Morgunblaðið - 06.05.1978, Side 33

Morgunblaðið - 06.05.1978, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. MAÍ 1978 33 Árni Benediktsson: Lækkun vaxta Guðmundur Magnússon prófess- or ritar grein í Mbl. 29. apríl og ber hún nafnið „Lækkun vaxta — hvað svo?“. Þar sem Guðmundur Magnússon mun vera samráðs- maður um ýmislegt í stefnumótun 1 Peningamálum, hlaut að verða nauðsynlegt að lesa grein hans í alvöru, þar sem þar kynni að Lnnast einhver vísbending um nvers vegna núverandi vaxta- stefna er þannig vaxin sem hún er, en skýringar á því liggja sannar- tega ekki á hverju götuhorni. En eins og hverjum manni ætti að vera ljóst er vaxtastefnan að nrepa allt heilbrigt atvinnulíf í iandinu og keraur til viðbótar þeim yagesti, sem var nægilega erfiður viðfangs, verðbólgunni, og eykur hana og magnar. Skýring á vaxta- stefnunni kynni að vera sú að stjórnvöld hefðu ákveðið að berja ^erðbólguna niður með hörðu, ramkalla hrun, og síðan væri "lögulegt að byggja upp heilbrigt e[nahagslíf á rústunum. En þessi skýring dugar ekki, allar yfir- ýsingar stjórnvalda um þessi mál snúast um það að haldið skuli uppi ullu atvinnulífi, og þær fjár- jnagnsráðstafanir, sem hið opin- hera hefur með höndum styður að t-’ að mestu leyti. Önnur skyring gæti verið sú að Seðla- ankinn væri að reyna upp á sitt eindæmi að knýja stjórnvöld til raunhaefra aðgerða gegn verðbólg- Unni, þar sem það hlyti að vera Verjum manni Ijóst að þessi yaxtastefna riði atvinnulífinu að tullu. Að vissu marki er það rétt stefna að láta vexti hækka sjálf- rafa við aukna verðbólgu. Þessi sefna var tekin upp í fyrrasumar. 'xt gæti haft þau áhrif að menn Se>ndu ekki vitandi vits í kjara- samningum um verðbólgu. En hafi Petta verið meiningin, þá hefur Pað algjörlega misheppnast. Þar a auki hlaut það að misheppnast, Par sem tímasetningin var röng. axtahækkun í kjölfar verðbólgu- amninga er ákveðin eftir að ■’amningarnir eru gerðir og gátu vi engin áhrif haft á framvindu a:a’ önnur en þau að auka erðbólguna sem vaxtahækkun- i ni nam. Ef sjálfvirk vaxtabreyt- g a hafa áhrif sem hemili á að l'l^u i)arf ákvörðun um hana kia fyrir áður en megin- að rasamn'nSar eru gerðir, og þar Viftauki aö vera miklu víðtækari. f . veröum að gera okkur grein i'q,ir Því að okurvextir frá m°.~712% koma alls ekkert við óbei* t °rra landsmanna, nema þá þun ^ en beir koma af fullum þar^a a Íla þætti atvinnulífsins, húj SeiP þeir valda mestri verð- anifU - beinum skiptum borgar- vpYr a frJálsum markaði eru siálfrnir 12%-14% , en það eru að Vexr°^U ,allf of háir vextir. eru ,*r á hinum frjálsa markaði nuir verulegum áhrifum af hinum opinberu vöxtum, en þrátt fyrir það verða þeir ekki hærri en þetta. Ástæðan er sú að heilbrigð skynsemi segir hverjum manni að lengra er ekki fært að ganga. En er þá einhverja vísbendingu að finna í grein prófessorsins, sem gæti bent til þess í hvaða hug- myndaheimi núverandi vaxta- stefna er mótuð. Jú þar er að finna vísbendingu, en enginn skyldi taka orð mín svo að ég sé að eigna honum ábyrgð á stefnumótun i vaxtamálum, síður en svo. Hins vegar gaf hann tilefnið til þess- arar greinar. Prófessorinn segir svo í grein sinni: „Vextir eru einfaldlega verð fjármagns. Þetta gengur mörgum illa að skilja, en er lykillinn að því að skilja áhrif vaxta eða vaxta- breytinga á framboð Ög eftirspurn og tekjuskiptingaráhrif í því sambandi. Hvort vextir eru skil- greindir sem nafnvextir, raunvext- ir eða summa af nafnvöxtum og verðbótum, fyrir eða eftir skatt o.s.frv., breytir það engu um að vextirnir eru sambærilegir við hvert annað vöruverð, þegar verið er að ræða samspil framboðs og eftirspurnar". Ég vil leyfa mér að ætla að orðið „raunvextir" í þessari tilvitnuðu málsgrein þýði raungildi fjár- magns, en orðið raunvextir var nýlega tekið upp fyrir það hugtak, að ég hygg til þess að auðvelda vafasaman skilning á tilgangi vaxtastefnunnar. Ég vil einnig leyfa mér að ætla að með „sam- spili“ framboðs og eftirspurnar eigi hann einfaldlega við að fjármagn hækki í verði við aukna eftirspurn, en lækki í verði við umframboð. Það fer varla hjá því að framsetning þessarar setningar leiði til þess skilnings. Að gefnum þessum skilningi hlýt ég að láta í ljósi undrun mína. Áhrif framboðs og eftirspurnar á raungildi fjár- magns er svo veigalítill þáttur að hans gætir varla. Aðrir þættir hafa svo mikið að segja að ef litið er yfir fjármálaþróun á Vestur- löndum síðustu áratugi, væri nær að draga þá ályktun að þessu væri öfugt varið. Það gæfi varla tilefni til athugasemda þó að sagt væri að mikil eftirspurn eftir fjármagni lækkaði verðgildi þess, vegna þess að þannig hefur það í raun verið. Ég tek aðeins eitt dæmi til skýringar. Árið 1974 jókst eftir- spurn eftir fjármagni á Vestur- löndum verulega vegna olíuverð- hækkunarinnar. Jafnframt rýrn- aði fjármagnið í verði. Ástæðan fyrir rýrnun fjármagnsins var sú að flestir þættir útgjalda voru lítt breytanlegir á skömmum tíma og snöggur kostnaðarauki gat því hvergi komið fram nema í rýrnun fjármagnsins. Til þess að koma á jafnvægi aftur var þess alls staðar freistað að auka verðgildi fjár- magnsins með því að draga úr eftirspurn fjármagns til annarra þátta. Það var m.a. gert með tímabundinni hækkun vaxta. Vaxtahækkanir voru gerðar til þess að auka verðgildi fjármagns, en ekki af því að verðgildið hefði aukist. Með öðrum orðum, vöxtum var beitt til þess að hafa áhrif á þá þætti, sem stjórna verðgildi fjármagns,. en ekki af því að vextirnir hefðu sjálfstætt gildi. Meginskilyrði þess að slík vaxta- stjórnun nái tilgangi sínum er að vaxtabreyting sé tímabundin. Það er skilyrði þess að nægilega margir fresti fjármagnsnotkun til þess að jafnvægi komist á fjá- magnsmarkaðinn á ný og verðgildi fjármagnsins aukist. Það hefur verið stærsti gallinn á vaxta- stjórnun hér á landi að fjámagns- notendur hafa vitað það eitt, að næsta vaxtabreyting yrði til hækkunar, þannig að aðalatriðið væri að fjárfesta sem fyrst og sem mest. Það þarf að sjálfsögðu ekki að lýsa því hér hvernig brugðist var við olíuverðhækkuninni hér á landi. I stað þess að freista þess að draga úr öðrum kostnaðarliðum þjóðarbúsins til þess að ná jafn- vægi var allur annar kostnaður hækkaður. Hér verður ekki lagður á það dómur hve mikla sök stjórnvöld áttu á þessu, eða að hve miklu leyti sökin liggur hjá höfuðskepnunum. En einu eiga þó stjórnvöld tvímælalaust sök á. Alls staðar annars staðar, þar sem mér er kunnugt um, var leyfð verðhækkun á olíubirgðum, til þess að fjármögnun nýrra birgða á fjórföldu verði lenti ekki á lánsfjármarkaðnum, með þeim afleiðingum sem það hefði á aukna eftirspurn fjármagns og þar með rýrnun þess. Hér var fjármögnun nýrra birgða alfarið vísað út á fjármagnsmarkaðinn til hreinnar verðbólguaukningar og verðrýrn- unar fjármagns. Við þetta var svo bætt vaxtahækkun, sem hvergi hafði rými nema í aukinni verð- bólgu. Ef við skoðum þessi dæmi vel og reyndar ótalmörg önnur sjáum við að hæð vaxta hefur lítið sem ekkert gildi til ákvörðunar raunvirðis fjármagns. Fjármála- stjórnun er hinn afgerandi þáttur. Verðgildi fjármagns hér á landi er nú innan við 90%. Þetta er viðurkennt á hinum frjálsa fjár- magnsmarkaði, þ.e.a.s. viðskiptum borgaranna innbyrðis, t.d. í hús- næðisviðskiptum. Frjálsi markað- urinn lætur ekki að sér hæða, hann er alltaf nokkuð nærri sanni, þó að hann sé nú lítils háttar undir áhrifum af opinberum vöxtum. Sama gildir um gengisskráningu. Við getum alltaf fengið upplýsing- ar um rétta skráningu íslensku krónunnar suður á Keflavíkurflug- velli. Tilraunir til þess að knýja fram aukið vérðgildi fjármagns með vaxtahækkunum einum eru vonlausar, þær leiða aðeins til aukinnar verðbólgu. Verðgildi fjármagnsins verður ekki aukið nema með breytingum á notkun fjármagnsins og með því að ætla því meira rúm í kostnaðarhlið þjóðarbúsins. Það verður ekki gert. við blöndunginn með því að skipta um kerti. Guðmundur Magnússon segir: „Sú fullyrðing að vextir hafi ekki áhrif á þann hluta spörunar sem fer um hendur innlánsstofn- ana stangast á við þá staðreynd að bankakerfið hefur skroppið saman um þriðjung miðað við þjóðar- framleiðslu undanfarin sex ár“. Af hverju hefur bankakerfið skroppið saman á þessu tímabili? Það er ekki af því að vextir hafi verið lækkaðir. Þvert á móti, vextir hafa hækkað gífurlega á þessu tímabili, forvextir hafa hækkað úr 10% í 23% og flestir aðrir vextir hafa hækkað meira. Bankarnir ættu því að vera fullir fjár ef samhengi væri milli vaxta og sparnaðar. En því miður, það samhengi er ekki til. Að vísu eykst sparnaðurinn venjulega um stutt- an tíma við hverja vaxtahækkun, en verðbólgan hleypur jafnan á undan, og vaxtahækkunin eykur ekki sparnað til lengdar, heldur verðbólguna. Það þýðir ekki stöð- ugt að vera að búa til skakkar forsendur, það leysir engan vanda. Ef hjólbarði springur dugar ekki að leggjast á stýrið, það verður að stoppa og skipta um hjólbarða. Guðmundur Magnússon segir á einum stað: „Háir vextir og mikil verðbólga fylgjast því að til lengdar". Þarna hefur Guðmundur rétt fyrir sér, þó að raunar sé ekkert skilyrðislaust samhengi þarna á millf. En þetta gerist á þann hátt að menn freista þess að minnka verðrýrnun fjármagnsins með hærri vöxtum, og auka þannig verðbólguna og gera hana ennþá óviðráðanlegri. Þannig bæta menn nýju böli við verðbólgubölið af þeirri undarlegu áráttu að leysa vandann einhvers staðar allt annars staðar en hann er. Guðmundur Magnússon segir: „Afleiðing vaxandi bils milli ávöxtunar sparifjár og verðbólgu leiddi leiddi til meiri ríkisforsjár .. .Atvinnulífið var háðara ríkisaf- skiptum en áður.“ Aukin ríkisforsjá af völdum verðbólgunnar er að sjálfsögðu Davíð Á. Gunnarsson: Heilsuhagfræði hvað er það* Bér fcr a ... . Sem DavíA íU,r lnnKan>fserindi, setn.v ^unnarsson flutti heHSuh„lrfKuilræðsluráðstefnu í sl' briSra*?ÍÍNorrænahúsinu VerðurSUífa|í[raEiÖ1 er hugtak sem Urn erlend;, a Kenfíara í umræð- • Fleilsuhasfr^AheÍlbrÍRðlsmál' y'sindi eða t æðl er enSin nÝ lsmál. H l Sanmndi um heilbrigð- aðeins aðgtfklð ^ðir 1 raun ra6ðilegum xrÍð er að belta Vandamála a ferðuni við lausn v"sem fjalla um verk- efnaval og forgangsröðun verkefi á sviði heilbrigðismála. Það er raunar merkilegt að sviði, þar sem störf eru orðin ja háþróuð og vísindaleg og inn; læknisfræði og heilbrigðisþjó ustu almennt, skuli happa- glappaaðgerðir og þrýstihóp ráða jafn miklu og reynslan sýr hér á landi. Þess er krafist í ræðu og riti fjárfestingar í iðnaði og orkumi um séu arðsamar. Ef rætt er u hugtakið heilsuarðsemi hah menn annað hvort, að nú eigi fara að græða peninga á heilbrigð- isþjónustunni, eða stór minnka hana í sparnaðarskyni. Staðreynd- in er sú að „heilsuarðsemi“ verður aldrei mæld i peningum. Rándýr þjónusta getur verið mjög arðsöm. Ef það, sem við fáum, er meira virði en það sem til er kostað. Hér kemur inn mat á ýmsum hlutpm bæði læknisfræðilegt, sálfræðilegt og félagslegt. Það er ekki bara magn þjónustunnar, fjöldi legu- daga og meðhöndlaðra sjúklinga, sem skiptir máli, hér kemur líka ekki síður spurningin um gæði þjónustunnar. Menn skiptast nokkuð í tvo flokka hvað varðar greiðslur fyrir heilbrigðisþjónustu. Þeir, sem eru kallaðir til vinstri, segja gjarnan að allt eigi að vera ókeypis. Þeir, sem eru kallaðir til hægri, vilja láta greiða og eftirspurnina þá gjarnan ráða framboðinu. Staðreyndin er sú, að líklega hefur þarna engin þjóð fundið hinn gullna meðalveg, sem gefur mesta heilsuarðsemi. Ef þjónustan er ókeypis er eftirspurnin gjarnan ótakmörkuð. Fólk misnotar gjarn- an allt, sem ekkert kostar. Ef þjónustan er seld og lögmálið um framboð og eftirspurn látið ráða, myndu vafalaust einhverjir lenda á skurðborðinu hjá Baldri Brjánssyni. Staðreyndin er sú, að á fáum sviðum er neytandinn jafn illa upplýstur, veit ekki hvað er á boðstólunum eða hvað hann þarf. Mat hinna á heilbrigðisþjónust- unni breytist gjarnan mjög eftir eigin reynslu. Afleiðingin er síðan þrýstihóparnir. Mánuðina fyrir afgreiðslu fjárlaga hefur jafnvel verið hægt að tala um þrýstihópa- vikurnar, svo mjög hafa fjölmiðlar stundum stutt við bakið á þessum hópum. Áfleiðingin er sú, að ekki hefur verið reynt að meta hvar peningar gera mest gagn í heilbrigðisþjón- mikið áhyggjuefni og er virðingar- vert að gefa því gaum. En þeir menn sem horfa upp á 10% mun á rekstrarmöguleikum sambæri- legra fyrirtækja eingöngu vegna mismunar á fjármagnskostnaði á árinu 1977, og vita að sá munur verður kominn í 15% árið 1979, að óbreyttri stefnu, þeir menn sem vita að fjármagnskostnaðurinn einn er kominn upp fyrir 30%. af vinnsluvirði hjá mörgum fyrir- tækjum og verður kominn í 40% af vinnsluvirði árið 1979, þeir menn vita að ekki verður komist hjá stóraukinni ríkisforsjá ef atvinnu- líf í heilum byggðarlögum á ekki að hrynja í rúst. Það leysir engan vanda að bæta vaxtaböli við verðbólguböl. Ríkisforsjá af völd- um verðbólgunnar minnkar ekki hætishót við það að ríkisforsjá af völdum vaxta bætist við. Og í öðru lagi: Er hægt að minnka bilið milli ávöxtunar sparifjár og verðbólgu með vaxta- hækkun? Reiknað hefur verið út, og lætur það sjálfsagt nokkuð nærri lagi, að vaxtahækkun um 1.0 prósentustig veldur 0,6% verðlags- hækkun þ.e.a.s. verðbólguaukn- ingu. Að hækka vexti um 10 prósentustig gæti því minnkað bilið milli ávöxtunar sparifjár og verðbólgu um 4% . Þannig getur þetta verið fyrst eftir vaxtahækk- un. En vegna þess að þetta er byggt á meðalrekstri verður þetta ekki raunhæft til lengdar. Vaxta- hækkunin sjálf eykur frávikin frá meðalrekstri og brátt skiptast afleiðingar vaxtahækkunarinnar í tvennt, annars vegar í tilefni til verðhækkana og hins vegar í verðbólgugróða. Og brátt getur tilefnið til verðhækkana verið orðið meira en sem nemur vaxta- hækkuninni. Það eru því engar líkur til að vaxtahækkun minnki bilið milli ávöxtunar sparifjár og verðbólgu, nema því aðeins að beitt sé stöðugt nýjum og nýjum vaxtahækkunum, einu sinni til tvisvar á ári. Að lokum þakka ég Guðmundi Magnússyni prófessor fyrir grein- ina. Hún varð til þess að héðan af verður ef til vill auðveldara að festa hendur á þeim hugmyndum, sem liggja að baki núverandi vaxtastefnu, en þær hugmyndir hafa svifið meira og minna í lausu lofti. Þær verða ekki betri eða raunhæfari við það, en það er kostur að vita við hvað er að fást. Það er þó lítil sárabót fyrir þá menn, sem horfa með skelfingu fram á afleiðingar þeirrar vaxta- stefnu, sem nú ríður húsum. En þrátt fyrir þessar skýringar á vaxtastefnunni er ég ekki alveg sannfærður. Ég er ekki sannfærð- ur um að þetta séu réttu skýring- arnar. Þetta séu fremur eftirá- skýringar. Er ekki hin raunveru- lega skýring á vaxtahækkunum undanfarinna ára sú, að það sé nauðvörn bankanna í viðleitni þeirra að sjá atvinnuvegunum fyrir nægu rekstrarfé? Nauðvörn, sem gerir ennþá meira knýjandi að stjórnvöld taki alvarlega á hinum raunverulega vanda, verðbólgunni, þar sem verðbólgan og vextirnir sameiginlega leiða af sér algjört öngþveiti á tiltölulega skömmum tíma. Árni Benediktsson ustunni. Nú er t.d. verið að kaupa fyrir opinbert fé ekki eina heldur tvær s.k. „Grammakamerur“ fyrir u.þ.b. 60 millj. hvora Á sama tíma hafa einstaklingar orðið áð skrapa saman fé í sundlaug handa þroska- heftum á Kópavogshæli. Er það t.d. alveg augljóst, að sá sem dauðadrukkinn hryggbrýtur sjálfan sig og limlestir aðra í slagsmálum eða umferðarslysi eigi meiri heimtingu á ókeypis sjúkra- húsplássi þegar í stað en 50 ára smiðurinn, sem hefur verið á biðlista bæklunarla«kningadeildar í 3 ár og ekki komist að? Það er þetta og svo margt, margt annað, sem heilsuhagfræði gerir tilraun til að meta. Síðan er það auðvitað stjórnmálamann- anna að taka ákvarðanir að fengnu þessu mati. Því miður er það hins vegar svo, áð stjórnmálamennirnir hafa skotið sér undan ákvarðana- töku og forgangsröðun verkefna í Framhald á bls. 30

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.