Morgunblaðið - 06.05.1978, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 06.05.1978, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. MAÍ 1978 23 Nixon sótt- ur til saka San Jose, Kaliforníu, 5. mai, Reuter. NOKKRIR skattborgarar lögðu í dag íram ákæru á hcndur Richard Nixon fyrrum Bandaríkjaforseta og kröfðust þess. að af honum yrði tekin greiðsla sem hann fékk fyrir einkaréttinn að útgáfu endur- minninga hans. Lögfræðingur hópsins sagði forsetann vera sekan um að hafa auðgazt á ólögmætum verknaði sem hann framdi í forsetatíð sinni. Hópurinn, en nöfn voru ekki gefin upp, krefst 1,3 milljóna Bandaríkjadala í skaðabætur og einnig að minnsta kosti 20% af verðmæti eigna Nixons. Krafist er að peningarnir renni í ríkissjóð. I fréttatilkynningu frá hópn- um segist hann vera að sækja Nixon til sakar fyrir hönd allra bandarískra skattborgara, sem greitt hafa skatt frá 1972. Stúdentar frá Chad með setu- verkfall í Moskvusendiráði Japanski ferðalangurinn Naomi Uemura flaggar hér þjóðfánum fjögurra ríkja á Norðurpólmun. Ilann kom þangað eftir tveggja mánaða ferðalag á hundasleða um heimskautaísinn. Uemura er fyrsti maðurinn sem fer einn síns liðs á Norðurpólinn. Margrét med magabólgu VEÐUR víöa um heim Amsterdam 17 skýjaö Apena 27 sól Berlín 19 sól BrUssel 19 bjart Chicago 9 rigning Kaupmannah. 12 skýjað Frankfurt 18 skýjað Genf 18 mistur Helsínki 10 sól Jóhannesarb. 19 sól Lissabon 17 bjart London 19 rigning Los Angeles 18 bjart Madrid 15 skýjað Moskva 13 skýjað New York 15 rigning Ósló 14 skýjað París 22 rigning Rómaborg 21 skýjað San Francisco 18 bjart Stokkhólmur 15 skýjað Tel Aviv 21 bjart Toronto 8 skýjað Vancouver < 13 sól Vínarborg 21 bjart Tveir Albanir leita hælis í Grikklandi Á myndinni sjást örþreyttir flóttamenn frá Víetnam um borð í litlum fiskibáti koma til flóttamannabúða í Suðaustur-Thailandi. Margir slfkir flóttamannabátar verða fyrir árás sjóræningja eða sökkva áður en þeir ná á leiðarenda ýmist í Thailandi eða Malaysiu. Það hefur og komið fyrir að flóttamönnum frá Víetnam hefur tekizt að komast til Ástralíu um borð í slíkum farkosti þótt ekkisé hann burðugur stjórn. Frá þessu sagði gríska lögreglan í kvöld. Diplómatískar heimildir sögðu, að þrátt fyrir nokkur vandkvæði sem af þessu gætu leitt vegna þess að Albanir og Grikkir hafa sýnt viðleitni í þá átt að efla samskipti sín á milli, myndi mönnunum trúlega veitt hæli eins og þeir- óskuðu eftir, þar sem Grikkland er aðili að alþjóðlegum samningum varðandi slík mál. Lögreglan sagði að mennirnir tveir hefðu komið hvor í sínu lagi og þeir hefðu gefið sig fram við lögregluna um síðustu helgi. Þeir voru sagðir bændur, báðir á fertugsaldri og nafn annars þeirra var sagt vera Ahmed Roussi. Austur-Evrópubúar hafa iðu- lega leitað hælis í Grikklandi, en ekki er vitað um nema eitt dæmi þess áður að Albanir leiti þangað. Það var í febrúar sl. að fimm Albanir komust til Grikklands. Grikkland og Albanía tóku að nýju upp stjórnmálasamband árið 1971 og hefur töluvert áunnizt í bættum samskiptum landanna. í sl. mánuði var meðal annars gerður samningur um flug milli Aþenu og Tirana og þótti það meira en litlum tíðindum sæta. Farþegar sluppu úr brennandi vél London 5. maí Reuter Á ANNAÐ hundrað farþegar sluppu ómeiddir út úr brennandi Boeing 737 flugvél er hún var að lenda á Lutonflugvelli. Vélin sem var í eigu Britannia Air- ways var að koma frá Diisseldorf og með henni voru 124 farþegar. þar á meðal tvö ungbörn. Eldur kom upp er vélin var að renna eftir brautinni við lending- una. Slökkviliði vallarins tókst síðan að ráða niðurlögum eldsins og segir í fréttaskeytum að það þyki allt hin mesta mildi að farþegar skyldu komast svo snar- lega út, svo og hversu greiðlega gekk að slökkva eldinn. Moskvu^ð. maí AP FJÖRUTÍU stúdentar frá Chad skipulögðu setuverkfall í sendiráði lands síns í Moskvu í dag til að mótmæla því, að Frakkar hefðu herlið í land- inu. Kröfðust þeir þess að Frakkar færu umsvifalaust á brott og sögðust ekki víkja á braut fyrr en einhver litur yrði sýndur á því að verða við því sem þeir álitu rétt. Sendi- herrann var erlendis þegar stúdentarnir komu í sendi- ráðið og samkvæmt alþjóð- legum lögum um sendiráð má Eignir Daouds verða þjóðnýttar Kabul, Afganistan 5. maí AP NÝJA ríkisstjórnin í Afganistan tilkynnti f dag að meðal fyrstu ákvarðana hennar væri sú að þjóðnýta eigur Mohammeds Daouds fyrrverandi forseta, og stórkostlegt átak yrði einnig gert í menntamálum. Talsmaður byltingarstjórnar- innar sem komst til valda i síðustu viku sagði að eignir Daouds og fjölskyldu hans myndu verða þjóðnýttar vegna þess þær hefðu verið rændar frá vinnandi stétt Afganistan. Þá sagði talsmaður byltingarstjórnarinnar að þetta þýddi þó ekki að stjórnin myndi ekki virða meginreglu eignar- réttarins, en óeðlileg auðæfi einnar fjölskyldu á kostnað vinnandi manna væri svívirða við þá. Greint var frá því í Aden í gær að Suður Jemen — en þar er marxísk stjórn — hefði ákveðið að viðurkenna nýju stjórnina í Afganistan. Suður-Jemen er fyrsta Arabaríkið sem gerir það. London; 5. maí AP. MARGRET Bretaprinsessa mun verða á sjúkrahúsi í London að minnsta kosti fram á mánudag en þá munu lliggja fyrir niðurstöður rannsókna sem hún hefur gengið undir. Er talið að hún sé með bólgur í maga. Sagði í tilkynningu King Edward Vll-sjúkrahússins að líðan hennar væri góð, en hún færi ekki af sjúkrahúsinu fyrr en rannsókn væri lokið og meðferð hefði verið ákveðin í samræmi við niðurstöðu henn- ar. Aþenu 5. maí AP TVEIR ALBANIR hafa beðið um pólitískt hæli í Grikklandi og segja ástæðuna vera að þeir gcti ekki unað þeirri kúgun og því ófrelsi sem almennir borgarar sæti í Albaníu undir núvcrandi Jakobssen sjávarútvegsráðherra sagðist í dag einnig ætla að athuga hvort gerlegt væri að leggja hluta flotans vegna hinna takmarkuðu aflaheimilda. Dönsk stjómvöld vinna að máhim siómannanna Kaupmannahöfn, 5. maí. AP-Reuter. DANSKIR sjómenn. sem eru mjög óánægðir með veiðikvóta sinn í Eystrasalti, lokuðu í dag sex höfnum með um 500 bátum. Ollu aðgcrðir þeirra siglingum flutningaskipa mikum vandræð- um en urðu þó til þess að stjórnvöld ræddu við sjómennina og lofuðu að veita málum þeirra sérstakan forgang. Anker Jörgensen forsætisráð- herra lofaði sjómönnum í dag að ræða mál þeirra sérstaklega við dönsku fiskimálastofnunina hið fyrsta, og er jafnvel búist við að Jörgensen eigi fund með fulltrúum stofnunarinnar á laugardag. Svend Jakobssen sjávarútvegs- ráðherra Danmerkur lofaði einnig sjómönnum í dag að farið yrði fram á sérstakan fund með nefnd Eystrasaltsríkja sem fer með fiskveiðimál. Þessi fyrirlýsing Jakobssens er talin vera mikill sigur fyrir sjómennina sem kvart- að hafa sáran yfir því að Efna- hagsbandalagið (EBE) hafi ekki tryggt þeim réttlátan hlut í veiðunum í Eystrasalti og krefjast að Danmörk fái á eigin spýtur að semja við aðilarlönd. Sjómennirnir sem flestir hverjir eru frá Borgunarhólmi eiga nú eftir að veiða um 10 þúsund tonn af þorskkvóta sínum í Eystrasalti og er það um 15 daga veiði. Þeir segja að í ár verði þeir fyrir um 40% tekjutapi og krefja dönsk stjórnvöld um skaðabætur vegna þessa. sovézka lögreglan ekki grípa til íhlutunar. Alls munu um 400 stúdentar frá Chad vera við nám í Moskvu, og sögðu talsmenn hópsins í dag, að þeir stæðu allir einhuga að þessari kröfu. Frakkar sendu 1700 manna lið til Chad að beiðni ríkis- stjórnar Felix Malloum forseta þar sem hann taldi sig þurfa aðstoð við að ná vopnahléi við skæruliða. Sovétmenn hafa opinberlega gætt hlutleysis í átökum þeim sem hafa nú staðið meira og minna í fjórtán ár í norðurhluta Chad milli uppreisnarmanna og hermanna stjórnarinnar. ERLENT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.