Morgunblaðið - 06.05.1978, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 06.05.1978, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. MAÍ 1978 3 Akureyri: Úrgangsefni frá Sambands- verksmiðjum hindra köfun Akureyri, 5. maí. NÚ UM skeið hefur ailmikið borið á því að ýmiss konar litarefni og einhvers konar kem- ísk efni hafi horizt til sjávar í grennd við athafnasvæði Dráttar- brautar Akureyrar og Slippstöðv- arinnar hf. Ljóst er að efni þessi koma úr skópræsi sem opnast til sjávar fram undan Tryggvábraut og sunnan til við umrætt svæði. Undanfarið hafa menn verið að ganga frá framlengingu dráttar- brautarinnar og þar hefur m.a. þurft að kafa í sjóinn við það verk. Kafarar hafa stundum orðið að hætta vinnu af því að þeir hafa ekki séð handa sinna skil vegna litarefna í sjónum. Þannig hafa dagpartar og jafnvel heilir vinnu- dagar orðið ónýtir. Einnig kvarta kafarar og aðstoðarmenn þeirra undan kláða á höndum og kenna um áhrifum aðskotaefna í sjónum. Nýlega óskaði Jóhann Gauti Gestsson kafari eftir því , við bæjarfógeta að hann léti kanna þessa mengun, hver hún væri, hvaðan hún stafaði og hvort eða 8. þing málm- og skipasmiða ÁTTUNDA þing Málm- og skipa- smiðasambands Islands hófst í gærmorgun í Félagsheimili Kópa- vogs, en slík þing eru haldin á 2ja ára fresti. Þingið sitja um 80 fulltrúar frá 19 félögum víðs vegar um land. Samkvæmt upplýsingum Guð- jóns Jónssonar, formanns Félags járniðnaðarmanna mun þingið standa um helgina. Helztu mál, sem til umræðu verða, eru kjara- málin, vinnuverndarmál, fræðslu- mál sambandsins og lífeyrissjóða- mál. Þá verður og fjallað um reikninga sambandsins o.fl. Stefnir syng- ur í Egilsbúð KARLAKÓRINN Stefnir í Mos- fellssveit heldur tónleika í Egils- búð í kvöld klukkan 20.30. Stjórn- andi kórsins er Lárus Sveinsson. Einsöng syngja Þórður Guð- mundsson og Halldór Vilhelmsson, en undirleikari er Guðni Þ. Guð- mundsson. Að tónleikunum lokn- um verður dansleikur. hvernig ráa mætti bót á ástand- inu. I framhaldi af því hefur farið fram athugun á mengun þessari á vegum bæjarfógetaembættisins en þó hefur efnagreining sýna ekki farið fram enn sem koniið er. Þó þykir augljóst að efni þessi munu vera komin frá verksmiðjum SIS og þá helzt frá skinnaverksmiðj- unni Iðunni, Ullarverksmiðjunni Gefjun og ullarþvottastöðinni. Hér mun einkum vera um að ræða litarefni með ýmsum lit. Einnig gætir skolvatns frá ullar- og gæruþvotti í verksmiðjunum en í vatninu eru m.a. sódi og bleyting- arefni (klór) sem þaðan kemur nær daglega og hefur svo verið órum saman. Hér eru svipuð efni á ferðinni og koma frá flestum heimilum en i miklu meira magni. Annars er ekki búið að kanna til fulls hvort um einhver fleiri efni 1 sé að ræða. Fyrir skömmu var garðurinn \ norðan við Dráttarbrautina lengd- ur að mun til austurs og það hafði þau áhrif að það sem berst til sjávar með skolpræsinu i Tryggva- braut skolast síður burt en áður var og hreinsast oft ekki út í fjörðinn á einu sjávarfalli heldur leggst meðfram fjörunni og helzt þar jafnvel dögum saman með fyrrgreindum afleiðingum, óþæg- indum og vinnutöfum. í viðtali við Mbl. gat Ragnar Ólason verksmiðjustjóri Iðunnar þess, að engin leið væri fyrir forráðamenn verksmiðjanna að draga úr þessu frárennsli efna þaðan, hvað þá að koma í veg fyrir það. Að vísu væri hugsanleg sú lausn að hreinsa allt frárennsli frá verksmiðjunum en bæði væri það of dýrt og tæki mjög langan tíma að koma slíku á. Hins vegar þyrfti að koma skolpleiðslunni þá leið í sjó sem fyrirhugað væri þannig að hún opnaðist í fjörðinn miklu norðar en nú er, þar sem straumur væri mun meiri og sjávarskipti örari. Fyrst þyrfti þó að færa farveg Glerár til norðurs en með því yrði líka núverandi mengunarvanda- mál að mestu eða öllu úr sögunni. Ragnar kvaðst skilja mæta vel að við núverandi aðstæður væri óvinnandi við köfun í námunda við op skolpleiðslunnar svo sem í smábátakvínni og við Dráttar- brautina. Hann benti á þá hugsan- legu lausn að meðan nauðsynleg köfunarvinna færi fram yrði skolplögnin leidd út i Glerá, vitaskuld í samráði við heilbrigðis- nefnd. Glerá hefði fyrrum tekið við öllu frárennsli frá verksmiðj- um SIS. Hins vegar væri það mál bæjaryfirvalda en ekki stjórnenda verksmiðjanna að segja fyrir um hvernig eða hvar skólpleiðslur lægju til sjávar. Sv.P. Fjárhags- áætlun Hafn- arhrepps Höfn, Hornafirði 5. maí FJÁRHAGSÁÆTLUN Hafnar- hrepps hefur verið lögð fram og eru áætlaðar tekjur 243 milljónir króna. Helztu tekjuliðir eru útsvör og fasteignagjöld 194 millj. kr. Til verkiegra framkvæmda er áætlað að verja 50 milljónum, til bygg- inga við gagnfræðaskóla og dag- heimili 40 milljónir, til heilbrigðis- og félagsmála eru áætlaðar 29 milljónir og til fræðslumála 25 milljónir. Kostnaður við sveitar- stjórn er áætlaður 17 milljónir króna. Yms lögboðin gjöld eru 25 milljónir og vextir og afborganir lána 50 milljónir króna. Tekjur og gjöld vatnsveitu eru áætluð 42 milljónir króna og hafnarsjóðs 53 millj. kr. Gunnar AUGLYSINGASIMINN ER: 224BD Jti«r0uitblnbib R:@ Aðalfundur og fyrirlestur Fé- lags áhugamanna um heimspeki AÐALFUNDUR Félags áhuga- manna um heimspeki verður hald- inn næstkomandi sunnudag 7. maí 1978, kl. 14:30 í Lögbergi, húsi Lagadeildar H.í. Á dagskrá fundarins eru meðal annars tillög- ur um breytingar á lögum félags- ins, kjör nýrra manna í stjórn, o.fl. Félagar eru hvattir til að fjöl- menna. Síðasti reglulegi fyrirlestur vetrarins verður sunnudaginn 28. maí, kl. 14:30 í Lögbergi. Vilhjálm- ur Árnason flytur erindi sem hann nefnir „Siðfræði Jean-Paul Sartres". Að erindi hans loknu verða frjálsar umræður og fyrir- spurnir. Fundurinn er öllum opinn og skráðir verða nýir félagar. (Frá Félagi áhugamanna um heimspeki). Hötel Sögu sunnudaginn 7. maí Húsiö opnaö kl. 19.00. Samkoman hefst meö glæsilegri matar- veislu í herragarösstíl. Grísasteikur, kjúklingar o.fl. góögæti. Veislumaturinn kostar aöeins 2.850.- TISKUSYNING ítalska tískan frá MOONS, sýningarfólk frá KARON UNGFRÚ REYKJAVIK 1978 Dóra Björk, hin nýkjörna feguröar- drottning Reykjavíkur kemur fram og sýnir tískufatnaö. DANSSÝNING Heiöar Ástvaldsson stjórnar skerr\mti- legri sýningu nokkurra valdra nemenda úr skóla sínum. FERÐAFRETTIR Sagt frá mörgum spennandi feröa- möguleikum sem bjóöast í sumar á vegum SUNNU. Hagstæöustu feröakjörin kynnt. s? m YOUNG LOVE Frábær dans- og söngvaflokkur skemmtir. HAPPDRÆTTI Samkomugestir, sem mæta fyrir kl. 20.00 fá ókeypis happdrættismiöa þar sem vinningur er ferö til COSTA DEL SOL 13/5 með dvöl í hinum glæsilegu lúxusíbúðum PLAYAMAR. Vinnings- hafi má taka meö sér gest, frítt, á kostnað SUNNU. FERÐABINGO Vinningar, 3 sólarlandaferöir eftir frjálsu vali með flugi SUNNU til 8 eftirsóttra sólarstaöa. crrtecr Munið að þessi glæsilegi, ítalski sportbíll er aukavinningur vetrarins á Sunnukvöldum. DANSAÐ TIL KL.1 Hljómsveit Ragnars Bjarnasonar og Þuríður leika og syngja m.a. vin- sælustu lögin frá Spáni. PANTIÐ BORÐ Athugiö aö gleyma ekki aö panta borö tímanlega, því Sunnukvöld eru vinsæl og fjölsótt. Missið ekki af góöri og ódýrri skemmtun. Boröapantanir hjá yfirþjóni eftir kl. 16.00 í síma 20221.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.