Morgunblaðið - 30.05.1978, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 30.05.1978, Blaðsíða 13
13 MÖRGUNBkAÐIÐ ÞRIÐJUDAGINN 30. MAÍ 1978. ■ ;r- n I ... i 'I ...■— ....... Silfurtún heitir ein gróðra- stöðin á Flúðum í Ilraun- mannahreppi. Þar býr Örn Einarsson garðyrkjubóndi ásamt konu sinni. Marit. og tveimur börnum, Erni Krist- jáni og Erlu Björgu. Örn og Marit hafa rekið Króðrarstöð- ina í tíu ár og búa í fallegu einbýlishúsi. sem með sanni má segja það standi í miðjum aldingarði. því að tómatar eða rauðaldin eins og það heitir á málvöndunaríslenzku eru þeirra sérsvið. — Mest höfum við ræktað tómata, en einnig erum við með allmikla útirækt, blómkál, hvít- kál og rófur. í svona ræktun skiptir meiginmáli að takmarka sig við sem fæstar tegundir, — það er eiginlega forsenda þess að reksturinn geti borið sig, segir Örn. — Ég hef lagt verulega áherzlu á útiræktun- ina, enda er svo komið að hún er það eina, sem þolir aukningu ef tekið er mið af því hvað markaðurinn þolir, en undan- Hundurinn á bænum er stæði- legur og þó nokkuð aðsópsmik- ill. og hann er mun hærri í loftinu en hún Erla Björg, sem lætur sig samt ekki muna um að siða hann ofurlítið til þegar á þarf að halda. í bflskúrnum f Silfurtúni er hænsnanýlenda. byggð fáeinum ættstórum mektarfuglum, svo scm „brún- um ítölum“. og þar á meðal er alveg sérlcga tignarlegur og skrautlegur hani. Örn bjargaði þessu fiðurfé undan fallöxinni á sínum tíma. Síðan hafa hænsnin verið á hans framfæri þarna í bflskúrnum. en hann segist ekki gera sér neinar gyllivonir um búdrýgindi fyrir þejrra tilstilli. Örn. Marit og Örn Kristján annast öll störf í gróðrarstöð- inni. að undanskildu því að um hásumarið er bætt við einni aðstoðarstúlku. Marit er frá Þelamörk og kynntust þau hjónin þegar Örn var við garðyrkjunám í Noregi. Útiræktin það eina sem þolir aukningu •• _ — segir Orn Einarsson garðyrkjubóndi farið hefur þeim farið fækkandi sem stunda útirækt. — Þú minnist á markaðsmál. Hvað hefur verið gert til þess að skipuleggja markaðsmál garð- yrkjubænda að undanförnu? — Markaðsmálin hafa lengi verið til verulegra vandræða í þessum atvinnuvegi, en nú virðist loks vera að rakna úr þeim. Framleiðsluráð land- búnaðarins hefur sýnt þessu mikla hagsmunamáli okkar garð.vrkjubænda góðan skilning og hefur tekið vel í okkar mál að undanförnu. Til dæmis ætlar framleiðsluráðið á næstunni að aðstoða okkur við ýtarlega markaðskönnun, sem á að taka til landsins alls, og þegar niðurstöður hennar liggja fyrir ætti að vera hægt að gera eitthvað róttækt til að skipu- leggja ræktun og sölu betur en gert hefur verið, bæði í sam- bandi við grænmeti og blóm. — Nú þykir mörgum dýrt að kaupa blóm hér á íslandi. Hver er ástæðan fyrir því að þau eru svo miklu dýrari hér en í nágrannalöndunum? — Ég tel að markaðsmálin séu veigamikill þáttur í þessu. Það er ekki fjarri sanni að milliliðar fái um helming þess verðs, sem garðyrkjubóndinn fær fyrir blómin, og afleiðingin hefur svo orðið sú að yfirleitt lítur fólk á blóm sem dýran hégóma eða sem munaðarvöru, sem einungis sé hægt að veita sér til hátíðarbrigöa. í ná- grannalöndunum kaupir al- menningur kynstrin öll af blóm- um, og þarf ekki annað en að benda á að til dæmis í Dan- mörku eru pottablóm á boðstól- um í venjulegum kjörbúðum eins og hver önnur nauðsynja- vara. Islenzkir garðyrkjubænd- ur hafa mikinn áhuga á því að lækka verðið til neytenda og stækka þannig blómamarkað- inn, en á meðan núverandi sölufyrirkomulag er við lýði er þetta tómt mál að tala um, segir Örn. — Það, sem við garðyrkju- bændur væntum okkur mikils af, er blóma- og grænmetis- markaður í Reykjavík. Þetta mál hefur verið á döfinni í nokkur á, en það eru nú ýmis ljón í veginum. Kaupmenn hafa verið þessari markaðshugmynd afar mótfallnir og hafa til dæmis hótað að hætta að verzla með þessa vöru ef Sölufélag garð.vrkjumanna fer út í slíkan rekstur. Það er augljóst mál, að þeir, sem hafa heildsöluna með Framhald á bls. 35 Fyrsti aðalfundur Orkubús Vestfjarða: Lokaáfangi línulagn- ar til Bolungarvík- ur stærsta verkið Fyrsti aðalfundur Orkubús Vestfjarða var haldinn í Félags- heimilinu í Ilnífsdal s.l. laugar- dag. Orkubúið. sem er sameignar- félag sveitarfélaganna á Vest- fjörðum og rikisins. var stofnað á grundvelli laga nr. 66 frá 1976. Þar segir m.a. að tilgangur Orkubúsins séa ð hafa á hendi alla orkuöflun og orkudreifingu í fjórðungnum. bæði á sviði raf- orku og jarðvarma. Eignahlutföll eru þannig. að sveitarfélögin eiga 60% hlutafjár en ríkissjóður 40%. Árið 1975, skipaði iðnaðarráð- herra, Gunnar Thoroddsen, orku- nefnd Vestfjarða, sem undir for- sæti Þorvalds Garðars Kristjáns- sonar alþingismanns undirbjó stofnun orkubúsins. Fyrstu stjórn O.V. skipuðu Guðmundur G. Ing- ólfsson formaður, Ólafur Kristj- ánsson, og Össur Guðbjartsson af hálfu heimamanna og Jóhann Bjarnason tilnefndur af iðnaðar- ráðuneytinu og Engilbert Ingvars- son af hálfu fjármálaráðuneytis- ins. O.V. var stofnað 26. ágúst 1977 en hóf rekstur orkumannvirkja á Vestfjörðkm 1. janúar s.l. Á aðalfundinum kom fram, að upphygging O.V. gengur vel. Fyrir- tækið skiptist í 3 deildir undir yfirstjórn Kristjáns Haraldssonar verkfræðings. Fjármáladeild er stjórnað af Sveinbirni Óskarssyni viðskiptafræðingi, Hönnunar- og áætlunardeild er stjórnað af Aage Steinssyni tæknifræðingi og Rekstrar- og framkvæmdadeild er undir stjórn Jakobs Ólafssonar tæknifræðings. Starfsmannafjöldi er um 60. Á aðalfundinum var afgreidd framkvæmdaáætlun ársins 1978. Þar er gert ráð fyrir framkvæmd- um að upphæð 553,6 millj. króna. Auk þess var samþykkt að taka 150 millj. kr. lán hjá Orkusjóði, sem nota á til byrjunarfram- kvæmda við byggingu fjarvarma- veitu á ísafirði. Stærsta verkefni þessa árs er lokaáfangi línulagnar frá Mjólkárvirkjun í Arnarfirði til Bolungarvikur og aðveitustöðvum fyrir dreifikerfið. F'rumgerð af framkvæmdaáætlun ársins 1979 var einnig samþykkt á fundinum. Gert er ráð fyrir að framkvæma fyrir. 1000 milljónir króna, en af þeim er ætlað að véita 390 milljónir til fjarvarmaveitna í þrem byggðakjörnum. Mikill einhugur ríkti á fundin- um, um að halda áfram uppbygg- ingu orkubúsins og var stjórnin endurkjörin einróma. Úlfar r Arleg reið- hjólaskoðun hefst í næstu viku LÖGREGLAN og umferðarnefnd Reykjavíkur efna til reiðhjóla- skoðunar og umferðarfræðslu fyr- ir börn á aldrinum 7—14 ára dagana 1.—6. júní n.k. Dagskráin verður sem hér segir: Fimmtudagur 1. júní: Fellaskóli kl. 9.30, Hlíðaskóli kl. 11.00, Melaskóli kl. 14.00 og Austurbæjarskóli kl. 15.30. Föstudagur 2. júní: Vogaskóli kl. 9.30, Langholtsskóli kl. 14 og Breiðagerðisskóli ki. 15.30. Mánudagur 5. júní: Hólabrekkuskóli kl. 9.30, Álfta- mýrarskóli kl. 14.00 og Laugarnes- skóli kl. 15.30. Þriðjudagur 6. júní: Fossvogsskóli kl. 9.30, Hvassaleit- isskóli kl. 11.00, Breiðholtsskóli kl. 14.00 og Árbæjarskóli Jd. 15.30. Börn úr Landakotsskóla, Vest- urbæjarskóla, Öskjuhlíðarskóla, Skóla ísaks Jónssonar og Æfinga- deild K.H.Í. eiga að mæta við þá skóla, sem næstir eru heimili þeirra. Þau börn, sem hafa reiðhjól sín í lagi, fá viðurkenning- armerki Umferðarráðs 1978. Samvinnuskólinn: 44 annarsbekk- ingar og 17 stúdent- ar brautskráðir Samvinnuskólanum að Bifröst var slitið hinn 1. maí. í Bifröst var í vetur 81 nemandi, þar af 37 í 1. bekk og 44 í 2. bekk. Luku annarsbekkingar allir burtfarar- prófi frá skólanum. I skólaslitaræðu skólastjóra, Hauks Ingibergssonar, kom m.a. fram, að s.l. vetur voru haldin í samvinnu við Kaupfélag Borgfirð- inga í Borgarnesi verzlunarnám- skeið fyrir nemendur í 2. bekk. Fóru námskeiðin fram í Borgar- nesi, og dvöldu tveir nemendur þar í senn í vikutíma, og er þetta annað árið í röð, sem slíkt samstarf er á milli Samvinnuskól- ans og Kaupfélags Borgfirðinga. Æskulýðsráð íslands hefur viður- kennt félagsmálanám í skólanum sem fullgilt kennaranám. Efstar á burtfararprófi úr 2. bekk urðu Lára Ágústa Snorradóttir, Pat- reksfirði, sem hlaut 8,84, Guðbjörg Skúladóttir, Borgarfirði, 8,75, og Guðlaug Baldvinsdóttir, Dalvík með 8,71. Framhaldsdeild Samvinnuskól- ans í Reykjavík var slitið hinn 11. maí. Þar gengu til prófs 16 nemendur í 3. bekk, sem allir luku prófum, og 18 nemendur í 4. bekk. Luku 17 þeirra stúdentsprófi, en hinn átjándi mun ljúka prófi síðar á árinu. Efst á stúdentsprófi varð Vil- borg Hauksdóttir, sem hlaut 8,67, önnur varð María Jónsdóttir með 8,57, og þriðja Steinunn Jónasdótt- ir með 8,50. Aðrir nýstúdentar voru Andrés Magnússon, Arnar Gr. Pálsson, Ásgerður Þorsteins- dóttir, Guðbjörn Smári Hauksson, Guðjón Kristjánsson, Kristín Ein- arsdóttir, Kristján Skarphéðins- son, Ragnar Jóh. Jónsson, Ragn- heiður Jóhannsdóttir, Sigurjón Ingi Ingólfsson, Svanhildur Árna- dóttir, Úlfar Reynisson, Vilhelm- ína Þ. Þorvarðardóttir og Vil- hjálmur Sigurðsson. seljum • Gluggatjaldaefni og húsgagnaáklæði úr bómull og ull — 450 tegundir • Kókos- og sísalgólfteppi — 25 tegundir. • Leðursófa og stóla — húsgögn í samkomusali og fundaherbergi — sérhönnuð húsgögn handa öldruðum. Við leggjum sérstaka áherslu á vandaðar og vel hannaðar vörur úr náttúruefnum, sem endast vel og vinna á með aldrinum. Vörur, sem menn geta verið stoltir af að hafa á heimili sínu. epol V/Laugalæk Reykiavíh V/Laugalæk Reykjavík — sími 36677 Opið mánudaga — föstudaga frá kl. 14—18.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.