Morgunblaðið - 06.05.1978, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. MAÍ 1978
21
Rúmir 3 milljarðar til
fjárfestingarlánasjóða
SKULDABRÉFAKAUP lífeyrissjóðanna af fjárfestingarlánasjóðum
námu á síðasta ári alls 3.091 milljónum króna og var um 50,2%
aukningu að ræða frá árinu 1976, segir í nýútkomnu fréttabréfi
Sambands almennra lífeyrissjóða. Skuldabréfakaupin námu alls 2.058
milljónum króna árið 1976.
1976 % 1977 %
Byggirigarsjóður ríkisins 970 47,1% 983 31,8%
Stofnlánadeild landbúnaðarins 152 7,4% 305 9,9%
Veðdeild Búnaðarb. 60 2,9% 100 3,2%
Verzlunarlánasj. 100 4,9% 160 5,2%
Stofnlánadeild samvinnuf. 8 0,4% 171 5,5%
Veðdeild Iðnaðarb. 25 1,2% 78 2,5%
Framkvæmdasjóður 743 36,1% 1.294 41,9%
2.058 100,0% 3.091 100,0%
yængir ráðgera
Ólafsfjarðarflug
FLUGFÉLAGIÐ Vængir ráðgerir
að hefja fastar flugferðir til
Ólafsfjarðar frá Reykjavík,
þcgar flugvöllurinn á Ólafsfirði
cr tilbúinn, en í frétt félagsins
segir að flugbrautin sé til en
Grímnir sýn-
ir í Kópavogi
Stykkishólmi, 5. maí.
LEIKFÉLAGIÐ Grímnir í
Stykkishólmi sýnir leikritiö
Hlaupvídd sex eftir Sigurð Pálsson
í Kópavogsbíói í dag, laugardaginn
6. maí, og hefst sýningin klukkan
20:30.
Næsta sýning verður á Selfossi
á sunnudag. Leikstjóri er Signý
Pálsdóttir.
Fréttaritari.
Firmakeppni
Fáks í dag
HIN árlega firmakeppni Hesta-
mannafélagsins Fáks verður hald-
in í dag og hefst hún klukkan 3 á
félagssvæði Fáks að Víðivöllum.
Um 150 fyrirtæki eru skráð til
keppninnar og er aðgangur að
henni ókeypis segir í frétt frá
Hestamannafélaginu Fáki.
ólokið sé ýmsum öðrum þáttum.
Þá hafa Vængir fjölgað ferðum
til Siglufjarðar og eru þær nú
daglega.
Vængir fljúga nú fastar ferðr til
14 staða. Til Mývatns verður flogið
daglega frá og með 1. júní, en tvær
ferðir kvölds og morgna verða
þangað um helgar í sumar.
Ferðum til Blönduóss hefur
fjölgað um eina á viku hverri og
verða nú alls fimm ferðir þangað
í sumar.
Flugvélakostur Vængja h.f. í
sumar, verða tvær TWIN OTTER
skrúfuþotur og tvær ISLANDER,
tveggja hreyfla vélar, en auk þess
ræður félagið yfir smærri vélum í
leiguflug.
Vængir h.f. fljúga reglubundið
flug til Bíldudals, Blönduóss,
Búðardals, Flateyrar, Gjögurs,
Grundarfjarðar, Hólmavíkur,
Múvatns, Reykhóla, Siglufjarðar,
Stykkishólms, Suðureyrar, Ólafs-
víkur og Hellissands
Búið í haginn
fyrir kríuna í
T j arnarhólmanum
UNDANFARNA tvo daga hafa
starfsmenn borgarinnar verið
að búa í haginn fyrir kríuna í
Tjarnarhólmanum, en fyrstu
kríurnar sáust á uppstigningar-
dag og fleiri í gær, Þeir þrífa
þá illgresi úr hólmanum og setja
í hann sand og torf, eftir því
sem best hentar kríunni. Fyrir
nokkrum árum var varpið alveg
að hverfa úr hólmanum, enda þá
orðið of mikið gras og gróður
fyrir hreiðrin. Var þá farið að
reyna að búa kríunni betri
bústað og laða hana aftur að, og
er það nú gert á hverju vori.
Kríuvarpið hefur nú í tvö ár
heppnast vel. Voru 102 hreiður
þar í fyrra og ungunum farnaö-
ist sæmilega vel.
Æðarfuglinn heldur áfram að
fjölga þar líka og voru í fyrra 44
hreiður, hafði fjölgað um 15 frá
fyrra ári. Var æður búin að
verpa í eitt hreiður í gær.
Gengur æðarbúskapur Reykvík-
inga svo vel í Tjarnarhólmanum
að hinn bjartsýni garðyrkju-
stjóri, sem hefur umsjón með
Tjörninni hefur látið í ljós vonir
um að með sama áframhaldi
megi reikna með að dúntekja
geti borið uppi kostnað við
Tjörnina árið 2000. Ennþá þarf
samt að verja varpið fyrir
vargfugli, og hefur verið sett
upp fluglahræða i hólmanum —
dauður svartbakur. Myndirnar
tók Friðþjófur í gær í Tjarnar-
hólmanum.
Greinargerð frá Almennum trygging-
um vegna strands b.v. Rauðanúps
Kaffisala
í Lindarbæ
KVENNADEILD Borgfirðinga-
félagsins heldur sína árlegu kaffi-
sölu á morgun í Lindabæ frá
klukkan 14—18. Kvennadeildin
hefur nú starfað í 14 ár og hafa
menningar- og iíknarmál verið
efst á dagskrá félagsins segir í
frétt frá félaginu. Auk kaffisöl-
unnar verður skyndihappdrætti.
Fyrirtœki Tilboð
Aœtlaöur
kostn.
bráöab.
Togarinn Rauðinúpur strandaði
við Deildarárós 12. apríl s.l.
Björgunaraðgerðir hófust þegar og
um 16 klst. eftir að skipið strand-
aði, tókst að draga það á flot. Var
það dregið að bryggju á Raufar-
höfn. 13. apríl var haft samband
við Slippstöðina á Akureyri og
óskað eftir að skipið yrði tekið þar
í slipp. Það reyndist ekki unnt, þar
sem slippurinn var lokaður næstu
3 vikur vegna viðgerðar. Útgerðar-
félag skipsins lagði mjög þunga
áherzlu á að viðgerð yrði hraðað
sem mest og fékkst heimild hjá
flokkunarfélagi skipsins (Lloyd's
Register of Shipping) til að draga
það til Reykjavíkur. Skipið kom til
B/V Rauöinúpur ÞH 160.
Saraanburöur á tilboðum
Aœtlaður Viögeröar- AœtXaöur
kostn.
Reykjavíkur aðfararnótt 18. apríl,
en þá þurfti að gera vissar
ráðstafanir vegna hættu á olíu-
mengun. Skipið var síðan tekið
upp í slipp eftir hádegi 19. apríl.
Fljótlega eftir strandið höfðu
ýmsir aðilar, innlendir og erlendir,
samband við félagið, um að fá að
gera tilboð í viðgerð á skipinu.
Vegna þeirrar miklu áherzlu, sem
útgerðarfélagið lagði á það, að
viðgerð tæki sem stytztan tíma,
var ákveðið að gefa mjög skamm-
an frest til að skila tilboðum.
Þessum aðilum var því tilkynnt, að
tilboðum skyldi skila til Ragnars
Bjarnasonar, skipaskoðunar-
manns, fyrir kl. 15.00 fimmtudag-
tírai
bráðab.
tími
við
Aætlaöur
viðbótar-
tími, vegna
Samtals
dagar
Heildar-
upphæö
I Stálvík og kr. 54.500.000 kr. 1.500.000 3 dagar 4 vinnu- vikur kr. * 300.000 1 dagur 32 kr. 1 56.300.000 1
Hörður hf. og Suöa hf. kr. ' 44.406.100 kr. 1.500.000 3 dagar 6 vinnu- vikur kr. 300.000 1 dagur 46 kr. 46.206.100
Stálsmiöjan hf. og fl. kr. 52.000.000 7 vinnh- vikur 49 kr. 52.000.000
H.V.0, Holland ca. kr. 31.900.000 kr 1Í500.000 3 dagar vinnu- vikur 4.2 kr. 13.500.000 12 dagar 44.5 ca. kr. 46.900.000
Swan Hunter EngHand ca. kr. 30.500.000 kr. 1.500.000 3 dagar 3 vinnu- vikur kr. 10.500.000 10 dagar 34 kr. 42.500.000.-
Swan Hunter miðaö við Stálvík og fl., mismunur ca. kr. 13.800.000, Stálvík 2 dögum skemúr
Swan Hunter miðað viö Höröur og fl., mismunur ca. kr. 3.706.100, Swan Hunter 12 dögum skemur
Swan Hunter miöaö viö Stálsm. og fl. mismunur ca. kr. 9.500.000, Swan Hunter 15 dögum skemur
Swan Hunter miöaö við H.V.0. Holland mismunur ca. kr. 4.400.000, Swan Hunter 10,5 dögum skemur ca.
inn 20. apríl.* Er skipið var tekið
upp, voru mættir fulltrúar nokk-
urra viðgerðaraðila og hófu þeir
þegar skoðun á sjáanlegum
skemmdum, en við þær átti að
miða tilboðin.
Þrjú tilboð bárust fyrir lok
frestsins, eitt innlent og tvö
erlend. Sameiginlegt tilboð frá
Stálvík, Skipasmíðastöð Njarðvík-
ur, Bátalóni og Dröfn, er hljóðaði
upp á kr. 111.000.000.- eitt hundr-
að og ellefu milljónir — og 7
vinnuvikur. Tilboð frá H.V.O.
Hollandi hljóðaði upp á kr.
31.900.000.- þrjátíu og ein milljón
og níu hundruð þúsund — og
rúmar 4 vinnuvikur. Tilboð frá
Swan Hunter, Englandi, hljóðaði
upp á kr. 30.500.000,- þrjátíu:
milljónir og fimm hundruð þúsund
— og 3 vinnuvikur.
Var þegar ákveðið að þétta
skipið til siglingar og áætlaði
Ragnar Bjarnason að það tæki
2'/2-3 daga. Hófst það verk að
morgni laugardagsins 22. apríl.
Um hádegi þann dag var vinna við
viðgerðina stöðvuð af Guðjóni
Jónssyni, formanni Félags járn-
iðnaðarmanna, á þeim forsendum,
að innlendum aðilum hefði ekki
gefist sama tækifæri að gerá
tilboð í verkið og erlendum aðilum.
Má það heita furðuleg og óskiljan-
leg athugasemd, þar sem allir
höfðu sama tækifæri til að vera
við, þegar skipið var tekið í slipp
og sama tímafrest. Innlendir
aðilar hljóta að hafa betri aðstöðu
til að vinna slík tilboð hér, en
erlendir aðilar, sem dvelja á
hótelum. Hins vegar má ætla, að
hinir erlendu aðilar hafi mun
meiri reynslu í gerð tilboða á
þessum grundvelli. Var því ákveð-
ið, að gefa bjóðendum tækifæri til
að endurskoða tilboð sín, svo og að
gefa nýjum aðilum kost á að gera
tilboð. Var frestur gefinn til kl.
10.00 þriðjudaginn 25. apríl. Bár-
ust þá eftirfarandi fimm tilboð
(sjá töflu).
Samanburður á tilboðsverðum,
vinnuvikum og fyrirsjáanlegum
aukakostnaði var gerður af Ragn-
ari Bjarnasyni og sýnir hann
ótvírætt að tilboð frá Swan
Hunter, Englandi var hagstæðast.
Tekið skal fram, að gert er ráð
fyrir, að heimsigling skipsins frá
Énglandi til Raufarhafnar taki 3
sólarhringa, en sé viðgerð fram-
kvæmd hér, þarf skipið allt að einu
að sigla til Raufarhafnar, að
viðgerð lokinni, en sú sigling tekur
um 1V4 sólarhring. Þá skal tekið
fram, að vátryggjandi verður að
greiða mannhaldskostnað, sem
verður þeim mun meiri, sem
viðgerð tekur lengri tíma, en hér
hefur þessum kostnaði ekki verið
bætt við. Þá er rétt að taka fram
og leggja á það áherzlu, að þar sem
Almennar Tryggingar h.f., eru
frumtryggjendur togarans Rauða-
núps, bar félaginu að koma fram
fyrir alla þá vátryggjendur, sem
áhættu bera vegna vátryggingar
togarans. Félaginu bar skylda til
að afla þeirra hagstæðustu tilboða,
sem völ var á, ekki eingöngu með
tilliti til hagsmuna endurtryggj-
enda heldur og vegna útgerðarfé-
lags Rauðanúps.
Við mat á því, hvaða tilboð þætti
hagstæðast höfðu Almennar
Tryggingar h.f., og útgerðarfélag
Rauðanúps fullt samráð við endur-
: Framhald á bls. 26