Morgunblaðið - 30.05.1978, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 30.05.1978, Qupperneq 1
48 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI 111. tbl. 65. árg. ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 1978 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Vinstri stjóm í Reykjavík Formaður yfirkjörstjórnar, Björgvin Sigurðsson, les upp úrslitin í leikfimisal Austurbæjarskólans í fyrrinótt. Aðrir stjórnarmenn, sem eru á myndinni erui Helgi V. Jónsson, Hjörtur Torfason, Guðmundur Vignir Jósefsson og Ingi R. Helgason. Ljósm.: rax. □ ------------------------------------------------—----------------- □ Sjá forystuKrÞÍn □ ------------------------------------------------------------------. □ VINSTRI stjórn tekur við í Reykjavík næstu daga. Talsmenn Alþýðubandalags, Alþýðuflokks og Framsóknarflokks. sem sameigin- lega hafa meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur eftir úrslit borgarstjórnarkosninganna á sunnudag lýstu því yfir í gær, að þeir hygðust standa saman að myndun meirihluta í borgarstjórn. Sjálfstæðisflokkurinn, sem frá 1930 hefur farið með stjórn borgarinnar missti meirihlutann, er Alþýðubandalagið felldi 8. mann flokksins og kom sjálft 5 mönnum að í borgarstjórn. Hefur Birgir ísleifur Gunnarsson nú látið af starfi borgarstjóra eftir að hafa gegnt því í 5 ár. Mjótt var á mununum milli 5. manns G-listans og 8. manns D-listans. Niðurstöðutölur eftir talninguna, sem lauk í fyrrinótt klukkan 05,25 voru þær, að A-listinn hafði fengið 6.261 atkvæði og 2 menn kjörna, B-listinn hafði fengið 4.367 atkvæði og 1 mann kjörinn, D-listinn hafði fengið 22.109 atkvæði og 7 menn kjörna og G-listinn hafði fengið 13.862 atkvæði og 5 menn kjörna. Sjálfstæðisflokkurinn hélt meirihluta sínum í Seltjarnarnesi, í Garðabæ og Mosfellssveit, en missti meirihluta sinn í Bolungar- vík, Njarðvíkum og Gerðum, Blönduósi og Hveragerði. Frá síðustu bæjarstjórnarkosn- ingum var breyting á fylgi flokk- anna miðað við kaupstaði lands- ins. Sjálfstæðisflokkurinn tapaði 9,1%, Alþýðubandalagið jók fylgi Framhald á bls. 31 Birgir ísleifur Gunnarsson í viðtali við Morgunblaðið: Sýnum fulla einbeitni en sanngimi í stjómar- andstöðu í borgarstjóm Morgunblaðið sneri sér í gær til Birgis ísl. Gunnarssonar, og leitaði álits hans á úrslitum borgarstjórnarkosninganna og þeim viðhorfum, sem af þeim leiða. Birgir ísleifur Gunnarsson var í upphafi spurður, hvað hann vildi segja almennt um kosninga- úrslitin og tap Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórnar- kosningunum. Hann sagðii — Kosningaúrslitin hafa valdið mér vonbrigðum. Ég gerði mér að vísu ávallt grein fyrir því, að þetta væri tvísýn kosning og hamraði mikið á því í kosningabaráttunni. Þrátt fyrir það var ég innst inni vongóður um, að meirihlutinn mundi haldast, þótt tæpt yrði. Sú staðreynd, að við höfðum 9 borgarfulltrúa, gerði það að verkum, að það var erfitt að sannfæra fólk um að hætta væri á ferðum ,og þar við bættist áróður andstæðinganna um að meirihlutinn væri öruggur og spurningin væri fyrst og fremst um að sýna honum aðhald. Mér hefur fundizt þessi kons- ingabarátta um margt lík kosn- ingunum 1966, en þá stóð mjög svipað á, 9 borgarfulltrúar og Sjálfstæðisflokkurinn í stjórn- arforystu. Þá misstum við 9. manninn og sveiflan niður á við stöðvaðist rétt fyrir ofan 8. manninn. Nú vorum við óheppnir að því leyti, að sveiflan staðnæmdist rétt fyrir neðan 8. manninn. Ég er í engum vafa um, að margt fólk, sem í hjarta sínu átti erfitt með að hugsa sér vinstri stjórn í Reykjavík, var andvaralaust af þessum sökum og það sést m.a. af því, hve kjörsókn var miklu minni en fyrir 4 árum. — Telur þú, að staðan á vettvangi landsmála hafi átt þátt í þessum kosningaúrslit- um? — Ég er ekki í nokkrum vafa um það, að landsmálin hafa haft veruleg áhrif í þessum kosning- um. Þáð er söguleg staðreynd, að Sjálfstæðisflokknum vegnar alltaf betur í borgarstjórnar- kosningum þegar hann er í stjórnarandstöðu, og ver þegar hann er í stjórnaraðstöðu. Nú bættist sérstaklega við þessir miklu erfiðleikar, sem við hefur verið að stríða í efnahagsmálum og kjaramálum. Þessir þættir hafa haft veruleg áhrif á úrslit þessara kosninga. — Fylgisaukning Alþýðu- bandalagsins í Reykjavík hefur vakið mikla athygli. Hverjar telur þú helztu ástæður hennar? — Þessi mikla fylgisaukning Alþýðubandalagsins kom mjög á óvart. Ég var viss um, að þeir höfðu meðbyr í þessum kosning- um, en að sveiflan yrði jafn mikil og raun bar vitni um, hafði ég ekki gert mér grein fyrir. Ég held, að persónulegar vinsældir Guðrúnar Helgadótt- ur hafi átt verulegan þátt í þessu, svo og óánægja margra launþega með afstöðu ríkis- stjórnarinnar til kjaramála. — Nú þarf að mynda nýjan meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur. Mun Sjálfstæðis- flokkurinn leita eftir samstarfi við aðra flokka um myndun nýs meirihluta? —• Andstöðuflokkarnir hafa þegar gefið mjög ákveðnar yfirlýsingar um það, að þeir ætli að reyna að mynda meirihluta og starfa saman þetta kjörtíma- bil, þannig að ég held, að aðrir möguleikar séu ekki í myndinni eins og er. Á það verður að reyna, hvort þeim tekst að ná samstöðu í þeim veigamiklu málum, sem þeir hafa verið ósammála um til þessa. — Hvernig mun Sjálfstæðis- flokkurinn haga stjórnarand- stöðu sinni í borgarstjórn Reykjavíkur? — Við erum að sjálfsögðu reiðubúnir til samstarfs við borgarfulltrúa annarra flokka um öll góð mál, sem til heilla Framhald á bls. 31

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.