Morgunblaðið - 06.05.1978, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 06.05.1978, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. MAÍ 1978 Þrjú tilboð í Laugaveg 1 Margir sýna áhuga á Fjalakettinum I>RÍR aðilar hafa nú sent tilboð í húseijínirnar við Laugaveg 1 í Reykjavík, cn þær voru auglýstar til sölu fyrir skömmu. í núvcr- andi húsakynnum er verzlunin Vísir. skóverzlunin Laugavegi 1 <>K fleiri fyrirtæki. Óskar Kristj- ánsson hjá fasteixnasöiunni i' Akranesi 5. maí. ÞAÐ berast nú fleiri fisktegundir til Akraness en áður. Togarinn Óskar Magnússon AK 177 kom inn í gær með 157 lesta afla, mest- megnis þorsk og ýsu, karfabland- aðan. Vélskipið Árni Sigurður AK 370 var einnig í höfn með 90 lestir af spaerlingi, sem fer til vinnslu í Síldar- og fiskimjölsverksmiðj- unni, og loks kemur v/s Víkingur AK 100 með til hafnar á hádegi á morgun af Faereyjamiðum með um 950 lestir af kolmunna, en þetta er fyrsta kolmunnaveiðiferð skipsins ASÍ og vinnu- veitendur: Næsti fundur á föstudag FYRSTI samningafundur milli Alþýðusambands íslands annars vegar og Vinnuveitendasambands Islands og Vinnumálasambands samvinnufélaganna hins vegar var haldinn hjá sáttasemjara ríkisins í gaerdag. Fátt tíðinda gerðist á fundinum, en menn skiptust á skoðunum og lýstu viðhorfum sínum fyrir sáttasemjara. Næsti fundur er boðaður eftir viku, föstudaginn 12. maí, klukkan 14. Ákveðið var að fundurinn yrði ekki fyrr en að viku liðinni, m.a. vegna þess að fulltrúar Verka- mannasambands íslands og vinnu- veitenda hittast á mánudag klukk- an 14. Þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag stendur svo yfir í Reykjavík aðalfundur Vinnuveit- endasambands Islands og verður því sambandið ekki í stakk búið til þess að sækja sáttafundi á meðan. Ferming á morgun Ferming í Stokkseyrarkirkju kl. 2 síðd. Prestur séra Valgeir Ástráösson. Anna Harðardóttir, Holti. Anna Dóra Pélsdóttir, Móhúsum. Einar Jóelsson, Sslundi. Gunnar Maxnússon. Hátúni. Hjördís Rögnvaldsdóttir. Bláskógum. Jóhanna Katrín Vernharðsdóttir, Holti. Jónína Sesselja Jónsdóttir, Hcllukoti. Jón Kristinn Hafsteinsson, Silfurtúni. Júlíus Geir Geirsson, Jaðri. Kjartan Jónsson, Fagradal, Kristín Sigurðardóttir* Eyjaseli 10. Ólafur Vixnir Si>{urvinsson. Scvarlandi. Steinar ingi Valdimarsson, Heiðarhvammi. Steinþór Einarsson. Scbenfi- Morgunhlaðshúsinu, sem hefur þessa eign til sölu. kvaðst í gær ekki geta skýrt frá upphæð tilhoðanna. Hins vegar aflaði Morgunblaðið scr þeirra upplýs- inga. að fasteignamat Laugaveg- ar 1 hljóðaði upp á 40—50 millj. kr. á þessu ári. Kolmunninn verður unninn í Síldar- og fiskimjölsverk- smiðjunni. Þessi afli ásamt þorsk- og hrognkelsaaflanum skapar mikla atvinnu hér í bæ. Þar af leiðandi varð t.d. að vinna í frystihúsum á uppstigningardag. Fiskiðjan Artic vinnur kavíar úr grásleppuhrogn- um ásamt öðrum afla. Júlíus. Smokie með 17 tonn af hljóðfærum GENGIÐ hefur verið fram samn- ingum um komu brezku hljóm- sveitarinnar Smokie á Listahátíð í sumar og mun hljómsveitin koma fram á hljómleikum í Laugardals- höll 7. júní. Hljómsveitin mun hafa með sér hljóðfærabúnað sem vegur samtals 17 tonn. Biðskák hjá Friðriki SKÁK Friðriks Ólafssonar og Sovétmannsins Alexandre Panchi- enko í fimmtu umferð skákmóts- ins í Las Palmas í gær fór í bið, og er Friðrik þá með tvo vinninga og biðskák. Miles er efstur með 3 'k vinning og biðskák gegn Medina úr fimmtu umferð. Úrslit í gær: Mariotti vann Garcia, Del Corral og Sax gerðu jafntefli, einnig Vesterinen og Larsen, en Dominques vann Sanz. Skákir Tukmakov og Stean og Rodrigues og Cson fóru í bið auk tveggja áðurnefndra skáka. Miles vann í gær biðskákina við Padron og Rodrigues vann biðskákina við Medina. Næstir Miles eru Tukmakov með 3 vinninga og biðskák og Stean, Sanz, Sax, Corral og Larsen með 3 vinninga, Westerinen og Mariotti hafa 2Vfe vinning hvor, Friðrik 2 og biðskák, Cson og Rodrigues IV2 og biðskák, Padron og Dominguez 1V2 Panchienko 1 og biðskák og Medina ‘/2 vinning og biðskák. 24 árekstrar í Reykjavík TUTTUGU og fjórir árekstrar urðu í Reykjavík í gær. Flestir voru þeir minniháttar en nokkrir mjög harðir. en enginn hlaut alvarleg meiðsl. í Kópavogi urðu fimm árekstr- ar, en enginn hlaut alvarleg meiðsl í þeim. Þá hefur sama fasteignasala ennfremur til sölu húseignina Fjalaköttinn við Bröttugötu. Að sögn Óskars rennur tilboðsfrestur úr 10. maí n.k. og kvað hann nokkra aðila hafa spurst fyrir um eignina. Fasteignamat Fjalakattarins og lóðarinnar, sem húsið stendur á, er nú 92 milljónir króna. Margir hafa sýnt áhuga á að húsið yrði friðað, en samkvæmt því sem Morg- unblaðinu var tjáð þarf það 80% endurnýjunar við, ef það á að standa áfram. — Þinglausnir Framhald af bls. 48 sögu. Síðan mælti Lárus Jóns- son fyrir áliti meirihluta alls- herjarnefndar um íslenzka stafsetningu, sem leggur til að tillagan verði samþykkt og Magnús Torfi Ölafsson mælti fyrir áliti minnihlutans, sem mælir gegn tillögunni. Forseti frestaði svo umræðum um málið, um klukkan 22:30, en nokkrir þingmenn voru á mælendaskrá. Gunnar Thoroddsen, iðnaðarráðherra, flutti svo skýrslu um Kröflu- virkjun og var búist við að umræður stæðu fram á nótt og jafnvel fram undir morgun. Fjölmargir áheyrendur mættu á þingpalla í gærkvöldi. — Sovézkur... Framhald af bls. 2 flutninga bæði til flokka og fyrirtækja, sem þeim væru hlið- holl. Sighvatur Björgvinsson vitn- aði til annarar bókar, sem rituð væri af fyrrverandi kommúnista, sem lýsti kerfi Sovétr.'kjanna og hvernig fjármagn streymdi eftir því til afla, sem þau teldu sér vinveitt. í þessu sambandi kvað hann þennan fyrrverandi kommúnista hafa minnst á Island og sagði að í því sambandi hefði hann minnst á íslenzkt skipafélag, sem komið hefði sérstaklega við sögu þessara fjármagnsflutninga hingað. — Fimmtungur Framhald af bls. 48 ur fyrirtækjanna hefði reynzt greiða samkvæmt samningum laun og að í gær hefði það verið um fimmtungur fyrirtækjanna. Davíð sagðist ekki þekkja neitt dæmi þess, að iðnrekendur greiddu samkvæmt samningum og tækju ekki tillit til laga ríkisstjórnarinn- ar. Hann kvaðst hins vegar ekki efast um að Bjarni færi með rétt mál, en hann taldi að 20% fyrirtækjanna segðu ekki alla söguna — spurningin væri, hve stór eru fyrirtækin. Ef hér væri um að ræða fyrirtæki með fáa starfsmenn, þá væri hér að sjálf- sögðu ekki um að ræða 20% eða 33% af iðnaðinum. „Mér detta í hug mjög lítil fyrirtæki, þar sem eru mjög fáir starfsmenn, sem vinna með eiganda," sagði Davíð Scheving og bætti við að öll stærstu fyrirtækin, Álafoss, Kassagerðin, Hampiðjan, Johnson & Kaaber, Vífilfell, Smjörlíki, Egill Skallagrímsson o.fl., greiddu öll samkvæmt lögunum. Fyrirtæki með tveimur til þremur sauma- konum teldist eitt fyrirtæki eins og Kassagerðin með tugum og hundruðum starfsmanna. — Tel tjónið Framhald af bls. 48 tjónið af eldsvoðanúm á milli 5 og 600 milljónir króna." Haraldur sagði, að í næstu viku yrðu teknar ákvarðanir um viðgerð á skipinu, en ljóst væri að útgerðin þyrfti að verða sér úti um annað skip, þar sem Breki yrði frá fram undir áramót. Haraldur sagði, að honum virtist sem forlestin og fram- partur skipsins væru í lagi og að menn teldu að vélarrúmið hefði sloppið og afturlestin ekki Akranes: Víkingur væntanlegur með 950 lestir af kolmunna farið illa. Hins vegar væri millidekk, íbúðir og brú „allt í flaki". — Blaðaútgáfa Framhald af bls. 48 væntanlegra laga, sem var: „Bann við fjárhagslegum stuðningi erlendra aðila við íslenzka stjórn- málaflokka" og vildu þar við láta bætast: „og blaðaútgáfu erlendra sendiráða á Islandi." Breytingartillaga þessi var sam- þykkt í gær með 26 samhljóða atkvæðum og frumvarpið þannig með áorðnum breýtingum sent aftur til efri deildar. Verði frumvarpið að lögum, sem allt benti til í gærkveldi, hafa lögin þau áhrif að t.d. blað eins og Fréttir frá Sovétríkjunum, sem gefnar hafa verið út á kostnað sovézka sendiráðsins, verður bann- að með lögum þessum. - Brezhnev í Bonn Framhald af bls. 1. og fremst fjallað um afvopnunar- mál á fundunum, en einnig um gagnkvæm samskipti V-Þýzka- lands og Sovétríkjanna og málefni Berlínar. Leiðtogarnir tveir munu á morgun undirrita 25 ára sam- starfssamning á sviði viðskipta og iðnaðar og að því búnu halda til Hamborgar á heimaslóðir Schmidts og eiga þar enn formleg- ár vlðræður. Brezhnev hefur einnig átt við- ræður við Scheel forseta V-Þýzka- lands og aðra ráðamenn, en Andrei Gromyko utanríkisráð- herra sem með er í förinni hefur rætt við Genscher kollega sinn. Á leið Brezhnevs til fundar við Scheel bar það við að hjólbarði sprakk á brynvarinni bifreið Brezhnev þar sem ekið var á 120 kílómetra hraða eftir hraðbraut. Engan sakaði, en ýmsum varð að sögn bilt við. Brezhnev hélt áfram ferð sinni í varabíl sem hafður var meðferðis. Rússneski ballettdansarinn Rudolf Nureyev hefur skrifað Brezhnev opið bréf, þar sem farið er fram á heimild fyrir móður Nureyevs til að heimsækja son sinn á Vesturlöndum. Bréfið er birt í blaðinu Hamburger Abend- blatt og þar segir Nureyev að móðir sín hafi árangurslaust í 16 ár reynt að fá leyfi til að heimsækja sig og hún sé nú 74 ára gömul og eigi e.t.v. skammt eftir ólifað. Skorar dansarinn á Brezhn- ev að beita sér fyrir því að gamla konan fái að hitta son sinn á ný. — Vítir Hattersley Framhald af bls. 1. þeirra var skyndilega útilokaður frá þessum fiskimiðum," heldur skýrslan áfram. í skýrslu nefndarinnar er utanríkisráðuneytið einnig gagnrýnt og sagt að lengi hafi litill skilningur ríkt þar á fiskverndunarmálum. Einnig fær Efnahagsbandalagið (EBE) sinn skerf og segir skýrslan, að árangur sameiginlegrar fisk- veiðistefnu bandalagsins hafi ekki verið nokkur fyrir Breta og brezkur fiskiðnaður ekki orðið að bættari. Þingnefndin segir að brezka sendinefndin á Hafréttarráð- stefnu Sameinuðu þjóðanna hafi á fundum ráðstefnunnar verið framan af um of upptekin af að viðhalda ákvæðum um frelsi til siglinga í gegnum innhöf og á úthöfunum. „Afleiðingin var sú að fulltrúar okkar gerðu sér ekki fyrr en seint og síðar meir grein fyrir vaxandi pólitísku fylgi við 200 sjómílna einkafisk- veiðilögsögu, sem Chile, Perú og Equador tóku sér fyrst árið 1952. Ef stjórnin hefði í tíma gert sér ljóst mikilvægi afstöðunnar til einkafiskveiðilögsögu í stað þess að berjast gegn henni fram til 1975, þá hefðum við líklegast komið betur út gagnvart þeim ákvæðum sameigirlegíar fisk- veiðistefnu EBE sem kveða á um fiskveiðifrelsi bandalags- ríkjanna þegar lagður var grunnur að fiskveiðistefnu bandalagsins 1970—72,“ segir skýrslan. Loks segir í skýrslunni að samkvæmt vitnisburði Davids Owens, þáverandi varautanrík- isráðherra, virðist utanríkis- ráðuneytið hafa „lært af afstöðu samningamanna þess gagnvart Islendingunum". — Greinargerð Framhald af bls. 21 tryggjendur, enda gerir útgerðar- félag Rauðanúps sér fyllilega grein fyrir, að tjónsbætur geta ekki farið fram úr lægsta tilboðsverði. Öllum fullyrðingum um, að Almennar Tryggingar h.f., hafi beitt blekkingum eða að einhver annarleg sjónarmið hafi ráðið varðandi ofangreinda ákvörðun er algjörlega vísað til föðurhúsanna þ.e. forystumanns Félags járniðn- aðarmanna, sem með athöfnum sínum og þeim ólögmætu aðgerð- um sem af þeim leiddu, hefur valdið mörgum aðilum miklu tjóni og sem sárast hlýtur þó að bitna á Raufarhafnarbúum, sem byggja afkomu sína á útgerð Rauðanúps. Að lokum skal ítrekað, að íslenzkir vátryggjendur vilja veg innlends skipasmíðaiðnaðar hinn mestan, og um langan aldur hafa þessir aðilar haft mikil og góð samskipti sín á milli og munu að sjálfsögðu eiga það í framtíðinni, en þá kröfu verður að gera til þessarar atvinnugreinar, að hún sé fyllilega samkeppnisfær við er- lenda aðila, hvað verð og viðgerð- artíma skipa áhrærir, en vátryggj- endur munu alltaf leita eftir hagstæðustu fáanlegu tilboðum vegna viðgerða, enda ber þeim það samkvæmt vátryggingarskilmál- um og góðri vátryggingahefð. Reykjavík 5. maí 1978. Baldvin Einarsson. — Minning Guðmundur Framhald af bls. 36. reyndi af fremsta megni að hegða sér samkvæmt því. Þegar ég lít til baka og hugsa um kynni okkar Guðmundar, þá get ég með sanni sagt það, að þau voru sérlega góð. Hann var mjög hlédrægur, tranaði sér hvergi fram, en var skýr í hugsun og vildi alltaf fylgja sinni bestu sannfær- ingu í einu og öllu. Ég vil bæta því við, að öll framkoma Guðmundar var sann- arlega eftirbreytniverð. Þeir sem Guðirnir elska verða sjaldan langlífir. Við sem næst stóðum Guðmundi söknum hans sárt. Far þú í friði, hafðu þökk fyrir allt og allt. Björn Vigfússon. — Deilur í borgarstjórn Framhald af bls. 35 þessari skipulagstillögu styddi hann hana eindregið. Björgvin Guðmundsson (A) tók næst tii máls og sagði, að nú væri heimilisfriðurinn úti hjá Sjálf- stæðisflokknum því Magnús L. Sveinsson og Ragnar Júlíusson væru farnir í hár saman. Björgvin sagðist fylgjandi, að gerð yrði smábátahöfn, því það væri í raun ámælisvert, að hún væri ekki til. Enginn ágreiningur væri um, að skapa þyrfti aðstöðuna. Björgvin sagðist telja, að þetta væri mikið slys og ráðleysi til lengdar. Eftir þessar löngu umræður voru síðan greidd atkvæði og fór fram nafna- kall. Já sögðu: Álfreð Þorsteins- son, Birgir Isleifur Gunnarsson, Valgarð Briem, Elín Pálmadóttir, Magnús L. Sveinsson, Markús Örn Antonssqn, Sveinn Björnsson kaupm., Úlfar Þórðarson og Albert Guðmundsson. Nei sögðu: Kristján Benediktsson, Ragnar Júlíusson, Sigurjón Pétursson, Þorbjörn Broddason og Adda Bára Sigfús- dóttir. Björgvin Guðmundsson sat hjá.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.