Morgunblaðið - 06.05.1978, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 06.05.1978, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. MAÍ 1978 45 w1 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 0100 KL. 10—11 FRÁ MANUDEGI KM hefur verið hérlendis, og ábyggi- lega þeirri stærstu í einni vöru- grein. Hin alþjóðlega vörusýning bif- reiða, AUTO 78, varð og verður þeim sem að henni stóðu til mikils sóma. Þegar maður gengur um þessa sýningarsali, í tveim stór- hýsum, og lítur yfir sýningardeild- ir bílaumboðanna, þá fer ekki hjá því, að manni verði hugsað til þeirra krafta, þess stórhugar og hugkvæmni, sem bak við allt þetta liggur. Smæð okkar Islendinga er augljós, þegar við berum saman íbúatölu þjóðarinnar við aðrar þjóðir, en þessi sýning ber engin merki þessa mismunar það ég bezt fæ séð. Vörusýningar eru tiltölulega nýr þáttur í viðskiptum á heimamark- aði íslendinga, áttu sér auðvitað litla möguleika meðan haftakerfið var voðalegast og samkeppni útlæg að mestu. Nú erum við að rétta smátt og smátt úr þessum niðurlægingarkút, og þá skapast grundvöllur fyrir alls konar kaup- stefnur og vörusýningar. Hingað til hafa vörusýningar að lang- mestu leyti beinst til heimamark- aðarins, en áður en langt líður, er þess að vænta að sýningar okkar dragi hingað erlenda viðskipta- menn, og gætu það orðið þáttaskil í markaðsleit okkar fyrir íslenzkar iðnaðarvörur og aðrar afurðir. Innflutningur til Islands er að stórum hluta byggur á þátttöku íslenzkrar verzlunarstéttar í er- lendum vörusýningum og skilning- ur manna almennt vex óðfluga á þessu mikilvirka markaðstæki. Mörgum finnst að skemmtanalíf okkar í þessu landi sé fremur fábrotið. Ekki er hægt að sakast við neina sérstaklega um þetta. I raun réttri er þetta að mestu leyti afleiðing fámennisins. Þess vegna er það e.t.v. ekki eins merkilegt og sumum kann að finnast, þegar vel gerðar vörusýningar draga til sín fjórðung þjóðarinnar eða meir á fáum dögum. Það er ótrúlega mikil tilbreyting frá hinu hefðbundna skemmtanalífi okkar, að ganga um sýningar eins og bílasýningin að Bíldshöfða var. Til viðbótar þeirri þekkingu, sem þar fæst í bifreiðum og samanburði verða og gæða, sem mörgum mmun í hag koma nú og síðar, þá er þetta viðburður í borgarlífinu og fyrir alla lands- menn og hin bezta skemmtun að ganga þarna um sali. Maður verður því dálítið undr- andi, þegar menn taka sér penna í hönd, og agnúast yfir því að inngangseyrir á þessa sýningu skuli vera 800.- krónur. Ég held ég hafi séð fleiri en einn pistil í blöðunum, þar sem að þessu var fundið, og hefði frekar mátt búast við einhverjum viðurkenningar- orðum. Auðvitað hafa flest blöð sýnt þessu ágæta framtaki Bíl- greinasambandsins verðuga at- hygli, og auðvitað hugsar þorri almennings eitthvað svipað því sem ég skrifa hér, en ég gat ekki stillt mig um að setja þessar hugsanir á blað, eftir að ég borgaði 800,- krónur í fiskbúðinni áðan fyrir tvo rauðmaga. Bl. sk.“ • Þungt kerfi Faðiri — Mér finnst kerfið í kring- um útvegun ökuleyfis á bifhjól eða létt bifhjól heldur þungt í vöfum. Strákurinn minn var að fá sér svona hjól og til að fá réttindi þarf skoðun á hjólið hans og því þarf hann að fá sér sendibíl í bifreiða- eftirlitið með hjólið og fá á það skoðun og síðan er því er lokið þarf hann að fara í próf til lögreglunn- ar og þangað þarf hann einnig að taka sendibíl með hjólið, því ekki ekur hann því þangað próflaus. Mér finnst að lögreglan ætti að hafa hjá sér einhverja hjólatík, sem hægt er að láta strákana taka prófið á. Meðan á núverandi kerfi stendur þarf sem sagt að taka sendibíl á leigu hingað og þangað með hjólið til að öðlast skoðun fyrir það og ökuréttindin, en til að fá prófið verður að hafa skoðað hjól og þess vegna þarf að fara þangað fyrst. Þetta kerfi þyrfti að einfalda. Þlðpife í Kaupmannahöfn FÆST í BLAÐASÖLUNNI ÁJÁRNBRAUTAR- STÖÐINNI • Hætt búninga- leigu Þóra Borg kvaðst vilja fá að benda á það af marggefnu tilefni að hún væri löngu hætt að leigja út búninga ýmiss konar t.d. fyrir grímuböll, en hún hefði svo mikið ónæði af þessum hringingum og fyrirspurnum að óþolandi væri. Kvað hún þessar hringingar bæði í síma og á öllum dyrabjöllum hússins trufla heimilisfrið íbú- anna, og ekki aðeins hjá sér heldur jafnvel hjá nágrönnum. Á sama hátt bað hún að þess yrði getið að hún væri löngu hætt að leigja út kjólföt og pípuhatta og hún hefði aldrei átt skautbúning, en hún fengi sífelldar hringingar varð- andi það kringum 17. júní. HÖGNI HREKKVÍSI Er þetta þroskaleikfang? Hávaða- og titringsmælingar Briiel & Kjær, Danmörku mun halda námskeiö og sýningu á hávaða- og titringsmælum og meöferö þeirra. Námskeiöiö veröur haldiö þriöjudaginn 9. maí aö Hótel Loftleiðum. Nánari uppl. hjá umboösmönnum Briiel & Kjær, Rafís h.f. í síma 86620 alla virka daga milli kl. 13—17. ■ig Wesper hitablásarar fyrirliggjandi í eftirtöldum stæröum: 2500 k.cal 12800 k.cal. — 17600 k.cal. Sérbyggöir fyrir hitaveitu og þeir hljóölátustu á markaönum. Vegna óreglulegs viötalstíma þá hringiö í næstu viku á milli kl. 12—13. Helgi Thorvaldsson, Háageröi 29, Reykjavík, sími 24932. Happdrætti Lionsklúbbsins Fjölnis Vinningsnúmer Nr. 23.911 26“ Luxor litsjónvarpstæki. Nr. 11.739 20“ Sharp litsjónvarpstæki. Nr. 18.249 20“ Sharp litsjónvarpstæki. Nr. 10.809 20“ Sharp litsjónvarpstæki. Nr. 14.074 Sólarlandaferð með Sunnu, á kr. 15.000,— Nr. 926 Sólarlandaferð með Sunnu, á kr. 100.000.— Nr. 20.068 Sólarlandaferð með Sunnu, á kr. 100.000.— Nr. 18.208 Sharp ferðaútvarpstæki. Nr. 9.303 Sharp ferðaútvarpstæki. Frá Tónlistarskólanum í Reykjavík Vortónleikar skólans veröa haldnir í Austurbæjar- bíói laugardaginn 6. maí kl. 2.30 síödegis. Mjög fjölbreytt efnisskrá. Velunnarar skólans velkomnir á tónleikana. Morgunblaðið óskar eftir blaðburðarfólki Vesturbær Nýlendugata. Upplýsingar í síma 35408 EFÞAÐERFRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU AUGLYSINGA- SIMINN KR: 22480

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.