Morgunblaðið - 30.05.1978, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGINN 30. MAÍ 1978.
11
Guðjón Steingrímsson
endurkjörinn formaður
Lögmannafélags Islands
AÐALFUNDUR að Hótel Loftleið-
um í Reykjavík fyrir nokkru.
Formaður félagsins Guðjón
Steingrímsson, hrl. flutti skýrslu
stjórnar vegna liðins starfsárs. I
upphafi minntist hann 2ja látinna
félagsmanna, þeirra Lárusar Jó-
hannessonar, hrl. og Sigurðar
Guðjónssonar, bæjarfógeta í 01-
afsfirði og vottuðu fundarmenn
hinum látnu virðingu.
Formaður félagsins rakti störf
stjórnar og nefnda félagsins. Sagði
hann, að sem fyrr hefði veruleg
vinna verið í það lögð að leysa
ágreiningsefni á milli lögmanna og
umbjóðenda þeirra en gat þess
jafnframt að slíkum málum færi
fækkandi. Þá hefði stjórn félags-
ins borist allmörg lagafrumvörp
til umsagnar og gerði formaður
einkum grein fyrir frumvarpi um
hlutafélög og öðru um gjaldþrota-
skipti. Þá rakti formaður ýmis
innanfélagsmálefni.
Við stjórnarkjör var Guðjón
Steingrímsson, hrl. endurkjörinn
formaður félagsins, en aðrir í
stjórn eru Hákon Árnason hrl.
varaformaður, Jón E. Ragnarsson
hrl. meðstjórnandi, Stefán Páls-
son, hdl. ritari og Skarghéðinn
Þórisson, hdl. gjaldkeri. I vara-
stjórn eru nú Helgi V. Jónsson,
Rit Sögu-
félags Is-
firðinga
komið út
ÁRSRIT Sögufélags ísfirðinga er
nú komið út í 21. sinn og er
fjölbreytt að vanda.
Meöal efnis í ritinu nú er ritgerð
dr. Kristjáns Eldjárns forseta
íslands um listaverk séra Hjalta
Þorsteinssonar í Vatnsfjarðar-
kirkju. Þá ritar Lýður B. Björns-
son um saltvinnslu á Vestfjörðum
og saltverkið í Reykjanesi við
Djúp. Bárður Jakobsson skrifar
grein um landnám á Bolungarvík
og eitt og annað af þeim slóðum.
Jens Hólmgeirsson ritar um
ostagerðarmanninn Jón Á. Guð-
mundsson frá Þorfinnsstöðum og
Ostagerðarfélag Önfirðinga. Jó-
hann Gunnar Ólafsson bætir við
fyrri frásögn sína um kirkjustóla
úr Hraunskirkju í Keldudal.
Gunnar Guðmundsson frá Hofi
skrifar grein um Hof i Dýrafirði
og fornar grafir í Dýrafirði og
Jóhannes Davíðsson ritar um
Villingadalshjónin á Ingjaldssandi
og um kornmyllur.
Myndir eru í ritinu af listaverk-
um séra Hjalta í Vatnsfirði og
einnig af hvalveiðistöðvunum í
Framnesi og á Sólbakka.
í fréttatilkynningu frá Sögufé-
laginu segir að fyrsti árgangur
ritsins hafi lengi verið ófáanlegur,
en hafi nú verið ljósprentaður í
litlu upplagi.
MS MS MS
2WI
jjjjp rrE3
sjF IjjP
AUGLÝSINGA- TEIKNISTOFA MYNDAMÓTA Ad.ilstræti 6 simi 25810
hrl., Ólafur Axelsson, hdl. og Jón
Magnússon, hdl.
Nokkrar umræður urðu um
félagsmálefni og má nefna að
Hákon Árnason, hrl. gerði grein
fyrir tillögum að nýjum siðaregl-
um Lögmannafélags Islands.
Gætti þar ýmsra markverðra
nýmæla.
Skrifstofa félagsins er sem fyrr
að Óðinsgötu 4 undir stjórn
Arnbjargar Guðbjörnsdóttur.
(Fréttatilkynning)
Stjóm Lögmannafélags íslands frá vinstrii Jón E. Ragnarsson hrl.
meðstjórnandi. Hákon Árnason hrl. varaformaður. Guðjón Steingríms-
son hrl. formaður. Stefán Pálsson hdl. ritari og Skarphéðinn Þórisson
hdl. gjaldkeri.
Bifreiðaeigend-
ur halda fund 1
Stykkishólmi
Stvkkishólmi 26. maí.
í STYKKISHÓLMI s.l. sunnudag
var haldinn almennur fundur
bifreiðaeigenda að frumkvæði
FÍB. Framsögumenn voru Árni
Emilsson, sveitarstjóri í Grundar-
firði, og Sveinn Torfi Sveinsson,
verkfræðingur í Reykjavík. Þá
voru mættir fuiltrúar frá FÍB og
eins vegagerðarmenn.
Það kom greinilega fram á
fundinum að almenn óánægja er
með hlut Vesturlandskjördæmis í
vegamálum og þá sérstaklega á
Snæfellsnesi. Þykir það hafa mest
orðið útundan við vegagerð og
viðhald vega.
Urðu miklar umræður um vega-
Framhald á bls. 35
Eru
Mendin
útíaoa
Já margir hverjir, það fer ekkert milli mála - þó eru þeir
sérstaklega úti að aka ásumrin - þáskipta þeir þúsundum.
Ástæðan?
Jú ástæðan er einföld, hún er sú að afsláttarfargjöld
okkar gera öllum kleift að komast utan ísumarleyfi til þess
að sjá sig um, kynnast frægum stöðum - og gista
heimsborgir.
Þeir sem þannig ferðast ráða ferð-
inni sjálfir - sumir fara um mörg
lönd - aðrir fara hægar yfir og
halda sig lengst þar sem
skemmtilegast er.
Það þarf engan að undra
þótt margir séu úti að aka á
sumrin - á eigin bílum eða
leigðum bílum.
Kynntu þér afsláttarfargjöld
okkar - þau gætu komið þér
þægilega á óvart - og orðið til
þess að þú yrðir líka úti að aka í
sumar.
^íicfélac LOFTLEIDIR
/SLAJVDS