Morgunblaðið - 30.05.1978, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 30.05.1978, Blaðsíða 21
21 MÖRGJlJNBLiAÐIÐ ÞRIÐJUDAGINN 30. MAÍ 1978. Landsliðið leikur í Noregi í kvöld í KVÖLD leikur ísland sinn fyrsta landsleik í flokki 21 árs og yngri. Mótherjarnir verða Norðmenn og leikið verður í Fredriksstad. Landsliðið hélt utan í gær og er væntanlegt heim aftur á morgun. Það verður fróðlegt að sjá hvar íslendingar standa í þessum aldurshópi, samanborið við frændur okkar Norðmenn, en eins og kunnugt er hefur tveimur síðustu A-landsleikjum þjóðanna lokið með sigri Islendinga. Sigurmöguleikar ættu að vera töluverðir nú, enda skipa íslenska liðið margir af snjöllustu knattspyrnumönnum landsins. 15 ára kylfingur vann SIGURVEGARINN í Michelin-golfkeppninni hjá Golfklúbbi Suðurnesja, um helgina varð Gylfi Kristinsson, 15 ára kylfingur úr Keflavík. Leikin var punktakeppni með forgjöf. Alls mættu 50 golfmenn til leiks þrátt fyrir slæmt veður báða daga keppninnar. Gylfi lék 36 holur á 159 höggum, var hann með 6 í forgjöf. Annar varð Björgvin Þorsteinsson GA, á 152 höggum, er hann með 1 í forgjöf. Þriðja sætið hlaut svo Júlíus Júlíusson GK, lék á 158 höggum. Hannes Eyvindsson lék á 159 höggum og hálfdán Þ. Karlsson á 159. W Ovænt úrslrt ÞRIÐJA umferð 1. dcildar í knattspyrnu fór fram um helgina, fyrir utan einn leik sem varð að fresta. Umferðin bauð upp á þau óvæntu úrslit að nýliðarnir í deildinni Þróttur, lögðu hið harðsnúna lið Víkings af velli 2—0. Á myndinni sjáum við markvörð Þróttara Rúnar Sverrisson grípa knöttinn eftir eina af fjölmörgum sóknum Víkinga í leiknum. Um leiki helgarinnar má lesa á bls. 22, 23, 24, 25, 28. • Heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu hefst á fimmtudag. AUar þátttökuþjóðirnar eru mættar til leiks. og hefur mikill iburður fylgt komu flestra liðanna til Argentínu, t.d. var ritað á flugvél þá er flutti Skotanai „Argentína here we come“. Meðfylgjandi mynd var tekin við komu heimsmeistaranna V Þjóðverja. Leikmennirnir klæddust allir til höfuðsins argentínskum kúrekahöttum. Þjálfarinn frægi Schön er fyrir miðju á myndinni og veifar blómvendi sem honum var færður við komuna. Skíðanámskeið á Langjökli Þórunn hlaut af- reksbikarSSÍ ÞÓ AÐ sumar sé gengið í garð notar skíðafólk enn tækifærið og fer á skíði ef vel viðrar. Undanfar- in sumur hafa unglingar á suð- vesturhorninu notað þá aðstöðu sem er við Langjökul og Húsafell til skíðaiðkana. Keppniskrakkar skíðafélaganna í Reykjavík hafa byrjaö sumarþjálfun og virðist þetta heppilegur tími til að bæta tækni sína og læra eitthvað nýtt. I sumar vprfta tvii námskpiA fyrir ungljnga og eru þau opin fyrir alla sem hug hafa á. Upplýs- ingar um námskeið þessi gefur Tómas Jónsson, s. 75706, og er hann jafnframt kennari á þeim. Góður og mikill snjór er nú í Leik ÍBV og FH frestað LEIK ÍBV og FH í 1. deildinni í knattspyrnu sem fram átti að fara í Vestmannaeyjum á laugardag var frestað. Ekki var flogið til e.vja. Ekki hefur verið ákveðið hvenær leikurinn fer fram. hliðum Langjökuls og toglyftan er opin fyrir allan almenning um helgar. Greiðfært er á bílum að toglyftunni. SUNDMÓT Ármanns fór fram í sundlauginni á Laugardal á laugardag. Árangur var frekar góður miðað við árstíma en aðstæður óhagstæðar. er keppnin fór fram. Keppt var um afreks- bikar sundsambands íslands á mótinu en hann er veittur fyrir besta afrekið samkvæmt stiga- töflu. Þórunn Alfreðsdóttir hlaut bikarinn og fékk hún 677 stig fyrir árangur sinn í 200 metra fjórsundi 2.36.1, sem er nýtt íslenskt met. í stigakeppninni var Sonja Hreiðarsdóttir í öðru sæti með 674 stig. Helztu úrslit mótsins urðu þesjsii 200 m flugsund karla Axel Alfreðsson Æ 2,23,4 mín. 200 m fjórsund kvenna Þórunn Alfreðsdóttir Æ 2,36,1 nýtt ísl. met. 100 m skriðsund karla Bjarni Björnsson Æ 57,5 sek. 50 m baksund telpna Þóranna Héðinsdóttir Æ 36,9 sek. 200 m bringusund kvenna Sonja Hreiðarsdóttir Æ 2,55,0 mín. Þórunn Alfreðsdóttir 200 m bringusund karla Hermann Alfreðsson Æ 2,44,3 mín. 100 m skriðsund kvenna Þórunn Alfreðsdóttir Æ 1,04,3 mín. 50 m skriðsund drengja Ingi Þór Jónsson ÍA 27,4 sek. 200 m fjórsund karla Axel Alfreðsson Æ 2,25,9 mín. 100 m flugsund kvenna Þórunn Alfreðsdóttir Æ 1,11,17 mín. 100 m haksund karla Bjarni Björnsson Æ 1,07,9 mín. 4x100 m fjórsund kvenna Sveit Ægis 5,07,7 mín. 1x200 m skriðsund karla Sveit Ægis 8,52,9 mín. -ÞR. Fjögur met Á innanfélagsmóti Ægis er fram fór í Sundhöllinni í Reykjavík síöastliðinn föstu- dag voru sett fjögur ný íslandsmet. Þórunn Alfreðsdóttir setti nýtt met í 50 m baksundi, 34,0 sek. Sveit Ægis setti nýtt met í 4x50 metra fjórsundi kvenna, 2,18,4 mín. og karla- sveit sama félags setti met í 4x50 metra fjórsundi 1,59,0 mín. Þá setti Sonja Hreiðars- dóttir stúlknamet í 400 metra fjórsundi synti vegalendina á 5,29,4 mín. Ágúst leikurí V-Þyskalandi IIANDKNATTLEIKSMAÐURINN góðkunni Ágúst Svavarsson. sem Iék með sænska liðinu Drott síðastliðinn vetur. hefur undirritað samning við lið í V Þýskalandi. Lið það er Ágúst hefur gert samning við er Tus Spenge. Leikur það í annarri deild. Hafnaði liðið í áttunda sæti síðasta keppnistímabil. Ágúst sagði í stuttu spjalli við Mbl. T gær, að sér hefði tekist að ná mjög góðum samningi við liðið, og því undirritað samning til tveggja ára. Þó hefur hann uppsagnarmöguleika, líki honum ekki hjá liðinu. Spenge er 40.000 manna bær um það bil 100 krn frá Hannover, og enn skemur frá Minden en þar búa þeir Axel Axelsson og Ólafur Jónsson og leika með 1. deildar liöinu Dankersen. Sænska liðið Drott sýndi verulegan áhuga á að halda í Ágúst, en eins og kunnugt er var hann markhæsti leikmaður liðsins á síðasta keppnistímabili. Tilboð það er Ágúst fékk freistaði hans hins vegar ekki og fór hann þá að leita fyrir sér í V-Þýskalandi. Er tilboðið kom frá Spenge gerði Drott gagntilboð, en Ágúst tók frekar tilboði þýska liðsins. - þr.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.