Morgunblaðið - 06.05.1978, Síða 44

Morgunblaðið - 06.05.1978, Síða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. MAÍ 1978 BRIDGE Umsjón: Páll Bergsson Lokakeppni íslandsmóts í sveit- um hófst í Kristalsal Hótels Loftleiða á miðvikudagskvöld. Átta sveitir keppa þar um hinn eftirsótta titil. En alls hafa 7—800 manns tekið þátt í fyrri hlutum mótsins. Næstum ótrúlegur fjöldi. Má því ætla, að í úrslitahríðinni séu sterkustu sveitir landsins og að keppnin verði skemmtileg og spennandi. Sýningartafla hefur verið í notkun fjölmörgum áhorf- endum til ánægju. En keppninni lýkur á morgun. Spilið í dag kom fyrir í 1. umferð mótsins. Austur gaf og allir voru á hættu. Norður S. KD1053 H. ÁD6 T. 9 L. ÁD98 Nei! — Þessi lykt er af henni aila daga! Þakklát breytingunni Fulltrúi nokkurra íbúa við Grettisgötu í Reykjavík skrifar eftirfarandi og beinir máli sínu til forráðamanna Stjörnubíós. En nú er blessaður bíóstjórinn sem sagt búinn að breyta þessu og erum við íbúarnir umhverfis bíóið hans honum innilega þakklátir. „Velvakandi. Viltu gera svo vel að skrifa fyrir fyrir okkur sem búum hér um- hverfis Stjörnubíó, hjartans þakk- ir til forstjóra eða eigenda bíósins fyrir að breyta loksins bíó-tíman- um þannig á kvöldin að nú eru seinustu sýningar kl. 9 en ekki kl. 10 eins og þær hafa verið í lengri tíma, okkur öllum til mikils ama og pirrings. Annað mál er það að svona skemmtistaði almennt ætti ekki að leyfa innan um íbúðarhverfi, það veldur alltaf óánægju sem von er. Ætti því eigandi Regnbogans að feta í fótspor eiganda Stjörnubíós og láta sér nægja 9-sýninguna sem lokasýningu á kvöldin. Til hvers og fyrir hverja eru þessar næstum því nætursýningar nema fyrir einhverja unglinga sem væri Mikið bílaþvarg, start og flaut, og alls konar hávaði hefur dunið á okkur þegar sýningum er lokið, sem oft eru ekki búnar fyrr en töluvert uppúr miðnætti. Margt af íbúum hér þarf að vakna snemma til vinnu dag hvern og vill þá geta farvð til hvíldar fyrr heldur en eftir kl. 12 á kvöldin, en það hefur verið hæpið að reyna það án þess þá á hrökkva upp þegar ósköpin dynja yfir. Á fólk þá oft bágt með að festa svefninn strax á eftir sem von er og er engin furða þó að fólk verði taugaveiklað og er víst nóg af taugaveikluðu fólki fyrir sbr. fréttir um pilluát, og verður fólk þreytt á að fá ekki svefnfrið. sannarlega hollara fyrir að fara að sofa á skikkanlegum tíma. Þeir hljóta að geta farið á öðrum tíma í bíó ef þeir ætla sér það á annað borð. Að lokum kær kveðja og þakkir til forstjóra Stjörnubíós, hann hlýtur að lesa Morgaunblaðið eins og allir aðrir. íbúar við Grettisgötu.“ • Tveir rauðmagar „Nú er lokið einhverri glæsileg- ustu vörusýningu, sem haldin Vestur S. G842 H. G10T43 T. 1063 L. 5 Austur S. Á97 H. K9 T. 8542 L. KG42 Suður S. 6 H. 852 T. ÁKDG7 L. 10763 Suður varð sagnhafi í þrem gröndum en austur og vestur sögðu alltaf pass. Vestur spilaði úi út hjarta- fjarka. Lágt frá borðinu, austur lét níuna og fékk slaginn. Hann spilaði sig út á tígli og suður fékk siaginn. Til greina kom, að taka strax tígulslagina. En spilarinn sá, að erfitt yrði að finna afköst frá blindum. Hann spilaði því laufi. Enda ekki ólíklegt að tían yrði seinna innkoma á hendina. Austur drap drottninguna og spilaði aftur laufi. Suður lét lágt, vestur hjarta og borðið fékk slaginn á áttuna. Þar með var spilið tapað. Betra hefði verið að taka á ásinn og spila aftur laufi. Eftir laufásinn var austur látinn fá á gosann. Hann spilaði sig út á hjartakóng og þar með var blindur endaspilaður. Austur gaf spaða- kónginn og fékk vörnin því tvo spaðaslagi og fimm siagi í allt. MAÐURINN A BEKKNUM Framhaldssaya eftir Georges Sirnenon Jóhanna Kristjónsdóttir islenzkaði 35 og opnaði hafði ekki farið f önnur föt. hún var enn í himinbláa flegna sloppnum. — Hver er það? — Rannsóknarlögreglan. t- Hvað viljið þér? Mérdatt f hug að þessi kauði myndi valda mér vandræðum, tautaði hún og horfði iilskulega á Lappointe. — Það er betra að við tölum saman inni. — Ég skal ekki varna ykkur að ganga inn. Ég hef engu að leyna. — Hvers vegna vilduð þér ekki viðurkenna að hr. Louis hefur búið hér? — Af því að það kom þessum strákiingi ekki ha'tishót við. Hún hafði opnað inn í dag- stofu, þar sem var alltof heitt, þar voru útsaumaðir púðar í æpandi litum, kettir, hjörtu og nótur. Dagsbirtan fékk ekki þrengt sér inn í þessa vistar veru en hún kveikti á stórum lampa með skærgulum skermi. — Jæja, hvað viljið þér mér? Maigret tók mynd af hinum nýjarðsetta upp úr vasa sfnum. — Það er hann, ekki satt? — Jú, auðvitað verð ég að viðurkenna það. Þér komist hvort sem er að því. — Hve lengi leigði hann hér hjá yður? — Tæplega tvö ár — eða kannski aðeins iengur. — Hafið þér marga leigjend- ur? — Húsið er of stórt fyrir einstæða konu og nú er ekki auðvelt fyrir fólk að finna stað til að búa á. — Ilve margir? — Þrír sem stendur. — Og eitt laust hcrbergi? — Já, það sem ég sýndi pollanum. En ég grunaði hann strax um græsku. — Hvað vitið þér um hr. Louis? — Hann var friðsemdar- maður. Ekkert röfl með hann. Þar sem hann vann á nóttunni... — Vitið þér hvar hann vann? — Nei. ég er ekkert að hnýsast í svoleiðis. Hann fór héðan á kvöldin og kom aftur á morgnana. Hann hefur ckki þurft að sofa mikið. Ég sagði stundum við hann, aö honum veitti víst ekki'af því að leggja sig, en svona verða þeir víst sem vinna á næturnar. — Komu einhverjir að heim- sækja hann? — Eftir hverju eruð þér annars að slægjast maður minn? — Lesið þér blöð? Það lá blað á borðinu rétt hjá. — O, ég veit svo sem hvað þér eruð að fara. En ég verð líka að tryggja mig gegn því að þið farið ekki að valda ein- hverjum vandræðum. Ég hcld ég þekki þessar löggur. Maigret var Iíka viss um að hún var einhvers staðar á skrá hjá lögreglunni, jafnvel þótt hún hefði kannski haldið sér á mottunni síðustu árin. — Ég er ekkert að hrópa það út um stræti og torg að ég sé með leigjendur og ég er ckki að segja til þeirra heldur. Það er vonandi ekki glæpur. En ef ég lendi í einhverju þrasi... — Það er undir yður sjálfri komið. — Lofið þér því? Má ég fyrst fá að vita hvað þér eruð hátt skrifaður í löggunni? — Eg er Maigrct lögreglu- íoringi. — Nú, það var ekkert minna. Þá er þetta víst alvar- legra en ég hélt. Ég hélt kannski þetta væri úr „siða- regludeildinni" eins og ég kalla hana. — Jú. víst vcit ég að hann hefur verið myrtur, ég neita því ekki. Annað veit ég ekki. — Hvaða nafni skrifaði hann sig undir. — Louis. Hr. Louis. Ekkert annaö. — Það kom dökkha-rð kona tii hans, um fertugt eða svo.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.