Morgunblaðið - 06.05.1978, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 06.05.1978, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. MAÍ 1978 Forsætisráðherra um stjórnarskrármálið: Tilraun til að ná sam- stöðu þingflokkanna Tillaga stjórnarskrárnefndar sameinaós Þings um skipun nýrrar nefndar til aó gera tillögur um breytingar á stjórnarskrá kom til umræðu á Alpingi í gær. Geir Hallgrímsson, forsætisráöherra, fór fram á pað við pingforseta, að umræöu lyki ekki nú, heldur yröi frestað, til pess að freista Þess að ná samstöðu formanna pingflokka um vinnubrögð, hvað snerti endurskoðun stjórnarskrárinnar. • Umboð eldri nefndar úr sögu Ellert B. Schram (S) formaöur allsherjarnefndar, geröi grein fyrir tillögu, sem nefndin flytur, þess efnis, að umboöi núverandi stjórn- arskrárnefndar skuli lokiö en ný nefnd skipuö til aö sinna endur- skoðun stjórnarskrár — meö ákveönara verksviði — m.a. varö- andi kosningalög og starfshætti Alþingis. Óþarfi væri, eins og starfsstööu þings væri nú háttaö, að eyða löngum tíma í að rök- styðja slíka tillögu. Núverandi stjórnarskrárnefnd heföi setið síö- an 1972, í 6 ár, en engar tillögur frá henni heföu enn séð dagsins Ijós. Nefndin hefði ekki verið kölluö saman til fundar í meira en ár og væri nánast óstarfhæf. Fyrir þessu þingi lægju a.m.k. þrjú mál varöandi kjördæmaskipan eöa kosningalög, sem ekki fengju eölilegan framgang, m.a. með tilvísan til þess að stjórnarskrár- nefnd væri að sinna þessum verkefnum. Slíkum málum heföi í gegnum árin verið vísað til nefnd- arinnar. Nauösynleg og eðlileg breyting kosningalaga heföi strandað á starfsleysi stjórnar- skrárnefndar. Allsherjarnefnd væri öll sammála um þessa tillögu. Meö hliðsjón af undirtektum, utan þings sem innan, mætti búast viö aö tillagan fengi greiöan gang á Alþingi. • Ekki við einn mann að sakast Karvel Pálmason (SVF) vitnaöi til yfirlýsingar forsætisráöherra á liönu hausti varðandi samstarf þingflokka um þessi mál. Ekki heföi borið á þessum viðræöum fyrr en skammt var eftir þings — og þá með lítilli reisn. Þessi seinagangur yröi ekki skrifaöur á reikning stjórnarskrárnefndar, og alls ekki á reikning formanns hennar einvörðungu, eins og viöleitni heföi verið til aö gera. Því mætti heldur ekki gleyma aö fleiri væru í stjórnarskrárnefnd en formaður hennar. Þar væru og fulltrúar hinna stærri þingflokka. Þeir heföu haft sama kost á að koma málum áfram og formaður- inn, ef vilji heföi veriö fyrir hendi. Hér væri ekki við neinn einn að sakast, ef um sök væri aö ræöa. E.Sch. heföi sagt undirtektir slíkar að tillagan ætti greiöan gang gegnum þingiö. Á slíkt ætti eftir aö • Utanþingsnefnd í stjórnarskrána Benedikt Gröndal (A) sagöist ekki taka þátt í persónulegum deilum á formann stjórnarskrár- nefndar. Ljóst væri hins vegar aö nauösyn bæri til aö gera einhverjar ráöstafanir til aö koma aö leiörétta stööu mála. Ég hefi hreyf þeim hugmyndum, sagöi B.Gr., þó ekki á þingi, aö fela endurskoöun stjórnarskrár utanþingsnefnd. Hann sagði þá tímaákvöröun, sem í tillögunni fælist (skila áliti í haust), vera þrönga. Og næðu nefndar- menn samkomulagi um stjórnar- skrárbreytingar, sem þing féllist á, væri stefnt í þingrof og tvennar kosningar. • Rangtúlkun á tillögu allsherjarnefndar Magnús Torfi Ólafsson (SVF) sagöi þaö rangtúlkun á tillögu allsherjarnefndar s.þ. að reyna að snúa henni upp í vantraust á formann stjórnarskrárnefndar. Slík túlkun væri óvönduð vinnubrögð sem því miður heföu fengið bergmál í blöðum, sem ætla mætti að gættu viröingar sinnar. Ég lýsi fyrst og fremst ábyrgö á hendur stjórnmálaflokkum, sem myndað hafa meirihluta til að fara meö stjórn landsins og ráöa skipan nefnda. Sökin er stjórnar- flokkanna, sem hafa látið kjörtíma- biliö Iföa án þess aö sinna þessu brýna máli eöa hverfa aö kosn- ingalagabreytingum. Skýringin er einfaldlega sú aö ekki var vilji né samstaða í stjórnarflokkunum til slíks. Ljóst er e.t.v. aö engin knýjandi pólitísk eöa þjóöfélagsleg nauösyn er til að knýja fram stjórnarskrár- breytingar. Þau ákvæöi, sem kalla á breytingar, snerta fyrst og fremst kosningalagaákvæði og ákvæöi um Alþingi. Þann veg þarf að standa aö þessu máli að kjör- dæmaskipan leiöréttist sjálfvirkt, eftir því sem mannfjöldaþróun í landinu segir til um, svo ekki þurfi oft að fjalla um stjórnarskrárbreyt- ingar. • Hver er vilji flokksformanna? Jón Árm. Héðinsson (A) minnti á yfirlýsingar formanna beggja stjórnarflokkanna um kosningalög og kjördæmaskipan í sjónvarps- þætti á sl. hausti — frammi fyrir alþjóö. Ég vil fá skýrt fram hér, sagði J.ÁH, hvort sú afstaöa þeirra er óbreytt. Ný nefndaskipan hefur takmarkaöa þýöingu nema raun- verulegur vilji til breytinga sé fyrir hendi. • Umræðu frestað — samkomulags leitað Geir Hallgrímsson, forsæt isráðherra, sagöi m.a., aö hann heföi óskaö þess við forseta s.þ., • Geir: Stjórnarand- staöan ýtti hægt á eftir. • Eliert: Stjórnar- skrárnefnd óstarfhæf. • Karvei: Ekki viö einn mann að sakast. • Benedikt: Utanpings- nefnd í málið. • Magnús Torfi: Tillaga allsherjarnefndar rangtúlkuð. • Jón Ármann: Það Þarf viija ekki síður en nýja nefnd. • Olafur: Hér á aö starfa Þing í einni málstofu. aö umræðu um tillögu þess yröi ekki lokið nú, heldur frestaö, til þess að leita enn samstööu formanna þingfiokka um, hvern veg mætti taka á endurskoðun stjórnarskrár og skyldum málum. í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar hefði ekki veriö kveðið á um, hvenær endurskoðun stjórnarskrár skyldi lokiö. Þaö hefði ekki veriö gert í Ijósi þess, hve viðamikið verkið væri og hvern tíma þaö heföi tekið í fyrri meðferð. Mér uröu þaö vonbrigði, hve störf gengu hægt í þessu máli. Fulltrúar voru tilnefndir til viöræöna snemma þings af hálfu beggja stjórnarflokkanna. Vera má að þessar viðræður hafi ekki oröiö eins ítarlegar og æski- legt hefði verið. En þá er einnig við þá aö sakast, sem tilnefndir voru af stjórnarandstööu, og ekki hafa haft sig mikið í frammi fyrr en þá síöla þings. Ég fer fram á umbeöinn frest til að láta enn á þaö reyna, hvort samstaöa geti tekizt milli þing- flokka um mál þetta. • Deildaskipting pings úrelt Olafur Jóhannesson, dóms málaráöherra, sagöist enn sömu skoöunar og á sl. hausti, varöandi endurbætur á kjördæmaskipan eöa kosningafyrirkomulagi. Sá landshluti, sem safnað hefur til sín miklum mannfjölda, á suðvestur- horni landsins, verður aö fá fleiri fulltrúa. Meö hvaöa hætti þaö á aö vera er ekki einfalt mál. E.t.v. er einfaldast aö færa þá uppbótar- þingmenn til þessara kjördæma, sem nú ná kjöri á hlutfalli. Hins vegar er ekki hægt aö koma aftan aö mönnum og flokkum nú, þegar búiö er aö ganga frá framboöum, víöa með prófkjörum, miöaö viö gildandi kosningareglur. Ól. J. kvaöst ekki kasta steini aö stjórnarskrárnefnd. Hið rétta væri aö stjórnmálaflokkarnir heföu ekki síður gengiö hægt fram í málinu. Þeir heöu getað ýtt betur á etir. Þetta gilti ekki síður um stjórnar- andstööuflokka en stjórnarflokka. Þeir heföu ekki sýnt mikla ýtni í málinu. Ólafur taldi aö lokum aö breyt- inga væri þörf, bæði á stjórnarskrá og ákvæðum um Alþingi. Deilda- skiptingin heföi gengið sér til húöar. Hér ætti að starfa þing í einni málstofu. 'A þingmanna ætti ekki aö ráða jöfnu og %. Vinnu- brögö, sem rætur ættu í deilda- skiptingu, væru og fyrir neöan allar hellur. Aukning á verðgildi krónunnar: Liður í samvirkum aðgerð- um gegnverðbólguhugarfari Lárus Jónsson (S) bar nýlega íram á Alþingi fyrirspurn til viðskiptaráðherra, svohljóðandii „Hefur ríkisstjórnin til athugunar gjaldmiðilsbreytingu, þannig að verðgildi íslenzkrar krónu hundraðfaldist — í samræmi við þingsályktun, sem vísað var til ríkisstjórn- ar með jákvæðri umsögn á síðasta þingi? Ef svo er, hversu langan tíma tekur að undirbúa gjaldmiðilsbreyt- inguna og hvernig er fyrirhugað, að hún verði framkvæmd.“ Umsögn Seðlabanka Ólafur Jóhannesson, viðskipta- ráðherra, sagði að tillögu Lárusar Jónssonar um þetta efni, sem vísað hefði verið til ríkisstjórnarinnar á sl. vori, hefði verið vísað til umsagnar Seðlabanka Islands í maímánuði 1977. Bráðabirgðasvar hefði borizt 3. apríl sl. Las ráðherra hluta úr þessu svari. Þar kom m.a. fram að í fyrsta lagi getur verið unnt að breyta mynt- kerfinu í ársbyrjun 1980, enda sé ákvörðun tekin um breytinguna í síðasta lagi á næsta hausti. Þar er ennfremur sagt að gjaldmiðils- breyting geti orðið þáttur í heild- arátaki til að draga úr þeirri alvarlegu verðbólgu, sem geisað hafi hér á landi." Síðar, eða 21. apríl sl. hafi síðan borizt viðbótarsvar frá Seðlabank- anum, þar sem m.a. væri sagt: „Vér vísum til bréfs vors frá 3. apríl s.l. vegna fsp. Lárusar Jónssonar alþm. til viðskrh. um hundraðföldun á verðgildi krón- unnar og þeirri grg. bankans um þessi mál, svo og fyrri skýrslur og umr. um mynt- og seðlamál. Hér með sendist yður álitsgerð banka- stjórnar Seðlabankans um endur- skipulagningu seðla og myntút- gáfunnar og hugsanlega aukningu á verðgildi krónunnar. Hefur hún nú verið rædd í bankaráði Seðla- bankans, sem lýst -hefur samþykki sínu á birtingu hennar. Er þar m.a. gerð grein fyrir þeim breyt- ingum, sem óhjákvæmilega verður að gera á seðla- og myntstærðum og sú skoðun látin í ljós, að nú sé rétti tíminn til að taka afstöðu til þess, hvort taka skuli upp nýja mynteiningu. Jafnframt er nokkur grein gerð fyrir hugsanlegri fram- kvæmd gjaldmiðilsbreytingar og lýst þeirri undirbúningsvinnu, sem fram hefur farið til þessa og fylgja till. að úthlutagerð nýrrar mynt- og seðlaraðar. Og þessi skýrsla, sem fylgir með þessu bréfi, er nú nokkuð löng og sé ég mér ekki fært að fara að lesa upp úr henni, enda mun hún verða kynnt af banka- stjórn Seðlabankans einmitt í dag fyrir blaðamönnum og frétta- mönnum frá fjölmiðlum, þannig að ég geri ráð fyrir því, að hv. alþm. eigi kost á því að lesa í blöðum eða heyra í fjölmiðlum á morgun hverjar skoðanir Seðla- bankans eru á þessu máli. Það er ekki hægt að segja, að seðlabanka- stjórnin taki beint afstöðu í þessu til spurningarinnar, heldur er það grg. af hennar hálfu við því hvernig þetta skuli gert, en ákvörðun ekki tekin, enda er það ríkisstj. og Alþ. og löggjafans að taka ákvörðun og málinu vísað þangað. Ég held þó að það fari ekki á milli mála, að það verði að draga þá ályktun af þessari grg. Seðla- bankans, að stjórn hans sé jákvæð í þessu efni.“ Virðingin fyrir krónunni Benedikt Gröndal (A) sagði hugmyndina um að breyta verð- gildi peninga, þar sem erfiðar efnahagsaðstæður og verðbólga hefðu verið fyrir hendi, væri ekki ný. Nefndi hann dæmi um slíkar aðgerðir í Frakklandi og Finn- landi, sem ýmislegt mætti af læra. Til lítils væri þó að hundraðfalda verðgildi krónunnar, ef 30 til 40% verðbólga héldi áfram. Mál væru þó svo alvarleg nú að þjóðin hefði misst verðskyn og virðingu fyrir gjaldmiðli sínum. Þessi breyting gæti því verið til góðs, samhliða öðrum aðgerðum, m.a. til að draga úr hraða verðbólgunnar. Vitnaði BGr til yfirlýsingar Alþýðufl. um markmið og leiðir í efnahagsmál- um, en þar væri eitt af 10 tilgreindum atriðum að „stefna að því að auka verðgildi krónunnar". V orhr einger ning í efnahagsmálum Lárus Jónsson (S) þakkaði svör ráðherra, undirtektir og umsögn Seðlabanka og stuðning formanns Alþýðuflokksins varðandi þetta mál. Bankastjórn Seðlabankans hefði nú tekið eindregnari afstöðu til þessa máls en hún hefði áður haft. Ég hefi lengi verið þeirrar skoðunar, sagði LJ, að þetta geti verið ein af samvirkum aðgerðum, sem grípa þurfi til, til að snúast gegn verðbólguhugarfarinu, sem gripið hefur þjóðina. Fólk virðist ekki gera sér grein fyrir því hversu mun hættulegra það er að búa að meirá en 30% verðbólgu — viðvar- andi — en t.d. 10 til 15%, eins og hún var hér löngum áður. Umrædd aðgerð ein sér dugar e.t.v. skammt. En hún er liður í lækningunni. Til þess að þjóðin geti hafið nýtt og heilbrigðara efnahagslíf þarf að fara fram vorhreingerning í efna- hagsmálum hennar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.