Morgunblaðið - 30.05.1978, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 30.05.1978, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGINN 30. MAÍ,J97B. Kópavogur* „tlrslitin ævintýri líkust“ • „Þessi úrslit eru ævintýri líkust fyrir okkur alþýðuflokksmenn hér í Kópavogi sem annars staöar. Við höfum bætt ótrúlega miklu við okkur,“ sagði Guðmundur Oddsson, efsti maður á lista Alþýðuflokksins, sem bætti við sig mestu fylgi í Kópavogi við kosningarnar í fyrra- dag. Þeir fengu nú tvo fulltrúa kjörna en höfðu áður einn. Guðmundur kvað það alveg ljóst að þessi úrslit mætti túlka sem beina refsingu við núverandi ríkisstjórn og hennar aðgerðir að undanförnu. Þá heföi það auðvitað mikið að segja að sjálfstæðismenn gengju nú klofnir til leiks og unga fólkið hefði í miklum mæli komið til Alþýðu- flokksins. „Þessi úrslit eru aðeins upphafið að stórsókn Alþýðuflokksins um allt land, sem nú er hafin,“ sagði Guðmundur að síðustu. Þá ræddi Mbl. við Axel Jónsson efsta mann á lista sjálfstæðismanna sem nú fékk tvo fulltrúa kjörna í stað fjögurra áður og sagði hann m.a. „Ég lít svo á að hér sem annars staðar á landinu hafi ekki verið kosið um bæjarmálin heldur hafi lands- málin átt þarna óeðlihega mikinn þátt, sagði Axel Jónsson. Ég gat alls ekki fundið það á kjósendum fyrir kosningar að þeir væru á neinn hátt óánægðir með okkur sjálfstæðismenn í bæjarstjórn og ég held að svo hafi einnig verið um andstæðinga okkar. Þá var fólk nokkuð hikandi og óánægt með það.að sjálfstæðismenn skyldu ekki bera gæfu til að bjóða fram einn lista, og hefur efalaust margt af því fólki setið heima og ekki kosið. Hvað varðar meirihlutamyndun sagði Axel að það myndi eflaust vefjast fyrir mönnum þar sem lágmark væri að þrír listar kæmu sér saman, þar sem engir tveir hefðu nægilegt fylgi. Um samstarf við S-lista sagði Axel að það kæmi ekki annað til greina en að sjálfstæðis- menn ynnu saman í framtíðinni þrátt fyrir þann ágreining sem hefði einkennt þessa kosningabaráttu. Að síðustu ræddi Mbl. við Guðna Stefánsson efsta mann á S-lista — lista sjálfstæðisfólks, sem bauð nú fram í fyrsta skipti og fékk einn mann kjörinn. „Við S-listamenn erum bærilega ánægðir með útkomuna í bæjar- stjórnarkosningunum hér hvað okk- ur varðar, aftur á móti er það slæmt að sjálfstæðismenn skuli tapa hér manni, og almennt er hið mikla. tap Sjálfstæðisflokksins um land allt mjög alvarlegt, sagði Guðni Stefáns- son. Guðni kvaðst óttast það ef vinstri stjórn tæki völdin í bæjarstjórninni, og sagði af því vera mjög slæma reynslu hér áður fyrr. Hann sagði S-lista menn vera tilbúna til sam- starfs um myndun meirihluta í bæjarstjórninni og sagði jafnframt að það yrði þeirra fyrsta verk að ræða við D-listamenn, þ.e. lista Sjálfstæðisflokksins um samvinnu. Að síðustu sagðist Guðni vera undrandi á því mikla fylgi sem Alþýðuflokkurinn hefði fengið í Kópavogi. Koflavík: „Fyrst og fremst döm- ur fólks um núverandi ríkisstjórn“ •„Það er ekki hægt að loka augunum fyrir því, að þetta er fyrst og fremst úrskurður fólks um núverandi ríkisstjórn. Sérstaklega á þessu svæði, því hér hafa þeir fylgt í fótspor vinstri stjórnarinnar og sett okkur hreinlega út af „sakra- mentinu" í einu og öllu,“ sagði Ólafur Björnsson, efsti maður á lista Alþýðuflokks í Keflavík sem vann stóran sigur í bæjarstjórnar- kosningunum á sunnudag, í samtali við Mbl. í gær. Þá sagði Olafur það einnig að mál væri komið að stjórnvöld færu að fá þessar syndir í höfuðið því „við Suðurnesjamenn tilheyrum nú enn- þá íslandi". „Þá er það einnig greinilegt að Alþýðuflokkurinn er í mikilli sókn, fyrst og fremst er að ungt fólk flykkist til fylgis við okkur. Og við höfum haft hér alveg frábærlega lifandi áhuga í starfi,“ sagði Ólafur að síöustu. Þá ræddi Mbl. við Ingólf Halldórs- son 2. mann á lista sjálfstæðismanna sem töpuðu einum fulltrúa yfir til Alþýðuflokks. „Eg átta mig satt bezt að segja ekki á neinni skýringu í sambandi við bæjarmálin hjá okkur á því að við töpum þarna einum fulltrúa og fáum nú aðeins 3 menn kjörna," sagði Ingólfur Halldórsson. „Skýringarninnar hlýtur að vera að leita í sambandi við landsmála- pólitíkina. Þar höfum við Suður- nesjamenn verið nokkuð afskiptir, sérstaklega varðandi atvinnumálin. Til þessa hafa engar viðræður farið fram um myndun nýs meiri- hluta bæjarstjórnar, en ég tel ekki óeðlilegt að kratar hafi að því frumkvæði þar sem segja má að þeir séu hinir raunverulegu sigurvegarar í kosningunum," sagði Ingólfur að síðustu. Hafnarfjörður: „Vonbrigði að 5. mað- urinn skyldi falla“ • „Það eru mér auðvitað viss vonbrigði að halda ekki inni 5. fulltrúanum í bæjarstjórn, sér- staklega þar sem það munaði mjög litlu að það hefðist," sagði Arni Grétar Finnsson efsti maður á lista sjálfstæðismanna í Hafnar; firði í samtali við Mbl. — I kosningunum fékk flokkurinn 4 fulltrúa en hafði 5 áður. „Eigi að síður er þetta fylgi svipað og það sem við fengum 1970. Og sé miðað við það sem gerðist um allt land held ég að okkar hlutur sé ekki slæmur. Ástæðurnar fyrir þessu tapi er fyrst og fremst að leita í þeim erfiðleikum sem ríkt hafa í efnahagsmálum þjóðarinnar allt frá dögum vinstri stjórnarinnar. Það bitnar beint á stjórnarflokk- unum, þó svo að það sé ekki eðlilegt að bæjarmálin séu sett til j hliðar. Þetta sést einnig glöggt á I tapi framsóknarmanna sem til ; þessa hafa verið taldir hafa j tryggasta fylgi allra. Okkar staða í bæjarmálum fyrir þessar kosningar var mjög sterk og þess vegna kemur það enn frekar á óvart að 5. maðurinn skuli falla. Nú ekkert hefur verið rætt um nýjan meirihluta en það er ekkert í sjálfu sér sem útilokar sama meirihluta aftur, það er sjálfstæðismenn og óháðir, en það skýrist nú fljótlega. Við sjálfstæðismenn höfðum mikinn áhuga á að fylgja þeim málum eftir sem við erum þegar byrjaðir á svo sem varanlegri gatnagerð. — Nú við sjálfstæðis- menn í Hafnarfirði eigum hér tpausta stuðningsmenn eins og úrslitin sýna. Ég vil sérstaklega nota þetta tækifæri til að þakka þeim fjölmörgu sem unnu mikið og óeigingjarnt starf við undirbúning kosninganna." Ekki tókst Mbl. að ná sarnbandi við fulltrúa Alþýðubandalagsins, sem vann fulltrúa af sjálfstæðis- mönnum. Akureyri: „Tek þess- ar ófarir sjálfstæðis- • „Mér er skapi næst á þessari stundu að segja að oft og víða sé meira um framboð en eftirspurn. En að slepptu þessu gálgagamni verð ég að segja eins og er, að ég tek ófarir sjálfstæðismanna á Akureyri nærri mér,“ sagði Gísli Jónsson, efsti maður á lista sjálfstæðismanna á Akureyri, sem í bæjarstjórnarkosn- ingunum tapaði tveimur fulltrúum af fimm. Þessar ófarir komu mér á óvart miðað við undirbúning og undirtekt- ir, þótt ég fyndi seinni hluta sunnudagsins að eitthvað uggvæn- legt væri á seyði. Hitt er þó hverjum sjálfstæðismanni sárast að sjá Reykjavík falla. Fyrir löngu sagði ég og margir aðrir að vandamál þjóðar- búsins og aðgerðir ríkisstjórnarinn- ar ætti að leggja fyrir kjósendur í alþingiskosningum fyrr en sveitar- stjórnarkosningar færu fram. Hættan, sem fylgdi því að fara öfugt að, er nú komin fram með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Rétt er þó að hafa í huga að Sjálfstæðis- flokkurinn er ennþá langstærsti flokkur þjóðarinnar og hér á Akur- eyri er hann einnig stærsti flokkur- inn. Tapið nú er minna en aukningin 1974. Fylgið sem við fengum þá í hundraðatali frá öðrum flokkum hefur nú horfið til baka, einkum til Alþýðuflokksins. Sögulegast við þessar kosningar á Akureyri nú er að Alþýðuflokkurinn er nú orðinn mun stærri en Alþýðubandalagið. Sjálfstæðismenn á Akureyri munu að sjálfsögðu ekki láta deigan síga en reyna að standa við gefin loforð um víðleitni til að fegra og bæta bæinn. Umboð það sem við báðum um til að gangast fyrir myndun nýs meiri- hluta í bæjarstjórn höfum við ekki fengið frá kjósendum að þessu sinni. í Frumkvæðið að meirihlutamyndun kemur trúlega frá þeim sem mestan ! meðbyr hafa fengið um sinn. Stærsti flokkur bæjarins hleypur hins vegar ekki frá þeirri ábyrgð sem honum er á herðar lögð. Frambjóð- endur Sjálfstæðisflokksins á Akur- eyri þakka öllum þeim er unnu fyrir þá með ráðum og dáð, einkum skrifstofufólki, ritstjóra Islendings og öðrum trúnaðarmönnum, sem oft lögðu nótt við nýtan dag í störfum sínum. Ennfremur fjölda sjálfboða- liða sem lagði á sig mikið erfiði af dugnaði og ósérhlífni. Árangur þessa starfs kemur betur í ljós þó síðar verði. Ekki tókst Mbl. að ná sambandi við fulltrúa Alþýðubandalagsins, sem að þessu sinni vann einn fulltrúa til viðbótar þeim eina sem þeir höfðu fyrir. Isafjörður: „Sjálfstæð- isflokkur- inn geldur landsmála“ • Á ísafirði er Guðmundur H. Ingólfsson efsti maður á iista Sjálfstæðisflokksins, en flokkurinn hélt þeim fjórum fulltrúum í bæjar- stjórn sem hann hefur haft á liðnu kjörtímabili. Þegar Morgunblaðið hafði samband við Guðmund kvaðst hann ekkert vilja láta hafa eftir sér um kosningaúrslitin, en sagöi að það yrði að bíða þar til að loknum flokksfundi um málið. Kristján Jónasson var efsti maður á lista Alþýðuflokksins á ísafirði. Þar hafði flokkurinn einn fulltrúa en fékk nú tvo. Kristján hafði þetta að segja: „Úrslitin eru mjög ánægjuleg fyrir Alþýðuflokkinn hér á ísafirði, en þó höfðum við gert okkur vonir um þriðja manninn og fórum langt með að ná því takmarki. Þetta er mikil fylgisaukning Alþýðuflokksins þegar miðað er við að síðast buðum við fram sameiginlega með Samtök- um frjálslyndra og vinstri manna og óháðum, og það bandalag fékkþrjá fulltrúa. Skýringin á þessari aukn- ingu er sú að þrátt fyrir það að Sjálfstæðisflokkurinn heldur full- trúum sínum þá tapar hann miklu fylgi, en Alþýðuflokkur og Sjálf- stæðisflokkur hafa verið i meiri- hlutasamstarfi á kjörtímabilinu. Því liggur beinast við að ætla að þessi kosningaúrslit hér á ísafirði séy bein afleiðing þess að Sjálfstæðisflokkur- j inn gjaldi landsmálanna jafnhliða j sveiflu til Alþýðuflokksins," sagði j Kristján Jónasson á Isafirði. Fáskrúðsíjörður: „Við héld- um okkar hlut fyllilega“ • „Það er ágætt hljóð í okkur sjálfstæðismönnum á Fáskrúðsfirði, við héldum okkar hlut fyllilega í Frá kjörstað í Hafnarfirðii Matthías A. Mathiesen, fjármálaráðherra ræðir við tvo góðborgara í Firðinum, Stefán Sigurðsson (Stebba í Stebbabúð) og konu hans Laufeyju Jakobsdóttur. manna nærri mér“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.