Morgunblaðið - 06.05.1978, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 06.05.1978, Blaðsíða 48
AUGLÝSINGASÍMINN ER: 22480 2H«r0un(>l«bib AUGLÝSINGASÍMINN ER: 22480 2H«r0unbbbib LAUGARDAGUR 6. MAÍ 1978 w Aætlun olíuskips breytt OLÍUSKIP með tæplega 19 þúsund tonn af gasolíu er væntanlegt til Reykjavíkur 9. maí. Upphaflega átti skip þetta að fara til Seyðisfjarð- ar fyrst, en síðan til Reykja- víkur, en áætlun þess hefur nú verið breytt vegna boðaðs innflutningsbanns hinn 11. maí. Samkvæmt upplýsingum Indriða Pálssonar, forstjóra Olíufélagsins Skeljungs h.f., er þess vænzt að takist að losa olíufarminn áður en til innflutningsbannsins kemur og komist þessi farmur á land eru olíufélögin vel birg fram í júnímánuð. Þá er væntanlegt bensínskip hinn 19. maí frá Svartahafs- ströndum. Indriði kvað það geta brugðið til beggja vona, hvort tækist að afferma olíuskipið, sem væntanlegt er 9. maí. Fái skipið vont veður á leiðinni til Islands getur það tafizt eitthvað. Þá var annað olíu- skip væntanlegt, sem kemur ekki að sinni. Hauki sleppt ígær HAUKI Guðmundssyni fyrr- verandi rannsóknarlögreglu- manni í Keflavík var sleppt úr gæzluvarðhaldi um sexleytið í gærkvöldi en hann hafði setið í Síðumúlafangelsinu í sex sólarhringa vegna rannsóknar handtökumálsins. Samkvæmt upplýsingum Þóris Oddssonar vararann- sóknarlögreglustjóra er rann- sókn handtökumálsins á loka- stigi. Er búist við því að rannsókninni Ijúki í næstu viku og verður málið þá sent ríkis- saksóknara til ákvörðunar. Horft til sumars. Bjarni Jakobsson, formaður Iðju, um annan verkfallsdaginn Fimmtungur fyrirtækjanna greiddi samkvæmt samningi — Þekki engin slík dæmi, segir Davíð Sch. Thorsteinsson, form. FÍI ANNAR verkfallsdagur Iðju, félags verksmiðjufólks í Reykja- vík, var í gær og munu þá um 600 manns hafa verið í verkfalli. eða talsvert minni hópur en síðastlið- inn miðvikudag, er um 1.000 manns felldu niður vinnu. Vinna var í gær stöðvuð hjá um 30 fyrirtækjum, en samkvæmt upp- lýsingum Bjarna Jakobssonar, formanns Iðju, munu um 20% fyrirtækjanna, sem verkfall var boðað hjá, hafa gctað sýnt fram á að þau greiddu samkvæmt samningunum frá sl. sumri. Verkfallið í gær náði til mat- vælaiðnaðarins, kexgerða, köku- gerða, sælgætis- og efnagerða, kaffi- og smjörlíkisgerða og öl- og gosdrykkjagerða. Er þá eftir einn verkfallsdagur í boðuðum aðgerð- um Iðju, mánudagurinn 8. maí, en þá verður felld niður vinna hjá fyrirtækjum í tréiðnaði, pappírs- iðnaði og prentun, kemiskum iðnaði, gler- og steinefnaiðnaði, málmsmíði, smíði og viðgerðum rafmagnstækja, plastiðnaði, myndiðn, burstagerð, silfursmíði, bólstrun og innrömmun. Nær það Tel tjónið á Breka vera 5—600 millj. „ÞAÐ var alveg grátlegt að sjá þetta,“ sagði Haraldur Gísla- son, framkvæmdastjóri Fiski- mjölsverksmiðjunnar h.f. í Vestmannaeyjum, er Mbl. ræddi við hann í gærkvöldi nýkominn frá Akureyri, en Fiskimjölsverksmiðjan er eig- andi Breka. „Skipið er tryggt á 1145 milljónir króna,“ sagði Haraldur, „og að mínu áliti er Framhald á bls. 26 Blaðaútgáfa sendiráða bönnuð? ALLT henti til þess í gærkvöldi að frumvarþ til laga um bann við fjárhagslegum stuðningi crlendra aðila við íslenzka stjórn- málaflokka yrði að lögum seint í gærkveldi eða nótt. Frumvarpið hafði verið afgreitt til neðri deiidar, scm í gær breytti því að tillögu Sighvats Björgvinssonar og Guðmundar II. Garðarssonar. Var skotið inn í frumvarpið ákvæðum um að erlendum sendi- ráðum á íslandi væri óheimilt að kosta eða styrkja hlaðaútgáfu í landinu. Sighvatur Björgvinsson bar í gær fram frávísunartillögu við frumvarpið, þar sem sagði að þar sem í ráði væri að undirbúa rammalöggjöf um starfsemi stjórnmálaflokkanna, virtist ein- sýnt að þetta mál ætti erindi inn í þann undirbúning og athugun, og með hliðsjón af því því legði hann til að frumvarpinu yrði vísað til ríkisstjórnarinnar. Þessari frávísunartillögu var hafnað í neðri deild með 27 atkvæðum gegn 5. Breytingartillaga Sighvats og Guðmundar H. Garðarssonar var um þrjú atriði. í fyrsta lagi um að aftan við fyrstu grein, sem er svohljóðandi: „Islenzkum stjórn- málaflokkum er óheimilt að taka við gjafafé eða öðrum fjárhagsleg- um stuðningi til starfsemi sinnar hérlendis frá erlendum aðilum," bætist: „Þá er erlendum sendiráð- um á íslandi óheimilt að kosta eða styrkja blaðaútgáfu í landinu." í öðru lagi var lagt til að aftan við aðra grein frumvarpsins:„Lög þessl taka til stjórnmálaflokka og félagasamtaka þeirra, svo og til hvers konar stofnana, sem starfa á þeirra vegum, beint eða óbeint, þ. á m. blaða," bætist: „og einnig til blaða eða tímarita, sem út eru gefin á vegum einstaklinga eða samtaka." í þriðja lagi gerðu þeir félagar tillögu um breytingu á fyrirsögn Framhald á bls. 26 verkfall til um 1.200 til 1.300 Iðjufélaga. Bjarni Jakobsson kvað stjórn Iðju hafa orðið vara við fyrsta brotið gegn aðgerðum Iðju í gær. Unnið var í mæjóhesverksmiðju fram til klukkan 14 eða í þann mund er verkfallsverði Iðju bar að garði. Hafði starfsfólkið unnið af sér síðari hluta dagsins og var að hætta í þann mund er verkfalls- verðirnir komu. Bjarni kvað samn- ingssvæði Iðju vera stórt og því hefði verkfallsvarzlan ekki orðið þessa vör fyrr en um tvöleytið. Hann kvað þennan aðila ekki hafa sannað það svo aö ekki væri um að villast að hann greiddi samkvæmt samningi og hefði þar með rétt til þess að láta fólkið vinna. Verkföllin í gær beindust gegn færri aðilum og stærri, sagði Bjarni, en var síðastliðinn mið- vikudag. Hann kvað þau fyrirtæki, sem greiddu fullar vísitölubætur og hefðu sannað það óyggjandi, hafa verið um fimmtung þeirra fyrirtækja, sem verkfall var boðað hjá. Á miðvikudag var það hins vegar þriðjungur fyrirtækjanna sem það gerði. Á mánudaginn kemur kvað Bjarni vera viðamesta verkfalls- daginn, þar sem þá myndi verkfall ná til 1.200 til 1.300 félaga innan Iðju. Eftir þann dag kvaðst hann mundu geta gefið nákvæmari upplýsingar um gang verkfallanna í heild, og m.a. heildartölu þeirra fyrirtækja, sem greiddu sam- kvæmt samningum. Morgunblaðið ræddi í gær við Davíð Scheving Thorsteinsson, formann Félags íslenzkra iðnrek- enda, og spurði hann, hvað hann vildi segja um þær upplýsingar Bjarna Jakobssonar, formanns Iðju, sem fram komu í Morgun- blaðinu á fimmtudag að þriðjung- Framhald á bls. 26 Þinglausnir síddegis REIKNAÐ var með að deilda- fundir hæfust í Alþingi klukk- an 10 í dag eftir langar umræður í samcinuðu þingi í nótt og að siðari hluta dags, ef til vill klukkan 16—17, hæfist svo fundur í sameinuðu þingi og færu þá fram þinglausnir. P'undur í sameinuðu þingi hófst klukkan 21 í gærkvöldi og voru átta mál á dagskrá, þar af tvö, sem búizt var við löng- um umræðum um; tillaga til þingsályktunar um ís- lenzka stafsetningu (z) og skýrsla iðnaðarráðherra um Kröflu. Fyrst kom á dagskrá tillaga um endurskoðun meið- yrðalöggjafarinnar og hafði Vilborg Harðardóttir þar fram- Framhald á bls. 26 Rúta með 34 mönnum fauk út af RÚTA með 34 farþegum fauk út af veginum skammt frá Akranesi í gærkvöldi. Margir farþeganna voru fluttir í sjúkrahúsið, þar sem gert var að meiðslum þeirra, en enginn mun hafa meiðzt alvarlega. Bíllinn stórskemmdist. Slysið varð um klukkan 20:20 í gærkvöldi. Rúta frá Borgarnesi var að flytja hóp fólks í Munaðar- nes. Skammt frá Berjadalsá, austan við Akranes, fauk rútan út af veginum og fór eina veltu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.