti æviþráður segir lítið frá því, að hér var á ferð merkur maður og drengur góður. Hann var prúðmenni hið mesta, hæglátur, friðsamur og orðvar um allt og alla. Tryggur og sannur vinum sínum og afskiptalítill um aðra. Hann elskaði og dáði konu sína, börn og heimili framar öllu og bar mikla virðingu fyrir „afa og ömmu“ og venzlafólki sínu. Carlton var maður greindur vel, bókelskur og víðlesinn. Hann var áhugamaöur mikill um útilíf og ágætur laxveiðimaður og undi sér bezt við hina bláu strauma og blikandi sporða. Sjálfur hnýtti hann allar sínar fallegu flugur, sem sumar hafa hlotið veiðifrægð (Pale blue). Hann var skytta góð og áhugasamur og duglegur kylf- ingur. Fádæma árrisull og starfs- glaður. Brostið vinnuþrek varð Carlton erfitt hlut.skipti og mikil raun síðustu 10 árin, en ástúð og umhyggja konu hans og barna og samvistir góðra vinnufélaga mild- uðu sárustu vonbrigði og áhyggjur. Við hjónin minnumst með þakk- læti margra ánægjulegra sam- verustunda, bæði innanlands og utan, og samhryggjumst Gyðu, börnunum, tengdasyninum og fal- legu 2 ára afastúlkunni. Ennfrem- ur sendum við innilegar samúða- kveðjur öldruðu heiðurshjónunum, Sigríði og Gísla og öðru tengda- fólki. Ólafur Jóhannsson Kveðja frá samstarfs- mönnum í H.f. Vökli. Um leið og við kveðjum Carlton J. Keyser þökkum við honum gott samstarf og ánægjulega viðkynn- ingu. Hann var einstakt prúðmenni og nákvæmni hans, árvekni og at- hygli var frábær. Höfðum við vonast til þess að njóta verka hans og þekkingar miklu lengur, en því miður varð okkur ekki að þeirri ósk, því hann lézt fyrir aldur fram hinn 11. marz 1978 eftir skamma legu en erfið og langvinn veikindi. Við flytjum eiginkonu háns og fjölskyldu innilegustu samúðar- kveðjur. Starfsfélagar í Vökli Guðmundur Svan Ingi- marsson —Minning Fæddur 15. janúar 1932. Dáinn 15. apríl 1978. Guðmundur Svan Ingimarsson var sonur Ingimars Ólafssonar frá Akureyri og Sigríðar Hannesdótt- ur frá Hlíðargarði í Eyjafirði. Þau bjuggu á Akureyri, þar fæddist Guðmundur og fluttist til Reykja- víkur með foreldrum sinum árið 1937, þá 5 ára gamall og hefir átt + Minningarathöfn um fööur okkar, EYSTEIN BJÖRNSSON, frá Guörúnarstööum, verður í Fossvogskirkju, mánudaginn 8. maí kl. 10.30. Jaröarförin fer fram frá Blönduóskirkju, þriöjudaginn 9. maí kl. 14.00. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Héraöshæliö á Blönduósi og líknarstofnanir. Börnin. + Hjartans þakkir sendum viö öllum þeim er auösýndu okkur samúö og vinarhug viö andlát og útför eiginmanns míns, fööur okkar og afa, JÓNS MAGDALS JÓNSSONAR Efri-Engidal Ísafiröi Sérstakar þakkir sendum viö læknum og ööru starfsfólki Sjúkrahúss ísafjaröar fyrir góöa umönnun í veikindum hans. Guö blessi ykkur öll. Kristín Magnúsdóttir Sigurgeir Jónsson Guóný Jónsdóttir Magnúsína Jónsdóttir Jón J. Jónsson Ásta Dóra Egilsdóttir Halldór Jónsson Guöný Indrióadóttir Magdalena Jónsdóttír Ögmundur Einarsson þar heima síðan. Guðmundur var tvíkvæntur, fyrri kona hans heitir Þórunn Björgúlfsdóttir, þau gengu í hjónaband árið 1957, en slitu samvistum. Áttu þau einn son, Ingimund, sem alist hefir upp hjá Sigríði ömmu sinni og seinni manni hennar Birni Vigfússyni, og er nú tvítugur að aldri. Árið 1963 kvæntist Guðmundur Rögnu Ólafsdóttur og hafa þau ekki átt börn saman. Guðmundur stundaði margs konar störf hér í Reykjavík, en mörg síðustu árin vann hann aðallega við kjöt- vinnslu. Guðmundur kom sér vel hvar sem hann var eða vann, verklaginn, trúr og dyggur. Hann var mjög listfengur og laginn við hvað sem hann vann við eða snerti á. Þegar Guðmundur var lítill drengur varð hann veikur og tapaði þá til muna heyrninni og náði aldrei fullri heyrn eftir það. Þetta bagaði hann mjög mikið á margan hátt. Guðmundur var fríður maður, stór og sterkur, prúður í framkomu og átti aldrei í illdeilum við nokkurn mann. Fyrir þremur árum varð Guð- mundur að gangast undir mikla skurðaðgerð vegna lungnasjúk- dóms og náði aldrei góðri heilsu eftir það. Þessi þrjú síðustu ár bjuggu þau Guðmundur og Ragna í litla húsinu sínu á Baldursgötu 3B. Ragna varð að vinna alla daga utan heimilis, en Guðmundur varð að dvelja heima veikur, oft með sótthita og bíða þess, að eiginkon- an kæmi heim að afloknu dags- verki. Þetta var erfitt líf fyrir þau bæði. Það getur hver og einn skilið, en aldrei kvörtuðu þau. Guðmundur vissi vel á hvaða leið hann var, en hann var rólegur og bar sinn kross með prýði. Guðmundur andaðist að morgni laugardagsins 15. apríl á heimili sínu. Sigríður móðir hans og ég sem þessar línur skrifa, komum að hvílu Guðmundar er hann var nýlátinn. Yfir andliti hans hvíldi mildur og rólegur blær eins og ávallt hafði verið í lifanda lífi. A náttborðinu var Guðsorðabók, sem hann mun hafa verið að lesa í rétt fyrir andlátið. Allt frá barnæsku trúði Guð- mundur á boðorð Guðs og allt hið góða og heiðarlega í tilverunni, og Framhald á bls. 26

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.