Morgunblaðið - 30.05.1978, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGINN 30. MAÍ 1978.
Sama hlutf aU sósíalista 1946
og Alþýðubandalagsins nú
SÍÐAN Sjálfstæðisflokkurinn var stofnaður og bauð í fyrsta sinn fram
í bæjarstjórnarkosningum í Reykjavík á árinu 1930 hefur hann haft
meirihluta en fylgi sveiflast allmikið, eins og sést á hlutfallstölum á
meðfylgjandi töflu, sem sýnir að flokkurinn hefur mest haft 57,7%
atkvæða 1958 og aftur 1974, en minnst 47,7% á árinu 1970 og nú aftur
1978 47,5%.
Nokkrum sinnum áður hefur legið við að Sjálfstæðisflokkurinn missti
meirihlutann. Svo var t.d. 1934, þegar 101 atkvæði munaði á 8. manni
Sjálfstæðisflokksins og 6. manni Alþýðuflokksins. Einnig 1942, þegar 114
atkvæða munur var á 8. manni Sjálfstæðisflokksins og 4. manni
Alþýðuflokksins og 1966, þegar 128 atkvæða munur var á 8. manni
Sjálfstæðisflokksins og 3. manni Framsóknarflokksins. Og nú er ekki nema
8 atkvæða munur á 5. manni Alþýðubandalagsins og 8 manni
Sj álfstæðisflokksins.
Frá 1930 hafa 15 fulltrúar verið kosnir í senn til fjögurra ára í
Reykjavík. Fyrstu bæjarstjórnarkosningar fóru fram 1836 og voru
bæjarfulltrúar þá 4. Árið 1836 var þeim fjölgað í sex, 1872 í níu og 1902
í 11 og 1908 í 15. En frá 1908 til 1930 var kjörtímabil bæjarfulltrúa sex
ár og voru þá kosnir fimm bæjarfulltrúar á tveggja ára fresti.
Á meðfylgjandi töflu sést að fylgi Alþýðuflokksins hefur farið
minnkandi hlutfallslega síðan 1930. Þá hafði Alþýðuflokkurinn 34,53%
atkvæða. Og svo var raunar fyrr, þegar yfirleitt buðu sig fram aðeins tveir
flokkar, Borgaraflokkur og Alþýðuflokkur, sem hafði t.d. 1918 41,7%, 1920
34,1%, 1922 36,2% og 1926 39,7%.
„Vegið hart að okkur
úr þremur áttum”
— segir Salome Þorkelsdóttir í Mosfellssveit
„HÉR eins og sums staðar annars
staðar var kosið um samstæðan
meirihluta Sjálfstæðisflokksins
eða sambræðslu vinstri flokkanna
eftir kosningar. Vinstri mönnum
tókst ekki að koma sér saman um
einn lista, þeir vildu hver fyrir sig
kanna fylgi sitt og kosningabar-
áttan einkenndist mjög af þessu
og var harðari og pólitískari en
áður,“ sagði Salóme Þorkelsdóttir,
efsti maður á lista Sjálfstæðis-
flokksins í Mosfellssveit. Þar hélt
Sjálfstæðisflokkurinn sfnum
meirihluta, fékk 4 fulltrúa af sjö
sem fyrr.
„Það var vegið hart að okkur
sjálfstæðismönnum úr þremur átt-
um, en við stóðumst þessa raun,
ekki sízt fyrir það hvað samstaðan
í okkar röðum var góð og fólkið
duglegt við að vinna. Vil ég þakka
okkar stuðningsfólki fyrir veitt
traust og nú er aðeins að standa sig
og halda áfram með þau málefni,
sem við höfum unnið að,“ sagði
Salóme.
„Landspólitíkinni óskyn-
samlega blandað sam-
an við bæjarmálin”
— segir Garðar Sigurgeirsson í Garðabæ
„ÚRSLIT sveitarstjórnarkosning-
anna í Garðabæ sýna ótvírætt að
landsmálapólitfkinni hefur aivar-
lega og óskynsamlega verið bland-
að við bæjarmáiin,“ sagði Garðar
Sigurgeirsson efsti maður á lista
sjálfstæðismanna í Garðabæ í
samtali við Mbl. f gær.
„Ég tel þessa þróun bæði skað-
lega hagsmunum bæjarbúa og
ósanngjarna gagnvart fólki sem
heilshugar gefur kost á sér til að
vinna að sameiginlegum málum
okkar, Sjálfstæðismenn í Garðabæ
efndu til prófkjörs þar sem kjós-
endur létu ótvírætt í ljós stuðning
við frambjóðendur flokksins. Að
þessu sinni fengum við mjög
nauman meirihluta sem gerir það
að verkum að engin kona verður
hér í bæjarstjórninni næsta kjör-
tímabil, sem er mjög miður. Og
andstæðingar okkar berja sér á
brjóst yfir sigri, sem þeir hafa í
engu til unnið.
Þetta tækifæri vil ég að sjálf-
sögðu nota til að þakka innilega
öllu því fólki sem tryggði áfram-
haldandi meirihluta Sjálfstæðis-
flokks í bæjarstjórn og Garðabæ
þannig ábyrga stjórn. Sérstakar
þakkir færi ég þeim stóra hópi
sjálfstæðisfólks sem við kosn-
ingarnar vann mikið og ósérhlífið
starf í þágu bæjarins," sagði
Garðar að síðustu.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn Seltjarnarness, talið f.v.. Sigurgeir Sigurðsson bæjarstjóri,
Magnús Erlendsson forseti bæjarstjórnar, Snæbjörn Ásgeirsson, Júlíus Sólnes og Guðmar E. Magnússon!
Sem kunnugt er hélt Sjálfstæðisflokkurinn meirihlutafylgi sínu á Seltjarnarnesi.
Ljósm.: Kr.Ól.
„Höldum áfram að
gera góðan bæ betri”
— segir Sigurgeir Sigurðsson á Seltjamamesi
„VIÐ höfum treyst rétt á dóm-
grcind fólksins og það kann
auðsjáanlega að meta það sem
bæjarstjórnin hefur gert fyrir
það og bæjarstjórnarmeirihlut-
inn mun halda áfram sínu striki,“
sagði Sigurgeir Sigurðsson 1.
maður á lista Sjálfstæðis-
flokksins á Seltjarnarnesi, en þar
hélt Sjálfstæðisflokkurinn sinum
meirihluta er með 5 af sjö
bæjarfulltrúum sem fyrr.
„Við höfum alla tíð reynt að
vinna málefnalega að málefnum
bæjarins og það sem vinir mínir og
félagar víða um land hafa blandað
landsmálunum inn í sveitar-
stjórnarkosningarnar, þá getum
við sagt sem svo, að þrátt fyrir
landsmálin, þá höfum við haldið
okkar fylgi,“ sagði Sigurgeir.
„Að sjálfsögðu höldum við nú
áfram að gera góðan bæ betri, en
ég neita því ekki að fyrir
kosningarnar vorum við smeykir
um að missa fimmta manninn,
fyrst og fremst af þeirri ástæðu,
að þegar við fengum fimmta
manninn 1974, þá fengum við hann
meira fyrir tilviljun að okkar mati
og þá eftir óvinsæla vinstri stjórn.
Svo gerðist það að andstæðingar
okkar komu af stað rógsherferð
um núverandi bæjarstjórnar-
meirihluta og starfsaðferðir hans,
núna rétt fyrir kosningarnar og ég
held að þeir hafi unnið
kosningarnar fyrir okkur með
róginum, og þökkum við þeim
fimmta manninn.
Þá vil ég þakka Seltirningum vel
fyrir veittan stuðning og við
ætlum ekki að bregðast þeim
frekar en fyrr,“ sagði Sigurgeir að
lokum.