Morgunblaðið - 06.05.1978, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 06.05.1978, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. MAÍ 1978 7 1 Verkaskipting ríkis og sveitarfélaga Eitt af Þeim málum, sem verið hefur efst á baugi í þjóðfélagsum- ræðu, er verkaskipting ríkis og sveitarfélaga. Það skiptir miklu máli, að pessi verkaskipting sé sem hreinust, p.e. að sveitarfélög sjái um ákveðin, afmörkuð verk- efni, sem pau beri bæöi stjórnunarlega og fjár- málalega ábyrgð á. Fjöl- mörg samfélagsverkefni eru betur komin í hönd- um sveitarstjórna en ríkisvalds. Sú staðhæfing styðst fyrst og fremst viö tvær forsendur. Sveitar- stjórnir pekkja betur en fjarlægt ríkisvald, hverjar eru parfir og óskir borg- aranna og eiga pví auö- veldara með að leysa mál í samræmi við meiri- hlutavilja. Heimamenn pekkja og betur aðstæð- ur ailar í hverju sveitarfé- lagi og eru pví betur í stakk búnir til að taka ákvarðanir um, hvern veg tiltækt fjármagn megi nýta sem bezt. Það er margur „grímseyjargarð- urinn“, sem staðsettur hefur verið gegn vilja heimamanna að forskrift minna kunnugra, sem reynst hefur léleg fjár- festing og komið borgur- unum að litlu haldi. En jafnhliða Því að hyggilegt er aö auka á sjálfstæði sveitarfélaga með auknum verkefnum verða pau að fá stærri hlut af sameiginlegum tekjum ríkis og sveitarfé- laga, til að rísa undir hlutverki sínu. Aukið sjálfstæði sveitarfélaga er og liður í sjálfsagðri valddreifingu í pjóðfélag- inu og lýðræðislegri stjórnun samfélagsmála. Flokkaskipting og sveitarstjórnir Velflestar sveitar- stjórnir hér á landi eru kjörnar eftir flokkslínum. Þetta hefur bæöi kosti og galla. Sveitarstjórnarmál eru oft óháð flokksstefn- um, pótt pau geti einnig á ýmsan hátt verið stór- pólitísk. í flestum tilfell- um fjalla sveitarstjórnir pó um hagsmunamál samborgara, er varða pá á líkan hátt, hverjar sem stjórnmálaskoðanir peirra eru. Mikil flokka- átök um einstök sveitar- stjórnarmál hafa í mörg- um tilfellum skaðað við- komandi verkefni og sveitarfélagið í heild. Þegar horft er til Reykjavíkurborgar, sem haft hefur sterkan og samstilltan borgarstjórn- armeirihluta um langan aldur, má glöggt sjá, hverju samstaða og ákveðin forysta getur komið til leiöar. Það parf engan að undra að Reyk- víkingar hafi hafnað pví að hverfa til veikrar borg- arstjórnar, par sem flokkaátök og hrossa- kaup um hvert mál ein- kenna afgreiðslu peirra. Minnihlutinn í borgar- stjórn Reykjavíkur hefur og af fáu að státa, i stjórn borgarinnar, öðru en sundurpykkjunni og samstöðuleysinu í hverju málí. Þaö yrði raunveru- lega „happa og glappa- aðferð“ á stjórn borgar- mála ef öll pau brotabrot pyrftu að semja um hvert mál, er kæmí til kasta borgarstjórnar. Þetta hef- ur flestum Reykvíkingum verið Ijóst, hvar svo sem peir standa í landspólitík. Höföa til andvaraleysis Það sem nú hefur verið sagt er frambjóðendum mínnihlutaflokkanna í borgarstjórn vel Ijóst. Þess vegna er helzta áróðursvopn peirra sú staðhæfing, að núverandi borgarstjórnarmeirihluti sé ekki í hættu. Þess vegna sé óhætt að greiða Þessum eða hinum minnihlutaflokknum at- kvæði. Minnihlutaflokk- arnir höfða hver í kapp við annan til andvara- leysis Reykvíkinga. í and- varaleysinu eygja peir pann möguleika að fella borgarstjórnarmeiríhluta Sjálfstæðisflokksins. Þeir vita sem er að oft hefur verið mjótt á munum í borgarstjórnarkosningum. Áriö 1966, pegar Sjálf- stæðisflokkurinn hafði 9 borgarfulltrúa fyrir eins og nú, munaði aöeins 276 atkvæðum að 8. maður D-listans félli og par með meirihlutinn. Ariö 1970 var munurinn enn minni eða 224 atkvæði. Það er pví rík ástæða til pess fyrir Reykvíkinga að huga vel að stöðu mála, er peir ganga að kjörborðinu síðar í pessum mánuði. Meirihluti D-listans í borgarstjórn Reykjavtkur heldur ekki velli nema Reykvíkingar haldi vel vöku sinni og hver og einn stuðningsmaöur hans starfi ötullega pann stutta tíma, sem til stefnu er. Það parf fjöldasam- starf reykvískra borgara, lifandi og virkt, til að halda meirihluta D-list- ans. í pví efni getur pitt atkvæði, pitt starf og pín viðleitni ráðiö úrslitum. jHpóöttr á morgttn GUÐSPJALL DAGSINSi Jóh. 15.t Þogar huKKarinn kcmur. LITUR DAGSINSi Ilvítur. Litur Kloóinnar. DÓMKIRKJAN. Messa kl. 11 árd. Séra Hjalti Guömundsson. ÁRBÆJARPRESTAKALL. Guðsþjónusta í Safnaöarheimili Árbæjarsóknar kl. 2 e.h. Helgi Elíasson bankaútibússtjóri flyt- ur ræðu. Starfsemi Gideonfé- lagsins kynnt. Séra Guðmundur Þorsteinsson. ÁSPRESTAKALLi Messa kl 2 að Norðurbrún 1. Fundur i Safnaðarfélagi Ásprestakalls eftir messu. Veitingar. Bingó til ágóða fyrir kirkjubygginguna. Séra Grímur Grímsson. BREIÐIIOLTSPRESTAKALL: Helgistund j Breiðholtsskóla kl. 11. Ungt fólk syngur og talar. Sóknarprestur. BÚSTAÐAKIRKJA. Messa kl. 2. Organleikari Guðni Þ. Guð- mundsson. Séra Ólafur Skúla- son. GRENSÁSKIRKJA. Guðsþjón- usta kl. 11 (ath. breyttan messutíma). Organleikari Jón G. Þórarinsson. Séra Halldór S. Gröndal. IIALLGRÍMSKIRKJA. Messa kl. 11. Lesmessa n.k. þriðjudag kl. 10.30 árd. Séra Karl Sigur- björnsson. LANDSPÍTALINN. Messa kl. 10 'ard. Séra Ragnar Fjalar Lárusson. IIÁTEIGSKIRKJA. Messa kl. 11. Séra Tómas Sveinsson. KÓPAVOGSKIRKJA. Guðs- þjónusta kl. 2. Séra Þorbergur Kristjánsson. LANGIIOLTSPRESTAKALL. Barnasamkoma kl. 10.30 árd. Guðsþjónusta kl. 2. Safnaðar- stjórnin. LAUGARNESKIRKJA. Messa kl. 11 (ath. breyttan messu- tíma). Sóknarprestur. NESKIRKJA. Guðsþjónusta kl. 2 e.h. Séra Frank M. Halldórs- son. Mánudagskvöld: Samkoma kl. 20.30 í félagsheimili kirkj- unnar. Arnhold Rose talar og sýnir kvikmynd frá kristilegu starfi í Rússlandi. FÍLADELFÍUKIRKJAN. Safn- aðarguðsþjónusta kl. 2 síðd. Alnienn guðsþjónusta kl. 8 síðd. Einar J. Gíslason. FRÍKIRKJAN Reykjavík. Messa kl. 2 síðd. Órganisti Sigurður ísólfsson. Séra Þor- steinn Björnsson. DÓMKIIiKJA Krists Konungs í Landakoti. Lágmessa kl. 8.30 árd. Hámessa kl. 10.30 árd. Lágmessa kl. 2 síðd. Alla virka daga er lágmessa kl. 6 síðd., nema laugardaga, þá kl. 2 síðdi í FELLAIIELLI. Biskupsmessa. Frehen biskup flytur fyrstu messu sína í Fellahelli og hefst messan kl. 11 árd. IIJÁLPRÆÐISIIERINN. Helg- unarsamkoma kl. 11 árd. Hjálp- ræðissamkoma kl. 20.30. Á samkomunni tala Halldór Lár- usson og Tony Fitzgerald, sem starfað hefur í Ástralíu, en starfar nú í Bretlandi. FÆREYSKA Sjómannaheimil- ið. Samkoma kl. 5 síðd. Johann Olsen. IIAFNARFJARÐARKIRKJA. Guðsþjónusta kl. 2 síðd. Bæna- samkoma á þriðjudagskvöld kl. 8.30. Séra Gunnþór Ingason. NJARÐVÍKURPRESTAKALL. Sunnudagaskóli í Stapa kl. 11 og í Safnaðarheimili Innri-Njarð- víkurkirkju kl. 1.30 s.d. Páll Þórðarson. KEFLAVÍKURKIRKJA. Sunnudagaskóli kl. 11 árd. Sóknarprestur. EYRARBAKKAKIRKJA. Barnaguðsþjónusta kl. 10.30 árd. Sóknarprestur. STOKKSEYRARKIRKJA. Guðþjónusta kl. 2 síðd. Ferming. Sóknarprestur. AKRANESKIRKJA. Barna- samkoma kl. 10.30 árd. Lok sunnudagaskólans. Börnin bjóði foreldrum sínum til þátttöku. Séra Björn Jónsson. VANTAR ÞIG VINNIJ (n VANTAR ÞIG FÓLK í tP Þl’ Al'GLÝSIR IM ALLT LAND ÞEGAR ÞL ALG- LÝSIR I MORGLNBLAÐINL Hvítasunnukappreiðar verða haldnar eins og venjulega II. hvítasunnu- dag. Keppnisgreinar eru sem hér segir: 250 m skeið, 250 m, 350 m, og 800 m stökk og 800 m brokk. Gæðingakeppni í A og B flokkum og skrásetning fyrir unglingadeildina. Lokaskráning fer fram mánudaginn 8. maí á skrifstofu félagsins, frá kl. 13—18. Sími 30178. Ath. Gæðingar verða dæmdir laugardaginn 13. maí kl. 14—17. Hestamannafélagid Fákur. Dýrasýning — Dýrasýning Sunnudaginn 7. maí n.k. heldur fjáröflunarnefnd Dýraspítala Watsons hina árlegu dýrasýningu í Laugardalshöllinni. í ár verður sýningin ennþá stórkostlegri m.a. má nefna að Guðrún Á. Símonar mætir með fögru liði katta, Guömundur Guömunds- son (Gummi og Goggi) eftirherma og búktalari sér um aö skemmta yngri kynslóðinni. Um 20 teg. hunda koma fram kl. 2 og 5, og verða þá einnig hlýðnisæfingar hunda sýndar. Félag áhugamanna um dúfnarækt í Kópavogi sýna dúfur, sýndar veröa yfir 12 teg. fugla, kanínur, skjaldbökur, fiskar og margt fleira. Landsins minnsti hestur og sá stærsti veröa á útisvæöinu og geitur með kiðlinga, einnig fá börnin aö fara á hestbak. 500 Fáksfélagar koma ríöandi kl. 3.30 og Fákskonur sjá um kaffi og góögæti. Gunnar Eyjólfsson kynnir. Forsala aðgöngumiða verður í Laugardalshöllinni laugar- daginn 6. maí milli kl. 2—6. Húsiö opnað kl. 1.30 á sunnudeginum. Verð aðgöngumiöa kr. 500 fyrir börn og 1.000 kr. 7WHHBB vi'i fyrir fullorðna. Verið velkomin og styrkið gott málefni. Fjáröflunarnefnd Dýraspítala Watsons V/^ ^MMríwwHMiiiiniwwrirTf wnirfn r wwmfiwwwwaMiirfa^^ Flóamarkaður Okkar vinsæli flóamarkaður er í dag 6. maí kl. 2 að Freyjugötu 14. Kvenfélag Karlakórs Reykjavíkur. Kökubazar Kvenstúdentafélags íslands veröur haldinn laugardaginn 6. maí kl. 2 e.h. að Hallveigarstöðum, gengið inn frá Túngötu. Mikiö af glæsilegum kökum. Stjórnin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.