Morgunblaðið - 06.05.1978, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. MAÍ 1978
5
„Hið myndræna fylg-
ir 1 kjölfarið”
Rabbað við Ragnar Pál á Kjarvalsstöðum
„ÞESSI sýning hefur gengið
geysilega vel og ég er mjög
ánægður með þær góðu viðtökur
sem ég hef fengið, en alls hafa
á 4. þúsund manns séð sýning-
una og allar myndirnar seldust
á fyrsta degi. Liðlega 40 mál-
verk voru til sölu, en um 30
myndir fékk ég að láni til þess
að auka fjölbreytnina. Þær
myndir eru frá síðustu 10 árum,
en nýju myndirnar eru allar frá
Blóm
s.l. ári,“ sagði Ragnar Páll í
samtali við Mbl. um sýningu
sína að Kjarvalsstöðum* en
henni lýkur um helgina.
„Munurinn á þessari sýningu
og síðustu sýningu minni,“ sagði
Ragnar Páll, „er nokkur, en þó
má segja að verkefnavalið sé
svipað, langslag, bátar, blóm og
portrett. Þetta eru myndir frá
ýmsum stöðum á landinu og í
fyrsta sinn sýni ég nú myndir
frá Mývatni, en einnig er
talsvert af nýjum myndum frá
Austfjörðum, Héraði og ná-
grannabyggðum.
Ég var við Mývatn í fyrra-
haust í nokkrar vikur þegar
haustlitaskrúðið var hvað mest,
málaði á daginn og stundaöi
Grjótagjá á nóttinni til þess að
hita mig upp.“
„Jú, ég mála nær eingöngu
núna, rétt gríp í að spila á
gítarinn til þess að hvíla mig.
Það er gott að grípa í hljóðfær-
ið.“
„Ég reikna með að halda
áfram á svipaðri braut. Mann
Ragnar Páll
langar alltaf að gera eitthvað
nýtt og sér til í þeim efnum, en
þegar maður ferðast um landið
og sækir viðfangsefni þá verða
mótívin svo mörg að maður
kemst ekki yfir það sem maður
vildi. Hverju mótívi sem maður
finnur fylgja í rauninni mörg
önnur og helzt vildi maður fara
í allar áttir. Það er svo margt
sem verður alltaf eftir, sérstak-
lega á afskekktu stöðunum, því
þar er margt svo spennandi og
frábrugðið því sem víða þekkist
bæði í landslaginu, stemmning-
unni og mannlífinu. Borgar-
gjörður eystri t.d., trillukarlarn-
ir og mannlífið þar. Maður
verður fyrir svo miklum áhrif-
um á þessum stöðum, og þeir
búa yfir svö miklum andstæðum
í smæð sinni. Þá er t.d.
skemmtilegur munur að mála
uppi á Héraði þar sem víðáttan
Portrett
er svo mikil og svo t.d. niðri á
Seyðisfirði í þessum þrönga
fjallahring þar sem svo margt
minnir á mikil umsvif fyrr og
síðar, gömul hús, síldarlyktin
liggur í loftinu og minnir á
gamla daga í Siglufirði. Það er
svo margt skemmtilegt að skoða
þar, en þannig býr hver staður
yfir sínu og þegar maður gengur
til móts vð þessa staði er erfitt
að vaða frá þeim án þess að hið
myndræna fylgi í kjölfarið." —
- á.j.
Hverfafundir
borgarstjóra
í apríl - maí 1978.
Birgir ísleifur Gunnarsson
borgarstjóri flytur ræðu og
svarar fyrirspurnum fundargesta
Austurbær og Norðurmýri
Hlíða- og Holtahverfi.
Laugardaginn 6. maí kl. 14:30.
Domus Medica — Egilsgötu 3.
Á fundunum verður:
1. Sýning á líkönum og uppdráttum
af ýmsum borgarhverfum og
nýjum byggðasvæðum.
2. Litskuggamyndir af helztu fram-
kvæmdum borgarinnar nú og
að undanförnu.
1
Reykvíkingar —
tökum þátt í
fundum borgarstjóra