Morgunblaðið - 06.05.1978, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 06.05.1978, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. MAÍ 1978 Deilur í borgarstjórn um smábátahöfn í Elliðavogi: Siglingaijirótt nýtur vaxandi vinsælda komið til móts við stóran hóps fólks - segir Markús Orn — Mistök -segir Ragnar Júlíusson — Onnur verkefni þarfari -segir Sigurjón Pétursson Á FUNDI borgarstjórnar 27. apríl urðu þriggja klukkustunda langar um- ræður vegna skipulagstil- lögu að smábátahöfn í Elliðavogi. Voru borgarfull* trúar hvassyrtir í ræðum sfnum. Á áheyrendapöllum borgarstjórnarsalarins voru smábátaeigendur mættir, varð þar nokkuð þröngt á tímabili. Borgarráð samþykkti á fundi sínum 25. apríl skipu- lagstillöguna með þremur atkvæðum gegn tveim og bætti þar við, 1. Þar sem 80% af laxagöngum í Elliða- árnar fara fram í júlímán- uði er áskilinn réttur til fyrirvaralausrar takmörk- unar á notkun smábátahafn- arinnar í þeim mánuði. Borgarverkfræðingi í sam- ráði við fiskiræktarfulltrúa er falin framkvæmd slíkra takmarkana. 2. Reykjavík- urborg verði falin umsjón og eftirlit með umgengni smá- bátaeigenda bæði á sjó og landi. Markús Örn Antonsson (S) kvaddi sér fyrstur hljóðs vegna málsins og sagði þetta mál vera sennilega betur kannað en vel flest mál sem komið hefðu fyrir borgar- stjórn. Leitað hefði verið álits erlendra sérfræðinga, sem hefði í heild reynst jákvætt. Markús Örn sagði, að menn hefðu staldrað við, hvort ekki væru aðrir möguleikar á staðsetningu hafnarinnar en í Elliðavogi, svo sem í Skerjafirði hvar öflug siglingaíþrótt væri stunduð. En sá galli væri á þeim þætti, að þar væru fyrir seglbátar og gæti verið slysahætta ef vélbátar yrðu settir innan um þá. Markús Örn sagði, að einnig hefði verið rætt um Eiðsvík en þar yrði mun meiri kostnaður við hafnar- gerðina en í Elliðavogi. Höfnin í Elliðavogi myndi kosta u.þ.b. 96-100 milljónir en höfn í Eiðsvík yrði 40-60 milljónum dýrari. Aug- ljóst væri því, að staðsetning í né þeim hávaða, sem kæmi vegna umferðar um Elliðaárbrúna. Elín Pálmadóttir sagði, að smábáta- höfnin væri ekki stakt mál, heldur yrði það að skoðast í samhengi við Ráðið vill benda á, að þó meira sé vitað um laxagöngur í Elliðaarnar en í nokkra aðra íslenzka á, þá virðist lítið um haldgóðar upplýs- ingar um göngu laxins áður en hann leitar í árnar. Vitað er, að 80% af heildargöngu fer fram í júlímánuði. Er umhverfismálaráð fylgjandi tillögu borgarverkfræð- ings þess efnis, að heimilt sé áð takmarka fyrirvaralaust notkun smábátahafnar í samráði við fiskiræktarfulltrúa meðan laxinn gengur. I framhaldi af ofan- um og reglum um umgengni, sem gert er ráð fyrir í áætluninni, sé ekki skaðlegri laxagöngum eða seiðum en umferð stærri skipa um voginn með vaxandi höfn úti fyrir og þéttbýli í kring, en leggur sem fyrr áherzlu á, að farið sé með gát og cllum fyrrnefndum reglum sé hlýtt um frágang ekki sízt á olíu og um umferð út úr smábátahöfn- inni. Hvetur ráðið til að fylgt sé tillögum borgarverkfræðings um að takmörkuð verði fyrirvaralaust ef þurfa þykir notkun hafnarinnar EUiðavogi væri mun hagstæðari. Borgarfulltrúinn sagði, að því hefði verið haldið fram hve dýrt yrði að setja höfnina upp, en hann kvaðst sannfærður um, að þessi siglingaíþrótt muni njóta vaxandi vinsælda í framtíðinni. Með bygg- ingu smábátahafnar væri komið til móts við stóran hóp fólks, sem ekki væri neinn forréttindahópur heldur almenningur sjálfur. Elín Pálmadóttir formaður umhverfismálaráðs (S) tók næst til máls. Hún sagði, að hér væri til ákvörðunar mál, sem búið væri að vera lengi í umfjöllun í umhverfis- málaráði. Fá mál hefðu fengið meiri athugun, sem reyndar væri ekki undarlegt því öll vildum við halda þeirri perlu sem Elliðaárnar væru. Nú hefði Reykjavíkurhöfn smám saman teygt sig inn Elliða- voginn og inn við Artúnshöfða þar sem laxinn gengi í árnar færu fram allir sementsflutningar til borgarinnar, sanddæluskip væru stöðugt á ferðinni og malbikunar- stöðin væri á bakkanum. Vestan megin við voginn, rétt utan við smábátahafnarsvæðið væri áform- uð skipaviðgerðarstöð og þar skammt frá væru vöruskemmur Sambands ísl. samvinnufélaga, og hún hefði heyrt því fleygt, að þar myndi í framtíðinni um 80% af flutningum Sambandsins fara fram. Það yrði þarna því talsverð skipaumferð hvort sem smábáta- höfnin yrði þarna eða ekki. Enn sem komið væri hefði laxinn ekki látið trufla sig af siglingum skipa aðra umferð fyrir utan. Nú væru um 200 smábátar á hrakhólum og það væri af hinu góða ef Reykvík- ingar gætu haft smábáta sér til ánægju, þetta væri tómstunda- sport sem öll fjölskyldan gæti stundað saman. I skipulagstillögunni væri gert ráð fyrir, að stóru seglbátarnir verði við Geldinganes en þeir litlu á Skerjafirði. Elín sagði, að smábátahöfnin myndi opnast vest- an megin í Elliðavogi við Súðarvog og þeim megin verði siglt út úr henni. Frá mynni ánna yrðu um 200 metrar í höfnina. Hér væri deiluefnið hvort laxinn og seiðin myndu styggjast. Umhverfismála- ráði hefði fundist þess vegna nauðsynlegt að láta kanna málið til hlítar. Borgarfulltrúinn sagðist vilja taka það skýrt fram, að aldrei hefði verið um annað talað, en fara ákaflega varlega í þessu máli. Elín Pálmadóttir vitnaði síðan í fund- argerð umhverfismálaráðs frá 23. nóvember 1977, en þar segir: Umhverfismálaráð vísar í bókun sína í fundargerð ráðsins frá 26. maí 1976. Þar segir: „Umhverfismálaráð telur, að smábátahöfn í Réykjavík geti orðið mikilvægur þáttur í lífi borgarbúa og fari vel saman við aðra útivist á Elliðaársvæðinu. Efasemdir hafa komið fram þess efnis, hvort umferð báta utan við ósa Elliðaánna kynni að styggja laxinn á göngu hans í árnar og telur umhverfismálaráð að sjálf- sagt sé að fara þar af mikilli gát. greindri bókun umhverfismála- ráðs hefur veiði- og fiskiræktar- fulltrúi borgarinnar að beiðni ráðsins aflað upplýsinga og álits erlendra sérfræðinga sem fást við svipuð mál. Hefur hann fengið bréflegar umsagnir frá Frakk- landi, Englandi, Svíþjóð, Finn- landi og Noregi, auk þess sem ráðið hefur fengið afrit af upplýs- ingum, sem smábátafélagið Snar- fari hefur aflað um rannsóknir í Noregi og Bandaríkjunum og sent borgarráði. Þessir aðilar telja flestir, að hætta kunni frekar að stafa af mengun vegna vaxandi umferðar og byggðar en vélaháv- aða, er trufli laxinn á göngu hans, þ.e. þar sem aðstæður eru sam- bærilegar. I framhaldi af því var fiskiræktarfulitrúa falið að annast á þessu vori mælingar á súrefnisá- standi í Elliðavogi og könnun hugsanlegrar olíumengunar. Gefa súrefnismælingar ekki ástæðu til að ætla, að þar sé hætta á ferðum., Vill ráðið benda á, að skolpræsi út í voginn eru ekki síður en bátaumferð varhugaverð með til- liti til súrefnisskorts, er valdið gæti skaða á fiski og seiðum, en að á næsta ári séu' að hefjast framkvæmdir til að leiða skolp- leiðslur úr voginum, sem ættu að bæta ástandið. Þær upplýsingar, sem umhverfismálaráð hefur aflað sér til þessa hafa því ekki breytt þeirri skoðun, sem fram kom í bókun 26.05.76. Telur ráðið, að smábátahöfn 1. áfangi á tilteknum stað og með öllum þeim fyrirvör- í samráði við fiskiræktarfulltrúa á meðan laxinn gengur. Einnig að flýtt verði, svo sem kostur er, því verki að fjarlægja útföll úr botni vogsins. Þá vísar umhverfismála- ráð í umsögn veiðimálastjóra til ráðsins. Þar segir m.a.: „Með byggingu smábátahafnar við Elliðavog verður vafalaust tekin áhætta fyrir laxastofninn í Elliðaánum, sem ekki er auðvelt að gera sér grein fyrir á þessu stigi málsins. Ef ákveðið verður að byggja höfnina verður nauðsyn- legt að fylgja þeim ráðleggingum í áður umræddum bréfum er- lendra aðila um að forðast hvers konar mengun og setja strangar reglur um umferð um voginn meðan á laxagöngum stendur, bæði í og úr sjó. Ennfremur verður nauðsynlegt að fylgjast með hegð- un laxins í Elliðavogi og í ósum Elliöaánna og gera ráðstafanir til að bæta úr, ef vart verður við óheillavænleg áhrif frá rekstri smábátahafnar við voginn." Elín Pálmadóttir kvaðst síðan vilja ítreka, að allt yrði gert til að halda Elliðaánum í sem eðlileg- ústu ástandi. Ragnar Júlíusson (S) tók næst til máls. Hann sagði, að á tímum iðnvæddrar menningar og ört vaxandi stórborgar er það oft á tíðum svo, að náttúran sjálf gleymist, annað hvort af hand- vömm eða með vilja. Hún er kæfð undir steinsteypu eða malbiki svo að lítið verður eftir af fegurð náttúrunnar og landsins gæða Ragnar Júlíusson: Stofnum ekki fjölbrautar- skóla, sem vantar nemendur Nýverið urðu deilur í fræðslu- ráði vegna hugmynda, um að breyta Ármúlaskóla í fjölbrautar- skóla. Á fundi borgarstjórnar 27. apríl kvaddi Þorbjörn Broddason (Ábl) sér hljóðs vegna málsins. Hann sagði alla sammála um, að bæta þurfi úr ástandi á fram- haldsskólastigi í Reykjavík en þrátt fyrir það hefði meirihluti fræðsluráðs ákveðið að bregðast við með því að neita að taka ákvörðun í málinu. Það væri svo, að 56 nemendur í Ármúlaskóla hefðu sent fræðsluráði bréf og spurt það hvað yrði um þá næsta vetur. Þessu bréfi hefði ekki verið svarað skýrt. I bréfi frá mennta- málaráðuneytinu 10. apríl hafi komið fram hugmyndir um, að Ármúlaskóii verði fjölbrautarskóli næsta vetur, Laugalækjarskóli verði með 8. og 9. bekk grunnskóla næstu tvö árin og annað húsa í Laugalækjarskóla verði notað undir Fósturskólann. Þorbjörn gat bókunar, sem hann, Björgvin Guðmundsson og Árni Þórðarson gerðu í fræðslu- ráði en þar segir: „Við áteljum harðlega það ábyrgðarleysi meiri- hluta fræðsluráðs að hafna tillög- um menntamálaráðuneytisins og fræðslustjóra en leggja ekki fram neinar aðrar tillögur. Með þessu móti bregst meirihlutinn gersam- lega skyldum sínum til stefnumót- unar í fræðslumálum í borginni og stefnir í óefni skólastarfi í tveim skólum. Ennfremur lýsum við furðu okkar á því að hunzuð skuli ósk kennara Ármúlaskóla um, að tillögur um afgreiðslu málsins skuli kynntar þeim áður en ákvörðun er tekin." Ragnar Júliusson (S) tók næst til máls og sagði, að um þetta sama leyti sl. vor hefði verið leitað að úrræðum um með hverjum hætti mætti starfrækja nám á nokkrum náms- brautumá framhaldsskólastigi á þeim vetri sem nú er að líða, þar sem ekki voru til lagaákvæði um samrekstur ríkis og sveitarfélaga á því skólastigi. Þannig stóð þá á, að óvenju stór hópur nemenda var að ljúka námi frá grunnskóla eða um 2100 nemendur í Reykjavík einni, þar eð tveir árgangar nemenda 9. og 10. bekkur voru þá að kveðja grunnskólann samtímis en 10. bekkur starfaði þá í síðasta sinn sem kunnugt er. Áætlað var því að verulegur fjöldi nemenda myndi óska eftir innritun á ýmsar brautir framhaldsnáms, sem boðn- ar voru fram til viðbótar mennta- skóla-, iðnskóla og þeim sérskóla- brautum, sem fyrir voru. Sam- starfsnefnd menntamálaráðuneyt- isins og fræðsluráðs var því að leita leiða og vissulega þótti fjölbrautarskólaleiðin koma til greina en nauðsynlega með aðild Iðnskólans ef vel ætti að vera. Á þennan hnút var svo loks höggvið með bréfi ráðherra menntamaála- ráðuneytisins 10. maí 1977. Þar segir m.a. efnislega, að þar sem ekki hafa verið gerðar breytingar á lagaákvæðum um framhaldsnám sé heimilt að starfrækja fram- haldsdeildir við grunnskóla vetur- inn 1977—1978 og að kostnaður við slíkar deildir greiðist samkvæmt lögum um grunnskóla. Ennfremur kemur fram í bréfinu að þess sé að vænta, að fjármálaþáttur fram- haldsskólastigsins verði afgreidd- ur áður en ákvarðanir eru teknar um skólahald á framhaldsskóla- stigi haustið 1978. Ragnar sagði, að við innritun í framhaldsdeildir grunnskóla sl. vor hefðu komið samtals 209 nýnemar á heilsu- gæzlubraut, uppeldisbraut og við- skiptabraut, með gildar einkunnir. Auk þess hefðu tugir nemenda leitað eftir fornámi vegna ófull- nægjandi einkunna. All stór hluti hópsins hefði líka búið utan Reykjavíkur. Nú væri lausn þessa sama vandamáls fyrir næsta skólaár aftur til umræðu og hefði fræðsluráð Reykjavíkur raunar þegar samþykkt eins og hér liggur fyrir í fundargerð þess frá 10. apríl s.l. — hvern hátt það kýs að hafa á. Bókunin í fræðsluráði hljóðaði svo: „Endurskoðað frumvarp til laga um framhaldsskóla sem gert hefir verið ráð fyrir að fram verði lagt á Alþingi hefir ekki enn komið fram og er þess því ekki að vænta að það verði að lögum á þessu þingi. Gera verður því ráð fyrir að næsta skólaár verði ekki við að styðjast neina heildarlöggjöf er taki til þess framhaldsnáms að grunnskóla loknum, er ríki og sveitarfélög reki sameiginlega, og er því grundvöllur óbreyttur frá því var er menntamálaráðuneytið skrifaði bréf sitt 10. maí 1977. Meðan svo er telur fræðsluráð ekki tímabært að breyta rekstrarformi þeirra skóla er hér um ræðir frá því sem var síðastliðið skólaár". í þessvl felast skýr rök sagði Ragn- ar. Það hefur ekkert gerst í málinu á því ári sem liðið er síðan framhaldsdeildir við grunnskóla þóttu skársta lausnin, og hvers vegna að hlaupa þá frá einni bráðabirgðalausninni til annarrar bráðabirgðalausnar spurði Ragn- ar, meðan enginn lagagrundvöllur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.