Morgunblaðið - 06.05.1978, Page 37

Morgunblaðið - 06.05.1978, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. MAÍ 1978 37 Ný árbók frá þing- eyskum söfnurum Fyrir rúmu ári gat ég um það merkilega framtak þingeyskra frímerkjasafnara að gefa út fjölritaða árbók með greinum um margs konar frímerkjaefni, sem varðar Þingeyjarsýslu. Nú hafa þeir sent frá sér 2. árgang bókar sinnar. Vil ég nota hér tækifærið og benda lesendum þáttarins á þessa árbók. Þeir, sem hug hafa á að eignast hana, geta haft samband við Eystein Hallgrímsson í Grímshúsum í' Aðaldal eða aðra stjórnarmenn í Frímerkjaklúbbnum Öskju á Húsavík. Bókin kostar 400 krón- ur. Efni árbókarinnar er eins og í fyrra að mestu tengt S.-Þing- eyjarsýslu. Fyrst er ársskýrsla klúbbsins yfir fyrsta starfsár hans 1976—1977. Segir þar, að nokkrir áhugamenn um frí- merkjasöfnun hafi komið saman í félagsheimilinu á Húsavík 29. apríl 1976 til þess að stofna félag fyrir þingeyska frímerkja- safnara, sem dreifðir eru um sýsluna, svo að auðveldara sé fyrir þá að stunda þessa skemmtilegu tómstundaiðju. Félagið heitir Frímerkjaklúbb- urinn Askja, og er félagssvæði hans Húsavík og S.-Þingeyjar- sýsla. Stofnendur voru 16, en síðan hefur félagsmönnum fjölgað nokkuð. Á liðnu starfs- ári var stærsta verk klúbbsins frímerkjasýning, sem haldin var í Barnaskóla Húsavíkur um páskaleyti 1977. Voru 26 ramm- ar á þeirri sýningu og mest af sýningarefni frá félagsmönnum sjálfum. Tveir félagsmenn úr F.F. í Reykjavík, Sigurður Ágústsson og Sigurður Péturs- son, áttu þar efni í fimm römmum. I sambandi við sýn- inguna var gefið út sérstakt umslag, og seldist það mjög vel. Hér má svo skjóta því að, að annað umslag er komið út á vegum klúbbsins, og var sagt frá því í þætti 11. marz sl. Eiður Árnason á Hallbjarnar- stöðum gerir grein fyrir um- slagaútgáfu klúbbsins í þessari árbók. Kemur þar fram, að umslögin eru af sömu stærð og póststjórnin notar undir fyrsta- dagsstimplun sína. Ætlun þeirra norðanmanna er sú að gefa út eitt umslag á ári með myndefni úr sýslunni. Eru umslögin einkum hugsuð til notkunar á útgáfudögum nýrra frímerkja og stimplunar á Húsavík og öðrum póststöðvum í S.-Þingeyjarsýslu, en vitaskuld er hverjum í sjálfsvald sett, hvernig hann notar umslögin. Eiður getur þess, að Jón Krist- insson sé þegar búinn að teikna umslög næstu fjögurra ára. Kostar hvert umslag 150 krónur. Þá ritar Eiður Árnason um stimpla í S.-Þingeyjarsýslu. Loks á hann grein um kílóvöru póststjórnarinnar og segir þar allrækilega frá henni og hvað Póstmannasjóðurinn ber úr být- um. Eru það vissulega miklar fjárhæðir. Eiður birtir skrá yfir verð kílóvörunnar allt frá 1958, og þarf ekki að fara í grafgötur um það, að hún hækkar með hverju ári eins og annað á verðbólgutímum. Eysteinn Hallgrímsson í Grímshúsum hefur tekið saman greinarkorn, sem hann kallar: Örlítið brot úr póstsögu S.-Þing- eyjarsýslu. Hefur hann stuðzt við ýmsar heimildir og rekur þróun mála allt frá lokum 18. aldar. Segir hér í stuttu máli frá póstleiðum um sýsluna og póst- stöðvum. Er fengur í þess konar yfirliti, enda getur það auðveldað mönn- um ýmislegt í sambandi við stimplasögu o.fl. Þá er í árbókinni kort yfir allar póststöðvar í sýslunni frá upphafi og fylgja því skýringar. Eins hafa útgefendur bókarinn- ar dregið saman ýmsar töluleg- ar upplýsingar, m.a. um al- mennar og bókfærðar póstsend- ingar eftir pósthúsum í S.-Þing- eyjarsýslu á árunum 1976-1971. Slíkur tölulegur fróðleikur segir vitanlega sína sögu um þróun þessara mála. Af því, sem hér hefur verio sagt frá, er ljóst, að ótrúlega mikið efni er í ekki stærri bók, en hún er 22 bls. Eins og ég sagði í fyrra geta margir öfundað þingeyska frímerkja- safnara af framtaki þeirra. Fjölritun bókarinnar er því miður ekki nógu góð, og mér virðist frágangur hennar sýnu lakari en í fyrra. Eins eru prentvillur óþarflega margar. Nefni ég þetta einungis til þess að brýna „kollegana" fyrir norðan til að vanda sig betur næst í þessu tilliti, en alls ekki til að rýra starf þeirra. Ekki veit ég, hversu stórt upplag árbókar- innar er, en ég er sannfærður um, að margur safnarinn vill eignast hana. Eysteinn Hallgrímsson segir mér, að ekki sé margt að frétta af starfi þeirra fyrir norðan umfram það, sem hér hefur verið rakið. Þó hafa þeir þrisvar í vetur haldið uppi leiðbeining- arstarfi fyrir unglinga, og hafa um 30 manns verið á hverjum fundi. Verður ekki annað sagt en það sé hið ágætasta starf. Var svo ætlunin að stofna unglingaklúbb núna síðast í apríl. Vonandi hefur það tekizt, og sendi ég þeim Öskjumönnum árnaðaróskir af því tilefni og um leið þakkir fyrir allan fróðleikinn um starfsemi þeirra. Frímerkjasýningar á þessu ári Því miður er ekki unnt að minnast á margt af því efni, sem vel á heima í þætti sem þessum. Eitt er það að segja frá frí- merkjasýningum. Nú er ákveðið að halda litla sýningu í Hafnar- firði í sambandi við næsta landsþing L.Í.F. í byrjun júní- mánaðar. Nefnist hún HAFNEX 78. Verður greint frá henni og væntanlegu landsþingi í næsta þætti. Enda þótt fæstir íslenzkir safnarar eigi heimangengt á erlendar sýningar, er engu að síður fróðlegt að fylgjast með þeim. í apríl var haldin alþjóðafrí- merkjasýning í Luxemborg fyrir unglinga, JUPHILUX 78, og var hún undir vernd F.I.P., þ.e. Alþjóðasambands frímerkja- safnara. Dagana 20.—25. þ.m. verður sýning í Frankfurt í Vestur-Þýzkalandi, NAPOSTA 78. TORONTO OIPEX*78 JUNE 9-18,19785 5 Alþjóðafrímerkjasýning verður svo í Toronto í Kanada 9.—18. júní, CAPEX ‘78 og undir vernd F.I.P. Önnur alþjóðasýn- ing verður svo í Prag í Tékkósló- vakíu 8.—17. sept. i haust, PRAGA 1978. Verður hún stór i sniðum og um 7 þúsund rammar á sýningunni. Norræn sýning verður í Þrándheimi í Noregi 19.—24. sept., og nefnist hún NIDARÖ 78. Enda þótt hér hafi aðeins verið lauslega minnzt á væntan- legar frímerkjasýningar, má söfnurum vera ljóst, að töluvert er fram undan í frímerkjaheim- inum. Ég hef áður vikið að því, hvert gagn söfnurum er að því að sækja frímerkjasýningar og kynna sér það, sem boðið er upp á, og gerist þvi ekki þörf að endurtaka það hér. F rímer k jauppboð 13. maí nk. Áður hefur verið sagt frá frímerkjauppboði því, sem nýja fyrirtækið Hlekkur sf. heldur 13. þ.m. Engú að síður vil ég minna safnara á það, þótt þess gerist tæplega þörf. Uppboðið fer fram í ráðstefnusal Hótels Loftleiða og hefst kl. 13.30. Sýningarefnið verður til sýnis í dag á Hótel Esju í sal 1 milli kl. 14-17. VINNINGAR HAPPDRÆTTI 1. FLOKKI í ae 1978-1979 íbúðarvinningur kr. 10.000.000 13262 Lada Sport bíll 2121 kr. 2.700.000 39059 Bifreið eftir vali kr. 1.000.000 13171 33566 49205 69723 73352 18314 44548 55117 71298 Utanlandsferð eftir vali kr. 300.000 57630 Utanlandsferð eftir vali kr. 200.000 42686 74612 lltanlandsferð kr. 100 þús. 4693 16045 24118 38433 63329 8033 16271 292 54 41637 70783 9673 19701 32622 55723 14007 22302 33959 56443 144C8 22814 34207 57018 Húsbúnaður eftir vali kr. 50 þús. 1326 13796 23329 31863 52874 3364 18383 24282 33209 54191 4782 18474 25352 36881 63162 5054 20610 26422 39416 64599 6978 21223 26968 42102 66790 7259 21322 27835 48188 67294 10871 21961 28924 50340 72035 11692 22361 29595 51081 72419 Húsbúnaður eftir vali kr. 25 þús. 104 7292 15397 24973 35426 43557 54353 64846 193 7701 15482 25434 35450 43868 54588 65509 390 7753 15657 25637 35507 44045 54808 65620 484 7763 15725 25675 35518 44343 55316 65643 512 8046 15750 25961 35755 44444 55339 66124 758 8125 16406 25988 36234 44702 55453 66723 799 8158 16933 26202 36588 44997 55671 66836 987 8427 17010 26336 36749 45026 56240 66875 1058 8567 17073 26536 36761 45116 56306 66881 1165 8796 17237 26694 36802 45452 56444 66919 1427 8893 17379 27226 36844 46073 56495 67023 1512 9050 17414 27271 37276 46088 56664 67075 1592 9146 17586 27468 37281 46689 56832 67156 1642 9178 17652 27540 37386 46880 57067 67178 1652 9308 17797 28007 38160 46918 57108 68048 1714 9370 17915 28136 38246 46955 57214 68346 1807 9745 18017 28400 38253 47051 57328 68383 1897 10316 18113 28458 38427 47346 57387 68500 2038 10427 18433 28585 38523 47432 57411 68502 2173 10686 18518 28647 38563 47551 57422 68653 2174 10694 19043 28890 38864 47643 57704 68926 2276 11180 19153 29121 38987 47802 58332 68936 2297 11420 19344 29721 39024 48019 58449 69302 2421 11492 19584 29954 39107 48149 58504 69413 2477 11498 197v05 29964 39231 48224 58853 69840 2884 11560 20133 30220 39458 48495 58874 6992 3 2410 11615 20158 30234 39481 48497 5902 6 70753 3221 11664 20247 30353 39483 49138 59523 70844 3326 11715 20437 30693 39516 49266 59576 71144 3640 11799 20606 31238 39776 49373 59586 71166 3944 11965 20812 31499 39789 49728 59667 71265 4247 12312 20975 31558 39945 49734 59709 71702 4348 12324 21C44 31621 39949 50149 59824 71800 4682 12375 21211 31674 39986 50270 60689 72030 4760 12617 21261 32032 40083 50275 60724 72031 4853 12683 21271 32689 40256 50512 61102 72076 4871 12815 21384 32729 40340 50541 61557 72256 4893 12824 21574 33108 40719 50758 61625 72484 4977 12854 21871 33220 40733 50768 61769 72714 5031 13235 22781 33335 41022 51559 61840 72849 5321 13331 2282C 33475 41050 51748 61971 72 88) 5543 13443 22888 33526 41099 51856 62009 72961 5711 13537 22916 33823 41146 52148 62197 73119 5717 13718 22968 34007 41420 52187 62578 73648 5736 14065 23093 34141 41790 52500 62627 73667 6004 14287 23302 34229 41876 52870 63722 74433 6686 14305 23618 34440 42166 52919 64074 74468 6923 14466 24C39 34841 42501 53324 64088 74486 6938 14534 24431 34863 42572 53572 64343 74526 6988 14864 24558 34920 42808 53828 64366 74791 7212 14891 24586 34981 43139 53922 64509 74793 7241 15008 24756 35355 43341 54027 64574 74821 7285 15037 24902 35406 43515 54213 64681 74875 UNA SIGURÐAR- DÓTTIR — KVEÐJA Að morgni 30. apríl lést að heimili sínu, Álfaskeiði 78, Hafn- arfirði, vinkona okkar Una Sigurð- ardóttir. Við viljum með þessum fáu línum þakka henni fyrir órofa tryggð okkur til handa. Við eigum góðar minningar um Unu, frá því að hún gætti okkar síðastliðið sumar. Alltaf var hún létt og hress. Þakkir færum við henni fyrir ánægjulegar samverustundir. Blessuð sé minning hennar. „Ákvörðun mín og mæld er stund mitt líf stendur í þinni hiind. andlát kemur eitt sinn að, einn vciztu, Guð, nser skeður það." Hjörleifur og Friðrik

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.